Fréttablaðið - 23.01.2009, Blaðsíða 24
4 föstudagur 23. janúar
✽
ba
k v
ið
tjö
ldi
n
Stjörnumerki:
Hrútur.
Besti tími dagsins:
Miðnætti. Það er svo fallegt
hvernig tíminn bara líður og líður
og líður áfram átakalaust.
Geisladiskurinn í spilaranum:
Hvíld - Óskar Einarsson. Yndis-
legur diskur.
Uppáhaldsverslunin:
Herre gud! Hvernig get ég gert
upp á milli? Segi Góði hirðirinn
og KVK.
Uppáhaldsmaturinn:
Sushi og halumiostur.
Líkamsræktin:
Rope yoga-setrið.
Mesta dekrið:
Heimsókn til
Kristjönu Stef-
áns.
Ég lít mest upp til:
Hennar Höbbu minnar.
Áhrifavaldurinn?
Cathrine Sadolin og
Lóa systir mín.
Draumafríið?
Japan, helst með
góðum vini og elsk-
huga.
Hverju myndirðu sleppa
ef þú yrðir að spara?
Rauðvíni og vídeóspólum.
Hera Björk
Þórhallsdóttir söng-
kona er svo sannarlega
á faraldsfæti. Hún býr
bæði á Íslandi og í Dan-
mörku, kennir vítt og
breitt um Evrópu og gæti
allt eins endað í Moskvu
í maí ef hún sigrar í
undankeppni Dana fyrir
Eurovision 31. janúar.
Viðtal: Alma Guðmundsdóttir
Ljósmyndir: Anton Brink
Förðun: Elín Reynisdóttir
H
era Björk hefur sung-
ið frá blautu barns-
beini og segir aldrei
neitt annað hafa
komið til greina en
að verða söngkona. Þegar hún var
28 ára sneri hún hins vegar algjör-
lega við blaðinu og flutti til Akur-
eyrar þar sem hún fór að læra við-
skiptafræði.
„Ég fékk allt í einu nóg, nennti
ekki þessu harki og fannst ekki
hægt að verða neitt meira en bak-
raddasöngvari hérna, svo ég taldi
öruggast að hafa einhverja hald-
bæra menntun. Þetta skynsemis-
kast mitt varði í tvö ár, en þá var
ég alveg að kálast yfir hagfræð-
inni, hætti og flutti suður,“ segir
Hera sem sneri sér þá alfarið að
söngnum.
„Það var ekkert annað í boði
en klassískt söngnám þegar ég
var að byrja að læra og ég fór í
gegnum sjö stig á mótþróanum
einum fata. Ég hef alltaf verið á
móti því að setja listsköpun mörk
og að eitthvað sé yfirhöfuð bann-
að í listgreinum. Pönkarinn í mér
var alveg að verða vitlaus í þess-
um „kassa“ svo ég hætti eftir sjö-
unda stigið. Það hafði ekkert með
kennarana mína að gera en ég
kom samt sem áður niðurbrotinn
einstaklingur út úr þessu námi og
hafði enga trú á mér lengur. Samt
vissi ég alveg hvað í mér bjó, en
það var ekki fyrr en ég kynnt-
ist complete vocal-söngtækn-
inni sem ég fékk frjálsar hendur.
Þar fékk ég öll verkfærin sem ég
þurfti til að geta sungið hvað sem
ég vil. Í dag syng ég allt og veit
enn ekki hvort ég vil fara í djass-
inn, rokkið eða klassíkina og vil
helst ekki þurfa að velja,“ útskýrir
Hera, sem flutti til Danmerkur um
tíma þar sem hún lauk fjögurra
ára söngnámi við Complete Vocal
Institute og hefur meðal annars
kennt í Ósló, Tékklandi, Brussel,
og Hollandi. Hún var þó alltaf með
annan fótinn hér á landi þar sem
hún á tvö börn, Þórdísi Petru ell-
efu ára og Víðar Kára fimm ára, en
Hera skildi fyrir tveimur og hálfu
ári eftir níu ára hjónaband. „Börn-
in mín voru í skóla hér á meðan
ég var að læra úti, en planið er að
flytja saman til Danmerkur næsta
sumar. Þar er ég með fasta vinnu
og tækifærin fyrir mig sem söng-
konu og kennara eru óteljandi.“
Í DANSKA EUROVISION
31. janúar mun Hera Björk keppa í
forkeppni Eurovision í Danmörku,
þar sem tíu lög hafa verið valin
til að keppa í úrslitum. „Höfund-
ar lagsins eru miklir Eurovision-
aðdáendur og heyrðu talað vel
um mig sem söngkonu í einhverju
boði sem þau voru í. Ég hitti þá
svo í Belgrad þegar ég söng bak-
raddir með Eurobandinu í fyrra
og í september höfðu þeir sam-
band við mig og báðu mig um að
syngja nokkur lög sem þeir höfðu
samið, en eitt þeirra var valið úr
þeim tæplega eitt þúsund lögum
sem voru send í keppnina,“
Aðspurð viðurkennir hún þá að
hafa ekki strax fengið samþykki
fyrir þátttöku í keppninni sem Ís-
lendingur. „Fyrst neituðu þeir og
sögðu að ég mætti ekki vera með.
Reglurnar segja að sólóistinn þurfi
að hafa sterk tengsl við Dan-
mörku, svo að ég var á gráu svæði
og í raun bara skilgreiningaratriði.
Höfundarnir færðu rök fyrir þátt-
töku minni þar sem ég er með
skráð lögheimili í Danmörku,
er útlærð þar í landi, starfa við
kennslu hjá dönsku fyrirtæki og
tala dönsku. Þá vildu aðstand-
endur keppninnar vita hvort ég
ætti nokkuð danskan kærasta
eða tengdist einhverri danskri
fjölskyldu náið, en ég sagði bara
að mér fyndist danskir karlmenn
mjög flottir,“ segir Hera hlæjandi.
„Þeir veltu þessu fyrir sér fram og
til baka og í byrjun desember fékk
ég svo að vita að ég fengi að vera
með.“
Spurð með hverjum Íslending-
ar eigi eiginlega að halda fari hún
fyrir hönd Dana til Moskvu, slær
Hera á létta strengi. „Ég er bara að
vinna að því að styrkja aftur sam-
band okkar við Dani og alþjóða-
umhverfið, svo þetta er mjög
pólitískt starf sem ég er í,“ segir
hún og hlær.
MISSTI 26 KÍLÓ
Talið berst að líkamsrækt og þá
kemur á daginn að Hera er mikil
útivistarkona. „Ég tók þríþraut
síðasta sumar, hjólaði Hvalfjörð-
inn, gekk á fjöll og tók þátt í
maraþoninu. Mér finnst ofsalega
gaman að fara í ferðalög, en þá
ekki til Ibiza, heldur í skála uppi
í fjöllum eða gista í A-tjaldi með
appelsínugulum himni úti í sveit.
Ég lúkka líka bara svo rosalega vel
í svona Cintamani- eða 66°Norð-
ur-galla,“ segir Hera brosandi. „Ég
er algjör flökkukind í eðli mínu
og á voðalega bágt með að vera
heima hjá mér í rólegheitum í
marga daga í röð. Það hefur ekk-
ert með það að gera að ég sé eirð-
arlaus eða „rasslaus“ eins og Fær-
eyingar segja, heldur á það bara
mjög vel við mig,“ segir Hera.
„Ég huga vel að heilsunni og var
að koma úr detoxmeðferð frá Pól-
landi með Jónínu Ben. Þetta er í
þriðja sinn sem ég fer og hef losn-
að við 26 kíló hægt og rólega. Og
það er ekki bara með því að skola
út einhverjum saur því það halda
margir að maður sé bara með eitt-
hvað rör í rassinum allan daginn.
Það er auðvitað val hvort maður
fer í ristilhreinsun en ég trúi því
að flest okkar mein eigi upptök sín
í ristlinum. Ef hann er ekki hreins-
aður með einum eða öðrum hætti
að þá sé það svolítið eins og ef við
værum gangandi með ruslatunn-
urna framan á okkur alla daga og
Sorpa væri ekki til. Detoxferðirn-
ar hafa hjálpað mér mjög mikið.
Ég vel líka hollari fæðu og er dug-
legri að ganga, er í gönguhópnum
„Eins og vindurinn“ með nokkrum
dásamlegum konum. Markmiðin í
dag eru að halda sér frá hveiti og
sykri og borða ekki eftir klukkan
átta á kvöldin.“
FIMM ÁRA PLANIÐ
Hera Björk situr ekki auðum hönd-
um því auk þess sem hún starfar
bæði sem söngkona og söngkenn-
ari er hún með margs konar verk-
efni í vinnslu. „Ég er að skrifa sjón-
varpsþátt í hjáverkum, sem er eins
konar fræðsluþáttur og er ekki
einungis fyrir íslenskan markað.
Svo er ég líka með kabarettsýn-
ingu í skrifum sem mig langar að
fara að setja upp. Ég hef verið að
bíða með það í nokkur ár en læt
verða af henni þegar rétti tíminn
kemur,“ segir Hera full jákvæðni.
„Þrátt fyrir að það sé kreppa og við
séum að ná botninum hér á Íslandi
er ég mjög bjartsýn. Jákvæðni er
líka svo mikilvæg og ég reyni að
sækja frekar í jákvætt fólk heldur
en „helvítis fokking fokk“-týpuna.
Þó mér finnist hún alveg dásamleg
út af fyrir sig þá er hún bara svo
langt frá mér,“ bætir hún við.
„Ég skrifa alltaf niður bæði
ársplan og fimm ára plan. Þegar
ég skoðaði það sem ég skrifaði
fyrir fimm árum sá ég að flest af
því hefur ræst í dag og ég er ná-
kvæmlega þar sem ég vil vera. Það
stenst ekki alltaf allt sem maður
ætlar sér innan tímamarka því
utanaðkomandi hlutir hafa alltaf
áhrif, líkt og efnahagsástandið nú,
en yfirleitt rætist það sem maður
ætlar sér á endanum, með einum
eða öðrum hætti.“
ER Í EÐLI MÍNU FLÖKKUKIND
Hera Björk
Er mikil útivistarkona og
hugar vel að heilsunni.