Tíminn - 27.07.1982, Blaðsíða 19
ÞRI&IUDAGUR 27. JÚLÍ 1982
og leikhús - Kvikmyndir og leikhús
23
kvikmyndahornið
u
HJ STAHG
nmmm* ■■■ ■ •
■ Biðröð við bandarískt kvikmyndahús, þar sem „Geimveran" er til sýnis.
Bandarískir kvikmynda-
framleidendur ánægdir:
METSUMAR
fAÐSÓKN
■ Bandarískir kvikmyndaframleiðendur eru yfir sig ánægðir þessa stundina.
Ástæðan er sú, að aðsókn að kvikmyndahúsum vestra hefur aldrei verið meiri
en nú í sumar og peningarnir streyma því inn. Og þótt ein kvikmynd beri af
öðrum í aðsókn - „Geimvera“ Spielbergs - þá á þetta aðsóknarmet við um
fjölmargar kvikmyndir. Telja kvikmyndaframleiðendur þetta m.a. merki um,
að myndbandaæðið sé kvikmyndahúsunum mun hættuminna en talið var af
ýmsum.
Það hafa ýmis gróðamet verið
slegin á þessu sumri. „StarTrek: The
Wrath of Khan“ gaf þannig af sér
meiri peninga á einni helgi en nokkur
önnur mynd fyrr og síðar. „Geim-
vera“ Spielbergs halaði hins vegar
inn meira í aðgangseyri fyrstu tvær
vikurnar en áður hefur þekkst, og á
fyrstu 25 dögunum náði hún inn
tæplega 87 milljónum dala. Næst
kom þriðja myndin um Rocky með
tæplega 56 milljónir, önnur myndin
um Star Trek með 51 milljón, Villi-
maðurinn Conan, sem minnst var á
hér fyrir helgina, með rúmlega 33
milljónir og „Poltergeist", drauga-
mynd eftir sögu Spielbergs, með 32
milljónir dala. Er því spáð að
„Geimveran" muni þegar líður á
sumarið slá „Stjörnustríð“ út sem
mestu gróðamyndina til þessa.
Steven Spielberg telur að hluti
skýringarinnar á þessari miklu að-
sókn sé einfaldlega, að kvikmynda-
framleiðendur hafi sett á markaðinn
kvikmyndir af því tagi sem hafi sýnt
sig að áhorfendur vilji: afþreyingar-
myndir, sem sumar hverjar eru
framhald fyrri mynda sem gengið
hafa vel.
Sumarið hefur alltaf verið besta
kvikmyndavertíðin vestra einkum
vegna þess að þá eru unglingarnir í
skólafríi og hafa því meiri tíma til að
sinna áhugamálum. Á hverju
ári er seldur um einn milljarður
aðgöngumiða í kvikmyndahúsum
Bandaríkjanna, og um 20% þjóðar-
innar kaupir um 80% þessara miða.
Dyggustu bíógestirnir þar eru á
aldrinum frá 12 til 24 ára.
„Bandaríkjamenn hafa tilhneig-
ingu til að eyða peningum sínum í
það sem þeir þekkja", segir dreifing-
arstjóri Paramount pictures. Sú
kenning er skýringin á þeim mikla
fjölda framhaldskvikmynda, sem nú
er framleiddur vestra. Langlífasta
dæmið um réttmæti þessarar kenn-
ingar eru James Bond-kvikmyndirn-
ar, sem alltaf hljóta góða aðsókn.
Sömuleiðis myndirnar um Guðföður-
inn, eða Stjörnustríð, svo nokkur
dæmi séu nefnd. Og nú er svo komið
að vart er gerð kvikmynd, sem hlýtur
góða aðsókn, án þess að önnur af
sama tagi, oft með sama nafni, komi
ekki í kjölfarið.
Af þeim 110 kvikmyndum, sem
sex stærstu kvikmyndaframleiðend-
urnir í Bandaríkjunum hafa tilkynnt
að frumsýndar verði á komandi ári,
eru hvorki meira né minna en 17
slíkar framhaldsmyndir. Þar koma
mörg kunnugleg nöfn: The Sting II,
Halloween 3, fjórða Cheech og
Chong myndin, sjöunda eða áttunda
myndin um Bleika pardusinn, fleiri
Star Trek myndir (átta eru nú
fyrirhugaðar í viðbót á 18 mánaða
fresti), enn ein Airplane-myndin og
þannig mætti halda áfram.
Framleiðsla af þessu tagi lýsir
auðvitað ekki frumlegri sköpunar-
gáfu eða djarfri nýsköpun þar vestra,
heldur fyrst og fremst áhuga á
peningalegum gróða. En það minnir
auðvitað á, að kvikmyndafram-
leiðsla er fyrst og fremst iðnaður,
og að án hagnaðar yrði fljótlcga lítið
um kvikmyndaframleiðslu.
-ESJ
Elias Snæland
Jónsson
skrifar
★ Atvinnumaður í ástum
★★★ Hörkutólið
★★ Sólin ein varvitni
★★ Amerískur varúlfur í London
★★★ Lola
★★ Cat Ballou
★★★ Framísviðsljósið
★★★ Bláa lónið
Stjörnugjöf Tímans
★ * * * frábær ■ * * * mjög göö ■ ★ ★ góó ■ ★ sæmtleg ■ O léleg