Fréttablaðið - 11.01.2009, Blaðsíða 26
MENNING 6
F
áar frumsýningar á
nýjum sviðsetningum
verða þó í boði í janúar.
Hinn forni frumsýning-
ardagur Leikfélags
Reykjavíkur, hinn 11. janúar,
verður ekki virkur vegna mikill-
ar aðsóknar að kassastykkjum
vetrarins, Fló á skinni og Fólkinu
í blokkinni, sem hafa sópað áhorf-
endum til Leikfélags Reykjavík-
ur og sett starfsemi í Borgarleik-
húsi nýtt viðmið, aldrei hefur
verið eins mikil aðsókn í húsið og
á þessu hausti og eru áhorfendur
þar teknir að nálgast 100 þúsund.
Næsta frumsýning í húsinu er
Rústað eftir Söru Kane á Nýja
sviði hinn 30. janúar og síðan
Sannleikur Péturs Jóhanns 5.
febrúar á Litla sviði. Laddi snýr
aftur með sína vinsælu afmælis-
sýningu með tveimur sýningar-
kvöldum 24. og 29. janúar en hann
er kominn með vel yfir sextíu
þúsund gesti og hefur að auki selt
hátt í þrjátíu þúsund mynddiska
af sýningunni sem var tjaldað til
einnar nætur fyrir tveimur
árum.
Í Þjóðleikhúsinu er Hart í bak
vinsælasta verkið sem nú er í
sýningum en á stóra sviðinu eru
að auki sýningar á þorpsdrama
Jóns Kalman, Sumarljósi. Á
sunnudaginn kemur verða sýn-
ingar teknar upp á brúðuleikhús-
verki Bernt Ogrodnik, Klókur
ertu, Einar Áskell. Hinn 24. verð-
ur frumsýnt í Kassanum ljúfsárt
drama, Heiður, í leikstjórn Bjarna
Hauks en höfundurinn er hin ástr-
alska Jóhanna Murray Smith.
Áratugir eru síðan ástralskt verk
var sýnt hér á landi en það var í
Þjóðleikhúsinu í Sautjándu brúð-
unni sem lýsti örlögum farand-
verkamanna, löngu áður en hug-
takið varð til.
Áfram verður haldið sýningum
í Íslensku óperunni á Janis 27 en
vetrarfrumsýningu Óperunnar
hefur verið frestað vagna fjár-
hagslegrar stöðu.
Á Landnámssetrinu í Borgar-
nesi er haldið áfram sýningum á
einleikjunum Brák og Mr. Skalla-
grímsson og á Saltfisksetrinu í
Grindavík eru sýningar á 21
manns saknað. Sjálfstæðu leik-
hóparnir fara sér nú hægt: Mögu-
leikhúsið er á ferð með Sæmund
fróða og Draumasmiðjan með Ég
á mig sjálf. Í Hafnarfirði er tekin
upp sýning LA og Vesturports á
Dubbeldusch og þar er einnig efnt
til tveggja aukasýninga á Steinar
úr djúpinu sem LabLoki setti á
svið þar fyrir jól. Systur eftir þær
Láru Stefánsdóttur og Ástrósu
Gunnarsdóttur verður sýnd á
Akureyri 23. og 24. janúar en þá
verður yfirstaðin frumsýning á
nýju verki í Rýminu 16. janúar.
Það er nýtt íslenskt leikverk, Falið
fylgi, eftir Bjarna Jónsson í leik-
stjórn Jóns Gunnars Þórðarsonar,
sem þá verður frumsýnt. Er þegar
uppselt á fimmtán fyrstu sýning-
arnar en fáanlegir eru enn miðar
á aukasýningu 24. janúar.
Janúarmánuður hefur löngum
verið drjúgur í aðsókn hér á landi,
en í febrúar taka leikhúsin að
keppa við þorrablótin og árshátíð-
irnar. Þá taka líka að birtast sýn-
ingar áhugamannafélaga af ýmsu
tagi, bæði í skólum og á vegum
áhugamannafélaganna. En ef ráða
má af auglýstum sýningum ætla
leikhúsin að sækja millljónatugi í
vasa almennings næstu þrjár
vikur.
BJARTSÝNI RÍKIR
Í LEIKHÚSUM
Starfsemi leikhúsanna er komin á fullt eftir hlé desembermánaðar. Boðið er upp
á hátt í fi mmtíu sýningar í landinu fram til mánaðamóta í Reykjavík, Hafnarfi rði,
Borgarnesi, á Akureyri og í Grindavík. Um fi mmtán þúsund sæti verða í boði og
eru mörg þeirra þegar seld.
LEIKLIST PÁLL BALDVIN BALDVINSSON
Dubbeldusch eftir Björn Hlyn: Kristjana Skúladóttir, Harpa Arnardóttir, Davíð Guðbrandsson og Hilmar Jónsson. það kemur upp
aftur og er lagað að kreppunni. MYND LA/VESTURPORT/GRÍMUR BJARNASON
Tríó Reykjavíkur heldur sína árlegu nýárstónleika í Hafnarborg á
sunnudaginn en þar hefur hópurinn aðsetur. Hefjast þeir kl. 20 og
er slegið á léttari strengi en oft áður: Sigrún Hjálmtýsdóttir og
Bergþór Pálsson troða upp og taka lagið við undirleik tríósins.
Fimmmenningarnir munu að venju koma víða við og leiða tónleika-
gesti inn í hrífandi og
fjölbreyttan heim
tónlistar, sem alls staðar
hefur notið framúrskar-
andi vinsælda.
Flutt verða lög úr
söngleikjum eftir George
Gershwin, Frank Loesser,
Irving Berlin, ragtime-
tónlist eftir Scott Joplin,
Havanaise og Svanurinn
eftir C. Saint-Saëns, aríur
úr Marziu greifafrú og
Sardasfurstynjunni eftir
Emmerich Kálmán að
ógleymdum Sardas eftir
Monti. Einnig verða lög eftir Paganini, Offenbach og Johann
Strauss. Meðlimir Tríós Reykjavíkur eru Peter Máté píanóleikari,
Guðný Guðmundsdóttir fiðluleikari og Gunnar Kvaran sellóleikari.
Trío reykjavíkur ásamt söngvurum við
æfingar í vikunni MYND FRÉTTABALÐIÐ/GVA
Í þessari viku verða tveir upplestrar í gömlu Iðnó á leikriti Michael
Frayn, Copenhagen, eða Kaupmannahöfn eins og það er kallað í
þýðingu Árna Bergmann. Það eru Sveinn Einarsson og Vigdís
Finnbogadóttir sem standa fyrir flutningnum en þau Þorsteinn
Gunnarsson, Valgerður Dan og Jakob Þór Einarsson flytja verkið.
Á sínum tíma var Copenhagen vinsælt verk og sýnt víða um heim
í afar einföldum sviðsetningum. Í verkinu gerir Frayn sér mat úr
frægum og umdeildum fundi Niels Bohr og Werner Heisenberg í
Kaupmannahöfn 1941. Heisenberg var nemandi Bohr en þeir voru
báðir í hópi frumherja við rannsóknir á klofningu atómsins og
þróun kjarnorkunnar. Verkið kannar á meistaralegan hátt vináttu
og traust, varhug og tryggð.
Frayn er kunnur hér á landi af verkum sínum Svaldri og Villi-
hunangi. Stærstu sigrar hans á liðnum árum eru Kaupmannahöfn
og Lýðræði, en þar gerir hann sér mat úr frægu njósnamáli Günter
Guillaume, náins samstarfsmanns Willy Brandt, sem var um ára-
bil á mála hjá austurþýskum yfirvöldum. Það var gefið út þýtt af
Vilborgu Sigurðardóttur og Jóni Ólafssyni í Ritinu og stóð til að
leiklesa það í húsi Hæstaréttar á vegum Þjóðleikhússins en fallið
var frá þeirri hugmynd vegna réttarmála.
Upplesturinn á Kaupmannahöfn verður í Iðnó þriðjudaginn 14.
og miðvikudaginn 15. og hefst kl. 20. Er þetta í fyrsta sinn sem þau
þrjú, Þorsteinn, Valgerður og Jakob, leika í Iðnó eftir 20 ára fjar-
veru. Hér gefst einstakt tækifæri til að sjá og heyra þau Valgerði
og Þorstein í hlutverkum á sviði, en þau hafa ekki komið fram á
sviði um langt skeið, en eru hér í hlutverkum sem henta þeim afar
vel. Valgerður hefur lítið leikið um langt árabil en Þorsteinn komið
fram í hlutverkum í sjónvarpi og kvikmyndum.
Þau Vigdís og Sveinn hafa sett í gang Vonarstrætisleikhúsið til
að kynna erlend verk hér á landi. Samkvæmt Fréttablaðinu sóttu
þau um styrk í fyrra til sviðsetningar verksins en fengu ekki og
ráðast því í leiklestur á því nú til að byrja með.
Frá samlestri: Valgerður, Þorsteinn, Sveinn, Vigdís og Jakob Þór.
Tríó í Hafnarborg
Örlög mikilmenna
Leikhúsin hyggjast í
þessum mánuði sækja
þúsundir gesta og tugi
miljóna í tekjur á vin-
sælar leiksýningar og
fásóttari verk.