Tíminn - 19.08.1982, Qupperneq 12
20
O - '
FIMMTUDAGUR 19. ÁGÚST 1982
Útboð
Rafmagnsveitur ríkisins óska eftir tilboðum í
eftirfarandi:
RARIK-82035.132kV SUÐURLÍNA niðurrekst-
ur á staurum.
Verkið felst í niðurrekstri á tréstaurum á
svæði frá Hornafirði til Prestbakka. Verksvið
eru í Hornafjarðarfljóti, Skeiðará, Núpsvötn-
um, Gigjukvísi og víðar.
Fjöldi tréstaura er 345 stk.
Opnunardagur: mánudagur 13. september 1982
kl. 14:00
Tilboðum skal skila á skrifstofu Rafmagnsveitna
ríkisins, Laugavegi 118, 105 Reykjavík fyrir
opnunartíma, og verða þau opnuð að viðstöddum
þeim bjóðendum er þess óska.
Útboðsgögn verða seld á skrifstofu Rafmagns-
veitna ríkisins, Laugavegi 118, 105 Reykjavík,
frá og með fimmtudegi 19. ágúst 1982 og kosta
kr. 300,- hvert eintak.
Reykjavík 17. ágúst 1982
RAFMAGNSVEITUR RÍKISINS
Utileikföng
Úrval leikfanga fyrir
krakka á öllum aldri.
Póstsendum.
LEIKFANGAVERZLUNIN J0J0
AUSTURSTRÆTI8 - SÍM113707
Tveir
leikmenn
ganga úr KR
■ Að undanförnu hafa heyrst sögu-
sagnir um að margir leikmenn úr
úrvalsdeildarliði KR í körfuknattleik
væru í þann mund að hverfa á braut. Til
að fá fréttir af gangi mála í herbúðum
þeirra KR-inga hafði blaðamaður Tím-
ans samband við Ágúst Líndal forvígis-
mann körfuknattleiksdeildar KR og
leitaði fregna af liði þeirra.
KR-ingar hafa ráðið Stuart Johnson
annað árið í röð og eru æfingar byrjaðar
af fullum krafti hjá liðinu. Ágúst sagði
að tveir leikmenn, þeir Kristján Rafns-
son og Kristján Oddsson hefðu sagt sig
úr félaginu, en aðrir yrðu áfram með í
vetur. Reyndar kvað hann vafa leika á,
hvort Garðar Jóhannsson léki með.
Hann væri á sjó og ekki lægi enn Ijóst
fyrir hvort eða hvenær hann kæmi í land.
Ágúst sagði ennfremur að margir
ungir leikmenn kæmu til með að leika
með liðinu í vetur og nefndi hann Pál
Kolbeinsson sem mikla athygli vakti í
fyrravetur og einnig minntist hann á
Matthías Einarsson, Jóhannes Krist-
björnsson (Albertssonar) og Ólaf Guð-
mundsson og taldi að þeir myndu allir
leika meira og minna með liðinu í vetur.
Einnig hafa þeir Gunnar Jóakimsson
og Pröstur Guðmundsson æft með liðinu
að undanförnu, en þeir hafa leikið með
KR með hléum í nokkur ár.
Ágúst sagði að það kæmi til með að
há liðinu að það skorti hæð, en þeir
hygðust vinna það upp með því að keyra
upp hraðann.
— sh.
■ Úrslitakeppni íslandsmótsins í
knattspyrnu í 2. aldursflokki fer fram í
Kópavogi nú um helgina. Það eru fjögur
lið sem áunnið hafa sér rétt til að leika
til úrslita og leika allir við alla. Liðin sem
keppa um Islandsmeistaratitilinn í þess-
um aldursflokki eru Víkingur Reykja-
vík, Breiðablik, KR og Grindavík.
Keppnin hefst á morgun föstudag
klukkan 17.30. Þá leika fyrst Víkingur
og UBK og síðan KR og Grindavík. Á
laugardaginn hefst fyrri leikurinn klukk-
an 13.30, en þá mætast Breiðablik og
Grindavík og Víkingur og KR strax á
eftir.
Á sunnudaginn verður síðan leikið
klukkan 13.30 og klukkan 15.10, og
leika þá Grindavík og Víkingur og KR
og UBK. Ekki liggur ljóst fyrir hvor
leikurinn verður háður á undan, þar sem
stefnt er að því að síðari leikurinn verði
úrslitaleikur og ekki verður hægt að taka
afstöðu til þess hvor leikurinn það
verður fyrr en úrslit liggja fyrir á
laugardag.
Keppnin í 2. flokki í sumarhefurverið
óvenju spennandi. í A-riðli höfðu
Breiðabliksmenn nokkra yfirburði, þeir
voru efstir í riðlinum og næstir þeim
komu KR-ingar, en þar var hart barist
og lá ekki Ijóst fyrir fyrr en í síðasta leik
riðlakeppninnar hverjir myndu fylgja
Breiðablik í úrslit. Úr B-riðli leika
Víkingar og úr C-riðli Grindvíkingar.
Fólki er eindregið ráðlagt að fylgjast
með keppni í 2. flokknum, þar sem
reikna má með mikilli og spennandi
keppni fjögurra góðra liða.
— sh.
■ Stuart Johnsson í leik gegn ÍS í fyrravetur. Tímamynd: Ella.
ÍA — KR leika
á Akranesi
■ í kvöld verður háður á Akranesi
leikur Akurnesinga og KR-inga í 1.
deildarkeppninni í knattspymu. Þessi
leikur var fyrirhugaður 28. júlí s.l., en
Skagamenn fengu frestun vegna fjar-
veru Sigurðar Jónssonar, sem þá lék
með drengjalandsliði íslands á Norður-
landamóti. Leikurinn er mjög mikilvæg-
ur fyrir bæði lið. Sigri Skagamenn eiga
þeir raunhæfa möguleika á að ná a.m.k.
2. sæti í deildinni og þar með rétt til að
leika í UEFA keppninni næsta ár. Staða
KR-inga hefur ekki verið jafn góð í 1.
deild um langt árabil og takist þeim að
sigra, má segja að þeir eiga einna mesta
möguleika á að veita Víkingum ein-
hverja keppni um íslandsmeistara-
titilinn. Leikurinn á Akranesi hefst
klukkan 19.00,-
Ferð verður með Akraborginni frá
Rvík. kl. 17.30 til Akraness og til baka
aftur að leik loknum. Ferðin og miði á
leikinn kostar aðeins 100 kr. fyrir
fullorðna, 40 kr. fyrir 10-12 ára og 20
kr. fyrir yngri en 10 ára.
- sh.
Golfklúbbur
Selfoss með
mót í Alviðru
■ Næstkomandi laugardag verður
haldið opið golfmót á vegum Golf-
klúbbs Selfoss á velli félagsins við
Alviðru undir Ingólfsfjalli. Leiknar
verða 18 holur með og án forgjafar.
Keppendur verða ræstir út frá
klukkan 9.00 til klukkan 13.00.
Hitachi-umboðið Vilberg og Þor-
steinn hafa gefið öll verðlaun til
keppninnar. Þar á meðal eiga
keppendur möguleika á að verða sér
úti um litasjónvarp og myndsegul-
band.
Golfklúbbur Selfoss hefur komið
sér upp ágætri aðstöðu við Alviðru
og hvetja þeir Selfyssingar alla
„golfara“ til að koma á laugardaginn
og reyna sig þar.
— sh.
íþróttir
Urslrtakeppni
r 2. flokki