Tíminn - 29.07.1982, Blaðsíða 6
6
Wmmm
FIMMTUDAGUR 29. JÚLÍ 1982
Einstaklingar
Nú er tækifærið að eignast glæsilegan og góðan
örbylgjuofn frá
Komdu til okkar og kynntu þér hvernig þú getur
steikt, soðið og bakað allan venjulegan mat á
örskammri stund.
Hvernig þú getur affryst matvæli á stuttri stund og
gert þér heilsusamlega máltíð á auðveldan og
hagstæðan hátt.
Með Toshiba ofninum fylgir matreiðslunámskeið og
þú getur orðið listakokkur eftir stuttan tíma.
Við fengum takmarkað magn á þessu hagstæða
verði kr. 4.990.-. Hagstæð kjör.
Líttu við og ræddu við okkur um hvernig Toshiba
er 539 ofninn getur gjörbreytt matreiðslunni.
EINAR FARESTVEIT & CO. HF.
Bergstaðastræti 10 A Sími 16995
Til sölu
Tilboð óskast í 3 strætisvagna aö
IKARUS gerð. Vagnarnir eru til sýnis í
bækistöð Stætisvagna Reykjavíkur við
Kirkjusand.
Allar nánari upplýsingar gefur Jan
Jansen yfirverkstjóri á staðnum. Tilboð
merkt IKARUS, skulu berast á skrif-
stofu vora að Fríkirkjuvegi 3, fyrir kl.
11.00 f.h. fimmtudaginn 19. ágúst n.k.
En þá verða þau opnuð að viðstöddum
þeim bjóðendum sem mættir verða.
Réttur áskilinn til að taka hvaða tilboði
sem er eða hafna öllum.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
/ Fríkitk)uv«gi 3 - Sími 25800
Jörðin Þverholt í Álftaneshreppi,
Mýrasýslu er til sölu og ábúðar nú
þegar eða eftir samkomulagi.
Allar eignir ábúenda á jöröinni eru til
sölu, þar á meöal:
Byggingar
Vélar
Áhöfn,
sem nú er um 700 ærgildi.
Nánari upplýsingar gefa Sigurður
Ámundason sími: 93-7650, Ámundi
Sigurðsson, Þverholtum sími: 93-
7102 og Landnám Ríkisins sími:
91-25444.
fréttir
RIKISSJOÐUR GRÆD-
IR Nd A KAUPÆÐINU
— söluskattstekjur aukist um
71%y en tolltekjur um 90%
¦ Kaupæði það sem gripið hefur
þjóðina undanfarna mánuði hefur jal'n-
fraint fært ríkissjóði stórar fúlgur í
„kassann", að því er fram kemur í yfirliti
Verslunarráðsins um stöðu og horfur í
efnahagsmálum á miðju ári 1982.
Þannig hafa t.d. söluskattstekjur
aukist um 71%, tolltekjur um 90% og
heildartekjur af innflutningi um 85%
fyrstu fjóra mánuði ársins. í heild eru
innheimtar tekjur ríkissjóðs (A-hluta)
ar hafa aukist um 68% mánuðina
jan.-apríl miðað við sömu mánuði 1981,
á meðan gjöld hafi hækkað um 52% á
sama tímabili. Verðlag er aftur á móti
talið hafa hækkað á bilinu 42-46% á.
þessum tíma.
Fyrstu fimm mánuði ársins hefur
innflutningur vaxið um 53,4% (á
ársgrunni) meðan útflutningurinn hefur
aðeins aukist um 33,7% miðað við sömu
viðmiðun. Verði ekkert lát á þessu telur
V.í. að hallinn á utanríkisviðskiptunum
í árslok geti orðið um 3.300 milljónir
króna (sem er hærri upphæð en allur
innflutningur f. 4 mán. ársins) á móti
1.000 millj. kr. viðskiptahalla í árslok
1981.
Og þar sem við aukum eyðsluna
jafnhliða því sem útflutningurinn minnk-
ar hækkar greiðslubyrði erlendra lána að
sama skapi. Á undanförnum árum hafa
á milli 13-14% útflutningsteknanna farið
til að greiða af erlendum lánum. Á
síðasta ári varð stökkbreyting þegar
greiðslubyrðin fór upp í 16,4%. Nú er
enn búist við stökkbreytingu, þar sem
jafnvel er reiknað með að greiðslubyrð-
in geti farið nokkuð yfir 20% af
útflutningstekjum. - HEI
*
*-^Si
Omar Ragnarsson lék listir á „Frúnni".
islyndir veðurguðir á
f lugdeginum á Akureyri
¦ Veðurguðirnir vissu varla
hvað þeir áttu að gera af sér s.l.
laugardag er Flugdagur var
haldinn á Akureyri. Um morg-
uninn var hæg sunnanátt og
fremur bjart yfir, en rétt áður en
flugsýningin átti að hefjast sner-
ist áttin og kom norðanátt og
rigning í kjölfarið. En það stóð
ekki lengi, og þegar sýningin var
hálfnuð hafði lægt og sólin tekið
völdin.
Flugdagur á Akureyri var
mikið fyrirtæki. í>ar var m.a.
mjög merkileg flugminjasýning
þar sem sýndir voru gamlir
munir og vélar. Þá var flugmo-
delsýning, sérlega glæsileg, og
einnig voru fleiri sýningar í
gangi.
En það sem dró að sér flesta
áhorfendur var auðvitað sjálf
flugsýningin. Hún hófst með því
að Ómar Ragnarsson sýndi
kúnstir miklar á „Frúnni" sinni og
síðan rak hver viðburðurinn
annan. Sýnt var listflug á
svifflugvélum og vélflugvélum,
þyrla varnarliðsins sýndi björg-
un og einnig var sýnt er hún tók
eldsneyti á flugi frá Herkulesvél.
Pá var flogið á flugdrekum,
fallhlífarstökk var á dagskrá og
margt margt fleira. En látum
þetta nægja enda tala myndir
KGA og GK á Akureyri skýrara
máli um það sem fram fór en
mörg orð.
Ætli þetta farartæki heiti ekki „flugdreki" eða citthvað