Fréttablaðið - 23.01.2009, Blaðsíða 35

Fréttablaðið - 23.01.2009, Blaðsíða 35
FÖSTUDAGUR 23. janúar 2009 Ásgeirsmót í alpagreinum verður haldið á skíðasvæði Ís- firðinga í Tungudal sunnudaginn 25. janúar. Mótið er fyrir alla aldurshópa en yngstu krakkarnir fá að spreyta sig í leikjabraut á barnasvæðinu meðan eldri krakkarnir keppa í svigi. Mótið er haldið til minningar um Ásgeir Kristján Karls- son frá Hnífsdal sem lést í fiskiróðri árið 1966. Það var fyrst haldið árið 1967 og árlega til ársins 1978. Það var síðan endurvakið árið 2005 af afkomendum Ásgeirs og hefur verið haldið árlega síðan. Áður fyrr var keppt um farandbikar í karlaflokki en nú er einnig keppt um kvennabikar. Frétt af vef www.bb.is en nánari upplýsingar eru á www.snjor.is. Ásgeirsmót í Tungudal Keppt verður í alpagreinum í Tungudal á sunnudag. Þegar Gísli Galdur Þorgeirsson, tónlistarmaður og plötusnúður, er inntur eftir því hvernig standi á því að hann heiti Galdur bendir hann á móður sína, Guðrúnu Gísladóttur leikkonu. „Ég held að það væri sniðugra að tala um þetta við mömmu, henni datt þetta í hug. Ég man ekki hvort einhver sérstök ástæða var fyrir þessu nafni en veit að það var hins vegar mikið vesen að fá þetta í gegn því enginn hét þetta. Mannanafnanefnd neitaði en mamma fékk prest með sér í lið sem skírði mig og þegar það var búið gátu þeir ekki neitað nafninu.“ Gíslanafnið kemur frá móðurafa Gísla Galdurs en hann kannast ekki við að neinir galdramenn leynist innan fjölskyldunnar nema þá helst mamma hans. „Mamma galdrar bara á sviðinu, listamenn eru náttúrlega alltaf svo klikkaðir en yngsti sonur mömmu heitir einmitt Ísleifur Eldur.“ Gísli Galdur segist ekki hafa orðið fyrir neinum óþægindum vegna nafnsins. Hann er ánægður með að heita svo sterku nafni og upp- lifði enga stríðni vegna þess í æsku. „Það er ekki hægt að finna neitt móðgandi við nafnið. Ég hef alla tíð verið sáttur við það en hef verið kallaður endalausum útúrsnúningum. Sumir kalla mig Galdur, aðrir Gísla Galdur eða Gilla Galla, Galdra eða Magic. Sumir kalla mig líka Gilbert Sauber. Það eru mismunandi vinahópar sem kalla mig mis- munandi nöfnum og ég er alveg sáttur við þau. Það er alltaf gaman að fá ný viðurnefni. Núna heita nokkrir á landinu Galdur svo ég er því miður ekki lengur sá eini, en ég er guðfaðirinn. - rat NAFNIÐ MITT: GÍSLI GALDUR ÞORGEIRSSON Gilli Galli og Gilbert Sauber Gísli Galdur Þorgeirsson kannast ekki við að galdramenn leynist í fjölskyldunni aðrir en móðir hans. FRÉTTABLAÐIÐ/ÞÖK Elsku, hjartans mamma okkar, dóttir, syst- ir, mágkona og frænka, Valgerður (Vallý) Árný Einarsdóttir, Hvassaleiti 24, lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi hinn 21. janúar. Aníta Rut Erlendsdóttir Sylvía Margrét Cruz Einar Róbert Árnason Margrét Guðmundsdóttir Ingunn St. Einarsdóttir Þorsteinn Auðunn Pétursson Margit Elva Einarsdóttir Guðmundur Emil Jónsson Róbert Örn Einarsson B. Anný Baldursdóttir og frændsystkini. Elsku faðir okkar, tengdafaðir, afi, bróðir og mágur, Jónatan Hall Hátúni 12, Reykjavík, lést að kvöldi 20. janúar. Útförin fer fram frá Laugarneskirkju þriðjudaginn 27. janúar kl. 13.00. Þeir sem vilja minnast hans er bent á Sjálfsbjörg. Garðar Hall Rannvá Kristina Hansen Brynhildur Hall Jónas Egilsson Guðrún Hall Agnar Einarsson Jónas Hall Ólafía Jónsdóttir Hjördís Anna Hall Sigurjón Stefánsson og afabörn. Okkar ástkæri eiginmaður, faðir, tengda- faðir, sonur og afi, Þorvaldur Ólafsson húsasmíðameistari, Iðalind 1, Kópavogi, lést á Landspítalanum þriðjudaginn 20. janúar. Jarðarförin auglýst síðar. Sigríður Kjartansdóttir Kristbjörg E. Þorvaldsdóttir Sigurjón Fjeldsted Andrea S. Þorvaldsdóttir Bjarni R. Garðarsson Ásdís B. Þorvaldsdóttir Björn K. Sigurþórsson Erna Gunnarsdóttir og afabörn. Helgi Hálfdanarson frá Sauðárkróki, Máshólum 19, Reykjavík, lést þriðjudaginn 20. janúar. Útför verður ekki auglýst. Að ósk hans eru blóm, kransar og umfram allt hvers konar eftirmæli vinsamlega afþökkuð. Okkar innilegustu þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð, vináttu og hlýhug við andlát og útför eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og afa, Huldars Ágústssonar Þjóðbraut 1, Akranesi. Helga Margrét Aðalsteinsdóttir Erling Steinar Huldarsson Áslaug Ólafína Harðardóttir, Aðalsteinn Huldarsson Elísabet S. Kristjánsdóttir, Ingibjörg Guðný Huldarsdóttir Ólafur Björn Gunnarsson og afabörn. Innilegar þakkir færum við öllu því góða fólki sem sýndi okkur hlýhug og velvild við andlát ástkærrar móður okkar, tengda- móður og ömmu, Jónínu Lilju Waagfjörð (Stellu), hjúkrunarfræðings, frá Garðhúsum, Vestmannaeyjum, áður til heimilis að Rauðalæk 25. Sérstakar þakkir viljum við færa starfsfólki á hjúkrun- arheimilinu Víðinesi fyrir yndislega hlýju og umhyggju síðustu æviárin. Kristín Dóra Karlsdóttir Hallur Birgisson Sólveig Ásta Karlsdóttir Allan Deis Stella, Tinna, Kalli, Freyja og Anna Björk. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Elísabet Guðjónsdóttir Sóltúni 2 , Reykjavík, lést að heimili sínu miðvikudaginn 21. janúar. Útförin verður auglýst síðar. Kristján S. Baldursson Elsa Baldursdóttir Kristján Guðmundsson Guðjón Baldursson Bryndís Guðjónsdóttir Birgir Bragi Baldursson Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför okkar ástkæra eiginmanns, föður, sonar og tengdaföður, Lúðvíks Friðrikssonar verkfræðings, Sóleyjarrima 19, Reykjavík. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki heimahlynning- ar, 11-E og allra þeirra sem lögðu hönd á plóg. Áshildur Þorsteinsdóttir Kristín Guðrún Lúðvíksdóttir Anna Sigga Lúðvíksdóttir Þorsteinn Lúðvíksson Marta Silfá Birgisdóttir Friðrik Ólafsson Kristín Lúðvíksdóttir Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar elskulegrar móður okkar, tengdamóður og ömmu, Guðlaugar Brynju Guðjónsdóttur Laugarásvegi 20, Reykjavík. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki 5. hæðar á hjúkrunarheimilinu Skjóli fyrir frábæra umönnun og hlýju. Guðjón Jens Guðjónsson Shelly Ólafsson Bryndís Guðjónsdóttir Guðjón Baldursson Brynja Guðjónsdóttir Ása Björk Guðjónsdóttir Daniel Oates Ólafur Kjartan Guðjónsson og barnabörn. Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafað- ir, afi og langafi, Bjarni Björnsson Álfalandi 8, Reykjavík, lést á hjúkrunarheimilinu Sóltúni mánudaginn 19. janúar. Jarðarförin fer fram frá Bústaðakirkju þriðju- daginn 27. janúar kl. 13.00. Þeir sem vilja minnast hans er bent á minningarsjóð Sóltúns. Valgerður Gísladóttir Sólborg Bjarnadóttir Sigurður Júlíus Kristinsson Dagbjört Bjarnadóttir Páll Högnason Hjalti Bjarnason Kristín Kristjánsdóttir Sigríður Bjarnadóttir Jón Orri Magnússon barnabörn og barnabarnabörn. Móðir okkar, tengdamóðir, amma, lang- amma, systir og mágkona, Regína Anna Hallgrímsdóttir (Bíbí) frá Búðardal, síðast til heimilis að Lindargötu 57, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju mánudaginn 26. janúar kl. 15.00. Sérstakar þakkir færum við starfs- fólki deildar 12 E á Landspítalanum við Hringbraut fyrir umönnun og hlýhug í hennar garð. Hallgrímur Guðmundsson Súsanna Dubrowsky Sólrún Hjálmarsdóttir Dave Zimmermann Vilmundur Hjálmarsson og aðrir aðstandendur.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.