Fréttablaðið - 11.01.2009, Blaðsíða 33

Fréttablaðið - 11.01.2009, Blaðsíða 33
SUNNUDAGUR 11. janúar 2009 Umboðsmaður Jimmys Page, Peter Mensch, hefur dregið til baka fyrri yfirlýsingar sínar og segir að Led Zeppelin muni ekki halda áfram störfum án söngvar- ans Robert Plant. Fréttablaðið greindi frá því á fimmtudag að Mensch teldi líklegt að Led Zeppelin myndi á næstunni taka upp nýja plötu og leggja upp í tónleikaferðalag. Nú horfir öðruvísi við. „Led Zeppelin eru búnir,“ sagði Mensch í viðtali við Music Radar. „Ef þú sást þá ekki árið 2007 þá misstirðu af þeim. Þetta er búið, ég get ekki sagt það skýrar.“ Mensch segir að þremenning- arnir Jimmy Page, John Paul Jones og Jason Bonham hafi prófað nokkra söngvara sem áttu að koma í stað Roberts Plant en enginn þeirra hafi þótt nógu góður. Zeppelin hættir við LED ZEPPELIN HÆTTTIR ENDANLEGA Jimmy Page verður að finna sér eitthvað annað að gera, nú þegar útséð er með að Led Zeppelin haldi áfram störfum. NORDICPHOTOS/GETTY Madonna byrjaði árið á nýju mataræði til að reyna að líta út fyrir að vera að minnsta kosti tólf árum yngri. Hin fimmtuga poppdrottning er staðráðin í að halda í unglegt útlit sitt og hefur fengið hjálp næringarfræðinga til að setja saman nýjan kúr fyrir hana sem uppistendur aðallega af laxi og öðrum feitum fiski. Auk mataræðisins mun hún auka við líkamsræktaræfingar. Bróðir söngkonunnar, Christop- her Ciccone, vill meina að hún hafi farið í andlitslyftingu, en það kom fram í bók hans, Life with my sister Madonna, sem kom út í fyrra. Hann segir andlitslyfting- una hafa breytt útliti hennar mikið og þegar öllu sé á botninn hvolft sé hún einmana þrátt fyrir heimsfrægðina sem hún nýtur. Madonna á laxakúr ALLT FYRIR ÚTLITIÐ Madonna eyðir háum fjárhæðum í að halda sér ung- legri. Little Boots er talin líklegust til að slá í gegn á árinu 2009 að mati 134 breskra tónlistarspekinga. Hin 24 ára elektró-poppsöngkona heitir réttu nafni Victoria Hesketh og kemur frá Blackpool í Englandi. Hún ku vera undir áhrifum frá listamönnum á borð við David Bowie, Gary Numan og Kate Bush. „Það er ótrúlegt að svona margir vilji skrifa um mig og gefa mér tækifæri. Ég er virkilega þakklát fyrir það,“ sagði Hesketh. Einn þeirra sem hefur mikið álit á henni er Joe Goddard úr danssveitinni Hot Chip, sem hefur einnig tekið upp nokkur af lögum hennar. Samkvæmt lista sem er birtur á heimasíðu BBC lenti rokksveitin White Lies í öðru sæti, söngkonan Florence and the Machine í þriðja og ástralska sveitin Empire of the Sun í því fjórða. Athygli vekur að bæði White Lies og Florence and the Machine spiluðu á Iceland Airwaves-hátíðinni í haust við góðar undir- tektir. Sérstaklega þóttu tónleikar Florence eftirtekt- arverðir. Á sama lista á síðasta ári var Adele talin líklegust til vinsælda, í öðru sæti var Duffy, The Ting Tings lenti í því þriðja og Glasvegas í fjórða. Allir þessir flytjendur vöktu mikla athygli á síðasta ári og því greinilega óhætt að taka mark á listanum. Little Boots slær í gegn á árinu LITTLE BOOTS Little Boots er talin líklegust til afreka á þessu ári. www.solskinsdrengurinn.is Verkefnið er styrkt af Sýnum samhyggð og samstöðu H V ÍT A H Ú S IÐ /S ÍA

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.