Fréttablaðið - 23.01.2009, Side 6

Fréttablaðið - 23.01.2009, Side 6
6 23. janúar 2009 FÖSTUDAGUR Mótmælin halda áfram Xerodent 28,6 mg/0,25 mg munnsogstöflur. Notkunarsvið og skömmtun: Hver tafla inniheldur eplasýru 28,6 mg og natríumflúoríð samsvarandi 0,25 mg af flúor. Xerodent er lyf til varnar tannskemmdum notað við meðhöndlun einkenna vegna munnþurrks og fyrirbyggjandi við tannskemmdum hjá sjúklingum með munnþurrk. Skammtastærðir fyrir fullorðna: 1 tafla eftir þörfum, venjulega 6 sinnum á dag. Við mikinn munnþurrk má auka skammtinn í 12 töflur á dag í takmarkaðan tíma. Töfluna á að láta bráðna hægt í munni. Dreifa skal skammtinum jafnt yfir daginn. Varúðarreglur: Þeir sem hafa ofnæmi fyrir virku efnunum eða einhverju hjálparefnanna ættu ekki að nota Xerodent. Við meðhöndlun með Xerodent skal forðast að nota önnur lyf sem innihalda flúor. Xerodent má ekki nota á landsvæðum þar sem flúorinnihald drykkjarvatns er hátt. Vegna þess að Xerodent inniheldur xylitól getur það haft hægðalosandi verkun. Meðganga/brjóstagjöf: Engin þekkt áhætta við notkun á meðgöngu. Natríumflúoríð skilst ekki út í brjóstamjólk. Lesið vandlega leiðbeiningar sem fylgja lyfinu. Geymið þar sem börn hvorki ná til né sjá. Markaðsleyfishafi: Actavis Group hf. 29. nóvember 2007. Þreföld virkni Xerodents Eplasýra – örvar munnvatnsframleiðslu Flúor – ver tennurnar gegn skemmdum Xylitol – hemur bakteríuvöxt í munni Xerodent Við munnþurrki „Sú efnahagsáætlun sem við erum að vinna eftir og ég rakti ítarlega í minni upphafsræðu miðar að því að endurreisa efnahagslífið og það mun takast. Ég er ekki í nokkrum einasta vafa um það,“ sagði Geir H. Haarde forsætisráðherra í lokaræðu sinni í umræðum um efnahags- og atvinnumál á Alþingi í gær. Í upphafsræðunni sagði hann það mikil öfugmæli sem haldið hefði verið fram að ríkisstjórnin hefði ekkert aðhafst til að bregðast við erfiðleikum í efnahagslífinu. Rakti hann í framhaldinu aðgerðir í 27 liðum til að koma til móts við heimilin og fyrirtækin. Voru þær kynntar í byrjun desember. Geir fjallaði líka um efnahags- áætlunina sem ríkisstjórnin mark- aði í samstarfi við Alþjóðagjaldeyr- issjóðinn. Snýr hún að gengis- og peningamálastefnu, ríkisfjármál- um og enduruppbyggingu banka- kerfisins og miði að því að end- urvekja traust og trúverðugleika hagkerfisins og búa í haginn fyrir bætta fjárhagsstöðu íslenskra heimila og fyrirtækja. Steingrímur J. Sigfússon, for- maður VG, sagðist ekki vilja segja að ríkisstjórnin hefði ekki gert neitt en hún hefði misst tökin á ástand- inu. Þjóðin væri ósátt við stjórnina og treysti henni ekki. Eftir að hafa lýst þungum áhyggjum af risavöxn- um skuldum þjóðarbúsins og bágum atvinnuhorfum sagðist Steingrímur gefa lítið fyrir þá skoðun forsætis- ráðherra að verk stjórnvalda í átt að endurreisn gengju vel; enginn, nema kannski örfáir þingmenn, hefðu það á tilfinningunni. Össur Skarphéðinsson iðnaðar- ráðherra sagði Íslendinga geta unnið sig út úr ástandinu en til þess þyrfti bjartsýni og von. Útflutn- ingsatvinnuvegirnir væru sterkir, sóknarfæri í ferðaþjónustu mörg, sprotafyrirtæki væru að bæta við sig störfum og möguleiki væri á olíu- og gasvinnslu. Birkir J. Jónsson, varaformaður Framsóknarflokksins, sagði ríkis- stjórnina ekki eiga sér viðreisnar von. Það sæju allir nema kannski ráðherrar hennar. Ræða forsætis- ráðherra hefði verið máttlítil og án sannfæringar. Bjartsýni og kraft- ur hefðu þó verið í ræðu iðnaðar- ráðherra. Lauk hann máli sínu á að segja „Ekki meir Geir.“ Guðjón A. Kristjánsson, formað- ur Frjálslynda flokksins, sagði að þó kjósa þyrfti fyrr en síðar væri vandinn til staðar og frá honum mætti ekki hlaupa. Takast þyrfti á við hann og það væri forsætisráð- herra að meta hvort hann vildi sam- starf við stjórnarandstöðuna. En til þess að af því gæti orðið þyrfti að liggja fyrir samkomulag um hve- nær kosið yrði. bjorn@frettabladid.is Geir sannfærður um að endurreisn takist Ríkisstjórnin hefur unnið hörðum höndum að lausn efnahagsvandans, að sögn forsætisráðherra. Formaður VG segir aðeins örfáa hafa trú á að störf stjórnar- innar gangi vel. „Ekki meir Geir,“ sagði varaformaður Framsóknarflokksins. ÞUNGT YFIR ÞINGHEIMI Alþingismenn sátu brúnaþungir undir umræðum um ástand efnahags- og atvinnumála í gær. Árni Páll Árnason, þingmaður Samfylkingarinnar, sagði aðkall- andi að sækja um aðild að Evrópu- sambandinu. Það væri grundvöllur endurreisn- ar íslensks atvinnulífs. Hann sagði ríkisstjórnina ekki hafa talað nógu skýrt við þjóðina sem upplifði sig afskipta. Þá sagði hann mikilvægt að skera stjórnkerfi landsins upp enda hefði stjórnkerfi embættis- mannaklíka og skjallbandalaga engu skilað nema óhæfu kerfi sem reyndist ekki fært um að vara við. - bþs Árni Páll Árnason: ESB grundvöll- ur endurreisnar ÁRNI PÁLL ÁRNASON Þorgerður K. Gunnarsdóttir menntamálaráðherra telur að ekki verði hjá því komist að kjósa í ár. Finna þurfi rétta tímann en það megi ekki verða til þess að beðið verði með nauðsyn- legar aðgerð- ir til að sporna við atvinnuleys- inu. Þorgerður benti á að í kosningabaráttu hugsuðu stjórn- málamenn um eigin hag og flokka sinna og þjóðfélagið hefði ekki efni á því næstu daga og vikur að bíða með að taka stórar ákvarðanir sem snúa að banka- kerfinu. - bþs Þorgerður K. Gunnarsdóttir: Kosningar í ár óhjákvæmilegar ÞORGERÐUR K. GUNNARSDÓTTIR „Landssamband lögreglumanna fordæmir framgöngu tiltekinna einstaklinga að beita lögreglu- menn alvarlegu ofbeldi. Stór hópur lögreglumanna er slasaður eftir atburði undanfarinna daga og einkum eftir nóttina.“ Svo segir í yfirlýsingu frá LL, sem barst Fréttablaðinu í gær. Segir enn fremur að lögreglu- menn séu einfaldlega að sinna sínum skyldustörfum við þær erfiðu aðstæður sem uppi eru í þjóðfélaginu. Þeir séu fagmenn sem vinni störf sín af alúð og vandvirkni í hvívetna og muni að sjálfsögðu gera svo áfram. Það ástand, sem uppi sé í þjóðfélag- inu, bitni ekkert síður á lögreglu- mönnum og fjölskyldum þeirra en öðrum þegnum þessa lands. „Landssambandið höfðar til skynsemi almennings og skiln- ings á þessari staðreynd. Það hvetur alla til að gæta hófs við beitingu hins lýðræðislega réttar síns að láta skoðanir sínar í ljós og haldi sig innan marka laganna. Rétt er að leggja á það áherslu að virði menn lögregluna að vettugi blasir ekkert annað við en algert upplausnarástand í þjóðfélaginu engum til heilla.“ Loks færir LL því fólki þakkir sem brást við aðstæðum í fyrri- nótt með því að slá skjaldborg um lögreglumennina og veita þeim vernd gegn grjótkasti. - jss Landssamband lögreglumanna þakkar verndina: Fordæmir tiltekinn hóp ofbeldissinna AÐ LOKNU NÆTURVERKI Eftir að hafa staðið í ströngu gátu þessir lögreglumenn slakað á um klukkan þrjú í fyrrinótt. Rétt er að leggja á það áherslu að virði menn lögregluna að vettugi blasir ekk- ert annað við en algert upplausn- arástand í þjóðfélaginu engum til heilla. ÚR YFIRLÝSINGU FRÁ LANDSAMBANDI LÖGREGLUMANNA „Margir voru hneykslaðir á því að vera settir á lista með al Kaída. En ríkisstjórnin sjálf skipar sér á bekk með spilltum og vanþróuðum þjóðum sem ættu að standa íslensku þjóð- inni langt að baki,“ sagði Helga Sigrún Harðardóttir Framsóknar- flokki. Hún hvatti ráðherra til afsagna en varði megintíma ræðu sinnar í að lýsa áhyggjum af atvinnuleysinu og alvarlegum fylgifiskum þess; vanlíðan, sjúk- dómum og hugsanlega örorku. - bþs Helga Sigrún Harðardóttir: Ríkisstjórn á bekk spilltra HELGA SIGRÚN HARÐARDÓTTIR Fjórar hreyfingar hvetja mótmæl- endur að láta af aðgerðum sínum í kvöld og annað kvöld og vera þá ekki í miðbæ Reykjavíkur. „Veru- leg hætta er á að til skrílsláta komi er góðglaðir næturgestir öldurhúsa telja sjálfum sér trú um að þeir hafi göfug markmið í huga með skemmdarverkum,“ segir í tilkynningu frá þeim. Þær hvetja hins vegar til áframhald- andi mótmæla og segja þær hafa borið árangur hingað til. Hreyf- ingarnar sem skrifaðar eru fyrir tilkynningunni eru Borgarahreyf- ing um þjóðfund 1. des., Lands- menn gegn ríkisstjórninni, Ice- land-Calling og Nýir tímar. - jse Fjórar hreyfingar hvetja til mótmælahvíldar: Vilja ró um helgarnætur FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V IL H EL M

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.