Fréttablaðið


Fréttablaðið - 23.01.2009, Qupperneq 19

Fréttablaðið - 23.01.2009, Qupperneq 19
Sölufulltrúar Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Hugi Garðarsson hugi@365.is 512 5447 MYNTA er nokkuð sem ágætt er að rækta í glugga- kistunni og bragðið af henni er ferskt og frískandi. Fleiri en sex hundruð tegundir og afbrigði eru til af myntu og er hægt að nota hana í margvíslega matargerð. „Matreiðsla er engin geimvísindi og í raun mjög einföld ef þú ert með uppskrift,“ segir Haukur Val- geir en hann er nýbyrjaður að elda á Argentínu eftir að hafa unnið hjá Jamie Oliver í London. Haukur lætur vel af vistinni hjá Jamie og segist hafa tekið með sér einhverja takta frá honum hing- að heim. „Þessi réttur er eigin- lega beint þaðan, mín hugmynd en undir áhrifum frá Jamie. Bretar elda mikið kjöt með beini og eru mikið fyrir sultur og kryddsmjör. Eins langar mig að virkja krakka sem eru kannski milli skóla eða atvinnulausir í að læra að elda eins og Jamie Oliver hefur verið að gera. Ég vil að fólk eldi meira sjálft heima,“ segir hann. heida@frettabladid.is Hvetur fólk til að elda Haukur Valgeir Magnússon, matreiðslumaður á Argentínu steikhúsi, vann hjá Jamie Oliver í London. Hann viðurkennir að vera undir áhrifum frá honum í matargerð og fleiru og vill að fólk eldi meira sjálft heima. Haukur Valgeir Magnússon gefur uppskrift að lambahryggvöðva með lauksultu og bernaise-smjöri og hvetur fólk til að elda heima. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Lambahryggvöðvi: 800 gr. lamb brúnað á pönnu í 3 mínútur á hvorri hlið. Eldað í ofni við 180° C í 5-6 mínútur. Lauksulta: 1 kg laukur, 4 tegundir ½ l hvítvín 50 gr. sykur 100 ml hunang Salt og pipar Lárviðarlauf og vöndur af blönduðum kryddjurtum. Aðferð: Skerið laukinn í þunnar skífur, svitið hann í potti, bætið svo við hvítvíninu, hunangi, sykri og kryddinu. Látið malla við lágan hita í 3 tíma. Bearnaise-smjör: 500 g smjör 20 ml estragonedik Þurrkað estragon 30 ml hvítvínsedik Salt og pipar Aðferð: Smjör er mýkt, sett í hræri- vél ásamt öllu hráefninu og hrært saman. Mótað á silíkonmottu. LAMBAHRYGGVÖÐVI með sultuðum lauk og bearnaise-smjöri FYRIR 4 H rin gb ro t 2. janúar -28. febrúar Veitingahúsið Perlan - Sími 562 0200 - Fax 562 0207 Netfang perlan@perlan.is - Heimasíða www.perlan.is Hinn árvissi 4ra rétta „Allt í steik“ seðill gleður bragðlaukana. Skyldumæting fyrir alla sem unna góðum mat á góðu verði. Tilvalið fyrirárshátíðina! HRÁSKINKA „PROSCIUTTO“ með fíkjum, salati og ferskum parmesanosti RJÓMALÖGUÐ HUMARSÚPA með humarfrauði MARINERAÐUR KÁLFAHRYGGUR Á BEINI með ristuðu grænmeti, kartöflumauki og hunangskryddsósu (4.590 kr.) ÖND með appelsínusósu og kartöfluköku (5.590 kr.) NAUTALUND Béarnaise með grilluðu hvítlauksristuðu spínati og sperglum (6.590 kr.) LOGANDI CRÈME BRÛLÉE með súkkulaði ís 1 2 3 4 VELDU MILLI ÞRIGGJA AÐALRÉTTA Auglýsingasími – Mest lesið

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.