Tíminn - 15.10.1982, Blaðsíða 9
FÖSTUDAGUR 15. OKTÓBER 1982
21
íþróttir
GOÐVÖRN OG MARKVARSU
Tryggði KR-ingum öruggan sigur gegn Fram í 1. deild, 28:17
■ Það lið sem ekki nær að skora nema
5 mörk í einum hálfleik í handknattleik
getur ekki vænst þess að vinna öfluga
andstæðinga. Sú varð raunin með 1.
deildarlið Fram í gærkvöldi, en í síðari
hálfleik gegn KR-ingum skoruðu þeir
aðeins 5 mörk. En þeir geta ekki aðeins
kennt sjálfum sér um, því vamarleikur
KR-inga var mjög góður og árangurs-
ríkur og þar á ofan bættist að Jens
Einarsson markvörður KR sýndi stór-
leik í markinu. Varði bókstaflega
frábærlega.
Það voru Framarar sem skoruðu
fyrsta mark leiksins og þeir höfðu
fmmkvæmið framan af fyrri hálfleik.
Þeir komust í 4-3, en þá skomðu
KR-ingar þrjú mörk í röð og breyttu
stöðunni í 6-4. Það sem eftir lifði af fyrri
hálfleiknum höfðu KR-ingar svo for-
ystu, þetta tvö til þrjú mörk mörk og í
hálfleik var staðan 14-12 KR-ingum í
hag.
Semsagt ekki ýkja mikill munur í fyrri
hálfleik, enda varnimar hjá báðum
liðum fremur auðveldar „umferðar", en
það breyttist svo í þeim síðari. Fyrst og
fremst hjá KR, en vörn þeirra lék mjög
vel allan hálfleikinn og að baki hennar
stóð Jens Einarsson og varði það sem lak
í gegn. Þeir náðu svo að skora, það sem
talist getur hæfilegur fjöldi marka í
hálfleiknum, eða 13 talsins. Sóknarleik-
urinn var fjölbreyttur. Mörkin voru
skoruð af línu, úr hornunum og utan af
velli. Og eitt marka Alfreiðs Gíslasonar
var af þeirri gerð hörkunegling og hver
sá sem slapp við að verða fyrir boltanum
gat þakkað sínum sæla. Lokatölur í
leiknum urðu svo 28 mörk gegn 17. Það
var kannski fullmikill munur miðað við
gang leiksins, en það er íhugunarvert
fyrir Framliðið hversu oft það virðist
hreinlega hrynja í síðari hálfleik.
Hannes Leifsson og Gunnar Gunnars-
son voru bestir hjá Fram og þá sýndi
Rúnar Kristinsson í markinu laglega
takta á stundum í síðari hálfleik. Þá lék
Erlendur Davíðsson af miklum krafti.
Lið Fram hefur tekið miklum framför-
um frá því í fyrstu leikjum þess og ekkert
lið getur bókað sér sigur frá því í fyrstu
Stórleikurinn
í Englandi
■ Stórleikurinn í ensku knattspyrn-
unni á laugardag verður milli
Liverpool og Manchester United.
Þetta eru þau tvö lið sem flestir spá
að sigri í deildakeppninni að þessu
sinni og því er ekki úr vegi að huga
að því hvernig leikir þessara liða á
Anfleld hafa endað á undanförnum
árum.
I síðustu fjórum leikjum hefur
Liverpool sigrað Manchester United
á Anfleld í Liverpool. Tvívegis hefur
farið 2-0, einu sinni 3-1 og Liverpool
skoraði einu sinni eina mark leiksins.
En í næstu tvö skipti þar á undan
sigraði United. Fyrst 2-1 og síðan
1-0. Af þessu má sjá, að aldrei liefur
munað miklu og ómögulegt er að spá
um úrslitin. Bæði liðin hafa á að
skipa mörgum geysisnjöllum leik-
mönnum, sem leika með landsliðum
hinna ýmsu þjóða á Bretlandseyjum.
Þar af tveir úr hvoru liði í írska
liðinu, sem lék gegn íslendingum í
fyrrakvöld.
Bodgan í markinu
Hjá Ármenningum í 2. deild
■ Bodgan þjálfari 1. deildarliðs
Víkings í handknattleik er sem kunnugt
er einnig þjálfari Ármenninga í 2. deild.
Ekki þykir honum liði sínu hafa gengið
nógu vel að undanförnu og því hefur
hann ákveðið að leika í markinu hjá
Ármanni. Hann mun hafa tilkynnt
félagaskipti yfir í Ármann úr Víkingi.
Bodgan var á sínum tíma landsliðs-
markvörður Pólverja í handknattleik
og er því áreiðanlega enginn aukvisi í
því fagi. Enda hefur markvarslan
löngum verið í góðu lagi hjá víking-
unum.
leikjum þess og ekkert lið getur bókað
sér sigur gegn þeim fyrirfram. Það
vantar meira jafnvægi í leikinn hjá þvf,
þá ættu þeir að geta ógnað öllum 1.
deildarliðinum alvarlega.
Hjá KR lék Haukur Ottesen sinn
besta leik í langan tíma. Hann var mjög
■ Haukur Ottesen lék sinn besta
leik með KR í langan tima gegn Fram
í gærkvöldi. Hann var markahæstur
og skoraði 7 mörk.
yfirvegaður og gerði fáar villur og
skoraði 7 mörk. Anders Dahl Nielsen
var tekinn úr umferð, en sýndi inn á milli
góð tilþrif og hann er mjög sterkur og
útstjónarsamur varnarleikmaður. Jó-
hannes Stefánsson lék mjög vel á
línunni, skoraði þrjú mörk og fiskaði
nokkur vítaköst. Þáttur Jens hefur fyrr
verið nefndur í sambandi við mark-
vörsluna.
Mörkin: KR: Haukur Ottesen 7,
Alfreð Gíslason 5, Anders Dahl Nielsen
4 (2), Ragnar Hermannsson og Jóhann-
es Stefánsson 3 hvor, Stefán Halldórs-
son 2, Haukur Geirmundsson 2, Guð-
mundur Albertsson og Friðrik Þor-
björnsson eitt hvor. Allir leikmenn sem
komu inná hjá KR skoruðu nema
markvörðurinn.
Fram: Gunnar Gunnarsson 4(3),
Hannes Leifsson 4, Sigurður Svavars-
son, Erlendur Davíðsson og Jón Árni
Rúnarsson 2 hver, Hermann Björnsson,
Egill Jóhannesson og Björn Eiríksson
eitt hver.
Á undan fór fram leikur í 1. deild
kvenna milli KR og Hauka. KR-stelp-
urnar sigruðu örugglega með 12 mörk-
um gegn 7.
sh
Robson vill
Grobbelaar
■ Það hcfur valdið Bobby Robson
framkvæmdastjóra enska landsliðs-
ins miklum áhyggjum, að allir bestu
markverðirnir í Englandi eru komnir
á fertugsaldur og koma því tæpast til
með að verða hlutgengir í hcims-
meistarakeppninni 1986. Það á við
um Peter Shilton, Ray Clemence,
Joe Corrigan, Phil Parkes, já
bókstaflega alla þá sem eru í fremstu
röð meðal markvarða í Englandi.
Hann heldur því fram, að sá sem
helst hefði komið til greina af yngri
mönnum sé Bruce Grobbelaar
Liverpool, en sá hængur er á, að
hann hefur þegar leikið iandsleik
fyrir Zimbawbe. Robson telur að
ekki líði á Iöngu þar til búið verði að
sníða helstu agnúana af markvörslu
Grobbclaar og þá hefði hann verið
tilbúinn til að leika í enska
■ Bruce Grobbelaar og unnusta
hans Janet Holt.
landsliðinu. En líklega verður það
Gary Bailey, sem verður fyrir valinu
þegar allt kemur til alls. Hann hefur
leikið með undir 21 árs liðinu og
kemur líklegast til með að fylla skarð
Shilton og Clemence.
jj \\ ÆÁ:
t, 1 -ý
j
wgm SHH x 9H
■ Þetta eru liðsmenn TBR, sem farnir eru utan til Antwerpen í Belgíu, þar sem þeir munu taka þátt í Evrópukeppni
félagsliða í badminton. Keppnin hefst í dag og mun lið TBR þá mæta norsku meisturunum frá Kristiansand. Á morgun
keppa TBR-menn gegn liði frá Júgóslavíu og einnig gegn County Club frá Skotlandi. Það lið sem sigrar í riðlinum mætir
síðan hollensku meisturunum í undanúrslitum. Sá lcikur fer fram á sunnudag, en þá verður lcikið til úrslita.
Núverandi Evrópumeistarar eru Gentofte frá Danmörku með þau Lenu Köppen og Morten Frost í fararbroddi.
Liðsmenn TBR sem keppa í Antwerpen eru: Aftari röð frá vinstri: Daníel Stefánsson form TBR, Sigfús Ægir Ámason,
Guðmundur Adolfsson, Broddi Kristjánsson, Kristín Magnúsdóttir, Elísabet Þórðardóttir, You Zuorong, þjálfari. Fremri
röð frá vinstri: Inga Kjartansdóttir, Þorsteinn Páll Hængsson, Kristín B. Kristjánsdóttir, Haraldur Komelíusson og Þórdís
Edwald. Ljósmyndari: Þorgeir Jóhannsson.
Valur og Fram
eigast við
í körfunni
■ Líklegt er að leikur Vals og Fram í
úrvalsdeildinni í körfuknattlcik verði
aðalleikurinn í körfunni um helgina.
Hann verður leikinn á laugardag
klukkan 14.00 í íþróttahúsi Hagaskóla.
Á sama tíma leika ÍBK og UMFN í
Keflavík og þar má búast við hörkuleik,
tveggja liða sem hvorugt hefur tapað
leik í mótinu til þessa.
Síðasti leikur 3. umferðarinnar er svo
leikur ÍR og KR sem fram fer á
sunnudagskvöld klukkan 19.00. Margir
eru þeirrar skoðunar að það séu þau tvö
lið sem komi til með að berjast um
fallsætið, þ.e. berjist um að verða ekki
í fallsætinu.
Einn leikur verður leikinn í 1. deild
kvenna. Verður hann háður strax að
loknum leik Vals og Fram í Hagaskóla
á laugardag.
í 1. deild leika Þór og Haukar á
Akureyri á morgun klukkan 16.00. Þar
má búast við miklum baráttuleik tveggja
liða, sem bæði hyggjast komast í
úrvalsdeildina á næsta keppnistímabili.
f 2. deild leika IA og UMFL á
Akranesi í kvöld klukkan 20.30. Bræður
og Vík leika í Hagaskóla á morgun
klukkan 17.00.
Ásgeir með
Þróttara
■ Þróttarar hafa endurráðið Asgeir
Elíasson sem þjálfara 1. deildarliðs
félagsins í knattspyrau á næsta
keppnistímabili. Ásgeir hefur þjálfað
liðið undanfarin tvö ár. Hann tók við
því er það hafði fallið í 2. deild og
þá fóru margir leikmenn sem leikið
höfðu með Þrótti í önnur félög,
þannig að nýir menn tóku upp
merkið og sigruðu glæsilega í 2. deild
i sumar.
Ásgeir lék lengst af með Fram, en
hann hefur fengist við þjálfun í mörg
ár og þjálfað m.a. Víking Ólafsvik,
FH og Þrótt og einnig hefur hann
þjálfað yngri flokka hjá Fram með
góðum árangri. Ásgeir Elíasson
hefur leikið 29 A-Iandsleiki fyrir
ísland.
★
Firmakeppni
f bordtennis
■ Firmakeppni borðtennisdeildar
KR var haldin í KR-heimilinu 26.
september síðastliðinn. 17 fyrirtæki
tóku þátl í keppninni. Röð efstu
fyrirtækja varð sú, að í fyrsta sæti var
Ryðvarnarskálinn, en fyrir hann
keppti Tómas Sölvason. 1 öðru sæti
varð Morgunblaðið, en fyrir það
keppti Jóhannes Hauksson og í
þriðja sæti var Kristinn Már
Emilsson, sem keppti fyrir Lands-
bankann. I næstu sætum urðu
Kristinn Guðnason, Eimskip, Hans
Petersen, Jöfur og Sportvöruversl-
unin Sparta.
Landsleikir f
badminton
■ Fyrsti landsleikur íslands og
Belgíu í badminton vcrður háður í
Antwerpen í Belgíu á sunnudaginn.
Landsliðsnefnd hefur valið keppend-
ur í leikinn, cn kínverski landsliðs-
þjálfarinn sem verður staddur í
Antwerpen á vegum TBR mun raða
niður í liðin.
Spilaðir verða 2 einliðaleikir
karla, 1 cinliðaleikur kvenna, 2
tvíliðalcikir karia, 1 tvfliðaleikur
kvenna og einn tvcnndarleikur.
Þetta er í fyrsta sinn scm þessar
þjóðir mætast á badmintonvellinum.
Unglingalandsieikur gegn Færey-
ingum vcrður háður í TBR-húsinu á
sunnudaginn 17. október klukkan
14.00.
★
Handbolti
um helgina
■ Leikurinn sem vera átti milli
Víkings og Þróttar í 1. deild karla t
handknattleik, en frestað var á
miðvikudag verður leikinn á morgun
laugardag í Laugardalshöll og hefst
hann klukkan 14.00. Á sunnudags-
kvöld leika svo Stjarnan og Valur í
Hafnarfirði og hefst sá leikur
klukkan 20.00.
í kvöld leika á Akureyri í 2. deild
karla og KA og Afturelding og strax
á eftir lcika Dalvík og Reynir
Sandgerði í 3. deild karla. Á Varmá
leika í kvöld í 2. deild karla
Breiðablik og Ármann og hefst sá
leikur klukkan 20.00.
Á Akureyri leika Þór Akureyri og
Reynir í 3. deild á laugardag kl.
14.00. Skallagrímur og Ögri lcika í
3. deild í Borgarnesi á sama tíma. í
Hafnarfírði leika Haukar og Grótta
klukkan 14.00 á laugardag og er sá
lcikur í 2. deild karla.
í Laugardalshöll leika í 3. deild
karla klukkan 14.00 á laugardag
Fylkir og ÍBK og strax á eftir leika
Þróttur og Selfoss i 2. deild kvenna.
í Ásgarði leika í 2. deild kvenna
Stjarnan og Fylkir og ÍBK og HK
leika í sömu deild í Keflavík klukkan
14.00.
Að síðustu leika í Vestmannaeyj-.
um Þór V. og HK í 2. defld karla
og í 2. dcild kvenna BK og ÍA.