Tíminn - 17.09.1982, Blaðsíða 16
Opiö virka daga
9-19.
Laugardaga 10-16
HEDDf
Skemmuvegi 20 Kópavogi
Simar (91)7-75-51 4 7 80 30
Varahlutir
Mikiö úrval
Sendum um land allt
Ábyrgö á öllu
Kaupum nýlega
bíla til niðurrifs
Gagnkvæmt
tryggingafélag
§ ^Bábriel
Q HÖGGDEYFAR
y GJvarahlutir
Armiíla 24
Sími 36510
l Ll : .f
CESSNA 152 E
0
■ Bjami Jónsson, flugmaður, við Cessnuna sína og myndarlega Chervoletinn sem hann kcypti af Landsbankanum.
„EIGINLEGA MEST AÐ
GERA VW KENNSLUNA
— segir Bjarni Jónasson, flugmaður í Vestmannaeyjum, sem rekur
flugskóla og flýgur leiguflug
Tímamynd GS-Eyjum
■ „Ég er búinn að kenna á annað
hundrað tíma á vélina í sumar. Það var
t.d. einn að koma úr sóló núna áðan“,
svaraði Bjarm Jónasson, flugmaður og
eigandi Flugskóla Bjarna Jónassonar í
Vestmannaeyjum, en Tíminn rabbaði
við hann nýlega og spurði hann hvort
nóg væri að gera fiar fyrir kennsluflugvél
sem hann keypti frá Bandaríkjunum og
kom til Eyja í júníbyrjun nú í sumar.
Vélin er af gerðinni Cessna 152 og ber
einkennisstafina TF-EYA. Auk þess á
Bjarni 6 manna vél - Piper Astek - sem
hann notar til leiguflugs, en hann kvaðst
hafa selt 10 rnanna vél er hann átti til
Florida.
„Já, það er eiginlega mest að gera við
kcnnsluna núna. Leiguflugið hefur
breyst svo mikið. Það eru svo vcl
niöurgreidd fargjöldin hjá þeim á
Herjólfi að það er varla hægt að keppa
við þau. Leiguflugið hefur því minnkað
töluvert", sagði Bjarni.
- En hafa þá það margir Vestmanna-
eyingar áhuga á flugi að þú hafir nóg að
gera við kennslu?
- Það þarf nú ekki svo mjög marga
nemendur til þess að nóg sé að gera fyrir
einn skarf eins og mig. Við vorum hér
með bóklegt kvöldnámskeið með 12
nemendum í vetur-sonur minn hjálpaði
mér - sem stóð í þrjá mánuði. Þeir sem
voru á námskeiðinu eru í verklegu nú í
sumar. Tveir eru búnir að fara í sólópróf
og fleiri eru volgir.
- Eru þetta yfirleitt ungir menn sem
dreymir um að gerast atvinnuflugmenn?
- Nei, þetta eru mest ráðsettir menn,
sem búnir eru að koma ár sinni vel fyrir
borð, skólastjórar, kennarar, yfirverk-
stjórar, vélsmiðir og því um líkt. Þessir
menn hafa lengi haft áhuga fyrir flugi en
ekki komið því við að liggja yfir þessu í
Reykjavík. Þegar svo flugskóli kom í
bæinn gátu þeir ekki staðist það. Auk
þeirra var einn ungur strákur og svo
dóttir mín.
- Hyggur hún kannski á atvinnu-
mennsku?
- Ég veit ekki. En það hafa allir farið
í þetta á mínum bæ. Krakkarnir hafa
fengið flugbakteríuna með pelanum.
- Eru Vestmanneyingar kannski
farnir að fá sér einkavélar til að skreppa
á yfir álinn t.d.?
- Tveir bræður eiga hér vél saman.
E.t.v. eiga svo einhverjir af þessum sem
eru að læra eftir að fá sér vélar.
- En fleiri sem vilja læra?
- Ég býst við að verða með annað
námskeið í vetur. í fyrra voru margir
tvístígandi, héldu að þetta væri bara
bóla - Bjarni mundi detta á rassinn með
þetta og þeir verða sér til skammar. En
nú er þetta orðinn viðurkenndur
flugskóli af Loftferðaeftirlitinu.
- En það er ekki nóg með að þú sért
vel fljúgandi, þú munt líka vera vel
akandi?
- Víst á ég ansi myndarlega bíl. Það
er gamall Chervolet - Capri Classic -
R-64 sem Landsbankinn átti og Helgi
Bergs notaði m.a. til að fara á í
veiðiferðir. Hann hefur verið mjög vel
ryðvarinn og vel við haldið svo ég held
að það væri alveg hægt að halda honum
við lengi, sem gæti verið gaman.
- Það er sagt að hann líkist helst
olíufursta - eða þjóðhöfðingjabíl, svart-
ur og virðulegur?
- Já, hann er stór. Novan sem ég átti
var bara smábíll við hliðina á þessum.
- HEI
FÖSTUDAGUR 17. SEPTEMBER 1982
fréttir
Sjómannafélag
Reykjavíkur:
Verkfallsheimild
samþykkt
■ Stjórn og trúnaðarráð
Sjómannafélags Reykja-
víkur kom saman til fund-
ar í gær til að fjalla um nið-
urstöður í atkvæðagreiðslu
félagsins um heimild til að
boða vinnustöðvun meðal
undirmanna á farskipum.
Heimild til stjórnar og
samninganefndar til að
boða vinnustöðvun var
samþykkt í atkvæða-
greiðslunni með 149 at-
kvæðum gegn 9, en einn
seðill var auður. Sam-
þykkti stjórn og trúnað-
arráð samhljóða að beita
þessari verkfallsheimild ef
ástæða þætti til.
Ef verkfall verður boð-
að og kemur til fram-
kvæmda, stöðvast öll far-
skip en heimildin nær þó
ekki til skipa Hafrann-
sóknarstofnunarinnar,
sanddæluskipa og varð-
skipanna.
-ESE
Blaöburöarbörn
óskast
Tímann
vantar
fólk til
blaðburðar
í eftirtalin
hverfi:
Jórusel
Fífusel
Austurbrún
Hjallavegur
Ásgarður
Laugarásvegur
frá nr. 36
$mmm sfmi: 86300
dropar
Brothættar
sendingar
■ Þessi er úr Dcgi á Akur-
’eyri: „Það var útlit fyrir kalt
veður um helgina og gangna-
menn hrylltu sig eflaust margir
við tilhugsunina. En þá er að
hafa með sér brjóstbirtu sem
blæs í mann bæði yl og
bjartsýni - altént til að byrja
með. En merkilegt nokk er
vökvinn sá ekki fáanlegur úti í
svcitinni - nema heimatilbúinn
sé - og því þarf önnur ráð.“
Höfðu Dagsmenn fregnað
hjá Vöruafgreiðslu KEA að
óvenjumikið hefði verið um
„brothættar sendingar" út í
sveitirnar fyrir síðustu helgi.
„Hjálpsamir Akureyringar
hlaupa undir bagga með
brjóstbirtulausum svcitamönn-
um“, segir í Degi.
Albert og
nýja
apparatið
■ Albert Guðmundsson hef-
ur lagt fram tillögu í borgarráði
um að keypt verði einbýlishús
undir skammtímavistun fyrir
þroskahefta. Einhver kynni að
spyrja hvers vegna Albert? Jú,
málið er það, að þegar nýi
íhaldsmeirhlutinn ákvað að
taka hugarfóstur Alberts, sem
er framkvæmdanefnd bygg-
inga í þágu aldraðra, undan
hans forráðasviði, var búið til
nýtt apparat sem kallast nefnd
um málefni þroskaheftra hjá
Reykjavíkurborg.
Borgarstjórinn, Davið
Oddsson, hefur e.t.v. búist við
því að hægt væri að jarða
Albert á þennan hátt, en því
fer fjarri. Nú telur Albert
brýna þörfa á að kaupa hús í
þágu þroskaheftra, og leggur
mikla áherslu á að tillagan
verði afgreidd strax.
Nú kemur hins vegar annar
aðili til sögunnar sem er
svæðisstjórn Reykjavíkur um
málefni þroskaheftra. Henni
fínnst gengið inn á sitt verksvið
með nýju nefnd Alberts. Al-
bert vill hins vegar ekkert af
svæðisstjórninni vita, og því
síður að henni verði send
tillaga sín til umsagnar.
A síöasta borgarráðsfundi
var þó samþykkt að svæðis-
stjórnin fengi tillöguna til
umsagnar, jafnframt því sem
lögð voru fram gögn um
hugsanlegan rekstrarkostnað
slíks heimilis o.fl.
Það kemur í ljós á næstu
dögum hvort tillagan verður
samþykkt, eða henni vísað frá,
sem er þá ekkert annað en
staðfesting á því að hin nýja
nefnd Alberts á einungis að
vera skrautfjöður en ekki
„alvörunefnd".
Krummi ...
...sér að kjallarhöfundar DV
eru farnir að skrifa greinar
sínar „af sjónarhóli Guðs“. Þó
menn vilji vera víðsýnir þá
þykir mér þarna í full mikið
lagt.