Tíminn - 20.07.1982, Page 7
7
ÞAÐ styrkir hinn nýja utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna, George Shultz, i
erfiðri stöðu hans, að bæði utanríkis-
málanefnd öldungadeildar Bandaríkja-
þings og deildin sjálf hafa fallizt einróma
á tilnefningu hans. Shultztók formlega
við embættinu síðastliðinn föstudag eftir
að nefndin og deildin höfðu vottað
traust sitt á framangreindan hátt.
Þessi stuðningur þingsins mun gera
Shultz mun auðveldara en ella að hafa
áhrif á þróun mála, ef hann reynir að
beita þeim, en fer ekki eingöngu eftir
fyrirmælum Reagans og ráðgjafa hans í
Hvíta húsinu.
Að vanda kynnti utanríkismála-
nefndin sér skoðanir ráðherraefnisins
áður en hún tók afstöðu til útnefningar-
innar. Að sjálfsögðu lýsti Shultz sig
samþykkan stefnu forsetans í öllum
■ Shuitz að rxða við þingmenn í öldungadeildinni. Þingmaðurinn með röndótta
bindið er Charles H. Percy, formaður utanríkismálanefndarínnar
Begin vill innlima
Líbanon og Jórdaníu
Shultz fær stór og torleyst verkefni
megindráttum, m.a. afstöðu hans til
gasleiðslunnar miklu. Það er forsetinn,
sem ræður, sagði Shultz, og við vinnum
fyrir hann.
Mikill munur þótti á þessum yfir-
heyrslum og þeim, sem fóru fram í
sambandi við útnefningu Haigs í
utanríkisráðherraembættið. Haig þótti
stórbokkalegur og óklókur í svörum, en
Shultz var rólegur og mildur og forðaðist
miklar yfirlýsingar. Yfirheyrslan yfir
Haig tók fimm daga, en yfirheyrslan yfir
Shultz tvo daga.
Þrátt fyrir gætni Shultz, þóttu koma
fram hjá honum viss sjónarmið, sem
gætu bent til nokkurra breytinga á
utanríkisstefnunni.
Sultz lagði verulega áherzlu á bætta
sambúð við Arabarikin. Hann taldi
nauðsynlegt að leysa Palestínudeiluna
og yrðu fulltrúar Palestinumanna að
eiga aðild að lausninni, en ekki
tilgreindi hann nánar hverjir þessir
fulltrúar ættu að vera.
Eins og áður sagði, lýsti Shultz sig
fylgjandi afstöðu Reagans til gasleiðsl-
unnar miklu. Nánar aðspurður um
viðskiptalegar refsiaðgerðir sagðist
hann hins vegar yfirleitt álita, að þær
væru ekki heppileg leið til að leysa
pólitiskar deilur.
SHULTZ fær mörg vandamál til að
glima við, en tvö eru þó langstærst um
þessar mundir. Annað er Libanondeil-
an. Hitt er ósamkomulag Bandarikj-
anna og Vestur-Evrópu á sviði efnahags-
mála, sem hæglega getur leitt til
viðskiptastyrjaldar milli þessara aðila.
Sennilega snýr Shultz sér fyrst að
Libanondeilunni, því að hún er að verða
ógnun við heimsfriðinn, eins og fram-
kvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna lýsti
yfir nýlega.
Ljóst er að aðalleiðtogar ísraels um
þessar mundir, Begin og Sharon, láta sig
engu skipta, þótt þeir setji heiminn i bál
og brand. Fyrir þeim vakir að nota
Líbanondeiluna til að koma fótum undir
Stór-ísrael, sem nái bæði yfir Líbanon
og Jórdaníu.
Þetta kom glöggt i ljós fyrir helgina.
í fyrsta lagi var upplýst, að ísraelsstjórn
vill fá friðarsamning við Líbanon, sem
þýddi raunverulega að Líbanon yrði
leppríki ísraels. Í öðru lagi varpaði
Begin fram þeirri hugmynd, að ísrael og
Jórdanía mynduðu rikjasamband, sem
þýddi nánast að Jórdanía væri innlimað
í fsrael.
Hér er þvi orðið um miklu stærra mál
að ráð en að flytja skæruliða PLO frá
Beinít. Þótt það tækist, er meginmálið
eftir sem áður óleyst.
f upphafi innrásarinnar í Libanon
blekktu Begin og Sharon með þvi, að
þeir ætluðu að koma i veg fyrir, að
■ Begin
skæruliðar PLO gætu hafzt við á 40 km
breiðu svæði í Libanon við landamæri
ísraels. Þetta þótti ekki með öllu
ósanngjarnt. Nú er komið i ljós, að
takmark þeirra félaga er miklu meira.
Fái þeir félagar að nálgast þetta
markmið, getur það hæglega leitt til
heimsstyrjaldar. Bandaríkin ein geta
komið í veg fyrir það.
Fyrsta verkefni Shultz verður að
reyna að tryggja brottflutning skærulið-
anna frá Beirút. Það getur hann hins
vegar ekki, nema hann tryggi PLO og
Arabarikjunum eitthvað á móti. Um
það stendur nú þrasið. Sýrlendingar eða
aðrar Arabaþjóðir vilja ekki taka á móti
skæruliðunum fyrr en það er tryggt.
f dag munu fara fram mikilvægar
viðræður um þessi mál, en þá munu bæði
utanrikisráðherra Sýrlands og Saudi-
Arabiu heimsækja Reagan og ræða við
hann um þau.
Flogið hefur fyrir, að Shultz muni fá
Henry Kissinger til að vera til aðstoðar
við lausn þessara mála. Þeir voru miklir
mátar, þegar þeir áttu sæti i stjórn
Nixons. Haukarnir hafa hingað til staðið
gegn þvi, að Reagan noti sér starfskrafta
Kissingers.
NÚ í VIKUNNI munu þeir Reagan
og Shultz fá heimsókn, þar sem viðskipti
Bandaríkjanna og Vestur-Evrópu mun
einkum bera á góma. Gestur þeirra
verður Helmut Schmidt kanslari Vest-
ur-Þýzkalands. Aðalerindi hans verður
að ræða við þá um sambúð vestrænu
ríkjanna eða Efnahagsbandalagsrikj-
anna annars vegar og Bandarikjanna
hins vegar.
Schmidt mun m.a leggja áherzlu á, að
Bandarikjastjórn finni leið til að hætta
við að banna evrópskum fyrirtækjum að
nota bandarisk sérleyfi til hönnunar á
vélum til gasleiðslunnar miklu.
Leyfi þessi hafa verið greidd fullu
verði og verður Alþjóðadómstóllinn í
Haag sennilega látinn skera úr þvi, hvort
þetta bann Bandarikjastjómar og til-
heyrandi hótanir um refsiaðgerðir sam-
rýmist alþjóðalögum. Það yrði Banda-
ríkjastjóm áfall, ef úrskurður dóm-
stólsins gengi gegn henni.
Ýmsar sögusagnir herma, að Reagan
hafi komizt að þeirri niðurstöðu við
nánari athugun, að það hafi verið
bráðræði að fyrirskipa umrætt bann, en
það er til komið vegna þrýstings frá
haukunum. Hins vegar er hægara sagt
en gert fyrir hann að finna leið til að
fella það úr gildi.
Af hálfu Bandaríkjastjórnar er bann-
ið öðrum þræði rökstutt með því, að það
sé þáttur i refsiaðgerðunum vegna
herlaganna í Póllandi.
Bandarikjastjórn gæti þvi opnazt leið
til að aflýsa banninu, ef breyting yrði á
stjómarháttum i Póllandi. Sitthvað
bendir nú í þá átt að svo geti orðið.
Ýmsir leiðtogar óháðu verkalýðshreyf-
ingarinnar hafa verið leystir úr haldi að
undanförnu og spáð er, að fleiri fái frelsi
sitt á næstunni. Breyting hefur orðið á
stjórn pólska kommúnistaflokksins, sem
veikir áhrif harðlinumannanna og styrkir <
stöðu Jaruzelskis. Bersýnilega fara fram
viðræður milli hans og kirkjunnar um
frjálsari stjórnarhætti. Leiðtogar óháðu
verkalýðssamtakanna, sem hafa farið
huldu höfði, hvetja liðsmenn sína til að
forðast átök.
Ef þetta yrði þróunin i Póllandi, ættu
vestrænu ríkin að stuðla að henni með
því að fella niður refsiaðgerðimar, sem
beitt hefur verið beint og óbeint gegn
Pólverjum. Ef til vill opnast hér leið
fyrir Reagan og Sultz til að koma til móts
við Schmidt, þegar þeir ræðast við nú í
vikunni.
Þórarinn Þórarinsson,
ritstjóri, skrifar
erlendar fréttir
langþreyttur
■ Begin forsætisráðherra ísraels
sagði um helgina að hann væri
svartsýnn á að takast mætti með
sáttaumleitunum að fá lið PLO flutt
burtu frá Beirút. Sagði ráðherrann
að enginn árangur hafi orðið af
sáttaumleitunum þótt ísraelsmenn
hafi gengið að öllum þeim skilmálum
sem bandarískir sáttamenn hafi fyrir
þá lagt. Sagði Begin að ísraelsmenn
gætu gert snöggan enda á átökunum
við Palestinumenn, ef þeim byði svo |
við að horfa.
ísraelsmenn sögðu i gær að til I
nýrra átaka hefði komið á milli aðila
suður af Beirút. Hefðu Palestinu-
menn hafið skotárásif sem svarað var
að bragði af ísraelsmönnum.
f
ÉiSIP
ijtó'í,
■ ísraelskur herflokkur heldur uppi skotárás á PLO menn i Beirút.
EBE leidtogar treysta
á Bandarlkjamenn
■ Fundur forsætisráðherra Efna-
hagsbandalagsríkjahefurákveðið að
skipta sér ekki af sát’atilraunum i
Líbanon, vegna afskipta Bandaríkj-
anna til þess að ráða málunum til
lykta. Voru ráðherrarnir þó sam-
mála um að beina þeim tilmælum til
Bandaríkjamanna að þeir gæfu
hagsmunum PLO manna meiri
gaum.
Fagan ávítar lögmann sinn
■ Michael Fagan, maður sá er á
dögunum varð heimsfrægur fyrir að
laumast inn í Buckingham höll, þar
sem hann tyllti sér á rúmstokk
Elísabetar drottningar, var fyrir rétti
í London i gær. Mun hann ekki verða
ákærður fyrir þetta umrædda uppá-
tæki sérstaklega, heldur er meiri
áhersla lögð á tvö fyrri „innbrot“
hans i höllina, þar sem hann m.a. stal
flösku af vini. Fagan afþakkaði í gær
aðstoð verjanda sins við réttarhöldin
og fann honum það einkum til
foráttu að hann skyldi nefna drottn-
ingu á nafn við réttarhöldin, en það
kvaðst hann hafa fyrirboðið.
Hneyksli í lif-
verði drottningar
■ Foringi í lifverði Bretadrottning-
ar var sviptur embætti sinu i gær, er
uppvist var að hann hafði um
nokkurt skeið staðið i kynvillings-
sambandi við karlskækju nokkra.
Umræddur foringi hafði haft með
höndum vörslu utan konungshallar-
innar í Lundúnum um 12 ára skeið.
Kom þetta mál til umræðu i breska
þinginu í gær og hlaut Whitelaw
ráðherra lof þingmanna úr stjórnar-
andstöðunni fyrir að hafa lagt spilin
hreint á borðið í stað þess að þegja
yfir hneykslinu og láta það spyrjast
út i formi Gróusagna.
Átök í Suður Irak
■ Miklir bardagar geisa enn i írak,
samkvæmt fréttum Teheran útvarps-
ins i gær, en íranir segjast nú hafa
brotið á bak aftur gagnsókn íraka.
Ekki hefur heyrst af nýjustu átökum
frá frökum, en þeir segjast hafa fellt
á fjórða þúsund írani i striðinu í
grennd við Basra á fyrstu dögum
innrásarinnar. Þó var það haft eftir
aðstoðarforsætisráðherra íraka um
helgina að írakar væru mjög vel
undir næstu sókn frana búnir. íranir
hafa borið íraka þeim sökum að þeir
hafi gert árásir á staði innan
landamæra írans, sem ekkert gildi
hafi hernaðarleg, þ.á.m. sjúkrahús.
Heimsókn páfa frestað?
■ Utanrikisráðherra Pólverja, Jo-
sef Girek, er nú kominn til Páfagarðs
og hefur átt viðræður við Jóhannes
II til þess að ræða væntanlega
heimsókn hans til Póllands. Er Josef
Glemp, erkibiskup í Póllandi, einnig
staddur i Páfagarði. Segja fregnir að
vegna ástands mála i Póllandi kunni
svo að fara að fresta verði heimsókn
páfans.