Tíminn - 04.11.1982, Side 12
12_____________
heim ilistrm inn
FIMMTUDAGUR 4. NÓVEMBER 1982
Mega neytendur búast vid vondum kartöflum í vetur?
„Frostskemmdir og
sveppasjúkdómar í
kartöflum vada uppi”
— segir kartöflubóndi af Skeiðum
■ Þann 26. okt. sl. birtist hér á síðunni viðtal við Agnar Guðnason
hjá IJpplýsingaþjónustu landbúnaðarins, þar sem hann sagði frá
Samstarfsnefnd um flokkun kartaflna. Hann viðurkenndi í viðtalinu,
að mikið væri um gallaðar kartöflur á markaðnum nú í haust, en
m.a. taldi hann ástæðuna fyrir skemmdunum vera mikla burstun á
nýuppteknum kartöflum hjá bændum, og síðan hjá Grænmetinu.
Hann var spurður hvort nauðsynlegt væri að bursta kartöflurnar og
svaraði þá:
„Nei, alls ekki, ég veit ekki nema það ætti frekar að vara við þessari burstun, því
að stundum burstast jafnvel sandur inn í kartöfluna, og ekki er það til bóta, fyrir
utan hýðisskemmdirnar."
„Burstakerflð er hættulegt“
segir Jón Eiríksson,
bóndi í Vorsabæ
Jón Eiríksson, bóndi Vorsabæ á
Skeiðum, sem hefur árum saman stund-
að kartöflurækt á búi sínu, kom að máli
við Heimilistímann vegna kartöfluskrif-
anna, sem vitnað cr í hér að framan.
Hann sagðist vera sammála Agnari
Guðnasyni um galla burstakerfisins. Jón
sagðist hafa þrjóskast við í gegnum árin
að fá sér slíkt burstakerfi við upptöku
kartaflna á sínu búi, - en annars hefur
okkur kartöflubændum verið uppálagt
af yfirmatsmanni að bursta kartöflurnar,
og sagt hefur verið, að neytendur
krefjist þess að fá hreinar kartöflur.
- Ég hef verið að hugsa um það, sagði
Jón, hvort ekki væri betra fyrir neytend-
ur að fá góðar, óskaddaðar kartöflur,
jafnvel þó þær væru aðeins moldugar,
en að heimta þær póleraðar - og hýðið
þá oft meira og minna skaddað.
Tillaga Jóns um
sumarsölu á kartöflum
Jón Eiríksson segist hafa hugsað
mikið um það, hvort ekki væri hægt að
koma á nýrri aðferð við sumarsölu á
kartöflum. Hann hefur sínar hugmyndir
um hvernig handhægt væri að koma
nýjum kartöflum -sem minnst sködduð-
um - til neytenda. Um sumarsöluna
segir Jón:
- Mig langar til að gera tilraun með
sumarsölu á kartöflum á þann veg, að
þegar leyfilegt er að fara að byrja
upptöku, þá séu kartöflurnar teknar
beint úr upptökuvélinni og settar í
kassa, eða annars konar neytendaumb-
úðir og seldar óburstaðar og óflokkaðar.
Vélarnar taka ekki kartöflur undir 30
mm stærð, svo smælkið dettur allt niður
og þarf því ekki að tína það úr. Þótt
einhver smámold loði við kartöflurnar,
þá er það ekki nema þeim til hlífðar gegn
hnjaski. Ég held að fólk vildi gjarnan fá
þannig nýuppteknar kartöflur, sem ekki
er búið að hnoðast mikið með. Auðvitað
■ Jón Eiríksson, Vorsabæ á Skeiðum. Hann scgist vera með 3-K búskap, þ.e.a.s.
kartöflur, kanínur og kýr. - (Tímamynd: Róbert).
ætti að sæta lagi og taka upp í þurru
veðri, svo kartöflumar verði ekki eins
moldugar.
Vondar kartöflur í vetur?
- Hræddur er ég um, að neytendur
megi eiga von á vondum kartöflum í
vetur, sagði Jón. Það er vegna þess hve
frostskemmdir hafa orðið miklar víða
hjá kartöflubændum. Fyrstu frostin
komu í lok ágústmánaðar, og svo í
september. Kartöflur, sem liggja ofar-
lega hafa þá skemmst, og í sandgörðum
leitar frostið niður í garðana og þar
skemmist þá mikið. Skemmdirnar koma
kannski ekki fram alveg strax, en svo
verða skemmdu kartöflurnar eins og
grautur og skemma út frá sér. Þar sem
þannig er ástatt eiga sjúkdómar greiðan
aðgang, t.d. má segja að sveppasjúk-
dómar vaði uppi.
- Það er mikil vinna að flokka og
skoða kartöflumar og fylgjast með
ástandi þeirra. Nú áður en ég fór að
heiman varð ég að henda um 10% af
mínum kartöflum sem rusli.
Ég byrjaði með Bintje-kartöflur í
fyrra, og uppskeran varð ágæt, um 20
tonn af hektara - eða 400 pokar, en
Bintje-kartöflur eru viðkvæmar fyrir
frostskemmdum og sveppasjúkdómum,
og það verður mikil rýrnun á þeim, og
ástandið heldur áfram að vesna.
í sumar var komið upp sóttvarnar-
kerfí, sem notað er við upptöku. Þetta
kerfi er í prófun hjá 7 bændum í
Þykkvabæ og einum í Auðsholti í
Biskupstungum, og bíðum við kartöflu-
bændur spenntir eftir því hver árangur
verður af því, sagði Jón Eiríksson að
lokum.
Þad kostar f rá
3.700 kr. -
6.000 kr. að búa
bifreið nýjum
vetrardekkjum
■ Nú er kominn sá tími að bflaeigendur
fara að hugsa til að skipta um hjólbarða
fyrír veturínn þó ekki hafl enn snjóað
hér sunnanlands er samt oft stórhættuleg
ísing á malbikuðum vegum, og best að
fara að öllu með gát.
Gatnamálastjóri borgarinnar hefur
undanfarin ár verið á móti nagla
dekkjum, hefur manni heyrst, vegna
skemmda sem þau valda á götum
borgarinnar, en - eins og einn viðmæl-
andi Heimilistímans sagði, er hann var
spurður sem sérfræðingur um vetrarhjól-
barða, - þá sagðist hann seint búast við
að nagladekkin yrðu bönnuð hér á landi.
Það væri það mikið öryggi að þeim.
Mörgum vex í augum kostnaðurinn
við það að útbúa bíl sinn vetrarhjólbörð-
um, svo það varð til þess, að við
reyndum að fá sem gleggstar upplýsingar
um hver kostnaðurinn raunverulega
væri.
Við komumst að þeirri niðurstöðu að
ódýrast væri hægt að fá ný vetrardekk
undir meðalstóran bíl fyrir um 3.700 kr.
og er þá átt við sóluð dekk, en nýir
hjólbarðar af sömu stærð - ásettir -
kostuðu um 6.000 krónur.
Hjólbarðaþjónustan
í Fellsmúla
Við hringdum á nokkra staði til að fá
nánari upplýsingar, og töluðum fyrst við
Hrein Vagnsson, í Hjólbarðaþjónust-
unni í Fellsmúla.
Hreinn var önnum kafinn við að
skipta um dekk og undirbúa bílana fyrir
veturinn.
Blaðamaður Heimilistímans spurði
Hrein um verð á vetrarhjólbörðum hjá
honum og hvað kostaði að skipta um á
meðalstórum bíl. Hann sagði:
- Við hér í Hjólbarðaþjónustunni
höfum bæði íslensk sóluð dekk og
amerísk sóluð vetrardekk og einnig nýja
hjólbarða af mörgum gerðum.
■ Hreinn Vagnsson við vinnu sína.
Þarna er hann að taka sumardekk af
felgunni, en negld snjódekkin bíða
þess að vera sett undir fyrir veturinn.
- (Tímamynd: Róbert)
Á meðalstóran bíl er ódýrast að kaupa
sóluð íslensk vetrardekk (ekki radial-
dekk). Þau kosta 650 krónur stykkið (án
nagla), en flestir vilja fá sín vetrardekk
negld og kostar það aukalega um
120-150 krónur (80-100 naglar í dekk).
Radial-dekk, sóluð kosta. 785 kr.
Amerísk sóluð vetrardekk (án nagla)
kosta: radial-dekk 962 kr. en hin
venjulegu 805 krónur. Nýir Firestone-
hjólbarðar kosta 1339 kr. og svo eru
fleiri tegundir með mismunandi verði
upp í 1685 kr. hvert dekk.
- Er mikill gæðamunur á sóluðum og
nýjum hjólbörðum, spurði blaðamaður.
- Auðvitað eru dý dekk langbest og
það má segja að það sé mikill gæðamun-
ur, sérstaklega fyrir framdrifsbíla, sagði
Hreinn.
Hreinn útskýrði einnig fyrir okkur
vinnukostnaðinn við að skipta um og
setja vetrardekk undir.
- Samkvæmt verðskrá frá verðlags-
stjóra kostar 47 kr. að skipta um hvert
dekk. Ef bifreiðin er skilin eftir á
staðnum og við skiptum um á öllum
dekkjum, og jafnvægisprófum bílinn að
framan, þá kosta skiptin 424 krónur. Ef
komið er með dekkin tilbúin á felgum
kostar vinnan 104 krónur.
Hjólbarðar, hjólbarðasala
Sambandsins að Höfðabakka
Hjá fyrirtækinu Hjólbarðar fengum
við þau svör, að þar væru seldir
hjólbarðar, bæði nýir og sólaðir, en þeir
væru ekki með skiptingu á hjólbörðum
á þessum stað.
Hjólbarðar selja aðallega ATLAS-
dekk, og undir meðalstóran bíl (t.d.
Mazda) kostar hvert dekk 1371 (án
nagla), en með nöglum um 1500 krónur
stykkið. Þetta er ekki radial-dekk. Þau
kosta , undir stærri bíla, eins og t.d.
Malibu eða Nova - vetrardekk með
nöglum um 2300 krónur dekkið.
Við höfum líka íslensk sóluð dekk frá
Sólningu og á sama verði og hjá öðrum
hjólbarðaverkstæðum, sagði viðmælandi
Heimilistímans hjá Hjólbörðum við
Höfðabakka.
Sólning hf á Smiðjuvegi
Gunnsteinn Skúlason hjá fyrirtækinu
Sólningu á Smiðjuvegi varð fyrir svörum
og hann sagði:
- Við erum hér með ný dekk og sóluð
dekk, bæði venjulega nylonhjólbarða og
radialdekk, sem eru mest notuð núna.
Sóluð dekk, (nylon-dekk) eru ódýr-
ust, 650 krónur án nagla, en með nöglum
780 krónur, en radial dekk af samsvar-
andi stærð er á 785 krónur án nagla en
með nöglum 915 kr.
Ný dekk af sömu stærð eru ódýrust á
1250 krónur án nagla, en með nöglum
1380. En tegundir eru margar og verðið
mismunandi upp í 1480 krónur hver
hjólbarði.
Skipt um dekk á 15 mínútum
Það er algengt að menn panti tíma,
og þá komast þeir strax að, og þá þarf
þetta ekki að taka nema eins og
stundarfjórðung og fólk bíður bara á
meðan. Vinnan kostar 424 krónur. Við
tökum undan bílnum og skiptum um
(affelgum, setjum dekkin aftur undir
bílinn og jafnvægisstillum að framan.
Menn geta líka tekið sjálfir undan
bílnum hér fyrir utan og sparað sér að
kaupa þá vinnu.
Ef komið er með vetrarhjólbarðana
tilbúna á felgum, og aðeins skipt um hér
á verkstæðinu, þá er það ódýrara. Þá
kostar það 104 kr. og er það samkvæmt
ákvæðum verðlagsstjóra, sagði Gunn-
steinn.