Tíminn - 09.09.1982, Side 4
4
FIMMTUDAGUR 9.SEPTEMBER 1982.
fréttirl
Tillögur um lausn togaravandans tilbúnar í næstu viku:
„ÞAÐ ER OFÆRT AÐ SKIP
SEUI AFLANN ERLENDIS
— „á meðan starfsfólk fiskvinnslunnar hér heima væri atvinnulaust
sökum stöðvunar flotans’% segir Steingrímur Hermannsson
11
■ - Ég greindi viðræðunefnd LÍÚ frá
þeirri umfangsmiklu og ítarlegu athugun
á leiðum til lausnar vanda útgerðar-
innar, sem unnið er að í Sjávarútvegs-
ráðuncytinu í samráði við Þjóðhags-
stofnun og fleiri aðila, jafnframt sem ég
óskaði eftir tiliögum frá landssamband-
inu. Ég hef ítrekaö beðið um þessar
tillögur cn engar fengið, enda hafa
forráöamenn LIÚ ávallt lýst því yfir að
það væri alfarið verk stjómvalda að
levsa þennan vanda, sagði Steingrímur
Hermannsson, sjávarútvegsráðherra í
viðtali við Tímann eftir fundinn með
viðræðuncTnd LIÚ.
í bréfi sem ráðherra afhenti viðræðu-
ncfndinni á fundinum er tekið fram að
unnið sé að athugunum á lciðum til
lausnar vanda útgerðarinnar, en sökum
umfangs þessarar athugunar sem unnið
er að í samráði við Þjóðhagsstofnun,
ríkisbankana og Fiskveiðasjóð, yrðu
niðurstöður ekki tilbúnar fyrr en í næstu
viku. Þ.e.a.s, eftir að stöðvun fiskveiði-
flotans kæmi til framkvæmda. í þeim
hugmyndum sem ráðherra viðraði við
viðræðunefndina á fundinum, til að
skapa betri rekstrargrundvöll fyrir út-
gerðina, er m.a. gert ráð fyrir 10-20%
lækkun olíukostnaðar og verulegri
lækkun fjármagnskostnaðar, en síðast-
nefnda atriðið sagði Steingrímur að
Kristján Ragnarsson hefði sagt að væri
einskis vert.
- Ég gerði viðræðunefndinni jafn-
framt Ijóst að ég myndi leggja til við
ríkisstjórnina að þær sölur sem LÍÚ
hefur skipulagt erlendis, eftir að stöðvun
fiskveiðiflotans kemur til framkvæmda,
yrðu stöðvaðar, sagði Steingrímur Her-
mannsson, sem tók jafnframt fram að
vel hefði verið tekið í þessa tillögu í
ríkisstjórninni. Það væri enda ófært að
skip scldu erlendis á meðan starfsfólk
fiskvinnslunnar hér heima væri atvinnu-
laust sökum stöðvunar flotans.
Niðurstöður athugunar Sjávarútvegs-
ráðuneytisins á vanda útgerðarinnar og
leiðir til úrbóta munu væntanlega liggja
fyrir í byrjun næstu viku og sagði
Steingrímur Hermannsson að þá yrðu
fulltrúar LÍÚ boðaðir á nýjan viðræðu-
fund, en auk þess yrði' fulltrúum
sjómanna gert viðvart um innihald
tillagna ráðuneytisins.
-ESE
Steingrímur Hermannsson.
Stöðvuri fiskiskipaflotans:
„Bitnar hardast
á þeim sem
minnst mega sín"
- segir Óskar Vigfússon, forseti Sjómannasambandsins
HLEMMI
Laugavegi 118 — Sími 29311
HÖFUM OPNAÐ
■ - Ef til stöðvunar fiskveiðiflotans
kemur, þá bitnar það harðast á þeim sem
minnst mega sín, þ.e.a.s. undirmönn-
unum á skipunum sem iægst hafa launin,
sagði Oskar Vigfússon, forseti Sjó-
mannasambands íslands í samtali við
Tímann er hann var inntur eftir áhrifum
stöðvunar fiskveiðiflotans fyrir félags-
menn í Sjómannasambandinu.
Óskar sagði að undirmenn hefðu
aðeins sjö daga uppsagnarfrest og ef til
uppsagna kæmi þá gæti hann aðeins
beint þeim tilmælumtil undirmanna að
láta skrá sig atvinnulausa þegar í stað.
- Við teljum að það muni hafa í för
með sér ómældan skaða, ekki bara fyrir
sjómenn, heldur þjóðarbúið í heild ef
flotinn stöðvast, en við verðum að ætla
að þarna sé um nauðvörn hjá út-
gerðarmönnum að ræða, sagði Óskar
sem jafnframt tók fram að Sjómanna-
sambandið væri reiðubúið til að leggja
sitt af mörkum og taka þátt í viðræðum
með útvegsmönnum og stjórnvöldum ef
það gæti orðið til lausnar þeim vanda
sem við væri að glíma. -ESE
STORA OG GLÆSILEGA
BÓKA- OG RITFANGA-
VERSLUN VIÐ
HLEMMTORG
Allar skólavörur
og námsbækur
ÍSLENSKAR OG ERLENDAR
„Fátt getur komið
í veg fyrir stöðvun”
— segir Kristján Ragnarsson
■ - Það gerðist ekkert á þessum fundi sem
gaf okkur tilefni til að hugteiða frestun á
stöðvun fiskiskipaflotans og ég held að það
sé fátt sem nú getur komið í veg fyrir þessa
stöðvun nú þegar sjávarútvegsráðherra er
farinn úr landi, sagði Kristján Ragnarsson,
formaður Landssambands íslenskra útvegs-
manna í samtali við Tímann eftir fund
viðræðunefndar LfÚ og sjávarútvegsráð-
herra.
Kristján sagði að hann gerði ráð fyrir því
að hvert útgerðarfyrirtæki fyrir sig hefði nú
gert ráðstafanir til að mæta stöðvun
fiskveiðiflotans. Uppsagnarfrestur háseta og
annarra undirmanna væri sjö dagar, en
yfirmenn hefðu lengri uppsagnarfrest.
Að sögn Kristjáns hefur hann ekki heyrt
um neitt útgerðarfyrirtæki á landinu sem
ekki muni virða samþykkt trúnaðarráðs LÍÚ
og engar áskoranir um frestun á stöðvun
fiskiveiðiflotans hefðu borist nema áskor-
unin frá Útvegsmannafélagi Þorlákshafnar
sem samþykkt var á mánudag. Sú áskorun
yrði þó ekki tekin til greina, enda hefðu
stjómvöld ekki beðið um neinn frest.
- ESE
Bæjarútgerðin styð-
ur stöðvun flotans
— ályktun trúnadarráös LÍÚ
samþykkt með fjórum atkvæðum
sjálfstæðismanna í útgerðarráði
■ Utgerðarráð Bæjarútgerðar
Reykjavíkur hefur samþykkt með fjór-
um atkvæðum gegn þrem að virða
ályktun trúnaðarráðs Landssambands
íslenskra útvegsmanna um stöðvun
fískveiðiflotans frá og með miðnætti
næst komandi föstudagskvölds. Full-
trúar sjálfstæðismanna í ráðinu greiddu
atkvæði sitt með stöðvun, en fuUtrúar
minnihlutaflokkanna voru á móti.
Það var Ragnar Júlíusson, formaður
útgerðarráðs BÚR sem lagði ályktun
trúnaðarráðs LÍÚ fyrir útgerðarráðs-
fundinn í gær. Áður en til atkvæða-
greiðslu kom lagði Sigurjón Pétursson
fulltrúi Alþýðubandalagsins fram tillögu
um að verða ekki við samþykkt LÍÚ, en
tillagan hlaut aðeins þrjú atkvæði
fulltrúa minnihlutaflokkanna og því
ekki stuðning. Tillaga sjálfstæðismanna
um stuðning við LÍÚ var síðan samþykkt
með fjórum atkvæðum gegn þremur.
- Afkoma Bæjarútgerðar Reykjavík-
ur er ekki það burðug að við sæjum
okkur fært að taka ekki þátt í þessum
aðgerðum og reyndar tel ég að það hefði
verið hreint ábyrgðarleysi að hlaupa
undan merkjum, sagði Ragnar Júlíus-
son, formaður útgerðarráðs BÚR í
samtali við Tímann að loknum fundi
útgerðarráðs.
Ragnar sagði að það lægi ljóst fyrir að
a.m.k. flest öll skip Bæjarútgerðarinnar
yrðu að veiðum er stöðvunin kæmi til
framkvæmda og þau fengju að sjálf-
sögðu að ljúka sínum veiðiferðum. Því
sagðist Ragnar ekki búast við því að
togarar BÚR myndu stöðvast fyrr en að
10-12 dögum liðnum, ef til stöðvunar
kæmi og vinnsla væri þar með tryggð í
a.m.k. hálfan mánuð í landi.
-ESE