Tíminn - 15.10.1982, Page 13

Tíminn - 15.10.1982, Page 13
FÖSTUDAGUR 15. OKTÓBER 1982 25 minning Þau leiðinlegu mistök urðu í blaðinu í gær að með minningargrein um Herdísi Ásgeirs- dóttur birtist röng mynd. Tíminn biður velvirðingar .á þessum mistökum og hér á eftir fylgir greinin í heild ásamt réttri mynd. Herdís Ásgeirsdóttir Kveðja frá Landsnefnd orlofs húsmæðra ■I í dag þegar Herdís Ásgeirsdóttir er til grafar borin minnast hennar margir með virðingu og þökk. Herdís var fædd 31. ágúst 1895, en hún lést 3. október s.l. Eftirlifandi maður hennar er hinn þekkti skipstjóri og athafnamaður Tryggvi Ofeigsson. Herdís var viljasterk kona og studdi hvert það mál sem hún taldi til heilla horfa. Eitt þe:rra mála sem hún beitti sér fyrir alveg sérstaklega var Orlof húsmæðra. Lög um orlnf húsmæðra gengu í gildi árið 1960, en Heidís var formaður í þeirri nefnd sem undirbjó frumvarp að lögunum. Það voru gleðitíðindi að þessi lög hlutu samþykki alþingis, því í þeim fólst viður- kenning á því að þau störf sem unnin eru á heimilunum séu mikilvæg fyrir þjóðfélagið þó þau séu ekki metin til launa. Samkvæmt lögunum áttu héraðssambönd Kvenfélagasambands íslands að sjá um framkvæmd þeirra. Bandalag kvenna í Reykjavík kaus þá þegar orlofsnefnd fyrir Reykjavíkurborg og varð Herdís formaður hcnnar og allt til ársins 1969. Henni var mikill vandi á höndum að móta starfsemina þar sem hér var um nýjar brautir að ræða. Og lengi hýr að fyrstu gerð. Frá upphafi var það hennar fyrsta og síðasta boðorð að yfir orlofi húsmæðra væri menningar- og myndar- bragur. Sem samstarfsmaður Herdísar um langt árabil í Orlofsnefnd húsmæðra í Reykjavík kynntist égvel hennargóðu kostum. Góðvild og fádæma þrautseigja voru sterkir þættir í skapgerð hennar. Ánnað mál sem Herdís beitti sér fyrir á vegum Bandalags kvenna í Reykjavík var að komið yrði á fót fæðingarstofnun í Reykjavík svo unnt væri að bæta úr því neyðarástandi sem ríkti á þeim málum á þeim árum. Henni tókst að finna húsið að Eiríksgötu 37 þar sem hin ágæfa stofnun Fæðingarheimili Reykjavtkur tók til starfa árið 1960. Herdís var einlæg trúkona. Trú hennar á handleiðslu Guðs var henni kraftur og leiðarljós í starfi. Blessuð sé minning hennar. Steinunn Finnbogadóttir formaður Landsnefndar orlofs húsmæðra. Lofa I>u Drottin. sála min. oi* alt. scin i iíh't <*r. hans hrilaga nafn ; |ofa pu Drottin. sála inm. • >g gl,,v,n < igi n'Mnuni volgjon'ium haos. BIBLÍAN OG Sálmabókin Fást í bókaverslunum og hjá kristilegu felögunum. HIÐ ÍSL. BIBLÍUFÉLAG <É*>ubbraub£teitofu Hallgrimskirkja Reykjavlk simi 17805 opið3-5e.h. . . i .i — r Góðar fréttir fyrir gamla og nýja áskrifendur Tímans: ASKRIFEND AGETRAUN! Hjálmar - Stígvél - Stakkar - Buxur og rauð axlabönd - m.ö.o. allir nauð- synlegir öryggishlutir fyrir slökkvi- fylgja með bílnum. BODYBY fyrirtækið hefur löngum verið þekkt fyrir SINCE 1917 oryggi og fiölhæfni Þaö kemur glöggt fram í öllum þeirra gerðum af slökkvibílum. Slökkvibílarn- ir á meðfylgjandi myndum eru hannað- ir í samræmi við nýjustu og bestu aðferðir í slökkvistarfi. Slökkvibílar frá pcetcc eru í mestu dálæti hjá slökkviliðum um öll Banda- Umboðsverslun ríkin. Bæjarstjórnir samband við upplýsingar. og sveitarstjórnir hafið ÍSVIMv og fáið nánari isvoi; Laugavegi 40, símar 26707 - 26065

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.