Tíminn - 09.09.1982, Blaðsíða 3

Tíminn - 09.09.1982, Blaðsíða 3
FIMMTUDAGUR 9.SEPTEMBER 1982. 3 fréttir „ÞJOÐ YÐAR ER ÞJÓD MIKIliA HAGNÝTRA AFREKA” — sagði Vígdís Finnbogadóttir ■ „Herra forseti. Þjóð yðar er þjóð mikilla andlegra og hagnýtra afreka, - svo ekki sé minnst á víðfeðmi og völd. Hvað höfum við, smáþjóðirnar, að segja hinum stóru? Ef til vill er þegn fámennrar þjóðar sér meira meðvitandi um, að hann eða hún geti lagt eitthvað af mörkum til nútímans. Meðal lítillar þjóðar er þörf fyrir sérhvern skapandi huga, - já, sérhverri hæfri hönd er fagnað, geti hún lagt sitt að mörkum til þess að sameiginlegu, verðugu markmiði sé náð“ sagði Vigdís Finnbogadóttir forseti Islands m.a. í ávarpi sínu í hádegisverðarboði J>ví sem Ronald Reagan Bandaríkja- forseti hélt til heiðurs forseta íslands og öðrum þjóðhöfðingum Norðurlandanna sem staddir eru í Washington. ■ Vel fór á með forselum íslands og Bandaríkjanna er þcir hitlusl í Hvíta húsinu. Þau munu hafa rxtt um menningar- og leikhúsmál á fundi sínum. Símamynd GTK „Hvort sem við erum bandarísk eða norræn, hefi ég mikinn metnað fyrir okkar hönd: Gefum niðjum okkar orð til að hugsa um, dáðir til að minnast, menningu að byggja á. Gefum framtíð- inni mynd af okkur, sem þolir að vera framkölluð, og sýnir að minnsta kosti brot af hugsjón" sagði forseti íslands ennfremur í ávarpi sínu. Áður en hádegisverðarboðið hófst hitti Vigdís Finnbogadóttir Reagan Bandaríkjaforseta að máli og fór vel á með þeim. Umræðuefnið var menningar - og leikhúsmál enda eiga bæði skammt að sækja á leiklistarsviðinu. í hádegisverðarboðinu voru auk Vigdísar, Reagan og konu hans þau Henrik Danaprins, Bertil Svíaprins, Sonja Noregsprinsessa og Haraldur krónprins Noregs auk finnska utanríkis- ráðherrans. Gestalistinn var raunar upp á þrjár þéttskrifaðar síður og á honum mátti finna nöfn Bush varaforseta Bandaríkjanna og aðra framámenn í stjórninni í Washington auk fulltrúa annarra landa. Undir lok ávarps síns sagði forseti íslands Vigdís Finnboga- dóttir: „Herra forseti Bandaríkjanna, for- setafrú Reagan. Einlægar þakkir fyrir gestrisni á heimsfrægu heimili sýnda landi mínu og Norðurlöndunum öllum. Við vitum að velferð þjóða okkar er innbyrðis nátengd, svo og velferð allra annarra þjóða. Það er einlæg ósk mín, að börn okkar og komandi kynslóðir geti lesið um hve miklir friðflytjendur við vorum, þótt við horfum raunsæjum augum á ástand heimsmála um þessar mundir. Megi heill og farsæld fylgja gest- gjöfum okkar og bandarísku þjóðinni.“ - FRI „HEFUR ALLTAF FUNDIST AMERÍKA MÉR NÁKOMIN” sagdi Vigdís Finnbogadóttir forseti íslands vid opnun menningarkynningarinnar Scandinavia Today ■ „Þetta er í fyrsta skipti, sem ég hef þá ánægju að stíga fxti mínum á ameríska grund. Og samt hefur mér og öllum „norrænum mönnum“ alltaf fundist Ameríka mér nákomin“ sagði Vigdís Finnbogadóttir m.a. í opnunar- ræðu sinni á menningarkynningunni Scandinavia Today en kynningin var formlega opnuð við hátíðlega athöfn í Kennedy Center í Washington síðdegis í gær. Mikið fjölmenni var viðstatt opnunar- hátíðina en á dagskránni var m.a. söngur karlakórsins Fóstbræðra sem sungu nokkur lög fyrir gesti. „Það hefur árum saman verið sann- færing mín og keppikefli, að við eins og aðrar þjóðir ættum að leitast við að flytja út menningu okkar ekki síður en annan vaming, að við ættum að kynna menningu okkar meðal annarra þjóða, sem lifa á annan hátt. Ég hefi ekki getað þagað yfir þessari skoðun minni í viðræðum við starfsfé- laga og vini, þegar menningarmál hafa ■ Forseti íslands Vigdís Finnboga- dóttir heimsótti Ronald Reagan forseta Bandaríkjanna í Hvíta húsið í dag. Af því tilefni færði forsetinn Bandaríkja- forseta að gjöf Ijósmyndaðaopnu úr Grænlendingasögu í Flateyjarbók, þar sem greinir frá ferð Leifs Eiríkssonar til Vínlands. Myndina tók Leifur Þorsteins- son Ijósmyndari. verið til umræðu á Norðurlöndum. Lykillinn að gagnkvæmum skilningi er að kunna að meta gildi menningar annarra þjóða, - í víðasta skilningi þessa orðs. Um leið og skilningi hefur verið komið á þjóða í millum myndast vinátta. Þannig byggjast brýr milli þjóða. Þá læra mennirnir að skilja hverjir aðra, - hve langt sem kann að vera á milli hér á hnettinum. Slík vinátta hlýtur að stuðla að heimsfriði. Villta vestrið Síðar í ræðu sinni sagði Vigdís: „Fornsögurnar minna mig að nokkru leyti á kvikmyndir úr villta vestrinu, hinar bestu þeirra, eins og „High Noon“. Þær fjalla um það sama: hvernig koma eigi á lögum og reglu í samfélagi landnema þar sem nánast engin lög hafa verið sett: „Með lögum skal land byggja, en með ólögum eyða“ segir vitur maður hinna bestu sagna okkar. Lög, heiður, réttlæti, sjálfræði og friður. - Þetta eru meginviðfangsefni fortíðarinnar, nú- tíðarinnar - og í framtíðinni. Það er ekki algengt, að fimm fullvalda ríki taki saman höndum um að sýna menningarafrek sín. En hafa ber í huga, að hið norræna samstarf er ekki neitt venjulegt fyrirbæri í heimi nútímans. Ég leyfi mér að fullyrða, að í fáum eða engum öðrum tilvikum starfa fullvalda ríki svo náið saman og á svo mörgum sviðum sem Norðurlöndin fimm.“ Regnboginn brú milli tveggja mismunandi heima Undir lok ræðu sinnar sagði Vigdís: „í norrænni goðafræði var regnboginn brú milli tveggja mismunandi heima. Þjóðtrúin segir, að sá sem stendur undir regnboganum geti óskað sér hvers sem er. Hin marglitu tengsl þjóða okkar er slík brú. Með gullbikar þann í hendi, sem ég trúi að norræn menning sé, óska ég, að yður finnist hún svo mikils virði að þér viljið kynnast henni betur, eins og við viljum ætíð heyra um síðustu afrek yðar á menningarsviðinu. Það mun styrkja vináttu okkar og gagn- kvæma umhyggju í þcssum heimi, þar sem við viljum hlakka til framtíöar- innar. Fyrir hönd norðurlandanna er það mér heiður og ánægja að opna sýninguna „Scandinavia Today“ hér í Washington.“ RÝMING ARSALA á gólfteppum og bútum 20%-50% AFSLÁTTUR Rýmingarsölunni lýkur í dag, fimmtudag. Einstakt tækifæri til teppakaupa lEPPfíLfíND Grensásvegi 13 Tryggvabraut 22, símar 83577 Akureyri °g 83430. Sími 25055

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.