Tíminn - 15.10.1982, Síða 16
Opið virka daga
9-19,
Laugardaga 10-16
HEDDf
Skemmuvegi 20 Kopavogi
Simar (91)7-75-51 & 7-80-30
Varahlutir
Mikiö úrval
Sendum um land allt
Ábyrgö á.öllu
Kaupum nýlega
bíla til niðurrifs
Gagnkvæmt
tryggingaféJag
labnel
HÖGGDEYFAR
QJvarahlutir
Armiila 24
Sími 36510
FOSTUDAGUR 15. OKTÓBER 1982
■ Halldór Rafnar formaður Blindrafélags Islands,
ráðstefnunnar.
Arvo Karivinen frá Finnlandi,
Gunnar Haugsveinn frá Noregi ásamt íslenskum starfsmönnum
Tímamynd Róbert.
BUNDIR I „SIALFSAF-
GREIÐSLUÞJÓDFÍIAGINU
■ I kvöld lýkur á Hótel Loftleiðum
ráðstefnu norrænu blindrasamtakanna,
sem staðið hefur yfir síðan á því á
miðvikudag. Efni ráðstefnunnar er
umhverfismál- og umferðarmál blindra
og hjálpartæki blindra. 65 manns sitja
ráðstefnuna, þar af 31 frá hinum
Norðurlöndunum. Ráðstefnur sem þess-
ar eru haldnar þriðja hvert ár og er þessi
hin fyrsta sem Blindrafélag íslands sér
um framkvæmd á. Á miðvikudaginn
voru flutt framsöguerindi um umhverfis-
mál blindra og umræðuhópar störfuðu.
í gær var fjallað um hjálpartæki á
almennum markaði, norræna samvinnu
um þróun, framleiðslu og dreifingu
hjálpartækja svo og um vandamál
sjónskertra í „sjálfsafgreiðsluþjóð-
félaginu". í dag fjallar ráðstefnan um
umferðarmál og henni verður síðan
slitið í kvöld. í gær gafst blaðamönnum
kostur á að ræða við nokkra fulltrúa á
ráðstefnunni.
Sjálfsafgreiösluþjóöfélagið“
Þingful 1 trúarnir bentu á að þjóðfélög
okkar þróast æ meir í það horf að fólk
afgreiði sig sjálft í verslunum og
þjónustustofnunum. Flestar verslanir og
veitingahús bjóða uppá sjálfsafgreiðslu
í almenningsfarartæki fer víða fram með
sjálfsölum, bankar efla sjálfvirkni í
þjónustu sinni og þannig mætti lcgni
telja. Þetta hefur í för með sér mikil
vandkvæði fyrir blinda og sjónskerta og
raunar fleiri hópa eins og börn og aldrað
fólk, sem þarf á persónulegum sam-
skiptum að halda til að geta fært sér í
nyt almenna þjónustu sem öllum á að
standa jafnt til boða. Blindir og
sjónskertir' verða að vekja athygli á
þessu vandamáli, því að eins og norski
fulltrúinn, Gunnar Haugsven orðaði
það: „Þjóðfélagið er ekki eingöngu
byggt upp af hraustum einstaklingum á
milli þrítugs og fertugs. „Sjálfsaf-
greiðsluþjóðfélagið" kann að hafa þau
áhrif að blindir og sjónskaðaðir einangr-
ist í vaxandi mæli öðrum samfélagshóp-
um.
Þetta gerir miklar kröfur til
endurhæfingar og þjálfunar blindra, en
samtök þeirra verða líka að berjast gegn
tillitslausri aukningu sjálfvirkni á kostn-
að mannlegra samskipta.
Að koma upplýsingum á
framfæri
Annað vandamál sem þingfulltrúarnir
komu inn á var að erfitt er að koma
nauðsynlegum upplýsingum á framfæri
við hina blindu, þótt þær liggi fyrir. Þeir
geta ekki nýtt sér dagblöðin, útgáfa á
blindraletri er takmörkuð. Hljóðvarp er
auðvitað sá miðill, sem blindir eiga
auðveldast með að notfæra sér, en það
dugar skammt. í kjörbúðum eru vörur
inn pakkaðar og neytendaupplýsingar
eru prentaðar á umbúðirnar, en af-
greiðslumaðurinn er að hverfa úr
myndinni. Og eftir nokkur ár má búast
við því að maðurinn við kassann hverfi
líka og greiðslan fari fram í gegnum
sjálfsala.
Alþjóöadagur hvíta stafsins
Dagurinn í dag er alþjóðlegur dagur
hvíta stafsins, mikilvægasta hjálpartækis
fatlaðra. Halldór Rafnar formaður
Blindrafélags Islands sagði að þegar
maður missir sjónina er það fyrir marga
eins og vera dæmdur til lífstíðarfangelsis
og ekkert hjálpartæki eigi eins mikinn
þátt í að frelsa hinn blinda úr einangrun
hans eins og einmitt hvíti stafurinn.
Gagnsemi hans er tvíþætt; hann er
ómissandi hjálpartækin fyrir hinn blinda
til að komast leiðar sinnar og hann er
jafnframt tákn blindra og sjóndapurra,
hann gefur öðrum vegfarendum til
kynna hvar blindur eða sjóndapur er á
ferð og er þannig til þæginda sjáandi
fólki sem ósjáandi. Allmargt blint fólk
á íslandi hefur lært notkun hvíta
stafsins, flest erlendis, en einnig á
námskeiðum hér.heima.
Erlendu fulltrúarnir lýstu mikilli
ánægju sinni með aðstæður hér og
skipulagningu Blindrafélags íslands á
ráðstefnunni. í dag fara þeir í kynnisferð
að dælustöð Hitaveitu Reykjavíkur -í
Mosfellssveit. Það eina sem skyggir á
dvölina hér“ sögðu þeir, „er að hafa ekki
meira tækifæri til að skoða sig um“. Þeir
halda heimleiðis í fyrra málið.
JGK
fréttir
Reglur verði
settar um
umferðarhávaða
■ Stjórn Samtaka
sveitarfélaga á höfuð-
borgarsvæðinu hefur sam-
þykkt ályktun þess efnis að
við skipulagningu gatna og
svæða skuli í framtíðinni
gæta þess að hávaða af
völdum umferðar fari
ekki yfir tiltekin mörk, en
tilskipanir um slíkt eru í
gildi á hinum Norður-
löndunum.
Nú hefur Skipulagsstofa
höfuðborgarsvæðisins sent
frá sér greinargerð um
umferðarhávaða og
hugsanlegar aðgerðir í
skipulagi. Þar kemur fram
að samfelldar athuganir á
umferðarhávaða hafa ekki
verið gerðar í Reykjavík
og standa ekki yfir. Hins
vegar er þar bent á nokkur
atriði, sem geta minnkað
hávaða af völdum umferð-
ar t.d. að safna aðalumferð
á tiltölulega fáar stofn-
brautir, nota slétt slitlag á
akbrautum og einnig að
auka bil milli húsa og gatna
eða byggja hljóðvarnar-
veggi meðfram umferðar-
æðum. í riti skipulags-
stofunnar segir að það sé
orðið aðkallandi hér í
landi að ákveða hámarks-
umferðarhávaða í íbúð-
um, skrifstofum og svo
framvegis og hafa til hlið-
sjónar í skipulagsstarfinu.
En rannsóknirnar vantar
eins og áður segir.
Lánskjaravísi-
talan fylgi þróun
kaupsins
■ Þegar verðbætur á laun
eru skertar eins og nú er
gert og stefnt að, er
samræming breytinga á
lánskjaravísitölu og al-
mennu kaupgjaldi, þýð-
ingarmikið réttlætismál
fyrir launafólk", segir m.a.
í samþykkt félagsfundar í
Félagi járniðnaðarmanna.
Skoraði fundurinn á Al-
þingi og ríkisstjórn að
verða við þeirri réttmætu
kröfu, að breyting láns-
kjaravísitölu miðast við
breytingu almenns kaup-
gjalds.
dropar
esendur
Lesendur
Lesendur
Þingflokkur krata
að springa?
■ Það er sjúlfsagt vægt til orða
tekið að segja að ólga sé nú innan
þingflokks Alþýðuflokksins í af-
stöðu hans til afgreiðslu bráða-
birgðalaga ríkisstjórnarinnar.
Þingnienn þar skiptast í tvo
ilokka. Annars vegar eru þeir sem
skilvrðislaust vilja fella bráða-
birgðalögin, og eru þar fremstir í
flokki formaöurinn, Kjartan
Jóhannsson, og þingflokks-
formaðurinn, Sighvatur Björg-
vinsson. Báðir tveir hafa í fjöl-
miðlum á undanförnum vikum
ncglt sig niður í andstiiðunni gegn
hráðabirgðalögunum og geta því
sig hvergi hreyft, þó þeir e.t.v.
fegnir vildu.
Hinn armurinn cr ekki eins
gallharður í afstöðunni til lag-
anna, og vilja sýna ábyrgðartil-
flnningu. Fremstir þar í flokki eru
Árni Gunnarsson, Jón Baldvin
Hannibalsson og Magnús H.
Magnússon. Leggja þeir til að
Alþýðuflokkurinn leggi fram sínar
eigin tillögur í efnahagsmálum
sem ræddar yrðu samhliða bráða-
birgðarlögunum, og e.t.v. gæti
náðst samstaða um atriði úr hvoru
tveggja, a.m.k. vcrði eitthvaö
reynt áður cn bráðabirgðarlögin
verði felld.
Endanlegt uppgjör þessara
tveggja fylkinga liefur enn ekki átt
sér stað, en verði forystan ofaná
getur allt gerst, og kannski verður
Eggert Haukdal óþarfur eftir allt
Hvar voru
Allaballarnir?
■ Mörgum herstöðvarandstæð-
ingnum úr Alþýðubandalaginu
hefur lítið þótt til flokksbræðra
sinna í þingflokkstétt
undanfarin misseri, og ýmsum
dottið í hug þingflokkurinn væri
búinn að gleyma, eða að minnsta
kosti gefa upp á bátinn, afstöðu
sinni til herstöðvarinnar. Til að
mynda sá enginn þingmaður
Alþýöubandalagsins ástæðu til að
mæta á landsráðsstefnu her-
stöðvarandstæðinga sem haldin
var um síðustu helgi.
Svavar Gestsson var minntur á
þetta í fyrirspurnartíma á Þjóð-
viljanum, en svör úr honum
birtust í blaðinu í gær. Ráð-
herrann svaraði því að stefnan
væri enn fyrir hendi, og að
sjálfsögðu væri stefnt að því að
herinn færi héðan úr landi. Bara
ekki alveg strax.
Hvers á fanginn að
gjalda?
■ Um miðja viku birtist lesenda-
bréf í DV um málefni fanga. Með
bréflnu er birt mynd úr einum
fangaklefanum á Litla-Hrauni þar
sem tveir menn ræðast við. Svört
dula hefur verið sett yflr andlit
annars mannsins, svo hann ekki
þekkitist á myndinni, en við-
mælandi hans er hins vegar
bcrskjaldaður. Það merkilega er
þó að það er fanginn sem enga
dulu fær fyrir augun. Sá yflr-
skyggði er gamall félagi úr
blaðamannastétt, sem sjálfsagt
hefur veriö að taka viðtal við
fangann. En hvers vegna þessi
feluleikur? Jú, nú gegnir hann
virðulcgu starfi forsetaritara, og
það má greinilega ekki neitt verða
til þess að varpa skugga á það
embætti.
Krummi ...
...er nú á því að betra sé fyrir
bókaútgefendur að lesa yfir hand-
rit áður en þeir taka ákvörðun um
að gefa bækur út.