Tíminn - 17.09.1982, Page 5
FÖSTUDAGUR 17. SEPTEMBER 1982
5
fréttir
Unglingsstúlkur í vandræðum að næturlagi í miðborginni:
„ORDRÓMUR UM AÐ SlDllOIM SÉ
NAUÐGAD OG BBTTAR OFBELDT
- segir Guðrun Jónsdottir, sem tók mal þetta upp í félagsmálaraði Reykjavíkur
■ „Þetta mál snertir þær stelpur sem
eru oft vegalausar hér í miðbænum eftir
að strætisvagnar eru hættir að ganga, og
þær eiga ekki fyrir leigubíl. Þá eru ýmsir
karlmenn á sveimi um miðbæinn og taka
þær upp í bOana og orðrómur gengur
um það meðal unglinganna og þeirra
sem starfa með þeim um helgar, að
þessar stúlkur verði æði oft fyrir ýmsu
hnjaski á heimleiðinni,“ sagði Guðrún
Jónsdóttir, borgarfuUtrúi og fulltrúi í
félagsmálaráði í viðtali við Tímann en
það var fyrir hennar ósk að félagsmála-
ráð tók upp umfjöllun um „málefni
unglingsstúlkna á Hallærisplani“.
Guðrún var að þvi spurð hvað hún
ætti við með orðinu hnjaski: „Ég kalla
þetta hnjask. Ég hef engar sannanir í
höndum - bara frásagnir og það var nú
þess vegna sem ég vildi vekja umræðu
um þetta inni t' félagsmálaráði og fá þá
starfsfólk Útideildar, sem þekkir þessi
mál trúlega best, til þess að segja sitt álit
á því. Þetta hnjask sem ég er að tala um,
er að það liggur orðrómur um að það
komi æði oft fyrir að stúlkum sé
nauðgað, og þær beittar ofbeldi. Ég get
ekki nefnt neinar tölur - þetta eru
óáreiðanlegar fréttir sem ég er að fara
með, ekki staðreyndir, en þetta er mál
sem mér fannst ég ekki geta þagað um
og þess vegna vildi ég fá umræðu um
það inni í félagsmálaráði."
- Nú nefndir þú að stúlkurnar væru
beittar ofbeldi - áttu þá við að þeim sé
misþyrmt?
„Það getur sjálfsagt oft skeð í þessurn
ryskingum. Stúlkurnar eru kannski oft
ekkert allt of vel á sig komnar, og eru
því auðfengin bráð.“
- Nú hlýtur þetta að vera mjög
sterkur orðrómur, fyrst þú sérð þig
knúna til að taka málið upp í
félagsmálaráði - er það rétt til getið?
„Já, ég hef ástæðu til að halda að þetta
sé ekki úr lausu lofti gripið, og er ég
hrædd um að þetta hafi gerst í talsvert
langan tima.
- Er þér kunnugt um það hvort þarna
eru sömu mennirnir að verki aftur og
aftur?
„Að nokkru leyti eru þetta sömu
mennirnir. Það sjá náttúrlega allir sem
eru á ferð niðri í miðbæ um helgar þegar
komið er að lokunartíma dansstaða,
þennan aragrúa af einkabílum sem eru
í keyrslu um bæinn. í þessum bílum eru
að mestu leyti karlmenn.
Ég vil taka það skýrt fram að á þessu
.stigi er ekki verið að ákæra einn eða
neinn, heldur er verið að benda þarna á
vandamál, sem þarf að athuga nánar og
kanna, hvort og hversu mikill fótur er
fyrir þessum orðrómi, því ef málið
reynist eins vaxið og mig grunar, þá er
það mjög alvarlegt mál.“
- Gerír það athugunina ekki erfiðari,
að stúlkurnar sem í þessu lenda, kæra
ekki?
„Vandamálið er það, að stúlkurnar
þora ckki að segja frá þessu, hvorki
heima hjá sér né hjá lögreglu, þannig að
þetta eru mál sem aðeins nánustu
kunningjar og vinir fá að vita um. Þetta
eru því sögur sem ganga á milli
krakkanna.
- Kom eitthvað nýtt fram á fundi
félagsmálráðs í morgun, þar sem
fulltrúar Utidcildarinnar mættu?
„Já, það kom nú frekari staðfesting á
því að þetta væri ekki úr lausu lofti
gripið, en það gildir sama um það, að
mjög er erfitt að fá vitneskju um, hve
mikil brögð eru að þessu og það er mjög
erfitt að fá unglingana til þess að ræða
þetta, því þau eru hrædd og kannski ekki
með allt of góða samvisku. Þau hafa
kannski gefið upp að þau væru annars
staðar cn á Hallærisplaninu, þegar þau
eru þar, hala bragðað áfengi, eða guð
veit hvað, þannig að þau vilja ekki flíka
þcssu við fulloröna. Ég held að
cina leiðin til þess að fá einhverja örugga
vitneskju um þetta mál, sé að fá
unglingana til samstarfs. Ég hcld að
Útideildin hyggist fara þá leið auk þess
sem hún mun örugglega verða vel
meðvituð um að svona lagað getur gerst.
Þá mun hún einnig stefna að því að fá
betri upplýsingar hjá unglingunum, án
þess að það verði nauðsynlegt að nefna
einstök nöfn eða einhverja unglinga
sérstaklega."
- AB
■ Vegalausar unglingsstúlkur á Hallærisplaninu síðla nætur um helgar eru karlmönnum, sem aka „Rúntinn“, auðveld
bráð, að því er viðmælendur Tímans telja.
,,Bjóða þeim far og
misnota þær síðan”
— segir Edda Ólafsdóttir hjá Útideildinni
■ „Það eru margir sem vita af því að
karlmenn reyna að misnota unglings-
stúlkur sem eru vegalausár niðri á
Haliærisplani eftir að strætisvagnar eru
hættir að ganga. Þeir bjóða stúlkunum
upp í bQa sína og reyna að nauðga þeim,
en ég veit ekki hversu mikið hefur verið
um nauðganir,“ sagði Edda Ólafsdóttir,
hjá Útideild Félagsmálastofnunar í
viðtali við Tímann.
„Þetta hefur að því er virðist verið
með þeim hætti að stelpurnar hafa þurft
að húkka sér bíl til þess að komast heim,
og þá hafa þessir menn boðið þeim far
og misnotað þær síðan,“ sagði Edda.
„Við sem vinnum með unglingunum
vitum af því að þetta gerist, en við erum
að reyna að kynna okkur þetta nánar og
ákveða hvað til bragðs skuli taka, því
þetta er auðvitað mjög viðkvæmt mál og
erfitt um vik að sanna eitt eða neitt, þvf
stúlkurnar sem fyrir þessu verða eru svo
miður sín og vilja ekki segja frá þessu,
heldur tala þær frekar um að vinkonur
þeirra eða einhver sem þær þekkja hafi
orðið fyrir þessu,“ sagði Edda jafn-
frámt. Edda sagði að enn vissu þau hjá
Útideildinni ekkert um það í hve
miklum mæli þetta gcrðist, en Útideildin
hygði á samstarf við unglingana til þess
að hægt yrði að upplýsa málið.
- AB
Sauðfjárafurðir hækka að meðaltali um 36-40%:
„Mikil kjötsala
að undanförnu”
■ „Það liggur nú ekki fyrir hversu
mikið af kindakjöti frá í fyrra verður
eftir að sláturtíð lokinni. Mér sýnist að
það verði talsvert minna en útlit var fyrir
í sumar því undanfarið hefur selst
gífurlega mikið af kindakjöti,“ sagði
Ingi Tryggvason, formaður Stéttarsam-
bands bænda, í samtali viðTímann í gær.
Aðspurður um möguleika á því að
gamla kjötið yrði gefið til þróunarlanda
eða annarra landa þar sem matvæla-
skortur ríkir, sagði Ingi að rætt hefði
verið um selja það kjöt, sem komi
umfram venjulega slátrun vegna áætl-
aðrar fækkunar sauðfjár, á vægu verði
til hjálparstofnana. Einnig sagði Ingi að
nú væri verið að reyna að finna því kjöti
markað í Rússlandi.
Listgagnrýni í
fjölmiðlum mikilvæg
■ „Ráðstefna leggur áherslu á mikil-
vægi listgagnrýni í fjölmiðlum, enda sé
gagnrýnin vönduð og heiðarleg," segir í
ályktun sem gerð var á ráðstefnu
íslenskra gagnrýnenda, sem haldin var
11. september s.l.
Ennfremur segir í ályktuninni: „Þá er
ekki síður nauðsynlegt að fjölmiðlar
fjalli almennt um listir og menningarmál
en á það hefur mjög skort miðað við
aðra efnisflokka."
Til að bæta úr þessu hvetur ráðstefnan
til fundar með fulltrúum fjölmiðla og
listamönnum hið fyrsta. - Sjó.
Nú er búið að ákveða nýtt verð
sauðfjárafurða. Felur það í sér 30,5%
hækkun á súpukjöti í fyrsta verðflokki,
úr kr. 46,15 í 60,25. Kíló af nýrum og
hjörtum hækkar um 14,5%, slátur
hækkar úr 51,65 í 60,10 eða um 16,5%,
Kíló af lifur lækkar hins vegar úr 54,85
í 54,75. Verðhækkunin er að meðaltali
26-30% en verðlagsgrundvöllurinn
hækkar um 14,7%.
Á ríkisstjórnarfundi í gær var ekki
tekin ákvörðun um breytingar á niður-
greiðslum sauðfjárafurða. - Sjó.
„MJÖG ALVAR-
LEGT MÁL”
— segir Gerður Steinþórs-
dóttir, borgarfulltrúi
■ „Þarna er mjög alvarlegt mál á
feröinni, því þaö hefur verið uppi
orörómur um þaö að það væri ákveðinn
hópur af miðaldra karlmönnum, sem
hringsólaði á bílum sínum um miðbæinn
að næturlagi og tæki upp stelpur í bíla
sína og misþyrmdu þeim og nauðguðu,“
sagði Gerður Steinþórsdóttir, borgar-
fulltrúi í viðtali við Tímann, en Gerður
á sæti í félagsmálaráði, sem á fundi
sínum í gærmorgun, og sl. fimmtudag
Ijallaði um „málefni unglingsstúlkna á
„Hallærisplani““.
„FulltrúarÚtideildar komu á fundinn
í morgun og gerðu grein fyrii þessu máli.
Það scm gerir þeim erfitt um vik er að
engin stelpa viðurkennir sjálf að hafa
orðiðfyrir þcssu en segir að hún hafi
heyrt af þessu eða þckki einhverjasem
hafi lcnt í þessu,“ sagði Gerður.
Útideild var fatið á fundinum í
morgun að reyna að afla meiri upplýs-
inga um þessi mál og leggja fyrir annan
fund í ráðinu,“ sagði Gerður, „og það
var einnig rætt á fundinum hvort
möguleiki væri á því að láta strætis-
vagnana keyra út í hverfin fram eftir
nóttu um helgar til þess að draga úr því
að unglingarnir þyrftu að húkka sér bíl
heim.“
Gerður ítrekaði að lokum nauðsyn
þess að unglingsstúlkur forðuðust það
að fara upp í bíl til karlmanna.
- AB
„Engar kærur hafa borist”
- segir Arnar Guðmundsson hjá RLR
■ „Nei, ég kannast ekki við það að
nokkur kæra hafi borist Rannsóknalög-
reglunni í þessu sambandi," sagði Arnar
Guðmundsson, hjá Rannsóknalögreglu
ríkisins, er Tíminn spurði hann hvort
Rannsóknalögreglunni hefði borist kæra
vegna þess að unglingsstúlku hefði verið
nauðgað af manni sem tekið hefði hana
upp í bifreið sína í miðbænum að nóttu
til og boðist til þess að aka henni heim.
Aðspurður um það hvort RLR hefði
einhvern grun um að þessi orðrómur ætti
við rök að styðjast sagði Amar: „Nei,
við myndurn nú hreinlega hafa gert
eitthvað í því, ef svo væri, og ég treysti
á það að fólk sem verður vart við svona
athæfi láti okkur vita þegar í stað.“
- AB