Fréttablaðið - 11.01.2009, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 11.01.2009, Blaðsíða 4
4 11. janúar 2009 SUNNUDAGUR VEÐURSPÁ HEIMURINN Vindhraði er í m/s. Hitastig eru í °C. Gildistími korta er um hádegi. Alicante Amsterdam Basel Berlín Billund Eindhoven Frankfurt Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas London New York Orlando Ósló París Róm Stokkhólmur 12° 2° 1° -2° 5° 0° 0° 1° 4° 2° 18° 8° 2° 24° 3° 3° 12° 3° Á MORGUN 8-13 m/s suðaustan til annars 5-10 m/s ÞRIÐJUDAGUR Hægvirðri -5 -4 -2 -1 -2 1 1 3 -1 -3 -7 13 10 5 8 6 10 6 15 6 15 10 -6 -4 -5 -5-5 -8 -10 -12 -7-7 -20 MIKLIR KULDAR Í KORTUNUM Það verður vetrarlegt um að litast næstu þrjá daga eða svo. Í dag verður reynd- ar frostlaust með ströndum allra syðst en gæti muggað við suðausturströndina þegar líður á daginn. Á morgun verður komið frost um allt land og á þriðjudag má reikna með hörkufrosti, eða allt að -20° á hálendinu. Á miðvikudag dregur svo úr kuldunum. Sigurður Þ. Ragnarsson veður- fræðingur HEILBRIGÐISMÁL Húsfyllir var á borgarafundi í íþróttahúsinu við Strandgötu í Hafnarfirði í gær. Fundurinn var haldinn undir yfir- skriftinni: Stöndum vörð um starf- semi St. Jósefsspítala og framtíð heilbrigðisþjónustu í Hafnarfirði en ákvörðun heilbrigðisyfirvalda að hætta starfsemi St. Jósefsspít- ala í núverandi mynd hefur vakið hörð viðbrögð Hafnfirðinga. Á fundinum kynnti Guðlaugur Þór Þórðarson heilbrigðisráðherra tillögur sínar. Hann sagði það mark- miðið að sem flestir héldu störfum sínum. Óvissan væri verst og því væri mikilvægt að vinna hratt. Guðlaugur Þór hrósaði starfs- fólki St. Jósefsspítala og sagði það mönnum kappsmál að nýta starfs- krafta starfsfólksins. Hins vegar væri til þess að líta að Íslendingar væru í erfiðri stöðu, hvort sem mönnum líkaði það betur eða verr. Lúðvík Geirsson, bæjarstjóri Hafnarfjarðar, sagði að í ljósi stöðu efnahagsmála væri staða heilbrigð- isráðherra á engan hátt öfunds- verð. Hann sagði bæjarbúa aðeins kalla eftir samráði. Þá kallaði Lúðvík eftir markmið- um og stefnu ráðuneytisins og spurði út í hagræðinguna af því að búta þjónustu spítalans niður og flytja hana annað. Hann sagði það óviðunandi hvernig staðið hefði verið að undirbúningi málsins. Því hefði bæjarstjórn Hafnarfjarðar óskað eftir viðræðum við heilbrigð- isráðuneytið um framtíðarfyrir- komulag heilbrigðismála í Hafnar- firði og ekki síst framtíð St. Jósefsspítala. „Ég trúi því og treysti að fundurinn skili mönnum rétta leið og ég skildi orð ráðherra þannig að hann væri reiðubúinn að setjast yfir þetta með þeim aðilum sem málið snertir,“ segir Lúðvík. Gunnar Svavarsson, alþingis- maður og bæjarfulltrúi í Hafnar- firði, segir skýr skilaboð bæjar- stjórnar liggja fyrir. „Við köllum á yfirferð þessara tillagna og ég veit ekki betur en að ráðherra muni skoða þetta betur á næstu dögum og vikum. Ég tel að ráðherra sé að útfæra breytingar á samráðs ferlinu og þess vegna er hann að mæta á þessa fundi,“ segir Gunnar. Aðspurður hvort tillögurnar feli í raun í sér að kostnaður sé færður til í stað þess að peningar sparist segir Gunnar: „Ráðherrann er að útfæra heildarhagræðingu í kerf- inu en fjárveitingar til spítalans voru við fjárlagagerð auknar um 7 prósent milli ára. Hins vegar er það svo ráðuneytisins og framkvæmda- valdsins að fara fram með útfærsl- ur,“ segir Gunnar. olav@frettabladid.is Krefjast samráðs um framtíð spítalans Hafnfirðingar krefjast samráðs um málefni St. Jósefsspítala og framtíð heil- brigðisþjónustu í bænum. Bæjarstjóri segir óviðunandi hvernig staðið hefur verið að málum. Ráðherra segir markmiðið að sem flestir haldi starfi sínu. FRÁ FUNDINUM Lúðvík Geirsson, bæjarstjóri í Hafnarfirði og Guðlaugur Þór Þórðarson, heilbrigðisráðherra fluttu báðir framsögu á fundinum sem hátt í tvö þúsund Hafnfirðingar sóttu. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR ÚTGÁFA Björn Bjarnason dóms- málaráðherra hefur ritað bók um tengsl Íslands og Evrópusam- bandsins. Bókin heitir Hvað er Íslandi fyrir bestu? og verður kynnt í bókaverslunum eftir helgi, að því er fram kemur á vef Björns. Bókin hefur að geyma ritgerðir og pistla úr bókum, blöðum og af netinu. „Með bókinni vil ég efla umræður um Evrópumálin,“ segir Björn á vef sínum. Fréttablaðið greindi frá því gær að Björn mun láta af ráðherraembætti að loknum landsfundi Sjálfstæðisflokksins um næstu mánaðamót og Bjarni Benediktsson tekur við af honum. - sh Björn Bjarnason á ritvöllinn: Gefur út bók um Evrópumál BJÖRN BJARNASON ALÞINGI Guðlaugur Þór Þórðarson heilbrigðisráðherra og samstarfs- menn hans útskýrðu fyrirhugaðan niðurskurð og breytingar á heil- brigðiskerfinu á fundi heilbrigðis- nefndar Alþingis. Verkefni eru flutt frá St. Jósefsspítala á Suður- nes því þar eru nýjar, ónotaðar skurðstofur. Eygló Harðardóttir alþingis- maður segir að nefndarmenn hafi lýst áhyggjum sínum af því hvern- ig staðið sé að breytingunum. Hún bendir á að lélegur árangur hafi náðst við sameiningu ríkisstofn- ana og því hafi fjármálaráðuneytið nýlega gefið út rit um það hvernig standa eigi að verkum. Á fundinum hafi komið fram að vinnubrögðin standist ekki þær kröfur sem fjár- málaráðuneytið geri. Ásta Möller, formaður heilbrigð- is nefndar, segir að skoðanir hafi verið skiptar á fundinum en ljóst sé að grunninn að breytingunum megi rekja til 2007. Með breyting- unum nú sé reynt að búa til stærri heilbrigðisumdæmi, samræma heilbrigðisþjónustu í héraði og færa völd og skipulagningu út í héruðin þannig að þjónustan verði fjölbreyttari. Ásta segir að rætt hafi verið um sjúkrahúsið á Selfossi, Akranesi og flutninginn á verkefnum frá St. Jósefsspítala á Suðurnes. Þar séu nýjar skurðstofur og ónotaðar. Ekki hafi verið vitað til hvers væri ætlast af þeim þegar þær hafi verið byggðar. Nú sé betra að nýta þær en að ráðast í nýbyggingu í Hafnarfirði. - ghs Heilbrigðisnefnd Alþingis ræddi fyrirhugaðar breytingar á heilbrigðiskerfinu: Skurðstofurnar eru ónotaðar EYGLÓ HARÐARDÓTTIR Í ályktun sem samþykkt var á fund- inum í gær segir að borgarafundur, haldinn laugardaginn 10. janúar 2009 í Íþróttahúsinu við Strandgötu í Hafnarfirði, samþykki að standa vörð um starf og framtíð St. Jósefs- spítala í Hafnarfirði og mótmælir áætlun um að leggja niður spítalann í núverandi mynd. „St. Jósefsspítali hefur nú og í framtíð stóru hlutverki að gegna í okkar samfélagi og leita verður allra leiða í viðræðum við starfsmenn og bæjaryfirvöld í Hafnarfirði til að tryggja áframhaldandi starf og þjónustu St. Jósefsspítala. Fundurinn skorar því á heil- brigðisráðherra að endurskoða nú þegar afstöðu sína með hagsmuni sjúklinga að leiðarljósi.“ STÖNDUM VÖRÐ UM ST. JÓSEFSSPÍTALA ÁSTA MÖLLER BANDARÍKIN Lögreglumenn í Athol í Massachusetts-ríki í Bandaríkj- unum fundu nýlega stúlku með því að hlaða upplýsingum úr gsm- síma stúlkunnar inn í Google street view-forritið. Stúlkan, hin níu ára gamla Natalie Maltais, var numin á brott af ömmu sinni, Rose. Með aðstoð símafyrirtækis tókst lögreglu- mönnum að fá uppgefið gps- staðsetningarmerki frá síma stúlkunnar. Þær upplýsingar báru lögreglumennirnir svo saman við kort í Google-forritinu og fundu með því stúlkuna. - ovd Upplýstu rán á níu ára stúlku: Fundu stúlku með Google BANDARÍKIN Atvinnuleysi í Bandaríkjunum mældist 7,2 prósent í desember á síðasta ári sem er það mesta í sextán ár. Leita verður aftur til síðari heimsstyrjaldarinnar til að finna viðlíka aukningu á atvinnuleysi eins og þá sem varð í Bandaríkj- unum á síðasta ári. Meira en helmingur þeirra sem misstu atvinnu sína á síðasta ári misstu hana á fjórum síðustu mánuðum ársins. Með auknu atvinnuleysi óttast Bandaríkjamenn nú að niðursveiflan í efnahagslífinu verði enn verri en svartsýnustu spár gerðu ráð fyrir. - ovd Atvinnuleysi í Bandaríkjunum: Óttast aukið atvinnuleysi MÓTMÆLI „Fundurinn tókst frábærlega í alla staði,“ segir Sveinn Rúnar Hauksson, formaður Félagsins Ísland-Palestína, um fund sem félagið hélt í Iðnó í gær undir yfirskriftinni Fjöldamorðin á Gaza. Hann segir fólki misboðið að horfa upp á átökin á Gaza og það vilja tjá afstöðu sína og mótmæla. „Fundurinn var bæði fjölmennur og öflugur og það var mikill og góður andi ríkjandi,“ segir Sveinn Rúnar. Hann segir húsið hafa verið fullt auk þess sem fjöldi fólks stóð úti. „Við áttum eins von á þessu svo við komum hátölurum fyrir úti fyrir þá sem þar stóðu.“ - ovd Félagið Ísland-Palestína: Húsfyllir á fundi í Iðnó FUNDUR Í IÐNÓ Þóra Karítas Árnadóttir sagði sögu bandaríska friðarsinnans Rachel Corrie. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM MÓTMÆLI Á þriðja hundrað manns gekk frá Samkomuhúsinu á Akureyri að Ráðhústorginu síðdegis í gær til að mótmæla því sem það kallar hreppaflutninga á gömlu fólki. Rósa Eggertsdóttir og Edward Huijbens héldu stuttar ræður og að því loknu tókust mótmælendur í hendur og hugleiddu réttlæti. Edward sagði meðal annars að mótmæli snerust ekki um að rífa niður heldur væru þau leið til að vekja von og efla samstöðu. Sagði hann kröfuna um að ráðamenn taki ábyrgð ekki vera hugsaða til að sundra samfélaginu heldur væri hún í þágu samfélagsins og til að vekja von. - ovd Friðsöm mótmæli á Akureyri: Mótmæli til að vekja von GENGIÐ 09.01.2009 GJALDMIÐLAR KAUP SALA HEIMILD: Seðlabanki Íslands 208,4419 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 123,82 124,42 188,67 189,59 169,63 170,57 22,759 22,893 17,855 17,961 15,769 15,861 1,3641 1,3721 189,86 191 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.