Fréttablaðið - 23.01.2009, Page 8

Fréttablaðið - 23.01.2009, Page 8
8 23. janúar 2009 FÖSTUDAGUR – Lifið heil Lægra verð í Lyfju www.lyfja.is 20% verðlækkun ORIGINAL ARCTIC ROOT Gegn streitu og álagi, extra sterkt og fljótvirkandi. 2.450 kr. 1.960 kr. Gildir til 31.1. 2009 20% verðlækkun UDO’S Omega fitusýrur eru meðal vinsælustu bætiefnanna hjá íþróttafólki. Hreysti úthald og vellíðan. 500 ml. 2.619 kr. 2.095 kr. 250 ml. 2.240 kr. 1.792 kr. 20% verðlækkun ANGELICA veitir styrk og hugarró. 60 töflur 2.692 kr. 2.154 kr. 100 ml. 1.679 kr. 1.343 kr. ÍS L E N S K A /S IA .I S /L Y F 4 47 06 0 1/ 09 Mótmælin halda áfram Fámennur hópur ungra karla fer fram með ofbeldi gegn lögreglu og skemmir fyrir frið- sömum meirihluta mótmælenda. Þetta segja sjónarvottar að aðdraganda þess að lögregla beitti táragasi aðfaranótt fimmtudags. Geir Jón Þórisson yfirlögregluþjónn tekur undir. „Mjög ungt fólk, allt niður í börn, kemur hér nestað til að kasta í lögreglumenn, en það er líka eldra fólk innan um,“ segir hann. Langstærsti hluti fólks vilji mótmæla í friði á „eðlilegan og heilbrigðan hátt“, segir Geir Jón. Margir mótmælenda hafi lýst yfir vanþóknun sinni á ofbeldisfullri framkomu: „Og þeir hafa tekið upp á því að ganga að þeim sem eru að henda í lögregluna og biðja þá um að gera það ekki, því það er ekki í þökk mótmælenda.“ Áður en lögreglan beitti táragasi á mótmæl- endur hafði hópur ungra manna og drengja kastað í hana, allt frá mótmælunum við Þjóð- leikhúsið fyrr um kvöldið. Eitthvað hafði fjölg- að í hópi grjótkastara eftir því sem á leið en dropinn sem fyllti mælinn hjá lögreglu var þegar kveikt var í aðaldyrum Alþingis og tveir lögreglumenn lágu særðir, eftir því sem Stefán Eiríksson lögreglustjóri hefur sagt. Hann hefur einnig sagt að fremstir í flokki hinna árásar- gjörnu hafi verið góðkunningjar lögreglu, sem hafi gerst sekir um ofbeldisbrot áður. Friðsamlegri mótmælendur urðu margir reiðir eftir táragasið og gerðu aðsúg að lögreglu við skálabyggingu Alþingis. Geir Jón neitar ekki að fjölgað hafi í hópi árásargjarnra við þetta. „En þetta er bara það eina sem við höfum til þess að reyna að koma fólki frá okkur,“ segir hann. Geir Jón neitar því ekki beint, hvort lögregl- an sé of fáliðuð: „Við reynum að vera eins marg- ir og hægt er. Auðvitað getur stundum verið á einhverju augnabliki að við séum færri en við þyrftum að vera.“ Dæmi um fyrrgreindan velvilja mótmælenda í garð lögreglumanna sást þessa nótt við Stjórn- arráðið, eftir táragasárásina. Þá voru fimm lög- regluþjónar sendir til varnar Stjórnarráðinu þar sem voru nokkur hundruð mótmælenda. Meðan grjóti rigndi yfir lögreglumennina tók hópur mótmælenda sig til og gekk að þeim með hendur á lofti. Þeir sneru sér síðan við og stóðu þar sem varnarveggur. Grjótkastinu linnti við þetta og bættust þá fleiri í hóp verjenda lög- reglunnar. Í gærdag sáust svo mótmælendur bera blóm og kaffi í lögregluþjóna við Alþingishúsið. klemens@frettabladid.is Skjaldborg um lögregluna Langstærstur hluti mótmælenda er friðsamur og margir byrjaðir að stöðva grjótkastið, segir yfirlögreglu- þjónn. Mótmælendur gengu inn í grjótregnið og slógu skjaldborg um fáliðaða lögreglu við Stjórnarráðið. SKJALDBORG UM LÖGREGLUNA Nokkrir mótmælendur mynduðu vegg fyrir framan lögreglumennina sem vörðu stjórnarráðið til að varna því að kastað yrði að þeim meira grjóti. HALDIÐ UM VITIN Táragasi hefur ekki verið beitt hér á landi síðan árið 1959 þegar síldarball fór út um þúfur. GRJÓTKAST Þessir köstuðu grjóti að lögreglumönnum en aðrir mótmælendur létu það ekki lengi viðgangast. TÁRAGAS Menn voru misvel búnir til að bregðast við táragasinu sem lögregla varð að grípa til. „Engin mótmæli föstudagskvöld eða laugardagskvöld. Látum ekki djammmenninguna blandast mót- mælunum og byltinguna blandast fylliríi,“ segir á síðu Andspyrnu. org, sem er heimasíða helguð anarkisma. Ritstjóri síðunnar, Sigurður Harðarson, betur þekktur sem Siggi pönk, telur að ópólitískt fólk eigi ekkert erindi á mótmælin. „Það er akkúrat engin pólitík í fylliríi og þar af leiðandi verður að aðgreina þetta tvennt,“ segir hann. Þetta fari ekki saman við markmið mótmælanna – að beita ríkisvaldið þrýstingi. - kóþ Áskorun andspyrnu.org: Engin mótmæli djammkvöldin Appelsínugulur heitir nýstofnað- ur hópur mótmælenda sem vill aðgreina sig frá ofbeldisfullum mótmælendum. Hópurinn hyggst því klæðast appelsínu gulum fatn- aði við mótmæli. „Hópurinn hefur engin önnur markmið en að reyna að sort- era frá þá sem eru tilbúnir að kvitta upp á það að við séum frið- söm en viljum breytingar, takk,“ segir Þórarinn Á. Stefánsson, sem skráður er fyrir heimasíðu hópsins, en Appelsínugulur á sér hvorki tals- né formann. „Punkturinn er að þegar þús- und manns koma saman og tut- tugu kasta eggjum, sé ekki hægt að benda á alla og segja „skríll“,“ segir Þórarinn. - kóþ Appelsínugulur.is: Aðgreina sig frá ofbeldissinnum Lögreglan er ekki óvinur okkar og landsmenn verða að standa saman allir sem einn á þessum erfiðu tímum, segir í tilkynningu frá Röddum fólksins, hreyfing- unni sem staðið hefur fyrir reglu- legum mótmælum á laugardögum í vetur. „Raddir fólksins biðja mót- mælendur að gæta stillingar og hófsemi og halda í þá sjálfsvirð- ingu sem var svo snertandi í gær [miðvikudag] þegar mótmælend- ur fluttu sig til vegna jarðarfar- ar og þögðu uns athöfninni lauk,“ segir meðal annars í tilkynning- unni, sem ber yfirskriftina Sigur lýðræðis er í augsýn. - kóþ Raddir fólksins harma átökin: Lögreglan er ekki óvinurinn VIÐ ÞINGHÚSIÐ Mótmælendur börðu hvað eina sem finna mátti í eldhúsinu. Lögreglumaður rotaðist og fékk heilahristing eftir að þungum steini var kastað í höfuð hans aðfaranótt fimmtudags. Jónas Sen, sérfræðingur á slysadeild segir að hjálmur hafi sennilega bjargað lífi mannsins. Alls hafi fjórir lögreglumenn komið á slysa- deild, eftir að þeir urðu fyrir grjótkasti en með minni háttar meiðsli. Tveir lítt særðir mótmæl- endur hafi einnig notið aðhlynningar. Slökkviliðið sendi þrjá sjúkrabíla að Lækjar- götu og skolaði piparúða úr augum og hlynnti að lemstruðum. Einn drengur var fluttur á barnadeild Land- spítalans. HJÁLMUR BJARGAÐI LÍFI FR ÉTTA B LA Ð IÐ /VILH ELM

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.