Fréttablaðið - 23.01.2009, Qupperneq 11
FÖSTUDAGUR 23. janúar 2009 11
2 fyrir 1
í Bláa lónið
Gildir gegn framvísun
miðans til 31. mars 2009
Frítt fyrir börn, 11 ára og yngri, í fylgd með forráðamönnum
í einstakri íslenskri heilsulind
Efldu lífsorkuna
Lykill 1561
Auglýsingasími
– Mest lesið
VIÐSKIPTI Samkeppniseftirlitið
gerði húsleit á skrifstofu Fóður-
blöndunnar hf. í Reykjavík í gær-
morgun. Samkvæmt dómsúrskurði
sem heimilaði húsleitina telur
Samkeppniseftirlitið grun leika á
að Fóðurblandan og Mjólkurfélag
Reykjavíkur hafi viðhaft við-
varandi verðsamráð í andstöðu
við samkeppnislög á fóðurmark-
aði undanfarin þrjú ár. Einnig að
Fóðurblandan ásamt öðrum keppi-
nautum í áburðarsölu, Sláturfélagi
Suðurlands svf. og Skeljungi hf.,
hafi haft með sér verðsamráð á
áburðarmarkaði síðastliðið ár.
Í fréttatilkynningu frá Eyjólfi
Sigurðssyni , framkvæmda-
stjóra Fóðurblöndunnar, segir
að fyrirtækið vísi ávirðingum
Samkeppnisstofnunar á bug, en
fagni því að Samkeppniseftirlit-
ið leiti af sér allan grun um við-
skiptahætti þeirra félaga sem um
ræði. Fóðurblandan vænti þess að
rannsókn málsins verði hraðað svo
félagið þurfi ekki að sitja undir
meintum ávirðingum Samkeppnis-
eftirlitsins um lengri tíma.
Enn fremur segir í tilkynning-
unni að samkeppni á fóður- og
áburðarmarkaði hafi verið mikil
undanfarin ár. Markaðurinn sé
hins vegar fákeppnimarkaður sem
skili sér í einsleitu verði þegar
upp sé staðið, enda séu fyrirtæki
á þessum mörkuðum að dæma sig
út af markaðnum ef verð eru ekki
samkeppnisfær. - kg
Samkeppniseftirlitið gerði húsleit hjá Fóðurblöndunni hf. í gærmorgun:
Grunur leikur á verðsamráði
FÓÐURBLANDAN Framkvæmdastjóri
Fóðurblöndunnar hf. vísar ávirðingum
Samkeppnisstofnunar á bug.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
ÍSRAEL, AP Yfirmaður mannúðarmála hjá Sameinuðu
þjóðunum, John Holmes, skoðaði í gær tjónið af
völdum hinnar 22 daga löngu innrásar Ísraelshers á
Gaza-svæðinu, til að sjá hvað gera þurfi til að sam-
tökin geti aftur tekið til við að koma hjálpargögnum
til Gaza-búa í neyð.
Síðustu liðsmenn innrásarherliðs Ísraela yfirgáfu
Gaza-svæðið fyrir dögun á miðvikudag, að sögn
Ísraelshers. Talsmenn hans segja mikinn liðsafnað
verða í viðbragðsstöðu við landamærin ef skærulið-
ar á Gaza skyldu rjúfa hið viðkvæma vopnahlé sem
hófst í byrjun vikunnar.
Í innrásinni lentu sprengjur Ísraela ítrekað á
birgðastöðvum og öðrum byggingum SÞ á Gaza.
Holmes sagði manntjónið í innrásinni vera hrika-
legt − um 1.300 Palestínumenn dóu, um helmingur
óbreyttir borgarar og þar á meðal mörg börn − og
sagði að SÞ kynnu að fara fram á að Ísraelar bættu
fyrir tjónið á eigum samtakanna á Gaza.
Ísraelski utanríkisráðherrann Tzipi Livni hélt
Brussel til að leita alþjóðlegs stuðnings við aðgerðir
til að hindra vopnasmygl til Hamas-samtakanna sem
fara með stjórn á Gaza. Beiðni hennar um að ESB-
ríkin legðu til herstyrk í þessum tilgangi var hins
vegar hafnað.
Talsmenn hersins sögðu enn fremur að hann
myndi rannsaka ásakanir um ólögmæta notkun fos-
fórsprengna í innrásinni. Amnesty International
segja beitingu sprengnanna stríðsglæpi. - aa
SMYGL Palestínskur drengur sést hér í opi ganga sem notuð
hafa verið til smygls á vopnum og öðrum varningi frá Egypta-
landi inn á Gaza. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Innrásarlið Ísraela allt farið frá Gaza en herinn áfram í viðbragðsstöðu:
Ísraelar bæti SÞ tjón á Gaza