Fréttablaðið - 10.01.2009, Blaðsíða 26
Þverstæður Zenons frá
Eleu ganga út frá að
„allt sé eitt“ og að and-
stætt því sem skyn-
reynslan kennir okkur
sé trú á margbreyti-
leika heimsins röng og
að hreyfing sé ekkert
annað en tálsýn. Þrjár
frægustu þverstæðurn-
ar nefnast Akkilles og
skjaldbakan, tvískipt-
ingin og örin.
wikipedia.is
„Námskeiðið er dálítið skrifað
utan um tímann í dag. Menn eru í
ýmsum breytingum og það er
ekki sama hvernig að þeim er
staðið. Staðreyndirnar í breyt-
ingafræðunum segja okkur að um
75 prósent stærri breytinga mis-
takist. Þegar hlutirnir gerast
svona hratt eins og nú er þá geta
afleiðingarnar orðið slæmar, til
dæmis við sameiningar og breyt-
ingar á fyrirtækjum,“ segir Eyþór
Eðvarðsson, vinnusálfræðingur,
en hann heldur utan um nám-
skeiðið sem er hugsað fyrir
stjórnendur og fyrirtæki í breyt-
ingum.
„Þegar miklar breytingar
ganga yfir á vinnustað getur fólk
orðið óöruggt og fer jafnvel að
leiðast starfið. Þannig detta hjart-
að og sálin úr starfinu og er þetta
erfiði hlutinn af breytingapakk-
anumm,“ segir hann. Á námskeið-
inu er farið í helstu fræðin í kring-
um breytingar og meðal annars
undirbúning breytinga, hvernig á
að stjórna þeim þegar þær fara af
stað og fleira. „Mikilvægt er að
upplýsa vel og mikið um breyt-
ingarnar því skynsamt fólk er
ekki tilbúið að breyta sér bara til
að breyta sér ef það veit ekki af
hverju. Allt sem hefur ekki til-
gang er í eðli sínu tilgangslaust
og því er mikilvægt að útskýra
hvað á að breytast og hvers vegna
þannig að menn átti sig á því hvað
er fram undan,“ útskýrir Eyþór
áhugasamur. Námskeiðið er fjór-
ir til átta tímar og er sett upp
sem vinnustofa. „Menn taka þá
fyrir breytingar sem þeir eru
hugsanlega sjálfir að glíma við
og síðan er rýnt í það með tækj-
um og tólum breytingastjórnun-
ar. Til dæmis er farið í hvaða
andstaða gæti orðið og hvers
vegna, hvar ábyrgðin liggur og
svo framvegis. Þetta eru svona
lykilatriði sem vitað er að hlut-
irnir stranda oft á. Svo er farið í
hvernig á að eiga við andstöðu ef
hún kemur upp,“ segir Eyþór og
bætir við: „Stærsti hluti nám-
skeiðsins varðar undirbúninginn
og mikilvægt er að vera meðvit-
aður um það að breytingar kalla
á óvissu og óöryggi, nýtt skipu-
lag og nýja hugsun og stjórnend-
ur þurfa að vera tilbúnir til að
taka þá umræðu með fólkinu.“
Hægt er að skrá sig á vefsíðu
Þekkingarmiðlunar, www.thekk-
ingarmidlun.is eða í síma 892
2987. hrefna@frettabladid.is
Breytingar á vinnustað
Þekkingarmiðlun býður fjölbreytt námskeið í janúar og fjallar eitt þeirra um hvernig á að stjórna breyt-
ingum. Námskeiðið er að vissu leyti skrifað utan um núlíðandi stund þar sem breytingar eru tíðar.
Eyþór Eðvarðsson vinnusálfræðingur segir námskeiðið „Að stjórna breytingum“ vera
að vissu leyti skrifað utan um tímann í dag. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
NORSKUNÁMSKEIÐ hefst í Kvöldskóla Kópavogs fimmtudag-
inn 29. janúar. Námskeiðið stendur í 10 vikur og er alltaf á fimmtu-
dögum klukkan 19.00.
Enskuskóli Erlu Ara
Auglýsir enskunám í Hafnarfi rði
• 10 getustig með áherslu á tal (nokkur pláss laus)
• Vakin er athygli á að nú verður boðið upp á hóp fyrir
algjöra byrjendur
• Styrkt af starfsmenntasjóðum
Skráning stendur yfi r í síma 8917576 og erlaara@simnet.is
Skráning alla helgina - Kennsla hefst í næstu viku
Skipuleggjum námsferðir til Englands fyrir hópa og einstaklinga
Sjá nánar um starfsemi skólans á www.enskafyriralla.is
Brot af því besta....
• Smáskipanámskeið (pungapróf)
• Undirbúningur fyrir skemmtibátapróf
• Stafræn ljósmyndun
• Steinaslípun
• Hellulagnir
• Trjá- og runnaklippingar
• Grjóthleðslur
• Útskurður
• Gítarsmíði
• Notkun trésmíðavéla
• Hoggið í stein
• Silfursmíði
• Réttindanámskeið í vél- og skipstjórn
www.tskoli.is
Upplýsingar um öll námskeið fást í
s. 514 9601 og á ave@tskoli.is
fyrir esta aldurshópa
fyrir 16-25 ára
Gömludansarnir
Opið hús
miðvikudaginn 14. janúar kl. 20.30
Gömludansanámskeið
hefjast mánudaginn 19. janúar kl. 20.00
Upplýsingar í síma 587 1616
Þjóðdansafélag Reykjavíkur Álfabakka 14a
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki