Tíminn - 27.07.1982, Blaðsíða 4

Tíminn - 27.07.1982, Blaðsíða 4
ÞRIÐJUDAGUR 27. JÚLÍ 1982 |C\'%N^N^N^\'%.\’V\'%.\'%' Gröfur til að sitja á Póstsendum fréttir .eikfangahúsið kólovörðustíg 10, simi 1480'. Lestunar- áætlun GOOLE. Arnarfell........... 10/8 Arnarfell............ 23/8 Arnarfell............ 6/9 Arnarfell........... 20/9 ROTTERDAM: Arnarfell............ 29/7 Arnarfell........... 12/8 Arnarfell............ 25/8 Arnarfell............ 8/9 Arnarfell............ 22/9 ANTWERPEN. Arnarfell............ 30/7 Arnarfell........... 13/8 Arnarfell............ 26/8 Arnarfell............ 9/9 Arnarfell..«........ 23/9 HAMBORG: Helgafell............ 2/8 Helgafell ........... 21/8 Helgafell............ 10/9 HELSINKI: Dísarfell............ 13/8 Dísarfell............ 10/8 LARVÍK: Hvassafell........... 2/8 Hvassafell........... 16/8 Hvassafell...........30/8 Hvassafell...........13/9 GAUTABORG: Hvassafell........... 3/8 Hvassafell........... 17/8 Hvassafell........... 31/8 Hvassafell........... 14/9 KAUPMANNAHÖFN: Hvassafell........... 4/8 Hvassafell........... 18/8 Hvassafell........... 1/9 Hvassafell........... 15/9 SVENDBORG: Helgafell............ 3/8 Dísarfell............ 16/8 Helgafell............ 23/8 Helgafell............ 12/9 Dísarfell............ 14/9 AARHUS: Helgafell............ 5/8 Dísarfell............ 18/8 Helgafell............ 25/8 Helgafell............ 10/9 GLOUCESTER, MASS.: Jökulfell............ 9/8 Skaftafell........... 9/9 HALIFAX, CANADA: Skaftafell........... 29/7 Jökulfell............ 11/8 Skaftafell........... 11/9 " SKIPADEILD SAMBANDSINS Sambandshúsinu Pósth. 180 121 Reykjavík Sími 28200 Telex 2101 Cargoluxmenn ræða við stjóm Luxemborgar: ÞURFA 9 MILUÓN DALA LAN VEGNA 747-VÉIAR — fækkað verður uppsögnum starfsfólks úr 150 í 115 ■ „Viö höfum ekki farið fram á annað en endurfjármögnun í aðra 747-vélina okkar og viðræöur um það eru í gangi. Þetta er nokkuð snúið þar sem við seldum Japönum vélina og erum að kaupa hana aftur en vegna þeirra kaupa þurfum við hliðarfjármögnun upp á 8-9 millj. dollara“ sagði Einar OÍafsson forstjóri Cargolux í samtali við Tímann er við spurðum hann um viðræður fyrirtækisins og Luxemburgarstjómar um hugsanlega aðstoð þeirra síðar- nefndu við fyrirtækið vegna erfíðleika þeirra sem það á í. „Þessi upphæð 8-9 millj. dollara er hugsuð sem lán úr sjóði sem ríkið og bankar hér eiga en 747-vélin kemur til með að kosta um 55 millj. dollara. Japanir eiga svo eftir að gefa samþykki sitt við ofangreindri lausn.“ Uppsagnir starfsfólks Cargolux vegna erfiðleika félagsins hafa verið nokkuð í sviðsljósinu hérlendis, enda vinna marg- ir íslendingar hjá fyrirtækinu. Nú hefur verið dregið úr þessum uppsögnum og fyrir helgina samþykkti starfsfólkið ákveðinn „pakka" sem lagður var fram af stjórn fyrirtækisins. „Það varð samkomulag um það að draga úr uppsögnunum úr 150 manns og niður í 115 manns en samhliða því tók starfsfólkið á sig launalækkun í sex mánuði og gengur sú lækkun inn í fyrirtækið sem lán af hendi starfsfólks-. ins“ sagði Einar. Fyrir utan þessa launalækkun var einnig inn í pakkanum að yfirvinna hjá starfsfólki fyrirtækisins yrði skorin niður í ekki neitt. Einar kvaðst ekki geta upplýst nú hve margir íslendingar væru í 115 manna hópnum en hann sagði að þeir væru ekki stór hluti þar sem megnið af þeim ynni við flughliðina hjá fyrirtækinu og þar væri minnst um uppsagnir. - FRI 132 tonn af humri til Grindavikur ■ Þegar humarvertíðinni lauk höfðu 132,5 tonn borist á land í Grindavík. Um tíu heimabátar þar tóku þátt í veiðinni, en nokkrir aðkomubátar lönduðu afla sínum þar, til viðbótar. Aflahæsti báturinn var Þorsteinn Gíslason, sem fékk rúm tólf tonn. Stöðvun veiðanna kom humarveiði- mönnum þar syðra nokkuð á óvart, að sögn fréttaritara Tímans þar, og töldu þeir að töluvert af kvótanum væri óveitt enn, þegar tilkynningin um stöðvun var gefin út. Veiðin í ár var mjög álíka mikil og í fyrra. SV Enn eitt inn- brot í skart- gripaverslun ■ Enn einu sinni var brotist inn í skartgripaverslun nú fyrir helgina. Var þá farið inn í verslun Benedikts Guðmundssonar að Laugavegi 11 í Reykjavík. Þjófurinn (eða þjófarnir) komust inn um bakdyr verslunarinnar. Eigendur verslunarinnar eru í sumar- leyfi erlendis svo ekki liggur Ijóst fyrir ennþá hversu miklu var stolið. Þegar rannsóknarlögreglumenn komu á vett- vang var fátt muna í versluninni. Enn hefur ekki tekist að upplýsa innbrotin í skartgripaverslun Kornelí- usar og innbrotið í Gullsmíðaverkstæði Þorgríms Jónssonar. - Sjó. ■ Húsið er mikið skemmt eftír brunann og allt innbú eyðilagðist í eldinum. Tímamynd: GS-ísafirði. Eldsvoði á fsafirði: T vílyft timburhús næstum eyðilagðist - tvö ungmenni sluppu naumlega út úr brennandi húsinu eldinum. Burðarviðir eru lítið skemmdir. Fjórir slökkviliðsbílar fóru á vett- vang og fljótlega gekk að ráða niðuriögum eldsins. Tók það um tuttugu mínútur. Ungmennin tvö voru ein í húsinu þegar eldurinn kviknaði. Foreldrar þcirra voru á ferðalagi norður í Grunnavík. Talið er að eldurinn haft kviknað út frá eldavél. ■ Húsið við Mjógötu sjö á ísafirði skemmdist mikið af eldi á laugardag- inn. Tvö ungmenni sluppu naumiega út úr brennandi húsinu. Það var um klukkan 16.20 að slökkviliðið á ísafirði var kvatt að húsinu, sem er tvflyft forskalað timburhús. Þegar komið var á vett- vang var neðri hæðin alelda og mikill eidur var í stigagangi upp á efri hæðina. Allir gluggar hússins voru brotnir og veggir á ncðri hæð mikið sviðnir. Allt innbú gereyðilagðist i • Sjó. Litlu línubátarnir mega veiða í þorsk- veiðibanninu ■ Bátar undir 30 lestum mega nú stunda þorskveiðar hvort sem er á línu eða handfæri, á banntímanum 25. júlí til 3. ágúst 1982. Sjávarútvegsráðuneytið tók reglurnar um heimildir báta, 30 lestir og minni, til þorskveiða á banntíma, til endurskoð- unar, af gefnu tilefni, að því er ráðuneytið tilkynnir. Niðurstaðan varð sú að bannið nær nú ekki til báta undir 30 lestum, hvort sem þeir eru á línu eða skaki. gy Kór Mennta- skólans í Hamra- hlið í tónleikaför til Belgíu ■ Kór Menntaskólans við Hamrahlíð heldur í tónleikaför til Belgíu í fyrramálið en þar mun kórinn syngja á Europa Cantat 8. sönghátíðinni sem haldin hefur verið þriðja hvert ár og kórinn áður tekið þátt í. Hátíðin er að þessu sinni haldin í borginni Namur. Fyrir utan þátttöku í sönghátíðinni mun verða dagskrá með kórnum í Belgíska útvarpinu og undanfarið hafa dvalist hér þýskir sjónvarpsmenn við upptökur á æfingum kórsins fyrir þýska sjónvarpið en auk þess mun kórinn koma fram í dagskrá hjá þýska sjónvarpinu. í kvöld, þriðjudagskvöld, ætlar kór- inn svo að halda smáeinkatónleika fyrir vini og vandamenn. Verða þeir í MH og hefjast kl. 20. - FRI Electra-vél Arnarflugs á sölulista: Verður Boein_ vélin einnig se Id' 720 — „Að sjálfsögðu þarf að huga að þvf að yngja þetta upp” segir Gunnar Þorvaldsson forstjóri Arnarflugs „Áður en þetta óhapp kom fyrir höfðum við engan áhuga á því að selja 720-vélina þar sem hún nýttist okkur vel ■ „Við ætlum að selja Electra-vélina okkar enda lá það alltaf Ijóst fyrír að við mundum reyna það samhliða því að reka hana og mér finnst að við séum alltaf að komast nær því takmarki en hvað varðar Boeing 720 vélina þá erum við ekki búnir að fá nákvæmar niðurstöður um hvað viðgerð á henni kostarogfyrr en svo verður munum við ekki taka ákvörðun um sölu á henni eða ekki“ sagði Gunnar Þorvaldsson forstjórí Arnarflugs í samtali við Tímann en Arnarflug er nú að meta möguleikana á viðgerð Boeing 720 eða hvort selja eigi hana í núverandi ástandi. á leiðunt okkar við þekkjum vel kosti hennar og galla, eigum þjálfaðar áhafnir á hana, varahlutalager og svo er siæmt að skipta um á miðri vertíð. Að sjálfsögðu þurfum við að huga að því að yngja þetta upp hjá okkur og þá kemur þrennt til; kaupa, kaupa/leigja eða leigja en stefnan hefur verið hjá flugfélögum að leigja til að minnka áhættuna í rekstrinum og við erum það lítið félag að við erum ekki spenntir fyrir því að taka mikla áhættu með flugvéla- kaupum" sagði Gunnar. Aðspurður um hvernig vél kæmi hugsanlega í staðinn sagði hann að þeir þekktu best Boeing 707 og 720 enda hefði félagið verið með slíkar vélar i mörg ár... „Einnig kemur til greina 737 en nú er annað árið sem við höfum haft slíka vél en þetta eru helstu tegundir sem koma til greina hjá okkur“. Gunnar sagði að ekki væri ljóst hve mikið þeir fengju fyrir Electra vélina. Á sínum tíma er þeir keyptu hana frá Iscargo hefði verið nefnt verð á henni frá 650 þús. dollurum og upp í 2,25 millj. dollara....Ætli við gerum okkur ekki vonir um að fá eitthvað þama á milli“ sagði Gunnar. Hvað Boeing 720 varðar þá hafa Boeing verksmiðjurnar gert Arnarflugi tilboð í viðgerð og er þá um að ræða að skipta um neðra borð á vængnum, sem tæringin er í, að miklu leyti en þetta er mjög dýr viðgerð. Cargolux hefur gert tilboð um öðruvísi viðgerð en auk þessa tveggja eru svo breskir aðilar inn í myndinni. - FRl

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.