Fréttablaðið - 10.01.2009, Síða 34
● heimili&hönnun
Blaðberinn
bíður
þín
Þú færð Blaðberann þinn í Skaftahlíð 24
alla virka daga frá kl. 8-17.
...góðar fréttir fyrir umhverfiðBlaðberinn...
„Ég vinn með myndheim sem ég
hef verið að safna í frá því ég
man eftir mér. Hann er á mörk-
um draums og veruleika, fullur
af tilfinningum og í honum eru
tákn og vísanir í listasöguna. Auk
þess hef ég þróað ýmsar fígúr-
ur í hann.“ Þetta segir listakonan
Katrín Ólína kankvís þegar litið
er til hennar á sýninguna Uglu-
spegil í Hafnarhúsinu og undr-
ast yfir hugarfluginu. Hún segir
verkið prentað á filmu og unnið í
samvinnu við fyrirtækið 3M. Hið
sama gildi um grafíklist hennar
á bar í miðborg Hong Kong sem
hún var fengin til að skreyta. „Allt
húsnæðið er þakið myndefni. Það
teygir sig yfir alla fleti og inn í öll
horn,“ lýsir hún og sýnir myndir.
Katrín Ólína hefur verið bú-
sett í Hong Kong í nokkur ár en
flutti heim í fyrra. Hún hefur
samt sterk tengsl við listalíf-
ið úti í hinum stóra heimi og á
hönnunarviku í Tókýó í nóvem-
ber síðastliðnum var henni boðið
að vera gestalistamaður á sýn-
ingunni 100% Design Tokyo. Þar
voru íslenskir hönnuðir einnig
með sýningarbás, studdir af Út-
flutningsráði.
Fram undan hjá Katrínu Ólínu
er meðal annars að fylgja eftir
framleiðslu á fígúrum sínum
gerðum úr vínyl eða plasti.
Hveraskrímslið Heimdallur
ríður á vaðið og á eflaust eftir
að leggja heiminn að fótum sér.
Katrín Ólína kveðst fá æ fleiri
tækifæri út á myndheiminn sinn
enda teygist hann í ýmsar áttir.
- gun
Kannar lendur draumsins
● Ugluspegli, sýningu Katrínar Ólínu Pétursdóttur í Hafnarhúsinu lýkur nú um helgina. Því
eru síðustu forvöð að líta hið flæðandi myndmál listakonunnar um gólf og veggi.
Katrín Ólína var gestalistamaður á 100%
Design í Tókíó í haust.
MYND/MATTHÍAS ÁRNI INGIMARSSON
Grafíkin var notuð til að skreyta aðalbarsvæði hönnunarsýningarinnar í Tókíó þar
sem kaupsýslumenn fjölmenntu. MYND/MATTHÍAS ÁRNI INGIMARSSON
Barinn í miðborg Hong Kong er skreytt-
ur grafík í hólf og gólf.
● BRASILÍSKI HÖNNUÐURINN Anderson Horta
hef ur húmorinn í lagi. Sem dæmi um það er ofnhanski sem
lítur út eins og hendin sem oft birtist á tölvuskjánum og
flestir kannast við. Svo er það saltstaukurinn í formi skýs, sem
er úr gúmmíi og gerir borðhaldið skemmtilegra enda er hægt
að láta salti „rigna“ yfir matinn. Þar
sem staukurinn er úr gúmmíi er hægt
að kreista hann og komast þannig
hjá því að þurfa að berja honum við
borðið til að losa harðnað salt. Sjá
andersonhorta.blogspot.com/
hönnun
Sýningin Ugluspegill í
Hafnarhúsinu hverfur
eftir helgina.
M
Y
N
D
/B
JA
R
N
I G
R
ÍM
S
S
O
N
● TENNISBOLTASTÓLAR
eru hugarfóstur arkitektsins
Wholman. Á www.instructables.
com má sjá hvernig hann býr þá
til. Hann byrjar á því að taka
setuna og bakið úr gömlum stól
og notar svo stálgrindina sem
eftir stendur. Hann sker misstór
göt í tvær viðarplötur, festir þær á
grindina og kemur tennisboltum
fyrir í götunum. „Galdurinn er að
hafa götin misstór og eins að
skorða boltana ekki fasta með
lími. Þannig gefa þeir eftir og
hreyfast til með líkamanum.“
● VISKUSTYKKI Í H&M Verslanakeðjan Henn-
es & Maurits er Íslendingum að góðu kunn en
ófáar verslunarferðirnar hafa verið farnar til út-
landa, sérstaklega í H&M til að fylla á fataskáp-
inn. Aðdáendur keðjunnar geta nú enn kæst en
í febrúar koma heimilisvörur á markað frá H&M.
Í heimilislínunni verður að finna textílvörur fyrir
eldhúsið, baðherbergið, stofuna og svefnher-
bergið eins og viskustykki, handklæði, sturtu-
hengi, púðaog ábreiður svo eitthvað sé nefnt. Að-
dáendur hressilegra lita og mynstra verða ekki
sviknir en eins eru gróf mynstur áberandi. Vör-
urnar verða aðeins fáanlegar á netinu og í gegn-
um pöntunarlista H&M en koma fyrst á markað
í Svíþjóð, Noregi, Danmörku, Finnlandi, Þýska-
landi, Austurríki og Hollandi þar sem þær fást sendar heim. Við Ís-
lendingar verðum því enn um sinn að leggja land undir fót í H&M.
heimili
M
Y
N
D
/
C
R
IS
TA
L
B
A
R
F
O
R
Z
E
N
S
E
S
G
R
O
U
P,
H
O
N
G
K
O
N
G
10. JANÚAR 2009 LAUGARDAGUR6