Tíminn - 20.07.1982, Blaðsíða 1
Hlíðargarðshátíd Vinnuskóla Kópavogs — bls. 16-17
TRAUST OG
FJÖLBREYTT
FRÉTTABLAÐ!
Þriðjudagur 20. júlí 1982
162. tbl. - 66. árgangur
Heimilis-
tíminn:
Verd-
könnun
- bls. 10
Herskár
bls. 7
reiður
— bls. 2
Reykja-
víkur-
leikar
— bls. 12-13
árekstur milli fólksflutningabifreidar og
steypubíls á Vesturlandsvegi í gærmorgun
TVÍTUGUR MAÐUR LÉST
OG SEXTAN SLÖSUÐUST
■ Tuttugu og cins árs gamall maður
lést og sextán voru fluttir í sjúkrahús,
þar af tvennt alvarlega slasað, eftir
mjög harðan árekstur milli steypubíls
frá BM Vallá og fólksflutningabíls,
sem varð á Vesturlandsveginum, móts
við Lágafell, laust fvrir klukkan átta í
gærmorgun.
Bílarnir óku hvor á móti öðrum,
fólksflutningabíllinn kom úr Reykja-
vík en steypubíllinn úr Mosfellssveit-
inni. Af einhverjum ástæðum fór
ökumaður steypubilsins yfir á öfugan
vegarhelming þegar nálgaðist afleggjar-
ann að Lágafelli. Rétt vestan við
afleggjarann lentu svo bilarnir saman.
Höggið var mjög mikið og talið er að
ökumaður steypubílsins hafi látist
samstundis. Þeir sem verst urðu úti i
fólksflutningabilnum voru ökumaður-
inn og kona sem sat i fremsta sæti.
Konan var enn talin í lífshættu siðast
þegar fréttist. Ökumaðurinn var hins
vegar talinn úr lífshættu þrátt fyrir
mikil meiðsl. Aðrir, samtals 14, sem
fluttir voru á sjúkrahús voru ekki
mikið slasaðir.
Maðurinn sem lést hét Þórir Baldvin
Þorkelsson, fæddur 2. ágúst 1961, til
heimilis að Njarðarholti 9 í Mosfells-
sveit. Hann var ógiftur og barnlaus.
Farþegar fólksflutningabilsins voru
allir starfsmenn á Reykjalundi og
Álafossi. Voru þau á leið til vinnu.
- Sjó
Sjá nánar bls. 3.
■ Svo harður var áreksturinn að steypubfllinn næstum snerist við á götunni. Fólksflutningabfllinn hins vegar hélt áfram talsverðan spöl og valt út af veginum
þegar hann var kominn um sjötiu metra frá árekstrarstað. Ljósm. S.
Sala á gjaldeyri farið vaxandi undanfarnar vikur:
GJALDEYRISSALAN 30%
MEIRI EN í JÚNÍ '81
■ „Gjaldeyrirssalan í bönkunum hef-
ur verið mjög mikil undanfarnar vikur
og með vaxandi þunga alveg síðan i
vor,“ sagði Sigurður Jóhannesson í
Gjaldeyrisdcild Seðlabankans að-
spurður í gær. En fréttamanni Timans
var sagt það af einum bankaútibús-
stjóra borgarinnar að gifulegar annir
hafi verið i gjaldeyrisafgreiðslu bank-
ans undanfarnar vikur.
Að sögn Ólafs Tómassonar hjá
Greiðslujafnaðardeild Seðlabankans
varð gjaldeyrissala i júnímánuði s.l.
yfir 30% meiri en í sama mánuði i
fyrra, samkvæmt bráðabirgðatölum.
Séu bornir saman fyrstu 6 mánuðir
ársins sagði hann gjaldeyrissöluna
vera um 17% meiri en á sama timabili
árið áður. Verðbólgu í helstu við-
skiptalöndum okkar sagði hann talda
á bilinu 7 - 10%. Gjaldeyrissala hér
hefur því aukist töluvert umfram það
sem verð hefur hækkað erlendis.