Tíminn - 15.07.1982, Blaðsíða 1

Tíminn - 15.07.1982, Blaðsíða 1
„Friður á jörðu” - eftir Gunnar á Reynivöllum - bls. 8-9 TRAUST OG FJÖLBREYTT FRÉTT ABLAÐ! Fimmtudagur 15. júlí 1982 158. tbl. - 66. árgangur ■ Fjölmennur hópur ungnienna: félagsmanna frá Oanmörku, Noregi og Svíþjóö er nú staddur hér á landi. I gær var hópurinn i heimsókn hjá V'igdisi Finnbogadóttur. forseta Is- lands. á Bessastöðum. ilópurinn verður hér í tíu daga og niun hann ferðast eitthvað um landið. A mvndinni sést forsetinn heilsa einum hinna norrænu gesta. Slæmar heyskaparhorf ur vid Isafjardardjúp: NIÐURSKURDUR BÚPENINGS OG UPPFLOSNUN SVEITAFÓLKS? ■ „Það eru margir hektarar af túnum á mörgum bæjum hér i Djúpinu sem ekkert er orðið nema brunamelur, gulur og svartur og gróðurlaus. Jörðin er orðin skræld svo langt niður að allar jurtarætur eru uppþomað- ar“, sagði Jens Guðmundsson bóndi í Bæjum i Snæfjalla- hreppi í samtali við Tímann í gær. En það vestra sagði hann varla hafa komið dropa úr lofti siðan hætti að snjóa í vor. Uthag'a kvað hann lítið betri og kvað marga bændur - sem enn eiga eitthvað af heyi - enr. fóðra kýr á heyi og kjarn- fóðri. Ekkert blasi nú við annað en niðurskurður búpenings í haust og uppflosnun fólks úr sveitunum i kjölfar þess. Þótt ástandið sé sem betur fer óvíða svona slæmt horfir þó mjög illa með heyskap um stóra hluta landsins. Nær stöðugir þurrkar hafa verið allt siðan í apríl/maí i vor í Þingeyjarsýslum, Austurlandi og Austur-Skaftafellssýslu og tún þvi víða þurrkbrunnin og dauð á þessum svæðum. Einnig er töluvert um kal á Austurlandi. Nánar er sagt frá þessum dapurlegu heyskaparhorfum á bls. 6. HEI ■ Karólína prínsessa af Monakó á fullri ferð. Furstahjónin af Mónakó hingað með 200manna lið: LEIGJA FLUGVÉLAR AF ARNAR- FLUGI OG FLUG- LEIÐUM ■ Þota frá Amarflugi og Fokkervél frá Flugleiðum hafa veríð teknar á leigu til þess að flytja furstahjónin af Mónakó og fylgdarlið þeirra, sem er á miUi 200 og 300 manns, yfir tU Grænlands, þegar þau koma hingað um miðjan ágúst. Furstahjónin munu koma hingað á stóru lystiskipi og samkvæmt heimildum blaðsins munu einhverjar hinna frægu dætra þeirra verða með i för. Hafa ýmsar ráðstafanir verið gerðar af opinberri hálfu til þess að greiða för þeirra, meðan þau dvcljast hérlendis. Hér er um skemmtisiglingu fjöl- skyldunnar að ræða en ekki er vitað hvaða staði þau hyggjast heimsækja, að heimsókn til Grænlands undan- skilinni, meðan þau dveljast á fslandi, eins og áður segir. Mikil leynd hefur hvilt yfir þessum undirbúningi og verjast talsmenn flugfélaganna og opinberra aðila allra fregna af nánari atvikum heimsóknarinnar. Munu furstahjón- in hafa óskað eftir að heimsóknin færi sem hljóðast framan af, til þess að forðast athygli og ónæði. _ AM. Ríkisstjórnin ákveðin í að takast á við efnahagsvandann segir Steingrfmur: AÐGERÐIR VEGNA IÍT- GERÐAR ÞOLA EKKI BW — almennar efnahagsráðstafanir nauðsynlegar um mánaðamótin ■ „Byrjunarráðstafanir vegna vanda útgerðarinnar þola enga bið og erum við í raun komnir þar í tímaþröng. Almennar efna- hagsráðstafanir þola svo ekki lengri bið en til næstu mánaða- móta,“ sagði Steingrimur Her- mannsson eftir fund í þingflokki og framkvæmdastjórn Fram- sóknarflokksins, þar sem væntan- legar efnahagsráðstafanir voru ræddar i sex klukkustundir i gær. -Er ríkisstjórnin ákveðin í að takast á við þessi vandamál en hlaupast ekki undan merkjum? „Sem betur fer hef ég aldrei heyrt annað innan ríkisstjórnar- innar. Á fundinum i gær voru reifaðar hugmyndir um efnahags- aðgerðir og mun í næstu viku verða haldinn framhaldsfundur, um þær. Rekstrarvanda útgerðar verður að leysa strax og almenn- ar efnahagsráðstafanir koma í kjölfarið11, sagði Steingrimur. Sjá 3. siðu. O.O.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.