Tíminn - 04.11.1982, Qupperneq 1
Eru bændur ekki „landslýdur”? sjá bls. 8-9
TRAUST OG
FJÖLBREYTT
FRÉTTABLAO
Fimmtudagur 4. nóvember1982
251. tölublað - 66. árgangur
Háhyrningsveidum Guðrúnar GK lokið í ár:
UM 4 MILUÓNIR FtóT
FYRIR HáHYRNINGANA
verða seldir í erlend sædýrasöfn
■ Um 50 til 60 þúsund dollarar, eða
jafngildi 750 til 900 hundruð þúsund
krónur fást fyrir hvem háhyming sem
vélbáturinn Guðrún GK hefur fangað
í haust fyrir Sædýrasafnið. Alls náðust
fimm háhymingar, af þeim sex sem
Jón Gunnarsson, forstöðumaður Sæ-
dýrasafnsins fékk leyfi til að veiða og
lætur nærri að söluverðmæti þeirra sé
á bilinu 3.7-4.5 milljónir íslenska
króna.
Samkvæmt upplýsingum Jóns Gunn-
arssonar, forstöðumanns Sædýrasafns-
ins þá verða háhymingarnir fimm
sendir úr landi um leið og þeir em
tilbúnir til þess og sagðist Jón eiga von
á að það yrði ekki síðar en um næstu
mánaðamót. Breskur dýralæknir hef-
ur dvalið hérlendis að undanförnu í
því skyni að rannsaka heilsufar dýr-
anna, en það mun vera með miklum
ágætum.
Formenn stjórnmálaflokkanna:
SAMKOMIILAG
UM FJÖLGUN
MNGMANNA!
■ „Ég held að það þurfi ekki að vera
mikil! ágreiningur á milli flokka um
kjördæmamálið", sagði Geir Hall-
grímsson, formaður Sjálfstæðisflokks-
ins í viðtali við Tímann, þegar hann
var spurður frétta af fundi flokksfor-
mannanna í gær um kjördæmamálið,
og sagðist Geir telja að unnt væri að
afgreiða kjördæmamálið fyrir jól.
„Stefnan er sú að jafna vægi á milli
kjördæma annars vegar, og tryggja það
að þingmannatala á Alþingi endur-
spegli rétt atkvæðamagn flokkanna á
meðal kjósenda," sagði Geir. Að-
spurður um hvort hann teldi vera vilja
hjá öllum flokkum fyrir því að þetta
næði fram að ganga sagði Geir: „Ég
hef ekki heyrt því mótmælt.“
Geir var sérstaklega spurður um
fjölgun þingmanna, en eins og kunnugt
er þá hefur meirihluti í skoðana-
könnun DV lýst sig andsnúinn fjölgun
þingmanna: „Eg tel að ekki verði unnt
að komast hjá einhverri fjölgun þing-
manna, ef víðtækt samkomulag á að
nást af þeirri ástæðu að íbúar strjál-
býlisins eiga erfitt með að sætta sig við
fækkun fulltrúa sinna á þingi, þótt þeir
viðurkenni að jafna beri vægi at-
kvæða. Af því leiðir að fjölga þarf
þingmönnum úr þéttbýli."
„Við fórum yfir málin og ýmsa
möguleika og hittumst aftur á
þriðjudaginn. Ég tel vera ágæta sam-
stöðu í þessum hópi,“ sagði Svavar
Gestsson, formaður Alþýðubanda-
lagsins aðspurður um fund formann-
anna í gær. Sagðist Svavar leggja
áherslu á að niðurstaða fengist í
þessum viðræðum formannanna sem
fyrst, þannig að hægt yrði að komast
fram úr þessu kjördæmamáli á yfir-
standandi þingi.
Aðspurður um fjölgun þingmanna,
sagðist Svavar ekki vilja nefna neina
ákveðna tölu, en sagði að talað væri
um allt á bilinu einn og upp í tíu nýja
þingmenn.
Áskrifendagetraun Tfmans:
Dregið verð-
ur í kvöld!
■ í kvöld verður dregið um fyrsta
vinninginn af fjórum í glæsilegri áskrif-
endagetraun Tímans. Er það húsbún-
aðarvinningur að upphxð 25 þús. krón-
ur frá Nýform. Þeir sem ætla að vera
með í þessum fyrsta drætti verða þvi
að gerast áskrifendur í dag, og senda
útfylltan getraunaseðil til 'I’ímans,
áður en dregið verður i kvöld. Þeir
sem ekki hafa tök á að senda útfyUtan
seðU í tíma geta hringt í Sigurrósu í
síma 86300, gerst áskrifendur, og látið
hana fyUa út getraunaseðUinn í leið-
Alls fóru 25 dagar að þessu sinni í
háhymingsveiðarnar, en ekki sagði
Jón Gunnarsson fyrirhugað að fara
aftur út á þessu ári. Sjötti háhymingur-
inn yrði því að bíða betri tíma.
Þess má geta að Jón Gunnarsson fær
reglulega fréttir af gengi háhyrning-
anna erlendis, en háhyrningar frá
Sædýrasafninu eru nú í sædýrasöfnum
víða um heim. Fyrsti háhyrningurinn
sem Guðrún GK náði við upphaf
fM 4 j
háhymingsveiðanna 1976, hefur gert
það einna best, en Guðrún eins og
háhyrningurinn nefnist er í sædýrasafni
í Hollandi. í þessari fyrstu veiðiferð
veiddist reyndar annar háhyrningur en
sá er nú í San Diego í Kaliforíu. Enn
aðrir háhyrningar eru í Hong Kong,
Japan, Bretlandi og Jón Gunnarsson
sagðist vita til þess að nýlega hefði
háhyrningur frá honum verið sendur
frá Sviss til Argentínu. - ESE
V. - :
l
'
*''■
■ . '
& '';
tí
■ Þeir eru þungt hugsi þingmenn Alþýðuflokksins þessa dagana og
Sighvatur Björgvinsson og Eiður Guðnason eru þar engin undantekning.
Enda þurfa þeir um margt að hugsa s.s. bráðabirgðalög og vaxtahxkkanir
og viðræður flokkanna og hver veit nema að vinnustaðafundir séu á næsta
leiti. Tímamynd Róbert
_ ■*
.
,
Kartöflu-
skemmdir
— bls. 12
Land-
mælingar
— bls. 10-11
og róf u
— bls.