Tíminn - 04.11.1982, Side 1

Tíminn - 04.11.1982, Side 1
Eru bændur ekki „landslýdur”? sjá bls. 8-9 TRAUST OG FJÖLBREYTT FRÉTTABLAO Fimmtudagur 4. nóvember1982 251. tölublað - 66. árgangur Háhyrningsveidum Guðrúnar GK lokið í ár: UM 4 MILUÓNIR FtóT FYRIR HáHYRNINGANA verða seldir í erlend sædýrasöfn ■ Um 50 til 60 þúsund dollarar, eða jafngildi 750 til 900 hundruð þúsund krónur fást fyrir hvem háhyming sem vélbáturinn Guðrún GK hefur fangað í haust fyrir Sædýrasafnið. Alls náðust fimm háhymingar, af þeim sex sem Jón Gunnarsson, forstöðumaður Sæ- dýrasafnsins fékk leyfi til að veiða og lætur nærri að söluverðmæti þeirra sé á bilinu 3.7-4.5 milljónir íslenska króna. Samkvæmt upplýsingum Jóns Gunn- arssonar, forstöðumanns Sædýrasafns- ins þá verða háhymingarnir fimm sendir úr landi um leið og þeir em tilbúnir til þess og sagðist Jón eiga von á að það yrði ekki síðar en um næstu mánaðamót. Breskur dýralæknir hef- ur dvalið hérlendis að undanförnu í því skyni að rannsaka heilsufar dýr- anna, en það mun vera með miklum ágætum. Formenn stjórnmálaflokkanna: SAMKOMIILAG UM FJÖLGUN MNGMANNA! ■ „Ég held að það þurfi ekki að vera mikil! ágreiningur á milli flokka um kjördæmamálið", sagði Geir Hall- grímsson, formaður Sjálfstæðisflokks- ins í viðtali við Tímann, þegar hann var spurður frétta af fundi flokksfor- mannanna í gær um kjördæmamálið, og sagðist Geir telja að unnt væri að afgreiða kjördæmamálið fyrir jól. „Stefnan er sú að jafna vægi á milli kjördæma annars vegar, og tryggja það að þingmannatala á Alþingi endur- spegli rétt atkvæðamagn flokkanna á meðal kjósenda," sagði Geir. Að- spurður um hvort hann teldi vera vilja hjá öllum flokkum fyrir því að þetta næði fram að ganga sagði Geir: „Ég hef ekki heyrt því mótmælt.“ Geir var sérstaklega spurður um fjölgun þingmanna, en eins og kunnugt er þá hefur meirihluti í skoðana- könnun DV lýst sig andsnúinn fjölgun þingmanna: „Eg tel að ekki verði unnt að komast hjá einhverri fjölgun þing- manna, ef víðtækt samkomulag á að nást af þeirri ástæðu að íbúar strjál- býlisins eiga erfitt með að sætta sig við fækkun fulltrúa sinna á þingi, þótt þeir viðurkenni að jafna beri vægi at- kvæða. Af því leiðir að fjölga þarf þingmönnum úr þéttbýli." „Við fórum yfir málin og ýmsa möguleika og hittumst aftur á þriðjudaginn. Ég tel vera ágæta sam- stöðu í þessum hópi,“ sagði Svavar Gestsson, formaður Alþýðubanda- lagsins aðspurður um fund formann- anna í gær. Sagðist Svavar leggja áherslu á að niðurstaða fengist í þessum viðræðum formannanna sem fyrst, þannig að hægt yrði að komast fram úr þessu kjördæmamáli á yfir- standandi þingi. Aðspurður um fjölgun þingmanna, sagðist Svavar ekki vilja nefna neina ákveðna tölu, en sagði að talað væri um allt á bilinu einn og upp í tíu nýja þingmenn. Áskrifendagetraun Tfmans: Dregið verð- ur í kvöld! ■ í kvöld verður dregið um fyrsta vinninginn af fjórum í glæsilegri áskrif- endagetraun Tímans. Er það húsbún- aðarvinningur að upphxð 25 þús. krón- ur frá Nýform. Þeir sem ætla að vera með í þessum fyrsta drætti verða þvi að gerast áskrifendur í dag, og senda útfylltan getraunaseðil til 'I’ímans, áður en dregið verður i kvöld. Þeir sem ekki hafa tök á að senda útfyUtan seðU í tíma geta hringt í Sigurrósu í síma 86300, gerst áskrifendur, og látið hana fyUa út getraunaseðUinn í leið- Alls fóru 25 dagar að þessu sinni í háhymingsveiðarnar, en ekki sagði Jón Gunnarsson fyrirhugað að fara aftur út á þessu ári. Sjötti háhymingur- inn yrði því að bíða betri tíma. Þess má geta að Jón Gunnarsson fær reglulega fréttir af gengi háhyrning- anna erlendis, en háhyrningar frá Sædýrasafninu eru nú í sædýrasöfnum víða um heim. Fyrsti háhyrningurinn sem Guðrún GK náði við upphaf fM 4 j háhymingsveiðanna 1976, hefur gert það einna best, en Guðrún eins og háhyrningurinn nefnist er í sædýrasafni í Hollandi. í þessari fyrstu veiðiferð veiddist reyndar annar háhyrningur en sá er nú í San Diego í Kaliforíu. Enn aðrir háhyrningar eru í Hong Kong, Japan, Bretlandi og Jón Gunnarsson sagðist vita til þess að nýlega hefði háhyrningur frá honum verið sendur frá Sviss til Argentínu. - ESE V. - : l ' *''■ ■ . ' & ''; tí ■ Þeir eru þungt hugsi þingmenn Alþýðuflokksins þessa dagana og Sighvatur Björgvinsson og Eiður Guðnason eru þar engin undantekning. Enda þurfa þeir um margt að hugsa s.s. bráðabirgðalög og vaxtahxkkanir og viðræður flokkanna og hver veit nema að vinnustaðafundir séu á næsta leiti. Tímamynd Róbert _ ■* . , Kartöflu- skemmdir — bls. 12 Land- mælingar — bls. 10-11 og róf u — bls.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.