Fréttablaðið - 11.01.2009, Page 14

Fréttablaðið - 11.01.2009, Page 14
MENNING 2 „Sem höfund- ur í fullu starfi getur þú verið að leggja niður fyrir þig tvö þrjú verk og unnið í þeim með hléum eins og þér hentar. Það hentar mér mjög vel.“ fullu starfi getur þú verið að leggja niður fyrir þig tvö þrjú verk og unnið í þeim með hléum eins og þér hentar. Það hentar mér mjög vel.“ Bjarni er núna að vinna verk fyrir Þjóðleikhúsið. Útvarpsleikrit Bjarni hefur unnið mikið fyrir útvarp og segir leik- listardeild hljóðvarps og yfirmenn þar hafa veitt sér mikinn stuðning á liðnum árum, María Kristjánsdótt- ir, Hallmar Sigurðsson og nú Viðar Eggertsson: „Mér finnst ég nú yfirleitt finna fyrir áhuga hjá leikhúsun- um og leikhópunum fyrir því að vera með ný innlend verk. Það er svo sem ekki skrítið. Leikhús er svo stað- bundið listform. Þegar við erum að fá inn ný verk frá Evrópu eða Ameríku er undir hælinn lagt hvort þau skila sér til áhorfenda.“ Bjarni segir Útvarpsleikhúsið afar mikilvægan hlekk í keðjunni: Það hefur, bæði til að fá æfingu og sinna hinu dramatíska formi, skipt verulegu máli fyrir mig. Sama er að segja um leikara og leikstjóra. Ég hef gert fjölmargar leikgerðir og tel að sú vinna hafi skilað sér margfalt. Reyndar held ég að skrif fyrir útvarp gætu verið góð æfing fyrir þá sem eru til dæmis að vinna kvikmyndahandrit. Víða hefur verið reynt að skera niður starfsemi á borð við Útvarpsleikhúsið og oftar en einu sinni hér á landi, þar sem menn fengu það einhvern tíma á tilfinning- una að við værum eina vestræna þjóðin sem héldi slíkri starfsemi úti. Þá var málið kannað lauslega og það kom í ljós að í Evrópu einni ráku á milli þrjátíu og fjörutíu útvarpsstöðvar leiklistardeildir og höfðu frekar gefið í en látið undan. Það eru tugþúsundir hlustenda að útvarpsleikverkum hér og nú eru að aukast möguleikar á dreifingu með niðurhali. Það verður að gæta þess að við missum þetta ekki út úr höndunum á okkur eins og svo margt annað.“ Ekki bara samtöl Bjarni stóð, ásamt Ragnheiði Skúladóttur og Guð- rúnu J. Guðmundsdóttur, að alþjóðlegri leiklistarhá- tíð hér í fyrra, LÓKAL. Þar voru á boðstólum til- raunasýningar og af þeim og margra ára hneigð í leikhúsi samtímans má sjá að leikverk eru í ríkari mæli að hverfa að hinu sjónræna og frá textanum sem ráðandi. Bjarni kom inn í leikverkaskrif sem textasmiður frekar en myndsmiður. Hann segir að í fyrstu hafi hann átt erfitt með að nálgast leikhúsið myndrænt. Hann hafi alltaf nálgast verkið frá sam- talinu, tungumálinu, en í seinni tíð hafi það snúist við: „Ég lít á það sem þróun. Það tekur mann þó nokkurn tíma að uppgötva leikhúsformið og hversu flókið samspil er um að ræða. Leikrit er ekki bara samtöl. Sem höfundur er maður líka í ákveðnu þjónshlut- verki sem maður verður að taka alvarlega. Þessi ver- öld, sem er sett upp á sviðinu, hún byrjar auðvitað hjá þér sem höfundi – en maður getur aldrei undanskilið sig apparatinu sem leikhúsið er. Þetta er svo gjörólíkt því að skila frá sér handriti sem svo kemur út á bók fyrir lesanda. Milliliðalaust. Þarna ertu með millilið; hóp af fólki sem ætlar að miðla textanum þínum til áhorfenda og nota til þess hin fjölbreytilegustu meðul. Mér finnst það alltaf mjög spennandi, að mæta með sitt farteski á fyrsta samlestur og ganga í leikinn sem verður til þegar leikstjóri og leikarar taka við kyndlinum af höfundi. Það getur líka verið gott að fá leikara til þess að lesa það sem maður er að gera, ein- hvern tíma á ritunarferli verksins. Þegar maður heyrir hvernig farið er með orðin skynjar maður undir eins alla mögulega galla.“ Poppkúltúr Bjarni fór að vinna við Falið fylgi um svipað leyti og hann lauk við Óhapp 2007. Þetta var hugmynd sem hann hafði lagt inn til LA árið 2006. „Þá voru stjórn- málamenn mér hugleiknir. Þeir höfðu valist til ábyrgðarstarfa, en voru staddir í algeru tómarúmi. Þeir eru þar reyndar enn þá; eru ekki enn búnir að finna fjölina sína. En fyrir hrunið fannst mér stund- um eins og þeir efuðust sjálfir um að þeir þyrftu að sinna samfélaginu með sama hætti og þeir höfðu gert. Þeir efuðust um hlutverk sitt og það setti ýmsa þeirra út af laginu. Menn urðu poppkúltúrnum að bráð; voru myndaðir í sófanum heima hjá sér fyrir Hús og híbýli og spurðir að því í dagblöðum hvað þeim þætti best að borða. Á sama tíma gat kosninga- baráttan oft tekið á sig undarlegustu myndir.“ Fórnarlömbin Ef grindin í Falið fylgi er skoðuð má sjá að þar er falið einhvers konar ritúal – raunar getum við sagt að allt okkar líf sé ritúal – trúarhefðir og venjur í stóru og smáu. Ég ber þetta undir hann: „Í öllum verkunum mínum er undirliggjandi einhvers konar fórn – einhver fórnar sér – af fúsum og frjálsum vilja eða án þess að gera sér grein fyrir því. Sam- félagið knýr með einum eða öðrum hætti á um fórn- ina, í von um að geta þannig leyst tilvistarvanda sinn hverju sinni. Ég legg aldrei upp með þetta en ég er búinn að sjá þetta í nokkrum verkum. Þetta er alveg rétt. Það er áhugavert að skoða þetta, svona eftir á.“ Hann lætur vera að minnast á að í fórninni erum við að greina eina elstu hefð leiksins sem á sér djúpar rætur í sögu mannsandans. Leikið með tímaskyn Bjarni viðurkennir að hann þurfi að hafa sterka til- finningu fyrir því formi sem hann lætur frá sér í handriti: „Um leið held ég að ég glími við það sama og margir sem skrifa fyrir íslenskt leikhús, að kom- ast frá natúralismanum. Hann er ofboðslega sterkur hjá okkur. Það eru ákveðin element sem við getum notað til að losna frá honum. Til dæmis að leysa upp tímann. Það átti við um Óhappið og gildir einnig fyrir Falið fylgi: tíminn er leystur upp. Við höldum að við séum lögð af stað í krónólógískt ferðalag en uppgötvum á leiðinni eða undir lokin að við höfum þvælst um á nokkrum plönum. Ég hef verið svolítið upptekinn af þessum tilraunum undanfarið, eygi þar með möguleika á að færast sífellt nær því að búa til sértækan heim; mótsagnakennda veröld. Vonandi tekst mér að þróa myndirnar í sömu átt.“ Að finna fókus Á liðnum árum hafa leikhúsmenn litið mjög til þess að komast í ný rými, rífa sig úr sérbyggðum leikhús- um með sviðsramma eins og það sé sáluhjálp að fá óvenjuleg rými. Ég spyr Bjarna hvort hann telji það nauðsynlegt að brjótast frá rammaða sviðinu: „Ég veit ekki hvort það er nauðsynlegt. Það hafa verið gerðar tilraunir með leiksviðið í nokkur þúsund ár og þeim verður haldið áfram. Ég lít ekki á þetta sem einhvers konar trúarbrögð. Maður hefur séð frá- bærar devised (tilbúnar) sýningar, í óvenjulegum leikrýmum, þar sem allt gengur upp. En þetta er vandmeðfarið, sérstaklega vegna þess að fókusinn, sem er eitt helsta verkfæri leikhússins, hann getur farið út um víðan völl. Þá missir maður athygli áhorfandans; þegar merkjamálið sem hann á að afkóða verður óskýrt, hættir hann að taka þátt í leiknum. Þannig að þegar talað er um sviðsform, virðast flest leikverk ganga ágætlega upp í kassa; í þessu gamaldags formi þar sem allir áhorfendur hafa nánast sama sjónarhorn á sviðið. Þá er auðveld- ara fyrir leikstjórann að stýra athygli þeirra að vild, það segir sig sjálft.“ Hrunadans Bjarni er að vinna verk fyrir Þjóðleikhúsið sem kemur vonandi upp í haust. „Ég kalla það Nýja íslenska leikritið. Það fjallar um fjárfesta og gerist í aðdraganda hrunsins, þegar allir eru enn á toppn- um þótt undir niðri viti menn að fallið er á næsta leiti. Þetta er tilraun til þess að taka á draumnum sem við gengum inn í fyrir mörgum árum síðan, þegar við töldum okkur trú um að nú væri þetta komið: Stjórnmálamenn þyrftu ekki lengur að stýra nokkrum sköpuðum hlut, efnafólk þyrfti ekki að bera samfélagslega ábyrgð – þjóðin væri komin svo langt á veg. Fókusinn var allur á peninga og það hefur aldrei farið vel með Íslendinga að hugsa of mikið um auðæfi; við skrifuðum um það miklar bók- menntir fyrir hartnær þúsund árum. Núna tókum við efnishyggjulestina alveg út á endastöð og kröss- uðum henni þar. Það er erfitt fyrir leikhúsið að fjalla um hrunið, að minnsta kosti sem stendur. Tímarnir eru svo dramatískir í sjálfu sér. En þetta verður risastórt umfjöllunarefni í leikhúsunum næstu 10–15 árin og einhvers staðar verður að byrja.“ Bjarni Jónsson heima í eldhús- inu. Leikverkin kokkar hann í vinnustofu. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Kennsla hefst 19. janúar Frístundakor t Skemmtilegt tónlistarnám sem hentar fólki á öllum aldri, jafnt byrjendum sem lengra komnum. Frábært tækifæri. Guðmundur Jónsson og Friðrik Sturluson úr Sálinni hafa bæst í hóp einvalaliðs kennara hjá Tónheimaum Bassagítar Friðrik Sturluson Lagasmíðar / Gítar Guðmundur Jónsson Harmónikka Raf- og Kassagítar Píanó Nánari upplýsingar og skráning á www.tonheimar.is og í síma 846 8888 NÝTT NÝTT

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.