Fréttablaðið - 10.01.2009, Side 62

Fréttablaðið - 10.01.2009, Side 62
46 10. janúar 2009 LAUGARDAGUR „Þetta passar, ég er búkurinn hans Péturs Jóhanns,“ segir Konráð Valur Gíslason, einkaþjálfari í World Class. Að undanförnu hafa birst flennistórar myndir af gam- anleikaranum Pétri Jóhanni Sigfús- syni í tilefni af sýningunni Sann- leikurinn sem frumsýnd verður í Borgarleikhúsinu í febrúar. Tölu- vert hefur verið rætt og ritað um hver eigi þennan vel þjálfaða lík- ama. Egill „Gillzenegger“ Einars- son vísaði því á bug í samtali við Monitor að hann væri maðurinn og Fréttablaðið hafði spurnir af því að útvarpsmaðurinn og fitnesskóng- urinn Ívar Guðmundsson væri maðurinn. Ívar sagðist ekkert hafa komið nálægt þessu. Pétur Jóhann er á myndunum í ansi góðu formi, varla fitugramm utan á honum. Grínistinn á andlitið skuldlaust en kroppurinn er í eigu Konráðs. „Ég held að ég sé einn af fáum í þessum geira sem er svipað- ur á hæð og Pétur og er ekki allur útkrotaður í húðflúrum,“ svarar Konráð þegar hann er inntur eftir því hvernig þetta kom til. „Ég þekki manninn ekki neitt, það var bara ljósmyndari sem hafði samband við mig og hafði séð mig í World Class og vildi fá mig til verksins.“ Konráð segist tiltölulega sáttur við myndatökuna og útkomuna. Hann viðurkennir þó að hann hefði viljað koma sér í betra form. „Fyrirvar- inn var enginn og ég skaust bara í þetta.“ - fgg 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 PERSÓNAN LÁRÉTT 2. elds, 6. sjúkdómur, 8. nár, 9. sigað, 11. hljóta, 12. slæm skrift, 14. smápeningar, 16. í röð, 17. iðka, 18. skelfing, 20. tveir eins, 21. vangi. LÓÐRÉTT 1. fyrirhöfn, 3. fisk, 4. þróttur, 5. skjön, 7. ströngull, 10. efni, 13. frjó, 15. svall, 16. dá, 19. ónefndur. LAUSN LÁRÉTT: 2. báls, 6. ms, 8. lík, 9. att, 11. fá, 12. krafs, 14. aurar, 16. mn, 17. æfa, 18. ógn, 20. ll, 21. kinn. LÓÐRÉTT: 1. ómak, 3. ál, 4. lífsafl, 5. ská, 7. strangi, 10. tau, 13. fræ, 15. rall, 16. mók, 19. nn. Guðjón Rúnar Emilsson Aldur: 29 ára. Starf: Eigandi verslunarinnar Fígúru. Fjölskylda: Bý með Kristu Hall og passa ein- staka sinnum hundinn Frosta. Foreldrar: Emil Guð- jónsson fjármálastjóri og Guðríður Halldórsdóttir kennari. Stjörnumerki: Steingeit. Búseta: Í fjölbýli á mörkum 101 Reykjavík. Guðjón Rúnar Emilsson hannar og selur boli með áletruninni „Hel- vítis fokking fokk“. Auglýsingasími – Mest lesið Óhætt er að segja að frjósemin sé mikil á Ríkisútvarpinu, en þar eiga nú þrír landsþekktir útvarps- menn von á börnum á komandi mánuðum. „Við vitum kynið og eigum von á barninu í maí,“ segir dagskrár- gerðarmaðurinn Freyr Eyjólfsson sem á von á sínu fyrsta barni með Hólmfríði Önnu Baldursdóttur, upplýsinga- og fjáröflunarfulltrúa UNICEF á Íslandi. Útvarpsmaður- inn Matthías Már Magnússon á jafnframt von á sínu fyrsta barni með Þórunni Edwald sem starfar hjá 66° Norður. Matthías starfaði áður á útvarpstöðinni X-ið 97.7, en hóf störf á Rás 2 síðastliðið vor. „Við eigum von á stúlku 20. febrú- ar,“ útskýrir Matthías og segir meðgönguna hafa gengið eins og í sögu. Þá á Popplandskóngurinn og tónlistarstjóri Rásar 2, Ólafur Páll Gunnarsson, von á sínu þriðja barni með Stellu Maríu Sigurðar- dóttur í júní. Ólafur Páll, betur þekktur sem Óli Palli, á tvö börn fyrir sem eru sextán og fjórtán ára gömul. Aðspurður segist hann ekki vilja vita kynið. „Ég er alveg á móti því. Ég veit ekki hvort að ég fæ að ráða því, en þannig finnst mér að það eigi að vera,“ segir Óli Palli og brosir. - ag Frjósamir útvarpsmenn á Rás 2 ÞRJÚ BÖRN Á LEIÐINNI Útvarpsmenn- irnir Freyr Eyjólfsson, Matthías Már Magnússon og Ólafur Páll Gunnarsson eiga allir von á börnum á komandi mánuðum. Í TOPPFORMI Pétur Jóhann virkar í topp- formi á myndunum. Hann á andlitið skuldlaust en búkurinn er í eigu Konráðs Vals Gíslasonar. VILJAÐ BETRA FORM Konráð Valur er tiltölulega sáttur við myndirnar en hann hefði þó viljað vera í betra formi. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON Vöðvar Péturs Jóhanns fundnir G´n´R – bandið treður upp í kvöld í Bíóhöllinni uppi á Skaga. Er þetta fyrsta „gigg” hljómsveitarinnar eftir slagsmálin sem brutust út innan hennar í eftirpartíi úti í Eyjum. Þá rauk Gunnar Bjarni í Grétar Bul- gretzky en mildilega tókst að ganga á milli. Gunni Bjarni er þekktastur fyrir framgöngu sína í Jet Black Joe en Grétar hefur komið fram með Kalla Bjarna. Lengi var óvíst um hvort hljómsveitin væri starfhæf en svo virðist sem sverðin hafi verið slíðruð. Eitt umtalaðasta sjónvarpsviðtal undanfarinna daga og vikna er spjall Sigmars Guðmundssonar við Bjarna Ármannsson sem kom í kjölfar greinar Bjarna í Fréttablað- inu. Í magasín-bransanum er slegist um feitustu bitana eins og fram hefur komið og getur ritstjóri Kastljóssins, Þórhallur Gunnarsson, verið harður í horn að taka í þeim efnum. Hins vegar hljóp óvænt á snærið hjá honum að þessu sinni því Sölvi Tryggvason var búinn að ganga frá því að Bjarni kæmi í settið til sín í Ísland í dag. En þau fastmæli reyndust bundin við Sölva, sem í millitíðinni var rekinn, og fór Bjarni því í Kastljósið. Í vikulokin heitir útvarpsþáttur sem er á Rás 1 í umsjá Hallgríms Thorsteinssonar en sama heiti ber þáttur sem er á Sögu síðdegis í dag í umsjá Halldórs E. og Markúsar Þórhallssonar. Gestir þáttarins eru forvitnilegur samsetningur, tveir menn sem margir líta til nú þegar „hið Nýja Ísland” er á döfinni: Heim- spekingurinn og handboltakappinn Ólafur Stefánsson og Þorvaldur Gylfason. Ólafur er að verða eftirsóttur fyrirlesari og hafði meðal annars framsögu og ræddi við hóp fólks á opnum fundi í Mosfells- bæ í vikunni. -jbg FRÉTTIR AF FÓLKI Raunveruleg hætta er á því að vík- ingamynd Baltasars Kormáks verði ekki tekin upp hér á landi heldur verði veigamestu tökurnar fluttar til Írlands. Þetta segir Leif- ur B. Dagfinnsson, samstarfsmað- ur Baltasars við gerð myndarinn- ar og framleiðandi hjá True North. Framleiðslukostnaður við víkinga- myndina er talinn nema fjórum til sex milljörðum íslenskra króna. Að sögn Leifs eru írsk yfirvöld að reyna að lokka kvikmynda- gerðarfólk til sín með því að hækka endurgreiðslu um fimm prósent, frá tuttugu yfir í tuttugu og fimm prósent. Leifur óskar því eftir aðstoð frá íslenskum stjórn- völdum þannig að tryggt sé að myndin verði að mestu leyti gerð hér. „Kerfið á Írlandi virkar þannig að þú leggur 75 prósent framleiðslukostnaðarins inn á sérstakan reikning og ríkið kemur til móts við það með sínum 25 pró- sentum,“ útskýrir Leifur. Endur- greiðsluprósentan á Íslandi til kvikmyndagerðar er hins vegar fjórtán prósent. Leifur telur það ekki nógu hátt hlutfall til að lokka stóra erlenda aðila til landsins þrátt fyrir að íslenska krónan hafi hrunið um áttatíu prósent og doll- arinn styrkst sem því nemur. „Ef endurgreiðslan væri hærri, þá hefðu íslenskir kvikmyndagerð- armenn í nægu að snúast. Fyrir- spurnirnar eru allavega nógu margar.“ Leifur tekur skýrt fram að bæði hann og Baltasar muni leggja sitt á vogarskálarnar við að fá kvik- myndina til Íslands. Þeir séu hins vegar ekki peningamennirnir, þeir hafi úrslitavaldið. „Framleiðend- urnir hafa mikinn áhuga á því að vinna myndina hér á landi, þeir vilja eiga fundi með ráðamönnum um þessi mál og ætla að koma til landsins í lok mánaðarins.“ Leifur segir um gríðarleg verðmæti að ræða. Hann áætlar að tvö hundruð störf skapist í kringum myndina en samkvæmt fyrstu áætlunum hefst vinna við hana strax í apríl á þessu ári. „Við skulum átta okkur á því að þessi mynd gæti gert svip- aða hluti fyrir Ísland og Hringa- dróttinssaga gerði fyrir Nýja-Sjá- land,“ segir Leifur. Einar Karl Haraldsson, aðstoð- armaður iðnaðarráðherra, sagði að Össur Skarphéðinsson myndi ekki tjá sig um þetta einstaka atriði. Hann hefði rætt við Baltas- ar Kormák um þessi mál og við fleiri kvikmyndagerðarmenn. „Það hefur verið farið yfir þessi mál í ráðuneytinu og þau eru til skoðunar. Hins vegar er ekki hægt að lofa neinu,“ segir Einar Karl. freyrgigja@frettabladid.is LEIFUR B. DAGFINNSSON: MIKIL VONBRIGÐI FYRIR KVIKMYNDAIÐNAÐINN Milljarðamynd Baltasars hugsanlega tekin á Írlandi TÖKUSTAÐIR Á ÍSLANDI SKOÐAÐIR Baltasar Kormákur kom hingað með bandarískum framleiðendum síðasta haust og skoðaði tökustaði. Nú gæti verkefnið verið í hættu hér á landi og flust yfir til Írlands. VEISTU SVARIÐ Svör við spurningum á síðu 8. 1 Nepal. 2 Um 120 þúsund Íslendingar. 3 Ofur-Hugi Halldórsson. www.solskinsdrengurinn.is Verkefnið er styrkt af Virkjum það góða í okkur H V ÍT A H Ú S IÐ /S ÍA

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.