Fréttablaðið - 11.01.2009, Page 19
SUNNUDAGUR 11. janúar 2009 3
í o k k a r l i ð i ?
Actavis hf. Reykjavíkurvegi 76-78 220 Hafnarfirði s 550 3300 f 550 3301 @ actavis@actavis.is w www.actavis.is
Actavis er alþjóðlegt fyrirtæk i sem sérhæfir sig í þróun, framleiðslu og sölu hágæðasamheitalyfja. Hjá Actavis star fa um 11 þúsund einstaklin-
gar í 40 löndum sem eru reiðubúnir að taka áskorunum með það að markmiði að koma Actavis í fremstu röð samheitalyfjafyrirtækja.
Actavis leitar að metnaðar fullum einstaklingum til star fa sem eru tilbúnir að takast á við krefjandi verkefni.
Actavis leitast við að ráða starfsfólk sem:
• sýnir metnað í hverju því sem það innir af hendi
• sýnir viðskiptavinum fyrsta flokks þjónustulund
• leggur áherslu á samvinnu, því í sameiningu komumst við lengra en við getum ein
• ber virðingu fyrir auðlindum sínum og sýnir hagkvæmni í daglegum störfum
• hefur nægan sveigjanleika til að geta gripið tækifærin sem því gefast
• sýnir framsækni og lætur hlutina gerast
Tæknimaður
Tæknideild Actavis hf. auglýsir stöðu tæknimanns lausa til umsóknar. Tæknimaður þarf að hafa góða
reynslu í viðgerðum á vélbúnaði, stýringum og rafbúnaði.
Unnið er samkvæmt skriflegum leiðbeiningum og öll viðhaldsvinna er skráð í þjónustuskýrslur /
viðhaldsforrit .
Um er að ræða vaktavinnu á tvískiptum vöktum, auk bakvakta.
Helstu verkefni:
• Fyrirbyggjandi viðhald, viðgerðir, eftirlit og breytingar á tækjabúnaði framleiðslu og rannsóknarsviðs
• Skiptingar á milli vörutegunda og uppstart á pökkunarlínum
• Þátttaka í uppsetningu á nýjum tækjabúnaði
• Þátttaka í gildingarvinnu og kvörðunum á tækjabúnaði Actavis
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Vélfræðimenntun eða sambærileg menntun
• Nákvæmni og snyrtimennska
• Sjálfstæð vinnubrögð
• Enskukunnátta og góð tölvuþekking nauðsynleg
Nánari upplýsingar veitir Jenný Sif Steingrímsdóttir,
jsteingrimsdottir@actavis.is.
Umsóknir óskast fylltar út á www.actavis.is, undir Störf í boði
fyrir 16. janúar nk.