Tíminn - 09.09.1982, Side 2
2
FIMMTUDAGUR 9.SEPTEMBER 1982.
wm
93Hpfi
illli
ililiii
&• .• :,. .:•
liiiiíiiíííiíiivfc:
:s-
SiSSiíjíSii
;X:X|::X|x|:|:|:
x
i
;:x:g::::>:::
;i:'
lllllll
■
>::x:::::::$:x:::x
ÍS-fSjv ÍSfÍíjvÍ
• •••’
ÉHi pte;
WÍÍxífxÍÍiÝfií
Ísív- ",
■>
m
;:;:;X;/X;:;X;
:•:• •:'• x'- : ■
iÍÍÍIiÍx
íiíf.vií
xwiíSSí:
yX:X'x>;X;.;
xxxxxsxv
•" V.v
ixviíiÝiwiíÝfí
; :|
■ Það mundu áreiðanlega margar átta ára telpur vilja vera í sporum Jean Taylor, sem er lítil átta ára dama
í Windermere, Cumbria í Englandi, - cn amma hennar á brúðubúð. Þar má Jean vera og skoða brúðurnar
þegar hún vill, og sjálfsagt hefur hún fengið margar fallegar brúður i afmælis - og jólagjafir.
I „Ommu búð“, eins og Jean kallar verslunina, eru til allar mögulegar gerðir af brúðum, einkum hefur
búðin á boðstólum gamaldags brúður og margar eru frá þvi fyrir aldamót. Líka er hægt að fá brúðuhausa í
öllum stærðum og gerðum, og brúðuviðgerð er á staðnum.
■ Sumum þykir óþarfi að kennslukonur
séu fallegar og fegurðardísir séu betur
komnar í öðrum störfum.
Christine á
réttri hillu
■ Þar til fyrir einu ári var Christine
Stone vinsæl og vel látin kennslukona í
smábæ í Englandi. En þá komst einhver
náungi að þeirri niðurstöðu. að þar væri
góðum hæfileikum kastað á glæ og í
rauninni væri Christine á rangri hillu.
Hann linnti ekki látunum fyrr en hann gat
komið Christine í skilning um, að
náttúran hefði ekki verið svona örlát við
hana, þegar henni var úthlutað útlitinu.
til þess eins að hún sóaði því fyrir framan
skólabörn. Henni bæri að leyfa sem
flestum að njóta þess, hve falleg hún er.
Christine lét segjast og undanfarið ár
hefur hún verið önnum kafin sem
fyrirsæta. Hún er nú 25 ára, en þegar
aldurinn fer að færast vfir hana og
atvinnutilboðunum í fyrisætustarfinu
fækkar, getur hún alltaf dregið kennara-
réttindin upp úr vasanum og tekið aftur
til við að fræða smáfólkið.
■ Alfonso prins af Bourbon-
Segovia fannst ástxða til að
fara pflagrímsferð til að þakka
fyrir að hafa loks fundið einu j
réttu konuna.
Ekki
varð
hann
kóngur
■ Alfonso prins af Bourbon-1
Segovia, náfrændi Spánar-
konungs, hefur nýlega farið í
pflagrímsferð á hcstbaki til
hinar heilögu meyjar með
tainabandið í Malaga. Erindið
var að bera fram þakklæti fyrir
að hafa loks fundið gæfu [
lífsins.
1972 gekk prinsinn að eiga [
barnabarn Francos, þáverandi
herra Spánar, Carmencita. Þá [
stóðu honum allar dyr opnar.
Hann var gerður að sendiherra |
Spánar í Svíþjóð, og um tíma
var álitið, að Franco hefði í
hyggju að gera Alfonso að
konungi Spánar eftir sinn dag.
Svo fór þó ekki sem kunnugt |
er, og þegar Jóhann Karl tók
við konungsembætti 1975 og
frændi hans óskaði honum
innilega til hamingju með
embættið, var Carmencitu nóg
boðið. Hún yfirgaf eiginrnann
og tvo syni og leitaði á náðir
hins Ijúfa lífs. Fyrst lcitaði hún
huggunar í örmum söngvarans
Julio Inglesias, en síðar varð
fyrir valinu franskur fomgripa-
sali, Jean-Marie Rossi. Carm-
encita hefur hlotið ævilangan j
útlegðardóm við spönsku hirö-
ina. Alfonso telst aftur á móti [
til vina konungs.
Lengi vel sat Alfonso og j
harmaði brottför konu sinnar.
En nú loks, þegar hann er j
orðinn 46 ára, virðist vera að
glaðna til hjá honum. Hver
konan er, sem olli pflagríms-
ferðinni, hefur ekki verið látið ,
uppi.
færðusti
árin yf ir
hann....
■ Þegar Matt Brooks fór að
hugsa um að hætta að vinna fór
hann að spyrjast fyrir um eftirlaun
sín, og hvort hann ætti ekki
ellilífcyri. Þá var hann beðinn um
að sýna fæðingarvottorð sitt. Matt
uppgötvaði þá að hann hafði ekki
í fórum sínum neitt fæðingar - né
skírnarvottorð.
Starfsmannastjórínn í verk-
smiðjunni þeirri sem Matt vann í
í Warríngton, nálægt Manchester
í Englandi, tók sig til og skrífaði
til stjómvalda í Dublin í írlandi,
cn þar hafði Matt fæðst og veríð
skráður.
Þaðan var sent fæðingarvottorð
Matt Brooks um hæl, - en þá brá
honum aldeilis í brún. Hann varð
þess vísari að hann var orðinn 79
ára, en hann hafði haldið sig
töluvcrt yngrí. Hann hefði getað
veríð kominn á eftirlaun fyrír 14
ámm.
Matt sagði sjálfur: „Þessi frétt
varð til þess að árin færðust yfir
mig, - og það mörg í einu.“
Síðan bætti hann við, að það
þyrfti meira en eitt pappírsblað til
að gera hann að gamalmenni. „Ég
ætla að helda mig við það, að hver
maður er eins gamall og honum
sjálfum finnst að hann sé,“ sagði
Matt ánægður með sig.
Nu er allt komtð i lag hja Burt og Lom. Rollsinn gerði
sitl gagn
Það borgar
rífast
við Burt!
■ Það kom upp ágrein-
ingur á heimilinu hjá Burt
Reynolds og sambúöar-
konu hans, Loni Ander-
son í Hollywood. LJr þessu
varð heilmikið rifrildi og
hjónaleysin sögðu margt
Ijótt og skelltu hurðum.
Sögur herma, að allt sé nú
fallið í Ijúfa löð, og Burt
hafi á sinn venjulega hátt
beðist afsökunar sem sagt
með gjöfum.
Það má nefna það, að
þegar hann var trúlofaöur
Sally Field, og hún varð
afbrýðisöm vegna þess að
Burt var sagður í meira
lagi hrifínn af mótleikara
sínum í „Starting Over“,
en það var Candice Berg-
en, þá gaf hann Sally
20.000 dollara minkapels í
sárabætur, - en Candice
6.000 dollara armband
vegna þess að hann hefði
bakað henni leiðindi og
óþægindi með ágengni
sinni (því Candice hafði
ekkert kært sig um hann).
Allir urðu þá vinir aftur.
Samband þeirra Burt og
Sally Fieid fór út um
þúfur, einmitt þegar
mestu sögurnar gengu um
að þau væru að ganga í
það heilaga.
En þá kom Loni í spilið,
og ástin blómstraði á ný.
En svo komu upp þessi
illindi á milli þeirra. Burt
var fljótur að sjá að sér,
og vildi á eftirminnilegan
hátt biðjast afsökunar á
skapillskunni. í þetta sinn
var afsökunarbeiðnin
send ásamt Rolls Royce-
bfl heim að húsi þeirra.
Bfllinn var skráður á nafn
Loni, og kort var fest á
dömuna, sem er til skrauts
á vélahúsinu á RR-bfln-
um. Á kortinu stóð „Fyrir-
gefðu mér, elskan!“