Fréttablaðið - 10.01.2009, Qupperneq 8
8 10. janúar 2009 LAUGARDAGUR
VEISTU SVARIÐ?
1 Þjóðarrétti hvaða lands
býður nýi veitingastaðurinn
Kitchen við Laugaveg upp á?
2 Hversu margir Íslendingar
eru skráðir á Fésbókina (Face-
book) á netinu?
3 Hver er áhættuleikari fyrir
breska popparann James Mor-
rison?
SVÖRIN ERU Á SÍÐU 46.
VERÐLAUN Samfélagsverðlaun
Fréttablaðsins verða veitt nú í lok
febrúar og er þetta í fjórða sinn
sem þau eru veitt. Markmið verð-
launanna er að heiðra þá sem lagt
hafa sitt af mörkum til að bæta
samfélagið á einhvern hátt. Leitað
er til lesenda blaðsins og þeir beðn-
ir að senda inn tilnefningar að verð-
launahöfum. Verðlaunin skiptast í
fimm flokka.
Fyrsti flokkurinn nefnist Hvunn-
dagshetjan. Þau verðlaun koma í
hlut einstaklings sem sýnt hefur
sérstaka óeigingirni eða hugrekki,
hvort sem er í tengslum við einn
atburð eða með vinnu að ákveðnum
málaflokki í lengri tíma.
Annar flokkurinn kallast Frá
kynslóð til kynslóðar. Þar koma til
greina kennarar, leiðbeinendur,
þjálfarar eða aðrir uppfræðarar
sem skarað hafa fram úr á einhvern
hátt. Einnig koma til greina félaga-
samtök sem sinna börnum af sér-
stökum metnaði og alúð.
Til atlögu gegn fordómum nefn-
ist þriðji flokkurinn og geta þau
verðlaun fallið hvort sem er ein-
staklingi eða félagasamtökum í
hlut.
Heiðursverðlaun hreppir ein-
staklingur sem með ævistarfi sínu
hefur stuðlað að betra samfélagi.
Fimmti og síðasti flokkurinn nefn-
ist Samfélagsverðlaunin og eru þau
verðlaun veglegust. Ein milljón
króna rennur þar til félagasamtaka
sem unnið hafa framúrskarandi
mannúðar- eða náttúruverndar-
starf og hafa lagt sitt af mörkum til
að gera íslenskt samfélag betra
fyrir alla.
Allir, félagasamtök sem einstakl-
ingar, þekktir og óþekktir, sem eiga
skilið virðingarvott fyrir gjörðir
sínar og framgöngu koma til greina
sem verðlaunahafar.
Dómnefnd Samfélagsverðlauna
Fréttablaðsins er í ár skipuð þeim
Elliða Vignissyni, bæjarstjóra í
Vestmannaeyjum, Guðjóni Frið-
rikssyni sagnfræðingi, Hildi Peter-
sen, stjórnarformanni Kaffitárs og
Pfaff, Katrínu Jakobsdóttur alþing-
ismanni og Steinunni Stefánsdótt-
ur, aðstoðarritstjóra Fréttablaðs-
ins, sem jafnframt er formaður
dómnefndar.
Steinunn segir verðlaunin hafa
verið mörgum einstaklingum og
félagasamtökum hvatning síðustu
þrjú ár. „Það hefur oft verið gaman
að sjá hvað útnefning til Samfé-
lagsverðlauna kemur fólki á óvart.
Margir vinna sín störf í hljóði og
búast hreint ekki við því að eftir
þeim sé tekið. Í ár verða verðlaunin
svo veitt í allt annars konar samfé-
lagi en árin þrjú á undan. Það verð-
ur óneitanlega breyting og ekki
síður ánægjulegt og gagnlegt að
veita slík verðlaun í þessu árferði,“
segir Steinunn.
Lesendur geta sent tilnefningar
sínar til Samfélagsverðlaunanna á
hlekk á Vísi.is, www.visir.is/samfe-
lagsverdlaun. Sömuleiðis má senda
tilnefningar á netfangið samfelags-
verdlaun.is eða bréf í pósti merkt
Samfélagsverðlaun Fréttablaðsins,
Skaftahlíð 24, 105, Reykjavík. Skila-
frestur er til hádegis mánudaginn
26. janúar. kjartan@frettabladid.is
Samfélagsverðlaun
veitt í fjórða sinn
Samfélagsverðlaun Fréttablaðsins eru veitt einstaklingum eða félagasamtökum
sem lagt hafa sitt af mörkum til að bæta samfélagið. Fréttablaðið hvetur lesend-
ur til að hafa áhrif á valið með því að senda inn tillögur að verðlaunahöfum.
GÓÐVERKIN VERÐLAUNUÐ Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, afhenti Hjálpræð-
ishernum Samfélagsverðlaun Fréttablaðsins á síðasta ári fyrir yfir hundrað ára starf
hérlendis í þágu þeirra sem minna mega sín. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
BANDARÍKIN, AP Neðri deild ríkis-
þingsins í Illinois samþykkti í gær
að ákæra Rod Blagojevich ríkis-
stjóra til embættismissis.
Öldungadeild þingsins þarf nú
að taka afstöðu til þess, hvort reka
eigi Blagojevich úr embætti fyrir
spillingu og misnotkun valdastöðu
sinnar. Aldrei áður hefur ríkis-
stjóri í Illinois verið ákærður til
embættismissis.
„Það er skylda okkar að hreinsa
upp ósómann og stöðva skrípasýn-
inguna sem stjórn Illinois er orðin
að,“ sagði einn þingmanna, demó-
kratinn Jack D. Franks.
Rannsókn þingmanna neðri
deildar leiddi í ljós sannanir fyrir
því að Blagojevich hefði misnotað
völd sín, meðal annars með því að
fara ekki rétt með skattfé, hrinda
verkefnum í framkvæmd án þess
að hafa til þess samþykki þingsins
og brjóta gegn ráðningarlögum
ríkisins.
Blagojevich er einnig sakaður
um að hafa reynt að bjóða þing-
sæti Baracks Obama í öldunga-
deild Bandaríkjaþings í skiptum
fyrir pólitíska greiða. Hann neitar
öllum þessum ásökunum og segist
sannfærður um að öldungadeildin
muni komast að annarri niður-
stöðu en neðri deildin.
Hann fékkst þó ekki til að bera
vitni fyrir rannsóknarnefnd þings-
ins, og hefur heldur ekki gefið
neinar skýringar á verkum
sínum.
- gb
Rod Blagojevich, ríkisstjóri í Illinois, ákærður til embættismissis:
Misnotkun valds sögð sönnuð
ROD BLAGOJEVICH Sakaður um að hafa
boðið þingsæti Baracks Obama til sölu.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Kvöldskóli BHS
Borgarholtsskóli býður kvöldskólanám í málm- og véltæknigreinum.
Eftirtaldar greinar verða í boði:
Málmsuða: HSU, LSU, RLS og RSU
Málmsmíðar: HVM, PLV, VVR og REN
Teikningar: GRT, CAD, TTÖ og ITM
Véltækni: AVV og VÖK
Kennt er virka daga frá 18:10 til 22:30 og laugardaga frá 8:10 til13:50
Innritun verður 8. og 9. janúar kl. 17 – 19,10. janúar kl. 11 – 14
Kennsla hefst 12. janúar
Innritun lýkur í dag
Nánari upplýsingar eru á www.bhs.is og í síma 535 1716
NÝSKÖPUN „Ef allt gengur
upp er að verða til sjóður
[Frumtak] sem getur
styrkt íslenskt atvinnulíf
næstu fimm til sjö árin
með hálfum sjötta millj-
arði króna,“ sagði Össur
Skarphéðinsson, iðnaðar-
og sprotamálaráðherra, í
ávarpi sínu um Tækniþró-
unarsjóð og starfsemi
sprotafyrirtækja í Ráð-
húsinu í Reykjavík í gær.
Frumtak er samlags-
sjóður sem fjárfestir í
nýsköpunar- og sprotafyr-
irtækjum sem þykja vænleg til
vaxtar og útrásar.
Að sjóðnum standa hið opin-
bera, bankarnir þrír og sex
stærstu lífeyrissjóðir landsins. Í
honum eru 4,2 milljarðar króna,
þar af 1,5 milljarðar af Símapen-
ingunum svokölluðu.
Össur sagði við-
ræður hafa staðið yfir
við evrópska aðila frá
síðasta ári og megi
búast við að einn
milljarður króna bæt-
ist í sjóðinn síðar á
árinu gangi allt eftir.
Þá stefnir allt í að
Frumtak undirriti
fyrsta samstarfs-
samning sinn í næstu
viku, að sögn Össur-
ar.
Ráðherrann kynnti
jafnframt nýjar áherslur Tækni-
þróunarsjóðs sem gera honum
kleift að fjárfesta í allt að tólf
nýsköpunar- og sprotafyrirtækj-
um, sem mislangt eru á veg
komin með verkefni sín, á hverju
ári. - jab
Líkur á samningi við sprotafyrirtæki í næstu viku:
Milljarðar til nýsköpunar
ÖSSUR
SKARPHÉÐINSSON
MINNING Um hundrað hlauparar á
Suðurlandi, hópur úr hlaupahópn-
um Frískum Flóamönnum,
fjölskylda, vinir og nærsveitar-
menn, hlupu á fimmtudagskvöld-
ið minningarhlaup um Guðjón
Ægi Sigurjónsson sem lést í
bílslysi nýlega.
Bragi Bjarnason þjálfari segir
að lagt hafi verið af stað frá
sundlauginni og hlaupið í
lögreglufylgd að slysstaðnum.
Þar var kveikt á friðarkertum,
blóm lögð á slysstað og haldin
kyrrðarstund. „Þetta var mjög
falleg stund,“ segir hann. - ghs
Minningarhlaup á Selfossi:
Hlaupið til
minningar um
Guðjón Ægi
FALLEG STUND „Þetta var mjög falleg
stund,“ segir Bragi Bjarnason þjálfari um
minningarstund á slysstaðnum þar sem
Guðjón Ægir Sigurjónsson hlaupari lést.
FRÉTTABLAÐIÐ/EGILL
Rektor vill sameiningu
Ágúst Einarsson, rektor Háskólans
á Bifröst, hefur lagt til að Akranes,
Borgarbyggð, Hvalfjarðarsveit og
Skorradalshreppur sameinist í einu
sveitarfélagi. Bæjarráð Akraness
segist reiðubúið til viðræðna um
sameiningarmál ef þess verði óskað
en byggðaráð Borgarbyggðar segir
ekki tímabært að taka afstöðu til
sameiningar.
VESTURLAND
STJÓRNMÁL Helgi K. Hjálmsson,
formaður Landssambands eldri
borgara, telur fulla þörf á að
húsakynni St. Jósefsspítala verði
nýtt fyrir öldrunarþjónustu.
Hann fagnar breytingum
Guðlaugs Þórs Þórðarsonar
heilbrigðisráðherra á heilbrigðis-
þjónustunni.
„Öldrunarþjónustan þarf að
vera í góðu lagi og klárlega hefur
vantað hjúkrunaraðstöðu fyrir
aldraða,“ segir Helgi. Breytingar
á borð við þær sem ráðherra boði
njóti jafnan óvinsælda en ekki sé
vanþörf á að stokka upp. „Ef rétt
er að suður í Keflavík séu nýjar
og lítið notaðar skurðstofur þá er
um að gera að nota þær. Þangað
er engin vegalengd,“ segir Helgi.
- bþs
Formaður eldri borgara:
Fagnar aðgerð-
um Guðlaugs
STJÓRNSÝSLA Guðmundur Árna-
son, ráðuneytisstjóri mennta-
málaráðuneytisins, hefur verið
ráðinn til að
fylgja eftir
ákvörðunum og
aðgerðum
ríkisstjórnar-
innar vegna
fjármálahruns-
ins. Mun hann
gegna starfinu
næsta hálfa
árið.
Halldór
Árnason, skrifstofustjóri í
forsætisráðuneytinu, gegnir
embætti ráðuneytisstjóra
menntamálaráðuneytisins á
meðan. Ragna Árnadóttir,
skrifstofustjóri í dóms- og
kirkjumálaráðuneytinu, tekur
við stöðu Halldórs í forsætis-
ráðuneytinu. - bþs
Guðmundur Árnason:
Í sérverkefni
fyrir stjórnvöld
GUÐMUNDUR
ÁRNASON
STJÓRNMÁL Nýafstaðinn aðalfund-
ur Framsóknarfélags Akraness,
vill að Gísli S. Einarsson bæjar-
stjóri verði áminntur fyrir að
segja upp fulltrúum í tólf nefndum
sveitarfélagsins. Uppsagnirnar
komu til vegna breytinga á
stjórnskipulagi bæjarins.
Framsóknarmenn átelja
framkvæmd breytinganna sem
þeir telja brjóta í bága við lög um
skyldur sveitarfélaga. Þá dragi
þær úr lýðræði. Afturkalli
bæjarstjórn ekki uppsagnirnar og
áminni Gísla hvetja framsóknar-
menn minnihluta bæjarstjórnar til
að leggja fram stjórnsýslukæru
vegna málsins. - bþs
Framsóknarmenn á Akranesi:
Vilja að Gísli
verði áminntur