Tíminn - 27.07.1982, Blaðsíða 10
ÞRIÐJUDAGUR 27. JÚLÍ 19*2
10
umsjón: A.K.B
■ Mjög gott er að hafa daglega fyrir
framan sig hitaeiningalista og geta því
fylgst með ,því, hve margar hitacining-
ar eru í daglegum matarskammti. Með-
fylgjandi listi um hitaeiningar er
fenginn hjá Línunni.
Kjöt
Vigt. Hita-
ein.
Bacon 100 gr 500
Fars 100 gr 250
Gæs 100 gr 425
Hamborgarahryggur 100 gr 200
Hjörtu kálfa, lamba 100 gr 140
Hæna 100 gr 200
Kálfakjöt magurt 100 gr 140
Kálfakjöt fcitt 100 gr 190
Kálfalifur 100 gr 140
Kálfanýru 100 gr 110
Kalkun 100 gr 180
Kjúklingur 100 gr 200
Lambakjöt magurt 100 gr 150
Lambakjöt feitt 100 gr 300
Lamhalifur 100 gr 135
Lambanýru 100 gr 110
Lifrakæfa 100 gr 350
Medisterpylsa 100 gr 250
Nautakjöt magurt 100 gr 150
Nautakjöt feitt 100 gr 300
Nautalifur 100 gr 140
Svínahjörtu 100 gr 140
Svínakjöt magurt 100 gr 200
Svínakjöt fcitt 100 gr 400
Svínalifur 100 gr 140
Önd 100 gr 400
Fiskur
Hita-
Vigt. ein.
Fiskbollur lOOgr 80
Fiskfars 100 gr 100
Hrogn 100 gr 100
Humar 100 gr 90
Lax 100 gr 200
Lifur 100 gr 500
Lúða 100 gr 150
Rauösprctla 100 gr 80
Rækjur 100 gr 100
Sild 100 gr 140
Silungur 100 gr 150
Þorskur, Ýsa 100 gr 80
Sælgæti Vigt. Hita- ein.
Brjöstsykur 100 gr 410
Súkkulaði lOOgr 525
Karamellur lOOgr 400
Lakkrís 100 gr 250
Negrakossar 100 gr 300
Marsipan lOögr 425
Tyggigúmi m.sykri 100 gr 315
Delfol, Gajol, Lákerol 100 gr 250
Brauð og kökur. Hita-
Vigt. ein
Franskbrauð 20 gr 50
Kruður 30 gr 85
Rúnstykki 35 gr 85
Rúgbrauðseytt 20 gr 60
Rúgbrauðóseytt 20 gr 55
Sigtíbrauð 15 gr 60
Hrökkbrauð 12 gr 40
Kex 6gr 26
Vinarbrauð 50 gr 210
Kringla 50 gr 225
Rjómakaka 40 gr 120
Napoleonskaka 50 gr 175
Rúlluterta 30gr 90
Sandkaka 50 gr 200
Smákaka 8gr 32
Hita-
Vigt ein.
100 gr 50
lOOgr 40
100 gr 20
100 gr 40
100 gr 84
100 gr 40
100 gr 35
100 gr 2
Mjólk og mjólkurvörur
Vigt Hita- ein.
Nýmjólk 100 gr 65
Undanrcnna 100 gr 35
Rjómi 100 gr 300
Jógúrtánávaxta 100 gr 60
Jógúrt með ávöxtum 100 gr 80
Smjör, 100 gr 720
Rjómaís 100 gr 300
Ostur45% 100 gr 340
Ostur30% 100 gr 280
Ostur20% 100 gr 240
Camembert 100 gr 380
Mysuostur 100 gr 420
Sýrðurrjómi 100 gr 195
Ýmir 100 gr 70
Egg Vigt. Hita- ein.
Egg ca50gr 80
Eggjarauða ca 20 gr 65
Eggjahvíta ca30gr 15
Egg calOOgr 160
Ávextir
Hita- Vigt. ein.
Ananas hrár 100 gr 52
Appelsínur 100 gr 50
Avokadoperur 100 gr 170
Bananar 100 gr 85
Döðlur 100 gr 270
Epli 100 gr 60
Eplisúr 100 gr 50
Ferskjurhráar 100 gr 40
Ferskjur m/sykri 100 gr 70
Fíkjurþurrkaðar 100 gr 270
Grape 100 gr 45
Grapedjús 100 gr 40
Hindber 100 gr 50
Jarðarber 100 gr 40
Kirsuber 100 gr 70
Mclónur 100 gr 26
Perur 100 gr 60
Plómur 100 gr 60
Rabbabari 100 gr 20
Ribsber 100 gr 45
Rúsínur lOOgr 290
Sítrónur 100 gr 30
Sólbcr 100 gr 60
Sveskjur 100 gr 260
Vínber 100 gr 70
Ýmislegt
Vigt Hita- ein.
Bernaisesósa lOOgr 410
Bouillon 100 gr 10
Hunangóblandað 100 gr 300
Marmelaði 100 gr 250
Kakó 100 gr 265
Edik 100gr 12
Möndlur 100 gr 600
Smjörlíki 100 gr 800
Matarlím 100 gr 335
Mayonnaise 100 gr 720
Olíatil steik. sallat 100 gr 900
Salt 100 gr 0
Sykur 100 gr 400
Vín Vigt. Hita- ein.
Rauðvín 100 gr 80
H vítvín þurrt 100 gr 70
Madeira, portv. sherry 100 gr 140
Koniak.gin, vodka, viskf 100 gr 275
Likjör 100 gr 350
Hitaemmgar
j" ÖI og gosdrykkir
Appelsínusafí
Grapesafi
Tómatsafi
Coca Cola
Maltöl
Pilsner
Appelsino.fi. gos
Gosm. gervisykri
■ Tvíburasystumar Sigurveig og Sesselja
Heimsókn
í Línuna
■ í verzlunum eru allar hillur fullar af
girnilegum matartegundum, kjötborðin
svigna undan krásunum, í útvarpstil-
kynningum og blöðum heyrum við og
sjáum auglýst: Nýr lax, ódýra svínakjöt-
ið, ódýru hamborgararnir, ódýru
kjúklingarnir, grillsteikurnar o.s.frv. og
síðast en ekki síst, næstum því í hverri
verslun blasir við okkur glæsilegt
sælgæti, innlent sem erlent, er við höfum
lokið innkaupum og er sælgætið venju-
lega við útgöngudyr, þannig að ekki fari
nú fram hjá viðskiptavininum að sjá það
Það er aðeins hjá kaupmanninum á
horninu, sem sælgætið er geymt undir
glerplötu, sem gegnir líka hlutverki
búðarborðs. Síðan eru skúffur út
dregnar til að ná í sælgætið. Þetta er eins
og var í gamla daga og vekur ekkert eins
athygli okkar viðskiptavina jafnt barna
sem fullorðinna eins og sælgætið, sem er
raðað í hillur í kjörbúðum, þar sem
aðeins þarf að teygja í það hönd og þá er
það komið í innkaupakörfuna. Já,
freistingarnar eru margar í verzlunum
okkar íslendinga í dag og því er ekki að
undra að margir þurfa að berjast við að
ná af sér aukakílóum, sem hlaðast utan
á okkur. Ofþyngd er víst vandamál mjög
margra nútíma íslendinga öfugt við afa
þeirra og ömmur, sem varla höfðu meira
en rétt ofan í sig.
Megrunarklúbburinn Línan hefur
starfað í 6 ár og er eigandi hans nú
Margrét Guðmundsdóttir. Ég heimsótti
Línuna s.l. fimmtudagskvöld til að
forvitnast um starfsemina. -Á þessu
kvöldi kemur þangað fólk, sem þarf að
ná af sér 20 kílóum eða meiru. Fólkið
kemur til að láta vigta sig og síðan er
rabbað saman yflr kaffibolla eða Tab
eða Freska. Námskeiðið stendur í 7
vikur og þátttakendur fá sérstakan
matseðil, þar sem í matnum eru 1000
hitaeiningar á dag. Gott þykir að ná af
sér 1 kg á viku, en margir léttast mun
meira. Ein kona náði af sér 58 kg á einu
ári og hefur því lést um rúmlega kíló
á viku.
Ég hitti að máli konu, sem ekki vildi
láta nafns síns getið. Hún sagðist vera
búin að grennast um 36 kg á einu ári,
en hún var 130 kg, áður en hún kom í
Línuna, en er nú 94. Hún sagðist ætla
að halda áfram og komast í um 70 kg,
sem er kjörþyngd hennar miðað við hæð,
en hún er 177 cm á hæð.
„Ég hef alltaf verið feit, frá því að ég
var bam, sagði konan, sem við getum
nefnt S. Hér í Línunni hef ég verið síðan
í febrúar 1981. Mér gekk mjög vel fyrst
og var búin að ná af mér 30 kg um
síðustu áramót, en síðan kom aftur-
kippur hjá mér og ég er að vinna það
upp.“
- Hefur þetta verið erfitt?
- Já, oft, því er ekki hægt að neita.
Mér finnst mjög gott að vera hjá
Línunni, en maður verður alltaf að mæta
til að ná árangari. Maður fær líka
stuðning frá öllum hinum, sem eiga við
sama vandamál að stríða.
„Hvað finnst þér erfiðasta freist-
ingin?“
„Mér finnst allur matur mjög góður,
en ég hef ekki mikið verið fyrir sælgæti.
Nú hef ég breytt nokkuð til með
mataræði fjölskyldunnar, ég grilla eða
sýð yfirleitt matinn, en steiki ekki í feiti
eins og áður. Einnig hef ég mun meira
grænmeti. En ég er nú orðin svolítið leið
á því. Hvítkál t.d. get ég ekki séð.
- Er feitt fólk í ættinni þinni?
- Já, það má segja það. Þetta er
ættgengt.
Næst hitti ég að máli tvíburasysturnar
Sesselju og Sigurveigu.
- Við byrjuðum að fitna á sama tíma,
segir Sesselja. Þegar Sigurveig fór að
eiga bömin fitnaði hún á eftir eins og
algengt er og þá fór ég líka að fitna.
Þetta hlítur að hafa verið eitthvað
sálrænt.
- Hvað voruð þið þungar, þegar þið
byrjuðuð í Línunni?
- Við vorum nákvæmlega jafn þungar
88 og hálft kíló, segir Sigurveig, „en nú
er Sesselja komin í kjörþyngd 65 og hálft
kíló, en ég á enn þá nokkur kíló til að
útskrifast.
„Hvað hafið þið verið lengi í
Línunni?“
Við höfum verið eitt ár.
„Hvað finnst ykkui mesta freistingin?
„Súkkulaði, sælgæti og kökur. Þær
eru mikil freisting.
Það voru margir mættir hjá Línunni
þetta kvöld, eingöngu konur í þetta
sinn, en tímarnir eru bæði fyrir karla og
konur og að sögn eigandans, Margrétar
Guðmundsdóttur eru karlmenn að drjúg
um hluta í sumum námskeiðanna. Einn
karlmaður grennti sig um 60 kg á einu
ári, var búinn að grenna sig um 30 kg
áður en hann kom í Línuna en með
aðstoð hennar náði hann af sér 30 kg.
Eftir jólin er mest sókn að námskeiðun-
um og í ágúst og í september fer aðsókn
að glæðast eftir sumarið.
En yfir hásumartímann er hún með
minnsta móti.
Matur í
útilegu
■ Eftirfarandi útiiegumat mælir Lín-
an með:
Kjúklingar, sem eru ofnsteiktir áður
og borðaðir kaldir.
Kjöthakki í hamborgara, sem eru
grillaðir á viðarkolum.
Pylsur. Ekki nema 1-2 á dag.
Nauta-, lamba- og kálfakjöti sem
má sjóða, grilia eða ofnsteikja áður
og hafa með sér kalt.
Dósamat:
Fiskibollum, fiskbúðingi, túnfiski,
laxi, matsíld, humri, rækju, alls konar
grænmeti.
Auk þess: Tærum súpum úr pökk-
um, hrökkbrauði, eggjum, osti, ávöxt-
um, tómatsafa, sykurlausum gos-
drykkjum, súputeningum.