Fréttablaðið - 23.01.2009, Blaðsíða 34
22 23. janúar 2009 FÖSTUDAGUR
SALVADOR DALÍ LÉST ÞENNAN
DAG ÁRIÐ 1989.
„Sex ára langaði mig að
verða kokkur. Sjö ára lang-
aði mig að verða Napóleon
og metnaður minn hefur
aukist statt og stöðugt
síðan þá.“
Salvador Dalí var spænskur
listamaður sem aðallega er
þekktur fyrir fíngerð súrreal-
ísk málverk.
timamot@frettabladid.is
Sigríður Ingvarsdóttir hefur verið skipuð formaður stjórn-
ar Caritas, hjálparsamtaka Kaþólsku kirkjunnar, til næstu
fimm ára af kaþólska biskupnum í Reykjavík, Pétri Bürcher.
Er þetta hennar fjórða formennskutímabil.
Sigríður hefur annast styrktartónleika Caritas undanfar-
in ár en þeir eru orðnir þekktur viðburður í tónlistarlífinu á
hverju hausti í Reykjavík. Þess má geta að hún starfaði fyrir
uppboðshús Sotheby’s á Íslandi árum saman.
Caritas-samtökin hafa tekið virkan þátt í hjálparstarfi hér-
lendis síðustu ár. Reykjavíkurbiskup leggur ríka áherslu á
að því verði haldið áfram.
Með Sigríði í stjórn Caritas sitja séra Patrick Breen, sókn-
arprestur Kristskirkju, Gyða Magnúsdóttir, Jóhanna Long
og Karl Smith.
Formennska
í fjórða sinn
Sigríður Ingvarsdóttir hefur annast styrktartónleika Caritas undanfarin
ár. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Minjasafn Reykjavíkur efnir til fyrirlestraraðar um
Upphaf þéttbýlis í Reykjavík á átjándu öld á Landnáms-
sýningunni Aðalstræti 16, þriðjudaginn 27. janúar til 7.
apríl.
Stefán Örn Stefánsson arkitekt hefur leikinn á
þriðjudag klukkan 17 og talar um Innréttingahúsin í
Aðalstræti. Fimm aðrir fyrirlestrar fylgja í kjölfarið
í febrúar, mars og apríl. Fyrirlesarar eru: Jón Ólafur
Ísberg sagnfræðingur, Guðlaugur Rúnar Guðmunds-
son sagnfræðingur, Hjalti Hugason guðfræðiprófessor,
Hrefna Róbertsdóttir sagnfræðingur og Áslaug Sverr-
isdóttir sagnfræðingur. Nánari upplýsingar fást hjá
Minjasafni Reykjavíkur. Aðgangur er ókeypis og allir
velkomnir.
Upphaf þéttbýlis
á átjándu öld
INNRÉTTINGAHÚSIN LIFNA VIÐ Arkitektinn Stefán Örn Stefánsson
mun hefja fyrirlestraröðina með því að tala um Innréttingahúsin í
Aðalstræti. MYND/MINJASAFN REYKJAVÍKUR
Heilsuhúsið er þrjátíu ára en það var
stofnað af Erni Svavarssyni árið 1979.
Fyrsta verslunin var opnuð að Skóla-
vörðustíg 1a en í dag eru þær orðnar sex,
fjórar á höfuðborgarsvæðinu, ein á Sel-
fossi og ein á Glerártorgi á Akureyri.
„Á þeim 30 árum sem verslunin hefur
verið starfrækt hafa orðið straumhvörf
í hugsunarhætti Íslendinga hvað varð-
ar heilsu og allt sem henni tengist,“
segir Jóhanna Kristjánsdóttir, rekstr-
arstjóri Heilsuhússins, sem hefur starf-
að hjá fyrirtækinu í 21 ár. „Í upphafi
var verslunin litin hornauga og fólk
sem þar vann og verslaði talið skrítnar
skrúfur. Þetta hefur mikið breyst og nú
þykir það merki um heilbrigði og hrein-
lega flott að hugsa um heilsuna.“
Hún segir mestar breytingar hafa
orðið á viðhorfi landsmanna undanfar-
in tíu ár eða svo. Að hennar mati má að
mestu rekja breytingarnar til aukins
framboðs á upplýsingum um samspil
líkamlegrar og andlegrar vellíðunar og
næringar. „Fólk er orðið meðvitaðra um
hvað það hefur mikið um eigin heilsu
að segja. Flestir vita hversu mikilvægt
það er að huga að mataræði og hreyf-
ingu en fólk er auk þess farið að gera
sér grein fyrir mikilvægi þess hvern-
ig við hugsum, bæði um okkur sjálf og
umhverfið,“ segir Jóhanna.
Heilsuhúsið hefur innleitt ýmsar
nýjungar í gegnum tíðina sem spanna
allt frá lífrænt ræktuðu korni til um-
hverfisvænna hreinlætisvara. Þá hefur
verslunin haft þá sérstöðu að þar starf-
ar sérhæft starfsfólk sem getur veitt
einstaklingsmiðuð ráð og leiðbeining-
ar. „Við lítum á það sem okkar hlutverk
að færa fólki upplýsingarnar. Það veit
ekki alltaf hvar það á að leita þeirra og
viljum við koma til móts við það.“
Í tilefni afmælisins stendur Heilsu-
húsið fyrir margs konar útgáfu og kom
til að mynda vegleg afmælisútgáfa af
Heilsufréttum út fyrir skemmstu en
blaðið hefur komið út tvisvar á ári und-
anfarin ár. Þá sendir fyrirtækið út raf-
rænt fréttabréf tíu mánuði ársins til
meðlima í íbúaklúbbi Heilsuhússins.
Auk þess verður á árinu boðið upp á
hin ýmsu fræðsluerindi, fyrirlestra og
námskeið tengd heilsu.
„Við byrjum á fyrirlestra- og nám-
skeiðsröð nú í janúar og febrúar þar
sem meðal annars verður fjallað um
mataræði, blómadropa, barnamat og
samspil manns og náttúru. Í mars og
apríl ætlum við svo að beina sjónum að
vorinu og sumrinu og bjóða upp á nám-
skeið í gróðursetningu og garðrækt. Í
haust einbeitum við okkur svo að upp-
skerunni og verðum með matreiðslu-
námskeið sniðin að henni.“
vera@frettabladid.is
HEILSUHÚSIÐ: FAGNAR 30 ÁRA AFMÆLI MEÐ ÚTGÁFU OG FYRIRLESTRARÖÐ
Ekki lengur skrítnar skrúfur
Jóhanna Kristjánsdóttir segir að straumhvörf hafi orðið í hugsunarhætti Íslendinga hvað varðar heilsu á þeim þrjátíu árum sem verslunin hefur
starfað. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Gos hófst á þessum degi í Heimaey árið 1973 en
lítill sem enginn fyrirvari var á því. Tvær litlar jarð-
skjálftahrinur höfðu átt sér stað á undan en talið
var að upptök þeirra væru við Veiðivötn.
Þeir Hjálmar Guðnason og Ólafur Gräns urðu
fyrstir gossins varir. Þeir voru í göngutúr uppi á
Helgafelli þegar jörðin opnaðist og gos hófst.
Á innan við klukkustund var búið að vekja
alla bæjarbúa og koma þeim niður að bryggju,
þar sem björgunarstörf hófust. Allir bátar Vest-
mannaeyja voru í landi þar sem óveður hafði
gert daginn áður. Hafist var handa við að sel-
flytja fólk í land og bátar sem voru á veiðum á
nálægum slóðum komu til hjálpar. Allir íbúar eyj-
arinnar voru komnir til lands morguninn eftir að
gosið hófst fyrir utan þá hátt í þrjú hundruð sem
sinntu störfum í Eyjum.
Því var formlega lýst yfir að gosinu væri lokið
hinn 3. júlí. Í kjölfarið hófst skipulagt hreinsunar-
starf í Vestmannaeyjum af fullum krafti. Gekk
það starf framar vonum og í lok ágúst var búið
að hreinsa meirihluta bæjarins af ösku.
ÞETTA GERÐIST: 23. JANÚAR 1973
Gos hófst í Heimaey
85 ára afmæli
Hjartkærar þakkir til allra þeirra
sem glöddu mig á einn eða annan hátt á 85 ára
afmælisdegi mínum.
Kær kveðja,
Árni B. Tryggvason
leikari og trillukarl
Elskuleg móðir og stjúpmóðir okkar,
Jónea Samsonardóttir
Háaleitisbraut 117, 108 Reykjavík,
sem andaðist hinn 16. janúar verður jarðsungin frá
Fossvogskirkju hinn 26. janúar kl. 13.00. Blóm og
kransar afþakkaðir, en þeir sem vilja minnast hinnar
látnu eru vinsamlegast beðnir um að láta Umhyggju,
félag langveikra barna, njóta þess. Reikningur: 0101 15
371020, kennitala 581201 2140.
Fyrir hönd fjölskyldunnar,
börn hinnar látnu.
MERKISATBURÐIR
1907 Jón forseti, fyrsti togarinn
sem er smíðaður fyrir Ís-
lendinga, kemur til lands-
ins.
1915 Gullfossi, fyrsta skipi Eim-
skipafélags Íslands, er
hleypt af stokkunum í
Kaupmannahöfn. Skipið
kemur til landsins þremur
mánuðum síðar.
1978 Sænsk stjórnvöld banna
notkun á gasi í þrýstihylkj-
um. Talið er að það skaði
ósonlagið.
1979 Fyrsti reyklausi dagurinn
er haldinn á Íslandi.
1988 Mesta frost í sjötíu ár,
32,5 gráður, mælist í
Möðrudal á Fjöllum.
2007 Ríkisútvarpinu er breytt í
opinbert hlutafélag.