Tíminn - 29.09.1982, Page 6
6
MIÐVIKUDAGUR 29. SEPTEMBER1982
fréttir
■ Guðríður Elíasdóttir, ein stjórnarkvenna í Bandalagi kvenna í Hafnarfirði
sést hér leggja síðustu hönd á uppsetningu sýningarínnar sem var opnuð s.l.
sunnudag.
Tímamynd EUa.
Sölusýning á list-
munum í Hafnarfirði
Hafnarfjörður: Bandalag kvenna í
Hafnarfirði gengst þessa viku fyrir
sölusýningu á listmunum og fleiru í
íþróttahúsinu við Strandgötu í Hafn-
arfirði til styrktar elliheimilum í
Hafnarfirði. Sýningin stendur til
sunnudagsins 3. október og er opin
frá kl. 20-22 virka daga ef frá kl.
15-22 um næstu helgi. Aðgangur er
ókeypis og hvetja bandalagskonur
Hafnfirðinga og aðra velunnara að
koma á sýninguna og styrkja gott
málefni.
Kaffiveitingar verða á boðstólnum
um helgina.
Sýningin var ppnuð síðasta sunnu-
dag en daginn áður, 25. september,
var þeim fjölmörgu er gáfu muni á
sýninguna boðið til kaffidrykkju.
Við það tækifæri skemmti kór
Öldutúnsskóla boðsgestum með
söng. - HEI
Kennsla
í náms- og
skóla-
hef st á
Austur-
landi í vetur
Austurland: Ákveðið hefur verið að
hefja tilraunakennslu í náms- og
starfsráðgjöf við 9. bekk í 4
grunnskólum á Austurlandi á nýbyrj-
uðu skólaári, þ.e. á Egilsstöðum,
Reyðarfirði, Eskifirði og Neskaup-
stað, að því er fram kemur hjá
Guðmundi Magnússyni í nýju Frétta-
bréfi Fræðsluskrifstofu Austurlands.
„Störfin í þjóðfélaginu breytast
ört. Það hlýtur því að vera hollt nesti
öllum nemendum að fá sem besta
yfirsýn yfir þau störf sem bíða þeirra
í næstu framtíð,“ segir Guðmundur.
Hann bendir jafnframt á að þrátt
fyrir ótvíræð ákvæði grunnskólalaga
hafi náms - og starfsráðgjöf ekki náð
þeirri fótfestu í skólum er æskilegt
hefði verið. En sjálfur segist hann
þeirrar skoðunar að starfsfræðsla
eigi að vera kjarnagrein - skyldunám
í skólum. Er fyrrnefnd tilrauna-
kennsla í 4 skólum austanlands liður
í því að þoka þessum málum til betri
vegar og þess vænst að hægt verði að
færa þá starfsemi út í aðra skóla
umdæmisins skólaárið 1983-84.
Umsjónarmaður þessarar til-
raunakennslu verður Gerður G.
Óskarsdóttir, skólastjóri á Neskaup-
stað, en hún hefur lokið háskólanámi
í skólaráðgjöf frá bandarískum
háskóla, auk persónlulegrar reynslu
í þessum efnum.
- HEI
Verkefni til
áramóta
hjá Dyngju
á Egils-
stöðum
Egilsstaðir: Framleiðsla á kápum og
peysum fyrir vesturlandamarkað hef-
ur verið í fullum gangi að undan-
fömu hjá Prjónastofunni Dyngju á
Egilsstöðum, svo og á peysum fyrir
Rússlandsmarkað, að því er fram
kemur í Fréttabréfi KHB. Munu
fyrirliggjandi verkefni endast
Dyngju til áramóta. Hjá Dyngju
voru 36 manns á launaskrá í ágústlok
s.l.
Auk þess að framleiða tilbúnar
flíkur til útflutnings framleiðir
Dyngja prjónavoð fyrir saumastof-
una Prýði á Húsavík. Öll prjónavoð
sem notuð er í Dyngju er að
sjálfsögðu einnig framleidd á staðn-
um. í prjónastofunni er unnið á
tveim vöktum 16 tíma á sólarhring.
Heildarsala Dyngju fyrri helming
ársins nam 3,5 millj. króna. Er haft
eftir framkvæmdarstjóranum, Guð-
mundi Benediktssyni, að verðlag á
framleiðslunni muni rétt hanga í því
að standa undir framleiðslukostnaði.
- HEI
I
I
l
■ - Það er veríð að lagfæra vatnamælingastaðinn og með þessum framkvæmdum er stefnt að því að halda Þjórsá í
ákveðnum skorðum og forða þvi að ís hafi of mikil áhrif á mælingar, sagði Elías Elíasson, verkfræðingur hjá Landsvirkjun
í samtali við Tímann er hann var spurður um framkvæmdir þær sem sjást á meðfylgjandi mynd.
Vatnshæðarmælirínn sem sést vinstra megin á myndinni stendur við svonefnda Norðiingaöldu og er það Sigurjón Rist,
vatnamælingamaður sem hefur komið honum þar fyrir. ‘Aður en verkfallið á Tungnaársvæðinu skall á var unnið að fullum
krafti við að ýta upp grjótgarði út í ána og tókst að Ijúka því áður en verkamenn og iðnaðarmenn á svæðinu lögðu niður vinnu.
- ESE/Tímamynd Sigurjón Valdimarsson
Vöruskiptajöfnuðurinn
það sem af er þessu ári:
Óhagstæður um
tvo milljarða
■ í ágústmánuði s.l. var innflutningur
landsmanna um 90% meiri en í
ágústmánuði árið 1981, eða um 939
milljónir nú á móti 494 millj. króna í
ágúst 1981. Allt talið - undanfarna
mánuði - um voða viðskiptahallans og
skuldasöfnunar erlendis virðist því hafa
álíka áhrif á okkur Frónbúa og þegar
vatni er stökkt á gæs.
Vöruskiptajöfnuður landsmanna frá
■ Heildarútflutningur iðnaðarvara á
vegum Útflutningsmiðstöðvar iðnaðar-
ins fyrstu sex mánuði þessa árs var
nánast sá sami og á sama tíma í fyrra.
Flutt voru út rúmlega 90 þúsund tonn á
tímabilinu 1. janúar til 30. júní í ár.
Verðmæti afurðanna í ár var þó 43%
hærra en áðurnefnda mánuði í fyrra, eða
rúmar 925 milljónir kr. í ár á móti rúmum
647 milljónum kr. á sama tíma í fyrra.
Á sama tíma og útflutningur á
iðnaðarvörum stóð í stað, dróst heildar-
útflutningur landsmanna á þessu tíma-
bili saman um 11%, en verðmætaaukn-
ingin samtals var 25% frá fyrra ári.
Af einstökum iðnaðarvörum var mest
flutt af áli og álmelmi, eða 37.849 tonn
sem er um 10% minna magn en á sama
áramótum var orðinn neikvæður um
tæpa 2,1 milljarða króna í lok ágúst s.l.
sem er nær fimmfalt hærri upphæð en
var á sama tíma í fyrra. í ágústlok nam
verðmæti útflutnings um 4,8 milljörðum
- sem er um 25% aukning frá sama tíma
í fyrra - en inn höfðu verið fluttar vörur
fyrir tæpa 6,9 milljarða króna - sem er
um 59% aukning frá sama tíma árið •
áður. _ HE1
tíma 1981. Verðmætaaukning á álvörum
varð hins vegar 17% milli ára, óx úr
rúmum 356 milljónum kl. í rúmar 415
milljónir kr. Næst á eftir álinu kom
kísiljárn, en framleiðsla á því hafði
vaxið um 180% og verðmætaaukningin
var 341%.
Af einstökum vöruflokkum má nefna
að ullarvörur voru fluttar út fyrir um 170
milljónir króna, sem er 41% verðmæta-
aukning, en magnið dróst saman um
3%. Skinnvara var seld fyrir rúmlega 58
milljónir króna, sem er 56% verðmæta-
aukning, en vörur til sjávarútvegs voru
seldar fyrir um 23.5 milljónir króna, sem
er 101% aukning. Magnaukning var hins
vegar 76%.
Byggingar-
vfsitalan:
Hækkar
um 17%
■ Hækkun byggingarvísitölu frá því
í byrjun júní til byrjunar september
reyndist 16,8%. Vísitala sú er gilti
mánuðina júlí-september var 1140 stig
en gildandi vísitala mánuðina október-
desember verður 1331 stig.
Að sögn Hagstofunnar kemurhækk-
un útseldrar vinnu vegna nýs kjara-
samnings meistara og sveina 14. júní
s.l. inn í þennan vísitöluútreikning
sem hér er sagt frá. Að þeirri hækkun
frátalinni hefði hækkunin numið
14,1% en hún varð 16,8% sem fyrr
segir.
- HEI
Stjóm SUF
for-
dæmir
harðlega
fjölda-
morðin
■ „Stjómarfundur SUF fordæmir
harðlega fjölamorðin sem framin vom
í flóttamannábúðum Palestínumanna
í Líbanon á dögunum“, segir í ályktun
stjórnarfundar SUF sem haldinn var í
Reykjavík 26. september s.l.
„Fundurinn lýsir yfir hryggð sinni
vegna þessara atburða og innilegri
samúð með'öllum þeim sem eiga um
sárt að binda vegna þessa.
Fundurinn fordæmir fsralesmenn
fyrir þeirra hlut að þessu máli.
Fundurinn krefst þess að allur
t'sraelskur her hvcrfi þegar í stað frá
Líbanon og allt annað crlent herlið en
friöargæslusveitir Sameinuðu Þjóð-
anna“.
LJtflutningur á iðnaðarvörum á
fyrri helmingi þessa árs:
Verðmætaaukn
ingin á kísil-
járni er 341%
- ESE