Tíminn - 04.11.1982, Page 5

Tíminn - 04.11.1982, Page 5
FIMMTUDAGUR 4. NÓVEMBER 1982 ni'.'miw'* fréttir ■ Breiðholtshverfi hefur verulega tengst fréttaflutningi fjölmiðia að undan- förnu, og er hér einkum átt við fréttir af mjög svo neikvæðum atburðum, eins og líkamsárásum, innbrotum og slysum. Tímamenn heimsóttu Breiðholtshverfin þrjú í eftirmiðdaginn í gær og spjölluðu um þessa atburði og aðra við nokkra aðila, bæði þá sem á einhvem hátt hafa tengst þessum atburðum og almenna íbúa Breiðholtsins. Fyrst sóttu Tímamenn heim blóma- búðina Breiðholtsblóm við Arnarbakka og tóku afgreiðslumanninn Pál Michelsen tali, en á mánudagskvöldið síðasta varð einmitt kona fyrir fólsku- legri árás þriggja unglinga þegar hún kom út úr blómaversluninni. „Unglingar eru prýðis fólk“ -Páll kannt þú einhverja skýringu á ofbeldi Jjví sem maður heyrir af hér í Breiðholtinu þessa síðustu daga? „Nei, það kann ég ekki. Fyrst var það lögreglumaðurinn sem varð fyrir árás í Suðurhólum, svo var það konan hér fyrir utan, og ég get sagt þér eina sögu enn, sem ekki hefur verið kærð. I’að var kona um sjötugt, sem býr í sömu blokk og ég við Krummahóla sem var á gangi í Krummahólunum, þegar réðust að henni þrír ungir menn og vöfðu utan um hana nælonkaðli. Það er fyrir ofan minn skilning að svona lagað skuli geta gerst. ■ Kristþór, Skafti, Jón og Friðjón, allir í 9. bekk í Fellaskóla sögðu „Amfinnur og Guðjón em sko pottþéttir gæjar, - það máttu skrifa." Tímamyndir - G.E, Hvad er að gerast í Breidholtshverfunum? Fréttum fjölgað um innbrot, líkamsárásir og slys þar: „MORDIÐ BARA EFTIR MIKIL ER SKALMðLDIN — ,,Hér er allt á uppleið miðað við það sem áður var” Annars hef ég búið í þrjú ár í Breiðholtinu og alltaf átt einstaklega góð samskipti við unglingana, þannig að ég hef ekkert upp á unglingana að klaga. Ég get t.d. sagt þér að ég fer á degi hverjum í Breiðholtslaug þegar ég er búinn að vinna, og þar er samankominn mikill hópur unglinga sem eru prúð og elskuleg. Auðvitað eru þau með háreysti og læti, en alltaf prúð og vingjarnleg." „Bara morðid eftir“ -Frá blómaversluninni höldum við áleiðis í verslunina Kjöt og fiskur og hittum eigandann Einar Bergmann að máli, en hann varð enn einu sinni fyrir þeirri óskemmtilegu reynslu í fyrrinótt að brotist var inn í verslun hans, miklu stolið og mikið eyðilagt. Pegar hann er að hefja samræðurnar við okkur hringir Rannsóknarlögregla ríkisins og segir honum að búið sé að ná þjófunum. Einar er að því spurður hvernig aðkoman hafi verið í gærmorgun: „Þetta er nú versta aðkoma sem ég hef upplifað á 41 ári sem ég hef verið að dunda mér í kaupmennsku, og hefur þó oft og iðulega verið brotist inn hjá mér. Mér liggur við að segja að það sé bara morðið eftir, svo mikil skálmöld er orðin ríkjandi hér í Breiðholti. Það er ráðist á fólk, bílar sprengdir upp, fólki mis- þyrmt og brotist inn í verslanir og eyðilagt fyrir stórfé, auk þess sem vörum er stolið. Það sem mér finnst einna svívirðilegast í þessu sambandi er að lögreglan er með stöð uppi á Árbæjar- hálsi og niðri í Miðbæ, en eftirlit er hér sáralítið. Ég hef boðið lögreglunni fría aðstöðu hérna, en það hefur ekki verið þegið.“ -Hve mikið heldur þú að tjón þitt sé? „Það er ómögulegt að segja á þessu stigi. Mér er sagt að megnið af þýfinu sé fundið. Þjófamir stálu t.d. tóbaki fyrir um 18 þúsund krónur. Þá skemmdu þeir mikið hér, eins og þrjár innihurðir og aðrar þrjár útihurðir. Það er eins og skemmdarfýsnin hafi ráðið miklu hjá þessum mönnum því þeir spörkuðu upp I dyrum innanhúss og eyðilögðu algjör- í ■ Hún Ingibjörg Ólafsdóttir óttast ekki um dætur sínar, enda eru þær í kristiieg- uin félagsskap. ■ Einar Bergmann, eigandi Kjöts og fisks horfir á hurð sem þjófamir eyði- lögðu, en þessi hurð var ein af sex sem þeir eyðilögðu. lega, en það hefði nægt þeim að taka í húnirin því dyrnar voru ólæstar." „Ástandið batnað mjög miðað við það sem var fyrir þremur árum“ í verslunarsamstæðunni við Drafnar- ■ „Ég kann enga skýringu á þessari ofbeldisöldu,“ sagði Páll Michelsen afgreiðslumaður í Breiðholtsblöm. „Um helgar er talsvert af 12 til 14 ára unglingum sem slæðast hér inn, sumir kannski aðeins í því og hafa þá verið með hávaða og fíflalæti. Við vísum þessum krökkum strax á dyr, en verðum ekki vör við slagsmál éða árásir af neinu tagi, reyndar hvorki ofbeldi né skemmdarfýsn. Ástandið er tvímælalaust mun betra í þessum efnum hér núna en það var fyrir svona þremur árum, en þá var það allt að því óþolandi. Annars eru það ekki unglingarnir sem eru verstir. Þetta eru yfirleitt prýðiskrakkar og ef maður kemur almennilega fram við þá, þá koma þeir almennilega fram við okkur. Við höfum t.d. aðeins einu sinni þurft að kalla á lögreglu hingað á þessu ári, og þá var það út af fullorðnum manni, en ekki unglingi. Það er alveg öruggt mál að ungling- arnir sem eru hér í Fellaskóla hafa breyst mikið til batnaðar, eftir að nýi skóla- ■ Eria Sigurðardóttir, Birgir Ámason og Kolbrún Sigurlaugsdóttir í Askborgaran- um við Drafnarfell vom öll á því að allt væri á uppleið í Breiðholtinu, og sögðu þau að ekki væri hægt að líkja ástandinu t dag við það sem var fyrir þremur áram. fell lítum við inn hjá Askborgaranum og tökum þau Birgi Árnason matreiðslu- mann, Kolbrúnu Sigurlaugsdóttur, sem rekur Askborgarann og Erlu Sigurðar- dóttur, starfsstúlku tali og spyrjum fyrst hvort þau verði mikið vör við ólæti og óspektir unglinga: stjórinn Arnfinnur Jónsson tók við í fyrravetur. Hann er mjög vel látinn af krökkunum og virtur, og þau virðast gera eins og hann leggur fyrir þau. Það er því alveg óhætt að fullyrða að hérna er allt á uppleið miðað við það sem áður var, enda virðist það vera segin saga að þegar hverfi er orðið nokkuð mótað og nýbyggingar að mestu búnar, þá kemst meiri ró og festa á.“ „Brotist inn hjá mér í nótt“ -í sömu verslunarsamstæðu, aðeins hinu megin við sundið er fiskbúð, þar sem Birgir Guðmundsson er fiskkaup- maður, en hann hefur a ðeins verið með verslunina í einn mánuð. Við spyrjum hann hvernig reksturinn gangi: „Já, hvað á ég að segja. Það var nú brotist inn hjá mér í fyrsta sinn í nótt, þannig að ég er ekkert allt of kátur, en mér skilst af fyrirrennururum x mínum að svona lagað gerist oft. Það var engu stolið hjá mér, enda engu að stela nema kannski soðningu, því hér geymi ég enga peninga." Aðspurður um það hvort Birgi fyndist mikil læti í yngri kynslóðinni svaraði hann: „Já, lætin eru óneitanlega mikil. Krakkarnir eru hlaupandi hér inn og út öskrandi og æpandi, þannig að það er heilmikil truflun af þeim, en þau skemma þó ekkert greyin. Annars er ég ákveðinn í því að gista hérna um áramótin, því mér hefur verið sagt að þá sé * hver einasta rúða úr allri verslunarsamstæðunni hreinsuð úr.“ „Er ekki hrædd um dætur mínar“ -Fyrir utan hittum við Ingibjörgu Ólafsdóttur og spyrjum hana hvort hún eigi unglinga í Breiðholtinu,: „Já, ég á reyndar tvær dætur, 21 árs og 17 ára, en ég hef engar áhyggjur af þeim og er ekki hrædd um að þær séu í slæmum félagsskap, því þær eru báðar í kristi- legum félagsskap, þar sem þær verja miklu af sínum frítíma." Aðspurð um það hvort henni fyndist ástandið hafa versnað, hvað varðar óspektir og ofbeldi í Breiðholti sagði Ingibjörg: „Ástandið hefur alveg tví- mælalaust versnað og það leggst mjög illa í mig. Það er hræðilegt að heyra að fólk sé ekki lengur öruggt um líf sitt og limi á götu úti.“ „Pottþéttir gæjar Arnfinn- ur og Guðjón“ -Fjórir töffarar úr Fellaskóla hanga fyrir utan sjoppuna í samstæðunni en þeir eru Kristþór Ásgeirsson, Skafti Skaftason, Jón Ingólfsson og Friðjón Halldórsson, allir í 9. bekk. Strákarnir eru spurðir hvort það sé meira um óspektir unglinga í Breiðholti en annars staðar: „Ja, það var það kannski einu sinni, en varla lengur. Það ber auðvitað mest á slíku hérna, því þetta er stórt hverfi, þannig að hérna eru flestir unglingar bæjarins." -Þekkja strákarnir einhverja afbrota- unglinga: „Já, við þekkjum einn sem er alltaf að lenda í alls konar klandri eins og innbrotum og svoleiðis. En það er misskilningur að við lítum upp til svoleiðis stráka, manni finnst frekar að þeir séu algjörir aumingjar." -Hvernig er skólinn hjá ykkur? „Hann er fínn: Miklu betri eftir að nýi skólastjórinn Arnfinnur tók við í fyrra. Hann leyfir meira frjálsræði, við fáum að vera inni í frímínútum, spila.tefla og þess háttar, þannig að maður kann miklu betur við skólann. Þeir Amfinnur skólastjóri og Guðjón yfirkennari eru sko pottþéttir gæjar, það máttu sko skrifa. Þú mátt líka skrifa að það er fínt að hafa Fellahelli, þá er a.m.k. eitthvað fyrir mann að gera.“ -Hver var svo að segja að unglingar væru neikvæðar verur? -AB

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.