Fréttablaðið - 11.01.2009, Blaðsíða 10
10 11. janúar 2009 SUNNUDAGUR
Best klæddu
konur ársins 2008
Undir lok hvers árs taka helstu tískubiblíur heims saman lista af þeim konum sem þeir telja bera höfuð
og herðar yfir aðrar hvað klæðaburð varðar. Anna Margrét Björnsson rýndi í valinkunn tískurit og
kynnti sér konurnar sem sérfræðingarnir settu hæst á lista.
FORSETAFRÚIN Samband Sarkozys Frakk-
landsforseta við fyrrum fyrirsætuna og söng-
fuglinn Cörlu Bruni vakti upp miklar gagnrýn-
israddir í fyrra en eftir að þau gengu í heilagt
hjónaband hefur Bruni sannarlega slegið í
gegn. Bruni byrjaði að ganga í fötum eftir hönn-
uðinn Christian Dior og þótti takast fullkomlega
upp með forsetafrúarstílinn. Hún gengur mikið
í klassískum flíkum sem jafnvel minna á flíkur
Jackie Kennedy frá sjötta áratugnum og er oft-
ast í flatbotna skóm þar sem Sarkozy er höfðinu
lægri en hún.
TÍSKUDÍVAN Ritstýra franska Vogue
hefur ætíð verið efst á listum um best
klæddu konur heims og í ár settu
tímaritin Vanity Fair og Elle hana á stall
með áhrifamestu konum á tískuna
í heiminum. Hér sést hin fimmtíu
og fimm ára Roitfeld á tískusýn-
ingu Celine á síðustu tískuviku í
Parísarborg þar sem hún
er búsett.
LEIKSTÝRAN Sofia Coppola, dóttir Francis Ford Coppola,
sem hefur sjálf leikstýrt myndum eins og Lost in
Translation og Marie Antoinette þykir hafa sérstak-
lega smekklegan stíl. Sofia blandar saman klassískum
hátískuflíkum við gallabuxur og flatbotna ballerínuskó
og sést reglulega í hönnun vinar síns Marcs Jacobs. Hér
sést Sofia einmitt á tískusýningu Jacobs fyrir vorið 2009
í New York.
SÉRSTÖK OG DULARFULL Breska leik-
konan Tilda Swinton þykir mjög falleg
og sérstök, sem fatasmekkur hennar
endurspeglar. Hún vakti mikla athygli
fyrir frumlegan kjól sem hún klæddist
á síðustu óskarsverðlaunum og fer
gjarnan ótroðnar slóðir í fatavali. Hér
sést hún á kvikmyndahátíð í Feneyjum
í ágúst.
HIPP OG KÚL-STÚLKAN Breska fyrir-
sætan og sjónvarpskonan Alexa Chung
hefur toppað lista yfir best klæddu konu
Bretlands undanfarin tvö ár. Tískublöð-
in hrífast af frumlegum stíl hennar en
sjálf segist hún vera undir miklum
áhrifum frá tísku sjöunda áratugarins.
„Mig langar að klæða mig eins og
Marianne Faithful, Francoise Hardy og
Jane Birkin,“ útskýrir hún. Chung seg-
ist vera hissa yfir því að vera nefnd
ein best klædda kona Bretlands þar
sem henni finnist allar konur í hipp
og kúl-hverfinu Shoreditch klæða sig
eins og hún.
STRIPPARINN Erótíski dansarinn Dita Von Teese, sem
einnig er fyrrverandi eiginkona dauðarokkarans Marilyn
Manson, þykir hafa sérstakan og fallegan stíl. Hún
klæðist fötum í anda fjórða áratugarins – aðsniðnum
drögtum og kjólum sem ýkja líkamslínur hennar. Von
Teese notar einnig farða og hárgreiðslu í anda stríðsár-
anna og sést á fremstu bekkjum á helstu tískusýning-
um heims. Hér sést hún í veislu í Los Angeles í október.
VERÐANDI FORSETAFRÚ
Konan sem trónir efst á
listum allra helstu tísku-
blaða um best klæddu konur
heims er eiginkona verðandi
forseta Bandaríkjanna, Baracks
Obama. Michelle Obama þykir
stórglæsileg og bera mikinn
þokka og klæða sig smekklega
en þó að sama skapi djarflega.
Michelle þykir einnig minna á
fyrrverandi forsetafrúna Jackie
Kennedy. Hér er Michelle á
styrktarsamkomu fyrir eigin-
mann sinn í júní síðastliðnum.
TÖFFARINN Skoska fyrirsætan Agyness Deyn
þykir hafa akkúrat það útlit sem flottast þykir í
dag. Hún er með stutta strákaklippingu og aflitar
á sér hárið og gengur gjarnan í fötum sem minna
á pönk áttunda áratugarins. Tískuhönnuðir dýrka
hana og hún veitir mörgum breskum hönnuðum
innblástur við línur sínar. Hér sést hún á gangi í
New York síðastliðið haust.
KVIKMYNDA-
STJARNAN Gwyn-
eth Paltrow þótti
sýna og sanna á
rauða dreglinum
í sumar að hún
hefði engu tapað
í kynþokkanum
þrátt fyrir að vera
orðin tveggja
barna móðir og
þrjátíu og sex ára
gömul. Hún mætti
á frumsýningu Iron
Man í knallstutt-
um kjól sem sýndi
fagurlega lagaða
leggina og hefur verið
áberandi í tískublöð-
um síðan fyrir djarft
fataval. Paltrow, sem er
gift popparanum Chris
Martin í Coldplay,
leggur áherslu á
heilbrigðan lífsstíl og
heldur sér í formi með
jóga og pilates.
UMDEILD STJARNA Fyrrum kryddpían og
eiginkona fótboltaleikarans David Bekcham,
Victoria, er þekkt fyrir gífurlegan áhuga á tísku.
Sérfræðingarnir hafa hingað til verið ötulir við að
gagnrýna fataval hennar sem þótti ósmekklegt á
köflum en nú virðist „posh spice“ hafa verið tekin
í sátt. Tískuspekúlantar voru sammála um að
Victoria Beckham hafi tekið sig á í fatastílnum og
klæði sig nú í klassískar og stílhreinar flíkur sem
minna á leikkonuna heitnu Audrey Hepburn.