Tíminn - 09.09.1982, Side 12

Tíminn - 09.09.1982, Side 12
12 FIMMTUDAGUR 9.SEPTEMBER 1982. heimilistíminn Umsjón: B.St. og K.L. ■ Flestar konur þekkja vandamálið: of mikill hárvöxtur á óæskilegum stöðum. Af hverju stafar þessi hárvöxtur? Hormónajafnvægi getur truflast, a.m.k. um stundarsakir, og sumir segja, að of mikil sól og streita geti örvað hárvöxt- inn. En hverjar eru staðreyndimar og til hvaða ráða getum við gripið til að leysa þennan vanda? Hér á eftir fara nokkrar upplýsingar þar að lútandi. Það er álit lækna að gelgjuskeiðið og tíðahvörfin valdi flestum vandamálum í sambandi við of mikinn hárvöxt. Þeir nefna líka að ýmsar breytingar á líkamsstarfseminni á meðgöngutíma geti leitt til of mikils hárvaxtar. Sumar konur kenna pillunni um og segjast aldrei hafa þurft að glíma við þetta vandamál fyrr en þær hófu að taka hana. Þær kunna að hafa eitthvað til síns máls, þar sem progesterone, karlhormón, sem er að finna t mörgum tegundum getnaðarvarnarpilla, kann að örva hár- vöxt. Fyrir kemur, þó að ekki sé það algengt, að rekja megi of mikið hár til líkamlegs sjúkleika, truflunar á kirtla- starfsemi líkamans eða hormónapilla. Norrænar konur hafa yfirleitt minna áberandi hár um líkamann en suðrænar konur, sem oftar hafa dökkan hárvöxt í andlitinu. Austrænar konur verða minnst fyrir barðinu á óþarfa hárvexti. Ef ekki er um ættlægt einkenni að ræða, en kona tekur eftir því, að hún er skyndilega farin að vera hárprúðari á vitlausum stöðum, ætti hún að hafa samband við lækni sinn, sem kann að finna ástæðuna eða kunna einhver ráð. En hver er besta aðferðin til að losna við of mikið hár, þar sem það er til óprýði? sú aðferð, sem valin er, fer eftir því hvar hárið er og hvort ætlunin er að Einföld ráð eru til að losna við hárvöxt í handarkrikanum. strokum. Nokkrum sekúndum síðar, þegar vaxið er orðið þurrt, er það rifið af með snörum handtökum. Góður snyrtisérfræðingur fer aðra yfirferð með vaxi yfir þá bletti, þar sem eitthvert hár hefur orðið eftir og plokkar að síðustu þau hár burt, sem þrautseigust eru. Þá er rakakrem borið ríkulega á. Háreyðingarkrem Háreyðingarkrem eru fyrst og fremst notuð til að fjarlægja hár á handleggjum og fótleggjum. Það er ekki ráðlegt að nota þau við hárvöxt í andliti, nema því aðeins að skýrt sé tekið fram á umbúðunum, að kremið sé sérstaklega ætlað til þeirra nota. Þessi krem starfa þannig, að þau leysa upp hárið á líkamanum. Framleiðendur halda því fram, að þau vinni betur gegn hárvext- inum en rakstur, en þar sem hárin eru fjarlægð mjög nærri húðinni, virðist munurinn á þessum tveim aðferðum varla merkjanlegur. Háreyðingarkremið er borið þykkt á hárið og áhrifamátturinn mismikill eftir hárgerðinni. Háreyðingarkrem leysa snarlega upp mjúk, Ijós hár á leggjum og í holhönd, en tekur lengri tíma að vinna á grófara og dökku hári, því hári, sem hefur verið rakað af árum saman og er orðið broddótt. En aldrei ætti aðláta kremið liggja lengur á húðinni en mælt er með, í því skyni að gera það áhrifameira. Það gæti skemmt húðina og jafnvel orsakað bruna. Það er alltaf skynsamlegt að gera smáprufu með háreyðingarkremi á litlum húðbletti áður en ráðist er í að bera það á stór svæði. Farið vandlega eftir ráðleggingunum á umbúðunum. Þær eru margprófaðar og eiga að tryggja eins mikið öryggi og áhrifamátt og hægt er. Ýmsar aðferðir til að losna við óæskilegan hárvöxt Vikursteinar Þeir eru meðal elstu tækja til að fjarlægja óæskilegan hárvöxt. Oftast eru þeir notaðir til að losna við harða húð á hælum og alnbogum, en þeir, sem eru í kostir þeirra og gallar fjarlægja það til skamms tíma eða til frambúðar. Bieiking Bleiking á hári, sem er kunnáttusam- lega gerð, getur „falið“ hár, sem er fíngert, cn dökkt. Þó að þessi aðferð sé einkum viðhöfð við andlitshár, er ekkert því til fyrirstöðu að nota hana einnig á fótleggi eða handleggi (en ekki í handarkrika). Bleikingin gerir ekkert annað en að lita hárið Ijóst og er hentugust við hár á efri vör, milli augabrúna, á kjálkum niður undan eyrunum og hökunni. Við bleikinguna notið þið súrvatn, 3%, sem þið getið keypt í apótekinu. Berið það á með bómullarpinna og látið liggja á í um u.þ.b. hálftíma. Skolið það þá af og berið síðan á milt „skin tonic“ og síðan rakakrem. Bleiking hefur þann stóra kost að valda engum sársauka og vera þar að auki ódýr aðferð, en fyllstu varúðar verður að gæta við hana. Súrvatnið má t.d. alls ekki fara í augun. Plokkun Plokkun með pinsettu á hvergi við, nema við augabrúnir. Best er að nota stífa, hreina pinsettu og draga hárið út í sömu átt og það vex. Hárið vex aftur, stundum ívið meira veikburða, en plokkun er ekki nógu áhrifamikil aðferð við aðra hluta andlitsins en augabrún- imar, t.d. hökuna. Plokkun veldur smávegis ertingu á flestar gerðir hör- unds. Það er því ráðlegt að strjúka yfir með örlitlu „skin tonic“ og síðan rakakremi strax að plokkun lokinni. Rakstur Enn þann dag í dag er rakstur algengasta aðferðin til að fjarlægja hár af fót- og handleggjum, svo og í ■ Hárvöxtur á óæskilegum stöðum, t.d. í andliti, cr mjög til óprýði. Ymsar aðferðir eru til að fjarlægja hann. handarkrikum. Það eru hreinar kerl- ingarbækur að hárið vaxi aftur þéttara og þykkara eftir rakstur, það er bara útlitið á hárinu, sem hefur breyst, þegar það fer að vaxa aftur, líkt og skeggbroddar. Ekki er álitið, að rakstur sé heppilegasta aðferðin til að fjarlægja hár af fótleggjunum, en hún er þó áhrifamikil. Það er sjálfsagt að gæta varúðar og skera sig ekki til blóðs, því að ef hné eða ökklar eru sífeilt að verða fyrir skrámum á sömu stöðunum, koma ör. Ef notuð er gamaldags rakvél, verður að ganga vel úr skugga um það áður en hafist er handa, að hömndið sé vel blautt og vel sápað. Þar sem rakstur þurrkar húðina, er nauðsynlegt að bera óspart á rakakrem (handáburður er ágætur) að rakstrinum loknum. Vaxmeðferð Ein elsta aðferðin, sem konur hafa notast við til að fjarlægja hér er að bera brætt vax á staðinn og láta storkna, en draga það síðan af. Hún er enn þann dag í dag besta aðferðin til að ná hárum af fótleggjunum. Ástæðan er sú, að þegar vaxið er dregið af hömndinu, tekur það ekki bara með sér hárin, heldur einnig hárrætumar. Þetta leiðir til þess, að hárin vaxa aftur hægar og nýju hárin verða mýkri viðkomu. Margar konur halda þvt' fram, að hárvöxtur eftir vaxmeðferð verði í alminnsta lagi, eða jafnvel enginn. Þetta er því góð aðferð til að beita fótleggina og handleggina (ef þú treystir þér til). Hægt er Nað beita vaxmeðferð heima fyrir, en ráðlegt er að leita a.m.k. í fyrsta skipti til sérfræðings. Snyrtifræðingurinn reiknar með, að konan sé sæmilega hærð á leggjunum áður en hún leggur í meðferðina. Þá dreifir hún púðri á leggina áður en hún ber heitt vaxið á. Það er borið á í löngum mýkra lagi, eru stundum notaðir til að eyða hári. Er þeim þá nuddað á húðina með reglubundnum hreyftngum. Þetta er ódýr og auðveld aðferð, en hún er seinleg, þreytandi oggetur ert hörundið. Eyðing með rafstraum Eyðing hára með rafstraum er eina þekkta aðferðin til að eyða hári til frambúðar. Hún er því besta aðferðin til að losna við hárvöxt í andlitinu, á hökunni, kinnum, augabrúnum eða til að hækka ennið. Það er ekki á færi annarra en sérfræðinga að beita þessari aðferð, sem byggist á því, að stinga „hár“mjórri nál í hárpokana. Veikur rafstraumur, sem hleypt er á nálina, drepur rótina. Stundum er ekki nóg að gangast undir þessa meðferð einu sinni, en eftir tvö eða þrjú skipti ætti að sjást augljós árangur. Þessi meðferð hefur svo gott sem engan sársauka í för með sér, það rétt finnst eins og títuprjónsstunga, þegar hárfín nálin rýfurhárrótarpokann. Fyrir kemur, að konur, sem hafa gengist undir þessa meðferð, kenna henni um smáör, sem þá eru minni en títuprjónshaus, en það er st'ður en svo að allar konur komi fram með þá kvörtun. Aðalókosturinn við þessa aðferð til að losna við hárvöxt, er sá, að ef um stórt svæði er að ræða, tekur hún geysilangan tíma og er eftir því kostnaðarsöm. Klipping Klipping er ekki góð aðferð til að losa sig við óvelkomin hár, þá að læknar mæli stundum með því, að klippt séu stök hár, sem vaxa t.d. út úr vörtum, þar sem þær geti verið varhugaverðar og allt fikt við þær getur haft breytingu á vörtunni í för með sér. Fáar konur eru svo lagnar við klippinguna, að þeim takist að klippa hárið alveg upp við skinn, því vill oftast verða eftir heldur óglæsilegur broddur. f þessum tilfellum hentar rafmagns- eyðing alveg ágætlega, en þó er vissara að hafa samráð við lækni fyrst. húsráð Bruna- blettir á borðinu? ■ Fyrír kemur, að logandi sígarettur detta af öskubakkan- um og brenna út á borðplötunni í staðinn. Ef borðið er úr viði, sem borin er olía á, þarf ekki annað að gera en að fá sér fína stálull og nudda með henni blettinn af. Skal þá nudda þvert á viðaræðarnar. Síðan er borin olía á. Notiö ekki stálull til að ná blettum af eikarhúsgögnum, þau geta orðið blá við meðferðina! Rauðvms- blettir ■ Hefur nokkur verið svo óheppinn að setja um koll rauðvínsglas, svo að vínið hefur flætt um allt? Þá er um að gera að hafa snör handtök og nudda kartöflumjöli á blettinn, og verið óspör á kartöflumjölið. Kartöflu- mjölið drekkur í sig vætuna, og síðan þarf ekki annað að gera en draga „deigklumpinn“ af. Hafi dúkur orðið fyrir óhappinu, þarf ekki annaö að gera en að þvo hann á eftir, en hafi víniö hellst niður í gólfteppið, er nóg að ryksuga. Það má allt eins vel gera daginn eftir. Hreinsun á strau- járninu ■ Ef straujárnið neitar að verða hreint, þó að reynt sé að þrífa það með heföbundnum hætti, er reynandi að hella ediki í rakan klút og nudda það með því. Oftast nær er það gerviefni eða stífelsi, sem hefur sest á straujárniö og það lætur yfirleitt undan við þessa meðferð. Aumingja eyrna- snepl- arnir ■ Hver man eftir eyrnasneplun- um, - að þeir þurfi líka að fá næringarkrem og sóláburð eins og sjálft andlitið? Nú skulurn við muna eftir því, þegar fer að kólna, að vernda eyrnasneplana með aldlitskremi og nudda þá vel til að örva blóðrásina. Og ef þú notar oft eyrnalokka með klemmu, þá ættir þú að taka eymalokkana úr eyrunum, svona tvisvar yfir daginn og nudda eyrnasneplana vel smástund, áður en lokkarnir em settir í aftur.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.