Fréttablaðið - 10.01.2009, Síða 30

Fréttablaðið - 10.01.2009, Síða 30
● Forsíðumynd: Cristal Bar tók mynd af verki Katrínar Ólínu Pétursdóttur fyrir Zenses Group Útgáfufélag: 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík, s. 512 5000 Ritstjórar: Roald Eyvindsson roald@frettabladid.is, Emilía Örlygsdóttir emilia@frettabladid.is Auglýsingar: Hlynur Steingrímsson s. 512 5439 Útlitshönnuður: Kristín Agnarsdóttir kristina@frettabladid.is. HEIMILISHALD ROALD EYVINDSSON ● heimili&hönnun É g hef síendurtekið rekið mig á það í gegnum tíðina að fólk virðist halda að ég hljóti að lifa hinu fullkomna lífi fyrst ég er hommi og heimilishaldið eins og klippt út úr einhverju glanstímariti. Vinnufélagi minn rak til dæmis upp stór augu um daginn þegar ég var að kveinka mér yfir heimilishaldinu; spurði forviða hvort það væri ekki einmitt alltaf allt í himnalagi hjá okkur hommunum þar sem við værum nú einu sinni snyrtipinnar og prúðmenni upp til hópa. Ekki veit ég hvenær ranghugmynda af þessu tagi varð fyrst vart. Út- breiðslu þeirra má þó sjálfsagt að einhverju leyti rekja til sjónvarps- þátta sem gera út á staðalímyndir samkynhneigðra og hafa skotið föstum rótum í vestrænni afþreyingarmenningu. Þar birtast hommar sem eins konar nútímaútgáfur af álfkonum ævintýranna sem sveipa allt góðri hulu. Hver furðuveran á fætur annarri virðist búa yfir meðfæddum hæfileikum til að fegra heimilið, framreiða veislurétti og kenna gagnkynhneigðum körlum, sem virðast ekki geta valið sér samstæða sokka hjálparlaust, að klæða sig og öðlast um leið innri lífshamingju. Sjálfstraust mitt er hins vegar sjaldan í eins miklum mínus og þegar einhver af þessum blessuðu þáttum er í sjónvarpinu. Því enda þótt ég sé gæddur ýmsum kostum verð ég seint talinn líklegur til stórra afreka á heimilinu. Mér finnst fátt eins leiðinlegt og að ryksuga, get varla spælt mér egg án þess að setja reykskynjarann af stað og frekar færi ég í sjálf- skipaða útlegð til Tjernobyl heldur en að þrífa klósettið. Stundum hefur hvarflað að mér hvað æðri máttarvöldum hafi gengið til þegar þau bættu hommageninu í erfðamengið mitt. Var þetta bara svona síðustu stundar ákvörðun eða gleymdist að bæta við ákveðnum eiginleik- um í framleiðsluferlinu? Sannleikurinn er nefnilega sá að samkynhneigð- ur karl sem skortir tískuvit og dálæti á heimilisstörfum er svona eins og Landcruiser fjallajeppi án gps-tækis og á gatslitnum dekkjum. Ekki bætir úr skák að ég giftist manni sem hefur álíka mikla óbeit á til- tekt og undirritaður og er jafn vel enn meiri draslari þótt hann sé á móti heimsins besti kokkur. Og í stað þess að láta sér standa á sama um drasl ið, eins og sumir gætu haldið að gerðist í sambúð tveggja karla, fer fátt eins mikið í taugarnar á okkur og þegar hinn gengur illa um. Þannig virðist elskulegur eiginmaðurinn geta pirrað sig endalaust á því þegar ég gleymi að hengja blautt handklæði til þerris, taka til í ísskápnum eða fara út með ruslið. Á móti hef ég varið heilum áratug í að ráða í merkingu þess að skilja eftir sig slóð af skítugum sokkum um allt hús. Nei, það er sannarlega ekki alltaf tekið út með sældinni þegar tveir haug- ar hefja búskap. Og engum ofsögum sagt að sjónvarpið segi ekki alltaf satt. „Við sáum hana fyrst í glugga á forn- sölunni í Zimsen-húsinu á Lækjar- torgi. Ég varð alveg rosalega hrif- in af henni og við fórum inn að skoða. Hún átti að kosta 15.000 sem mér fannst svolítið mikið miðað við þann tíma en þetta var fyrir um tíu árum. Ég ætlaði ekki að tíma því að borga 15.000 fyrir einhverja mynd eftir einhvern óþekktan mann og eldgamlan svo að ég sleppti því þá,“ segir Ólöf Elísabet Þórðardótt- ir, sem heldur mikið upp á mynd af tveimur munkum sem hangir í stof- unni hennar. „Svo gekk ég tvisvar sinnum framhjá glugganum og í þriðja skiptið fór ég inn til að athuga hvort ég gæti ekki prúttað því ég gat bara ekki hætt að hugsa um þessa mynd. Ég fékk hana á 12.000 og sló til,“ segir hún og sér ekki ögn eftir kaupunum. Myndin af munkunum er í falleg- um litum, mosagræn og dökkbrún. „Svo eru munkarnir svo skemmti- legir á svipinn. Það er eins og þeir séu að lesa eitthvað dónalegt. Það hefur verið ýjað að því við mig að þeir séu með eitthvert dónablað inni í bókinni sem þeir halda á,“ segir Ólöf Elísabet hlæjandi en munkarn- ir tveir halla sér að hvor öðrum og eru að lesa bók. Myndin fékk strax heiðurssess á heimilinu. „Við keyptum ljós til að hafa við hliðina á henni og þegar við fluttum var henni valinn góður staður fyrir ofan sófann í stofunni,“ segir Ólöf Elísabet, sem telur að aðrir fjölskyldumeðlimir séu einn- ig mjög hrifnir af myndinni. „Það er reyndar fyndið að það var önnur mynd eftir sama málara í búðinni sem var af tveimur sjó- urum og svipuð upp sett. Ég tímdi ekki að kaupa hana þótt hún væri ódýrari en ég hef eiginlega séð eftir því alveg síðan. Það hefði verið gaman að eiga hana líka,“ segir hún en málarinn heitir Aage Jessen og er danskur. Meira veit Ólöf Elísabet ekki þó hún hafi reynt að afla sér upplýsinga um hann á netinu. „Ætli ég lýsi ekki bara eftir myndinni af sjóurunum hér með, ef einhver vill selja hana,“ segir hún og hlær. Ólöf Elísabet heldur mikið upp á gamla muni og hefur safnað nokkr- um í gegnum tíðina. Maður verð- ur samt svolítið að passa sig þegar maður býr í svona gömlu húsi eins og ég að gera þetta ekki eins og hjá gömlu fólki,“ segir hún kímin en nefnir sem einn af uppáhaldshlut- um sínum stól sem amma hennar átti. „Þetta er gamall leðurstóll með tréörmum. Það er frúarstóllinn,” segir hún og skellir upp úr. - sg Munkarnir keyptir í fjórðu heimsókn ● Ólöf Elísabet Þórðardóttir heldur mikið upp á málverk af tveimur munkum sem hún keypti á fornsölunni í gamla Zimsen-húsinu á Lækjartorgi. Ólöf Elísabet við munkamyndina sem hún gat ekki hætt að hugsa um. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Dans á rósum „... frekar færi ég í sjálfskipaða útlegð til Tjern- o byl heldur en að þrífa klósettið.“ 13. janúar 15. janúar skólar og námskeið ÞRIÐJUDAGUR 6. JANÚAR 2009 NORDICPHOTOS/GETTY heilsa og lífsstíll FIMMTUDAGUR 8. JANÚAR 2009 NORDICPHOTOS/GETTY 10. JANÚAR 2009 LAUGARDAGUR2

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.