Tíminn - 07.08.1982, Page 15
og leikhús - Kvikmyndir og leikhús
★★★ Síðsumar
★★★★ Kagemusha
★ Atvinnumaður í ástum
★★ Sólineinvarvitni
★★ Amerískur varúlfur í London
★★ Cat Ballou
★★★ Fram í sviðsljósið
★★ Hvellurinn
★★★ Bláalónið
★★ Darraðardans
0 Sóley
Stjömugjöf Tímans
LAUGARDAGUR 7. AGUST 1982
kvikmyndahornið
■ Marilyn Monroe vakti fyrst athygli fyrir leik í kvikmyndinni Bus Stop.
Mótleikari hennar er Bob Murray.
20 ár frá láti
Marilyn Monroe
■ í vikunni voru liðin tuttugu ár
síðan ein frægasta stjarna kvikmynd-
anna lét lífið á heimili sínu í
Hollywood. Hún var þjóðsaga í
lifenda lífi, en ekki síður eftir dauða
sinn, sem sést best á því, að hennar
er nú minnst í blöðum og tímaritum
víða um heim og hún prýðir til að
mynda forsíðu Der Spiegel þessa
vikuna. Hér er að sjálfsögðu átt við
Marilyn Monroe, sem lést af svefn-
töfluáti, viljandi eða óviljandi, 5.
ágúst árið 1962.
Marilyn fæddist árið 1926 í Los
Angeles. Hún var óskilgetin og
móðir hennar þjáðist af geðveilu.
Hún ólst því upp að mestu hjá
vandalausum og á munaðarleysingja-
hæli og hlaut oft illa meðferð, eins og
rækilega hefur verið rakið í mörgum
bókum, sem birst hafa um æfi hennar
undanfarin ár. Á stríðsárunum
gerðist hún Ijósmyndafyrirsæta, og
varð sem slík vinsæl meðal banda-
rískra hermanna. Árið 1946, þegar
hún var tvítug, gerði Fox eins árs
samning við hana fyrir 125 dali á
viku, breytti nafni hennar í Marilyn
Monroe en lét þar við sitja. Hún fékk
ekkert umtalsvert hlutverk hjá Fox,
og gerði því samning við Columbía
árið 1948 en fékk ekkert hlutverk þar
heldur. Á þessum tíma var tekin af
henni sú mynd, sem gerði hana öðru
fremur fræga - nektarmynd á daga-
tali. Hún fékk 50 dali fyrir myndina,
en fyrirtækið, sem seldi dagatalið,
græddi hins vegar á því um 750
þúsund dali!
Árið 1950 gerði hún á ný samning
við Fox og fékk nú minniháttarhlut-
verk í kvikmyndum En hún var vel
auglýst og á næstu árum varð hún að
þeirri stórstjömu, sem allir kannast
við.
Framan af var það almennt álit að
Marilyn gæti ekki leikið; hún væri
fyrst og fremst kynbomba. Hún var
sjálf á annarri skoðun og gekk m.a.
í leiklistarskóla hjá Lee Strasberg.
Og frammistaða hennar í ýmsum
myndum þar á eftir kom á óvart og
sýndi að hún gat vlssulega leikið ef
hún fékk tækifæri til þess. Þetta á við
um myndir eins og „Bus Stop“, sem
Joshua Logan leikstýrði, „The
Prince and the Showgirl“, þar sem
Laurence Olivier lék á móti henni og
leikstýrði að auki, „Some Like It
Hot“, en það er ein vinsælasta
myndin sem hún lék í, og „The
Misfits“ - síðasta kvikmyndin sem
Marilyn, og reyndar líka Clark
Gable, lék í.
Verið var að taka upp tólftu
kvikmynd Marilyn Monroe þegar
hún lést. Sú nefndist „Something’s
Got to Give“ og var aldrei kláruð.
Margir hafa sagt að Hollywood og
allt sem kvikmyndaborginni fylgir
hafi drepið Marilyn Monroe. Ljóst
er að henni leið þar oft illa. „í
Hollywood vilja menn borga þér
1000 dali fyrir einn koss, en 50 sent
fyrir sál þína“, sagði hún eitt sinn.
Og ennfremur: „Leikkona er ekki
vél, en í Hollywood eru þær
meðhöndlaðar sem slíkar. Peninga-
vélar“.
B Some Like It Hot er vinsælasta
kvikmyndin sem Marilyn lék í.
Hér sést hún ásamt Jack Lemmon
og Tony Curtis.
Elías
Snæland
Jónsson
skrifar
EGNBOdt
o to ooo
Síðsumar
^fiolden
.^ópond.
Heimsfræg ný óskarsverðlauna-
mynd sem hvarvetna hefur hlotið
mikið lof.
Aðalhlutverk: Kathrine Hepbum,
Henry Fonda, Jane Fonda.
Leikstjóri: Mark Rydel
Þau Kathrine Hepbum og Henry
Fonda fengu bæði Óskarsverð-
iaunin i vor fyrir leik sinn i þessari
mynd.
Sýnd kl. 3-5,30-9 og 11.15
Hækkað verð
Margt býr í fjöllunum
Æsispennandi hrollvekja um
óhugnanlega atburði i auðnum
Kanada
Leikstjóri: Ves Craves
Bonnuð innan 16 ára.
Endursýnd kl. 3,05-5,05-7,05-
9,05-11,05
Sólin var vitni
Spennandi og bráðskemmtileg ný
ensk litmynd, byggð á sögu eftir
Agatha Christie.
Aðalhlutverið Hercule Poirot leikur
hinn frábæri Peter Ustinov af
sinni alkunnu snilld, ásamt Jane
Birkin - Nlcholas Clay - James
mason - Diana Rigg - Maggie
Smith o.m.fl.
Lelkstjóri: Guy Hamilton.
fslenskur texti - HÆkkað verð.
Sýnd kl. 3,10-5,30-9 og 11.10
Svik að leiðarlokum
Geysispennandi litmynd gerð eftir
sögu Allstalr Mac Lean, sem
komið hefur út í íslenskri þýðingu.
AðalhluWerk: Peter Fonda - Britt
Ekland.
Sýnd
11,15
kl. 3,15-5,15-7,15-9,15-
Kisulóra
Djarfa þýska gamanmyndin með
Ulricku Butz og Rollant Prenk.
Endursýnd kl. 9
Bönnuð innan 16 ára
Faldi fjársjóðurinn
Disney ævintýramyndin með Pet-
er Ustinov.
Endursýnd kl. 5 og 7
28*1-89-36
Draugahúsið
(Ghostkeeper)
Afar spennandi ensk-amerisk lit-
kvikmynd um snjósleðaferð I
þriggja ungmenna sem endar á I
hryllilegan hátt, er þau komast i [
kast við Windigo mannætudraug-
inn.
Leikstjóri: James Makichuk
Aðaihlutverk: Riva Spier, Murray |
Ord, Sheri McFadden.
Sýnd kl. 3,5 og 9
Bönnuð innan 12 ára.
Midnight Express
Hin margfræga verðlaunakvik-
mynd.
Endursýnd kl. 7 og 11
Bönnuð innan 16 ára
B-salur
Cat Ballou
Bráðskemmtiieg litkvikmynd með
Jane Fonda, Lee Marvin o.fl.
Sýnd kl. 3,9, og 11
Bláa lónið
Hin bráðskemmtilega úrvalskvik-
mynd með Brooke Shieldsog
Christopher Atkins
Endursýnd kl. 5 og 7.
Tonabíó
28*3-1 1-82
Barist fyrir borgun
(DOGS OF WAR)
Cr\ Hjv.k!and lci vltp... ^
Hörkuspennandi mynd gerð eftir
metsölubók Fredrik Forsyth, sem
m.a. hefur skrifað „Odessa skjölin"
| og „Dagur Sjakalans".-
Bókin hefur verið gefin út á
íslensku.
Leikstjóri: John Irwin.
Aðaihlutverk: Christopher Walk-
en, Tom Berenger og Colin
Blakely.
íslenskur texti.
Bönnuð börnum innan 16 ára.
Sýnd kl. 5, 7.10 og 9.20
Myndin er tekin upp í Dolby
sýnd í 4ra rása Starscope
stereo.
28* 1-15-44
Frankenstein
hinn ungi
Ein albesta gamanmynd Mel
Brooks með hinum óviðjafnan-
legu og sprenghleegilegu grinumm
Gene Wilder og Marty Feldman.
Endursýnd kl. 3 og 5
Kagemusha
(The Shadow Warrior)
Meistaraverk Akira Kurosawa
sem vakið hefur heimsathygli og
geysilegt lof pressunnar. Vest-
ræna útgáfa myndarinnar er gerð
undir stjórn George Lucas og
Francis Ford Coppola.
Sýnd kl. 7.30
Og að sjálfsögðu munum við halda
áfram að sýna hina frábæru og
sívinsælu mynd Rocky Horror
(hryllingsóperuna)
Sýnd kl. 11
10-444
Farþegi í rigningu
Geysispennandi litmynd með:
Charies Bronson, Jill Ireland og
Marlene Jobert.
Leikstjóri: René Clement
Bönnuð innan 14 ára.
Endursýnd kl. 5, 7, 9 og 11.15.
28*1-13-84
Ein frægasta grín-
mynd allra tíma:
Kappaksturinn mikli
Þessi kvikmynd var sýnd í
Austurbæjarbiói fyrir 12 árum við
metaðsókn. Hún er talin ein allra
besta gamanmynd, sem gerð
hefur verið enda framleidd og
stjómað af Blake Edwards. -
Myndin er í litum og Cinema
Scope.
Aðalhlutverk: Jack Lemmon,
Natalle Wood, Tony Curtis,
Peter Falk.
Sýnd k. 5,7.30 og 10.
28*3-20-75
Skæra-morðinqinn
Ný, mjög spennandi og hrollvekj-
andi mynd um fólk sem á við
geðræn vandamál að striða.
Aðalhlutverk: Klaus Kinski og
Marianna Hill.
Islenskur texti.
Sýndkl. 5, 7,9 og 11.
Bönnuð Innan 16 ára.
Amen var
hann kallaður
Hörkuspennandi og bráðfyndinn
vestri.
Sýnd kl. 3 sunnudag.
S 2-21-40
Atvinnumaður í
ástum
(American Gigolo)
Ný spennandi sakamálamynd.
Atvinnumaður i ástum eignast oft
góðar vinkonur, en öfundar-
og hatursmenn fylgja starfinu lika.
Handrit og leikstjórn: Paul
Schrader.Aðalhlutverk : Ric-
hard Gere, Lauren Hutton.
Bðnnuð innan 16 ára.
Hækkað verð.
Sýnd kl. 7 og 9
Söguleg sjóferð
Sérlega skemmtileg ævin-
týramynd.
Mynd fyrir alla fjölskylduna.
Leiksfjóri: Cari Schultz
Aðalhlutverk: Hardy Kruger,
Greg Rowe
Sýnd kl. 3 og 5 sunnudag
Sýnd kl. 5 laugardag og mánu-
dag.
Næturleikir
Spennandi mynd með nýjasta
kyntákni Roger Vadin's, Cindy
Pickett. Myndin fjallar um hugar-
óra konu og baráttu hennar við
niðurlægingu nauðgunar.
Endursýnd kl. 11.10.
**** frábær ■ * * * mjög góð - * * góð - * sæmlleg ■ O léleg