Fréttablaðið - 23.01.2009, Side 20

Fréttablaðið - 23.01.2009, Side 20
SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT NORÐURLANDS verður með tón- leika í Akureyrarkirkju á sunnudaginn klukkan 16.00. Á efnisskrá tón- leikanna er Orgelkonsert í a-moll op. 100 eftir Marco Enrico Bossi og Sinfónía nr. 4 eftir Ludvig van Beethoven. Japönsk hátíð verður haldin í fimmta sinn í og við Hátíðarsal Háskóla Íslands á morgun. Þar geta gestir kynnt sér japanska menningu frá hinum ýmsu hlið- um. Ýmsar nýjungar verða þar á boðstólum eins og endranær enda nýir nemendur með ferskar hug- myndir sem taka þátt í undirbún- ingnum hverju sinni. „Nemendur verða með nýjan kynningarbás þar sem helstu hátíðir í Japan verða kynntar og auk þess bás með því sem ferða- menn ættu ekki að láta framhjá sér fara ákveði þeir að sækja land- ið heim. Eins verður nýr bás þar sem japanskar bókmennt- ir verða kynntar,“ segir Kaoru Umezawa, lekt- or í japönsku. „Á hverju ári bjóðum við upp á japansk- an mat en hann er að megninu til búinn til af íslenskum japönskunem- um. Þarna verða hrísgrjónabollur, japönsk karríhrísgrjón, japanskt snakk og nammi svo dæmi séu tekin.“ Þá flytja nemendur fyrirlestra um japanska menningu, kynna japanska popptónlist og bjóða gestum að skrifa nafn sitt með jap- önsku letri. Gestir geta heimsótt Origami-básinn og lært japanskt pappírsbrot og einnig kynnt sér hefðbundnar teathafnir að hætti innfæddra. „Það var mikill áhugi á tedrykkjunni í fyrra og var mest að gera hjá þeim sem höfðu umsjón með henni,“ segir Kaoru og telur upp fleiri spennandi dagskrárliði: „Japanskar bardagalistir verða sýndar á sviði ásamt því sem fræðandi spurningakeppni um Japan sem gestir og gangandi geta tekið þátt í fer fram. Eins gefst fólki kostur á að prófa jap- anska tölvuleiki af ýmsu tagi og að spreyta sig í karókí.“ Nám í jap- önskum fræðum hófst við Háskóla Íslands haustið 2003, en það var í fyrsta sinn sem boðið var upp á nám í tungumáli og menningu Asíulands við skólann. Í september 2007 var öðru námsári bætt við en það gerir nemendum kleift að læra japönsku í tvö ár. Þeir geta svo tekið þriðja og síðasta árið til BA-prófs í skiptinámi. vera@frettabladid.is Japan í hávegum haft Gestum og gangandi gefst kostur á að kynna sér japanska menningu í Háskóla Íslands á morgun. Þar verður hægt að spila japanska tölvuleiki, dreypa á japönsku tei, læra japanskt pappírsbrot og fleira. Gestum gefst kostur á að læra japanskt papp- írsbrot eða Origami. Á hátíðinni verður hægt að læra að skrifa nafnið sitt á japönsku. Kaoru Umezawa, lektor í japönsku, ásamt japönskunemum og aðstoðarkennurum sem hafa lagt hart að sér undanfarna daga við undirbúning hátíðarinnar. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN VÍNLANDSLEIÐ 6 - S: 533 3109 Rugldagar um helgina! Allt að 60% afsláttur af kvenstígvélum 40% af öllum Ara og Gabor skóm OPIÐ MÁN.-FÖS. 11 - 18 · LAU. 11 - 16 · SUN. 12 - 16 3.995 kr.- Verð áður: Tilboð: 2.495kr.- Loðfóðruð stígvél Sat 9912310 Stærðir 23 - 35 Dömu skór Ara 53113 40% afsláttur af öllum Ara skóm 3.000 kr.- Verð áður: Tilboð: 1.995kr.- Spiderman kuldaskór Etsrossano Stærðir 23 - 30 5.995 kr.- Verð áður: 30% afsláttur: 4.196kr.- Ungbarnaskór 70921-53753 5.995 kr.- Verð áður: 30% afsláttur: 4.196kr.- Ungbarnaskór 70921-54252 19.995 kr.- Verð áður: 30% afsláttur: 13.996kr.- Golfskór (hvítt/svart) E-38414 53539 Stærðir 40 - 46 GEFÐU BÓNDANUM GJÖF sem gleður ykkur bæði La Perla - Eres - Chantal Thomass 30% afsláttur af undirfötum og sundfötum Kaupir eitt stykki, færð sambærilegt á 50% afsl. Tilboð gildir til 31. Jan. Opið þriðjud. - föstud. 11-18, laugard. 11-16 Garðastræti 17 101 Reykjavík sími 863-3348 Hringdu í síma ef blaðið berst ekki

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.