Tíminn - 07.08.1982, Side 9
LAUGARDAGUR 7. ÁGÚST 1982
LAUGARDAGUR 7. ÁGÚST 1982
. < ■ ■ - : ■
«■>>> • M.■'■ ■■■'■'■
Margrét Danadrottning og Vigdís Finnbogadóttir forseti Islands um borð í Dannebrog.
„OLAFUR KONUNGUR
ALLTAF REFFILEGUR
— heimsókn í Dannebrog, snekkju
dönsku konungsfjölskýldunnar
■ „Alltaf er hann Ólafur Noregskon-
ungur reffilegur“ sagði einn Islending-
urinn í móttökunni um borð í Danne-
brog skipi dönsku konungsfjölskyldunn-
ar fyrr í vikunni, er Ólafur konungur
heilsaði upp á gesti þar sem þeir stóðu
í skut skipsins.
Móttakan um borð í Dannebrog var
einn liðurinn í dagskrá hátíðahaldanna
á Grænlandi sem nú er lokið og segja
verður að hafi heppnast afbragðsvel og
verið Grænlendingum til mikils sóma að
öllu leyti.
Er komið var um borð í skipið stóð
konungsfólkið og Vigdís Finnbogadóttir
í móttökuherbergi miðskips og tóku í
hendina á gestum er þeir tíndust um
borð en síðan gengu gestir annað hvort
fram í stefni skipsins eða skut en vegna
fjölda þeirra sem boðið var um borð
þurfti að nota næstum allt skipið undir
móttökuna.
Ein lengsta ferð
snekkjunnar
Hjá tveimur foringjum um borð,
Laurens og Kölle, fékk ég þær
upplýsingar að ferðin til Grænlands væri
ein lengsta ferð sem skipið hefði farið
frá því það var byggt fyrir réttum 50
árum síðan, en ferðin er um 8000
sjómílna löng.
Dannebrog er um 1000 tonna tréskip
með um 60 manna áhöfn að staðaídri
en það hefur ávallt verið í eigu dönsku
konungsfjölskyldunnar.
Sem kunnugt er af fréttum átti að nota
skipið til að flytja konungsfjölskylduna
dönsku á milli staða á Grænlandi meðan
á hátíðahöldunum stæði en ekkert varð
úr því vegna hafíss. Blöð höfðu áður
flutt þær fregnir að skipið hefði lent í
vandræðum á leiðinni vegna hafíss en
þeir Laurens og Kölle sögðu þær fréttir
nokkuð yfirdrifnar því raunar hefði
aldrei komið til neinna stórvandræða af
þessum sökum.
Hátíðanna lengi minnst
Hátíðahaldanna vegna 1000 ára af-
mælis komu Eiríks rauða til Grænlands
verður örugglega lengi minnst á Græn-
landi. Það að rúmlega 50 þús. manna
þjóð hafi getað skipulagt og staðið svo
vel að sem raun bar vitni, hátíðahöld af
þessu tagi er nánast kraftaverk og góð
landkynning fyrir Grænlendinga.
„Við viljum að boð okkar verði skilið
sem djúp gleði yfir hinu vaxandi
sjálfstæði Grænlendinga“ sagði Henrik
Lund bæjarstjóri Julianeháb ma í ræðu
sinni í veislu suðurgrænlenskra bæjar-
félaga fyrsta dag hátíðarinnar en þessi
veisla var haldin í einu af flugskýlunum
á flugvellinum í Narssassuaq og höfðu
Grænlendingar smíðað stóran veislusal
inn í skýlinu.
„Eftir 1000 ár er Grænland í dag hluti
af stórum heimi. Látum oss í sameiningu
mæta sögunni og framtíðinni.“ sagði
Lund undir lok ræðu sinnar.
Margrét til Thule
Þótt hátíðahöldunum sé lokið þá mun
Margrét Danadrottning dvelja á Græn-
landi allt til 25. ágúst n.k. en heimsókn
hennar lýkur þá í Thule eftir að hún
hefur ferðast um flestar byggðir Græn-
lands.
Eftir brottför Margrétar færist hið
daglega líf á Grænlandi aftur í sinn fasta
farveg en minningin um þessa daga mun
örugglega lifa lengi með þjóðinni.
Myndir og texti FRI
Háborðið í veLslu bæjarfélaganna í Suður-Grænlandi sem haldin var í einu flugskýlinu í I
Dannebrog snekkja konungsfjölskyldunnar í höfninni í Narssassuaq.
Margir skörtuðu þjóðbúningum við hátiðahöldin.
Þyrlur voru mikið notaðar til að ferðast á milli staða.
Ólafur Noregskonungur ásamt Vigdísi Finnbogadóttur forseta.