Tíminn - 17.09.1982, Side 3
FÖSTUDAGUR 17. SEPTEMBER 1982
3
Tillögur sjávarútvegsrádherra samþykktar í rlkisstjórninni:
OUUKOSTNAÐUR LÆKKAÐUR
DREGIÐ UR VAXTAKOSTNAÐI
Fomsögur
kynntar f
New York
— forsetinn fer
á morgun
til Seattle
■ Vigdis Finnbogadóttir, forseti Is-
lands, opnaði sýningu á íslenskum hand-
ritum formlega í Pierpont Morgan
bókasafninu í New York í fyrrakvöld að
viðstöddu fjölmenni.
í gær fluttu þeir Bjarni Guðnason,
prófessor og Jónas Kristjánsson, for-
stöðumaður Árnastofnunar fyrirlestra í
bókasafninu. Bjarni fjallaði um íslensk-
ar miðaldabókmenntir í fyrirlestri sín-
um. Leitaðist hann við að svara þeirri
spurningu hvað olli því að islendingar
urðu þeir sagnaritarar sem raun ber
vitni.
Jónas Kristjánsson ræddi í sínum
fyrirlestri um rannsóknir á íslenskum
fornsögum. Vék hann að ýmsum nýjum
kenningum sem fram hafa komið og
nýjumrannsóknaraðferðum sem beitt
hefur verið við sögurnar. Hann talaði
um viðleitni bandarískra fræðimanna til
■ Vigdís Finnbogadóttir, forseti íslands og Jónas Kristjánsson, forstöðumaður
Ámastofunar á handritasýningunni ■ Pierpont Morgan bókasafninu í New York.
í baksýn er Ingvar Gíslason, menntamálaráðherra. Tímamynd GTK
að gera sér grein fyrir uppbyggingu
sagnanna. Hann taldi að torvelt væri að
finna ákveðnar reglur um uppbygging-
una af því að þær væru sagnfræðirit síns
tíma og því hafi sagnaritarar verið
bundnir af sínum samtímaheimildum,
þ.e.a.s. af munnmælasögum og gömlum
kveðskap. Þeir hafi aðeins að litlu leyti
verið frjálsir til að setja söguna saman
eftir eigin geðþótta.
Á laugardag heldur forsetinn ásamt
föruneyti til Seattle. GTK/- Sjó.
• 20% lækkun á olíukostnaði - 60 milljónir í sérstakan
olíusjóð
• 100 milljónir til lækkunar vaxta næsta árið
• Vanskila- og skammtímalánum breytt í lán til lengri
tíma
• Fjármagnskostnaður nýrri skipa verði skoðaður
sérstaklega
• Samráð við hagsmunaaðila um að mæta rekstrarvanda
á næsta ári
Tap útgerðarinnar lækkað
úr 11.3% í 4.5%
Samkvæmt þeim upplýsingum frá
Þjóðhagsstofnun sem lagðar voru fram
á fundi útgerðarmanna með sjávarút-
vegsráðherra í gær, er tap útgerðarinnar
nú 11.3% og er þá miðað við
ársgrundvöll og að ekki verði aflabrestur
Þetta eru tillögur ríkisstjórnarinnar
sem ætlað er að bæta rekstrarvanda
útgerðarinnar. Tillögurnar sem eru
unnar í Sjávarútvegsráðuneytinu í sam-
ráði við Þjóðhagsstofnun, Fiskveiðasjóð
og ríkisbankana, voru samþykktar í
ríkisstjórninni í gær og síðan kynntar
viðræðunefnd Landssambands íslenskra
útvegsmanna. Fjallað verður um tillög-
urnar af stjórn og trúnaðarráði LÍÚ í
dag kl. 16 og þá kemur fyrst í ljós hvort
af algjörri stöðvun fiskveiðiflotans
verður eða ekki.
Fjármagnskostnaður
meðalfyrirtækja verði
viðráðanlegur
Tillögur ríkisstjórnarinnar fela þetta í
sér:
Olíukostnaður verður lækkaður um
20% og til að byrja með verður þetta
gert með þeim hætti að settur verður á
fót olíusjóður, sem hefur til ráðstöfunar
60 milljónir króna á þessu ári. 30
milljónir verða fengnar frá greiðsluaf-
gangi til úreldingar, en til þess þarf
lagasetningu. Þær 30 milljónir sem þá
vantar upp á verða fengnar að láni með
ríkisábyrgð frá Seðlabanka íslands. Þá
verður 100 milljón króna tekjuafgangi
Fiskveiðasjóðs frá árinu 1981 varið til
lækkunar vaxta útgerðarinnar á tíma-
bilinu 1. október 1982-1. október 1983.
Útgerðinni verður jafnframt gert kleift
að breyta talsverðum hluta vanskila- og
skammtímalána sinna í lán til lengri
tíma, en með þessu er ætlunin að
fjármagnskostnaður meðalfyrirtækja
verði viðráðanlegur. Samþykkt var að
fjármagnskostnaður nýrra skipa, sér-
staklega þeirra sem smíðuði 'eru innan-
lands verði athugaður sérstaklega og að
viðræður verði teknar upp við eigendur
þeirra þar að lútandi.
Varðandi þetta síðastnefnda atriði
tók Steingrímur Hermannsson, sjávar-
útvegsráðherra fram sérstaklega að það
væru einmitt þessi nýju skip sem skekktu
grundvöll þann sem reiknað hefði verið
út frá mjög mikið. Að mati Þjóðhags-
stofnunar væri umframfjármagnskostn-
aður á 16 af nýlegri togurunum, þ.e.a.s.
þeim sem byggðir voru eftir 1979,
samtals 75 milljónir króna. Er það
hvorki meira né minna en 4.5% af
heildartekjum minni togaranna, og ef
þessi umframfjármagnsvandi væri leyst-
ur sérstaklega þá væri hægt að bæta
stöðu minni togaranna um 4.5%, eða
nokkuð meira en reiknað er með að tap
minni togaranna næmi eftir aðgerðir
ríkisstjórnarinnar og ef afli brygðist
ekki.
Auk þess var svo samþykkt x
ríkisstjórninni að tíminn fram til
áramóta yrði notaður til að fjalla um það
sem við tekur á næsta ári í samráði við
hagsmunaaðila í sjávarútvegi.
í vetur og næsta vor. Eftir aðgerðir
ríkisstjómarinnar, ef þær verða sam-
þykktar.ætti tapið að nema 4.5%. Verði
hins vegar aflabrestur þá er tap
útgerðarinnar reiknað 14.6% og eftir
aðgerðir 7.6%. Tap á rekstri minni
togaranna er út frá sömu forsendum
áætlað 12.5% í dag og 3.6% eftir
hugsanlegar aðgerðir. Verði hinsvegar
aflabrestur er staða minni togaranna
áætluð - 6.8% eftir aðgerðir.
Steingrímur Hermannsson, sjávar-
útvegsráðherra sagði að ef litið væri á
afkomulíkur útgerðarinnar frá 1. sept-
ember í ár til 31. ágúst 1983, þá væri
reiknað með því að aflabrestur yrði hjá
togurunum næsta ár. Það væri sem
sagt reiknað með sama afla og í ár,
þannig að ef afli yrði góður á næsta ári
þá myndi þetta dæmi gjörbreytast.
-ESE
Það er óþarfí
að þreyta sig á helgarinnkaupunum...
Kannast þú ekki við föstudags-
tilfinninguna? Allir bílar bæjarins
að þvælast fyrir þér í umferð-
inni, bílastæðin stöþpuð og
matvöruverslanirnar troðfullar
af fólki, sem keppist við að
kaupa sér i helgarmatinn.
Það væri nú þægilegt að geta
losnað við þetta allt samanl
Þar kemur frystikistan til skjal-
anna. Það er ekki nóg með að
þú getir gert innkaup í stórum
stil með lengra millibili og
fækkað þannig búðarferðunum.
...Það er engin
föstudagsörtröð við
frystikistuna!
ÆáL*<tr
C---
Hafðu samband, við erum sveigjanlegir í samningum.
heimilistæki hf.
HAFNARSTRÆTI 3 - 20455 - SÆTÚNI 8 - 15655
Við eigum mikið úrval af Philips
og Carawell frystikistum og
frystiskápum, sem henta öllum
heimilum.
Frystikista er fjárfesting, sem
borgar sig strax!
Pú getur líka keypt ýmsa mat-
vöru á lægra verði í stórum
einingum, nýtt þér allskonar
tilboðsverð og útsölur, s.s. á
kjöti, smjöri og grænmeti,-og
bakað til jólanna í júlí!