Tíminn - 20.07.1982, Side 20

Tíminn - 20.07.1982, Side 20
VARAHLUTIR Sendum um land allt Kaupum nýlega bíla til niðurrifs Sími (91 > 7 - 51. (91) 7 - 80- 30. Skem muvegi 20 Kópiivngi HEDD HF. Mikið úrval Opid virka daga 919 Laugar daga 10 16 HEDD HF. Gagnkvæmt tryggingaféJag w labriel HÖGGDEYFAR QJvarahlutir Armúla 24 Sími 36510 ÞRIÐJUDAGUR 20. JULI 1982. Alain Levent leikstjóri leggur leikurunum lifsreglumar, áður en næsta taka hefst. Leikaramir era 12 talsins og þeirra á meðal er einn íslendingur, Friðrik M. Hauksson (Timamynd Róbert) ■ „Ætlunin er að kvikmyndunin taki fimm vikur. Þetta er fyrsti dagurinn sem kvikmyndað er, en á miðvikudag verður haldið úr bænum og kvikmyndað úti á landi, við Gullfoss og á ÞingvöUum og i nágrenni Heklu. Þá verður haldið norður og kvikmyndað i grennd við Öskju, sagði EirikurTh. Thorstcinsson, sem er frönskum sjónvarpsmönnum til halds og trausts við gerð kvikmyndar um svaðilför nokkurra Frakka yfir hálendi Islands. Frakkarnir voru mjög önnum kafnir, þegar við litum við uppi i sjónvarpi í gær og allir töluðu i hvíslingum og læddust um á tánum, til þess að spilla ekki tökunum sem verið var að gera. Kvikmynd sú sem hér um ræðir nefnist „Ferðin yfir ísland" og byggir höfundur handrits, J.C. Barreau, á leiðangri sem hann tók þátt í hérlendis árið 1970. Efnisþráðurinn er eitthvað á þá leið að frönsk ferðaskrifstofa, sem kveðst skipuleggja ævintýraferðir, aug- lýsir gönguferð þvert yfir ísland. Nokkrir ferðamenn ráðast til fararinnar. Þeir hafa litla hugmynd um hvers vænta megi í ferðinni og eru illa undir hana búnir. Leiðangurinn reynist erfiður, - íslenskur kuldi, stormur og auðnir, Ferðin verður svaðilför hin mesta. Hópurinn er einangraður og í hinu ÁSTIR OG AFBRYÐI A HÁUENDI ÍSLANDS Franskir sjónvarpsmenn vinna ad gerd kvikmyndar um svadilför árid 1970 litla samfélagi magnast ástríður og afbrýði og hin smæstu atvik vaxa mönnum i augum. Fjórar persónur eru í myndinni, - Mathieu, hinn leyndar- dómsfulli fylgdarmaður frá ferðaskrif- stofunni, Philippe, sem á í sálarstriði vegna skilnaðar foreldra hans og Sylvie, ung stúlka sem i senn tengir þessa menn og skilur þá að. Leikstjórinn er Alain Levent, sem er fyrst og fremst þekktur sem kvikmynda- tökumaður og hefur unnið að einum 50 kvikmyndum með leikstjórum svo sem Claude Chabrol, Jean Luc Goddard, Agnes Varda, Pierre Schoendorffer, Jacques Rivette og fleirum. Hópurinn kom til íslands um síðustu helgi og telur hann 25 manns, þar af eru 12 leikarar. Með aðalhlutverk fara Fréderic de Pasquale, sem jafnframt er höfundur viðtala í myndinni, Pierre Francois Pistorio og Agnes Garreau. Einn islenskur leikari er i liðinu, en hann er Friðrik M. Hauksson, sem leikur íslenskan leiðsögumann. Myndin verður einnar og hálfrar klukkustundar löng og ætti gerð hennar að vera lokið i nóvember. Mun hún að líkindum verða sýnd i franska sjón- varpinu, „Antenne - 2 um jólaleytið og um likt leyti i íslenska sjónvarpinu, sem fær sýningarrétt endurgjaldslaust. - AM fréttir Hélt áfram eftir árekstur og veltu og endaði i fjörunni. ■ Hann var ekki á þeim buxunum að láta árekstur og veltu stoppa sig, jepp- inn, sem lagðist á hliðina í fjörunni Amarnessmegin við Kópavoginn i gær- kvöldi. Atvikin vom þau að jeppi á suðurleið eftir Hafnarfjarðarvegi, beygði til vinstri á Amarnesinu, inn á Bæjarbrautina. Hann ók í veg fyrir annan jeppa, sem var á norðurleið eftir Hafnarfjarðarveginum. Þeir rákust saman, en við áreksturinn valt sá siðar- nefndi, heila veltu og kom á hjólin aftur. í veltunni kastaðist ökumaður og tveir farþegar út úr bíln- um. Þar með var sagan ekki öll, þvi að jeppinn var enn í gangi, þegar hann kom á hjólin og i gir. Hann hélt þvi ferð sinni áfram, stjórnlaus en fyrir eigin orku, fór yfir vestari braut Hafnarfjarðarvegarins og siðan sem leið lá yfir urð og móa og létti ekki fyrr en hann valt á hliðina niður i fjöru. Enginn meiddist i árekstrinum. SV Humarveiði hættir ■ „Þetta hefur verið góð vertið, og sjálfsagt taka einhverjir sér fri, fram yfir verslunarmannahelgi,“ sagði Egill Jónasson verk- stjóri á Höfn, þegar Tíminn spurði hann hvernig stöðv- un humarveiðanna kemur við bátaflotann þar fyrir austan. Sjávarútvegsráðuneytið hefur tilkynnt að siðasti humarveiðidagurinn á þess- ari vertíð verði föstudagur- inn kemur, 23. júlí.Heildar- kvóti þessarar vertíðar var ákveðinn 2.700 tonn, en nú þegar hafa veiðst 2.600 tonn. Þess vegna eru veið- amar stöðvaðar nú. Egill sagðist ekki muna eftir að veiðamar hefðu verið stöðvaðar svo snemma fyrr, en menn hafi vitað hver kvótinn var og hljóti því að sætta sig við þetta. dropar Tognaði úr svæðinu ■ Fyrir nokkru sóttu borgar- yfirvöld um að fá breytt landnotkun á svæði í svonefnd- um Nýjum miðbæ, norðan Bústaðavegar, austan Kringlu- mýrarbrautar og vestan Háa- leitisbrautar. Erindið fór til Skipulagsstjórnar rikisins þar sem fjallað var um það og síðan samþykkt. Þegar borgar- yfirvöldum var tilkynnt um afgreiðsluna hafði hins vegar tognað heldur betur úr svæð- inu. I bréfi til þeirra var þess getið að samþykkt hefði verið breytt landnotkun á svæði norðan Bústaðavegar, vestan Kringlumýrarbrautar og austan Háaleitisbrautar. M.ö.o. samþykkt var breytt landnotkun á öllu svæði norð- an Bústaðavegar, að því svæði undanskildu sem farið var fram á breytingu á. Til allrar hamingju fylgdi nákæmur upp- dráttur bréfinu, þannig að ekkert fór á milli mála hvaða svæði átti í hlut, en það var nefnilega akkúrat það svæði sem hvergi er getið i bréfi Skipulagsstjóra rikisins. Hvor plataði hinn meira? ■ Það sem Dropar hafa frétt nýjast af samskiptum þeirra Magnúsar og Jóhanns, fyrrver- andi og núverandi eigenda Frjáls framtaks h.f., er að þeir séu komnir i hár saman útaf hvor hafi platað hinn meira þegar kaupsamningurinn var gerður. Magnús rak bókhalds- og ráðgjafaskrifstofu um nokk- urra ára bil áður en hann keypti Frjálst framtak. Félagi hans á skrifstofunni annaðist bókhaldið fyrir Jóhann Briem, að því er heimildir Dropa staðhæfa, og þannig hafði Magnús opið færi á að fylgjast vel með fjárhagsstöðu sérrita- útgáfunnar og hafi lengi lang- að til að eignast fyrirtækið og gerast forstjóri. Hann beið samt þolinmóður og fylgdist með fjárhag Jóhanns fara versnandi, þangað til Jóhann átti ekki kosta völ, annarra en verða gjaldþrota eða taka litlu tilboði Magnúsar. En Jóhann átti eitt og annað uppi i erminni, sem Magnús vissi ekki um og fékk ekkert að vita um fyrr en kaupin vom gerð. Aðallega munu það hafa verið lausaskuldir, sem fyrir- tækið bar ábyrgð á en vom ekki tiundaðar í samningun- um. Nú segir sagan að þeir kaupanautar berist á bana- spjótum, og einkum mun Magnús vera ákveðinn i að linna ekki fyrr en Jóhann hefur verið rúinn eignum og æra. Sagt er að hann hafi svo oft lýst þvi sem framundan er, fyrir konu Jóhanns, i símtölum að hún hafi um síðir flúið land. Krummi ... ....er þeirrar skoðunar að skipta megi um fleiri hausa á DV...

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.