Fréttablaðið - 23.01.2009, Blaðsíða 39
FÖSTUDAGUR 23. janúar 2009 27
Bandaríkjamaðurinn Seanie Blue
var svo ánægður með hljómsveit-
ina Nóru að hann borgaði hljóð-
verstíma undir sveitina. „Þetta
er náungi sem kom hingað fyrir
löngu en kom svo aftur núna í
kreppunni. Hann segist hrífast
svo af sköpunarkraftinum sem
hann segist finna í ástandinu
hérna núna,“ segir Auður Viðars-
dóttir, söngkona hljómsveitarinn-
ar Nóru.
Seanie Blue hefur fengist við
sjónvarpsþáttagerð og ljósmynd-
un og bloggar um upplifun sína á
Íslandi. „Þetta er ægilegur töff-
ari og talar rosalega mikið og
„name-droppar“ alls konar „und-
erground“-liði,“ segir Auður.
„Hann hitti frænda okkar á
borgarafundi sem sagði honum
að hlusta á lögin okkar á mæspeis
(myspace.com/noraband). Svo
fékk hann að koma á æfingu hjá
okkur. Við tókum „Guns of Brixt-
on“ eftir Clash og okkar eigin lög
og hann heimtaði að fá að borga
undir okkur stúdíótíma. Það var
auðvitað sjálfsagt. Við vorum í
Hljóðrita langt fram á nótt og
tókum upp eitt lag, Skóflaðu mig,
og svo grófar útgáfur af fleiri
lögum. Það er auðvitað gaman að
fá viðbrögð og flott að einhver
vilji borga fyrir okkur hljóðvers-
tíma.“
Hljómsveitin Nóra spilar ljúft
indípopp og hefur verið starfandi
í eitt og hálft ár. Auður segir að
þau hafi verið dugleg að spila á
síðasta ári og ætli að setja allt
aftur í gang í febrúar. - drg
Nóra græðir
á kreppunni
LJÚFT INDÍPOPP Hljómsveitin Nóra var í
hljóðveri.
Opið laugardag 11 - 18 // sunnudag 12 - 17
4 2
fyrir
Enn meiri verðlækkun
Útsölumarkaðurinn Grensásvegi 15
Lokahelgi
Stjörnuparið Tom Cruise og Katie
Holmes íhugar nú að flytja til
London. Ástæðan er sú að þau
vilja bæði taka að sér hlutverk
í leikritum á West End. Katie
Holmes lék nýlega í leikverki Art-
hurs Miller, All My Sons, á Broad-
way og naut þess svo að hún vill
gjarnan taka að sér meiri sviðs-
leik. Cruise, sem þekktur er fyrir
hlutverk í kvikmyndum á borð við
Top Gun og Mission Impossible,
vill gjarnan feta í fótspor eigin-
konunnar. Krúsi er tilbúinn til að
flytjast til London.
„Það myndi vera frábært. Katie
var alveg frábær á Broadway og
það myndi vera einstakt að vinna
á West End. Þetta er auðvitað eitt-
hvað sem má skoða fyrir okkur
bæði. Ég held að við myndum
kunna vel við okkur í Bretlandi,
þrátt fyrir kuldann!“ segir Tom
Cruise.
Vilja bæði
leika á sviði
SPENNT FYRIR WEST END Tom Cruise
og Katie Holmes íhuga nú að flytjast til
Englands til að geta tekið að sér hlut-
verk í leikritum á West End.
NORDICPHOTOS/GETTY
Kraftmikill Hjörvar
A Copy of Me er önnur plata
Hjörvars Hjörleifssonar, en þá
fyrri, Paint Peace sem kom út
árið 2004, gerði hann undir lista-
mannsnafninu Stranger. Hún fékk
góðar móttökur og var meðal ann-
ars tilnefnd til Íslensku tónlistar-
verðlaunanna.
Paint Peace var tekin upp í
heimahljóðveri Hjörvars, en A
Copy of Me tók Hjörvar upp ásamt
hljómsveit í Puk Recording Stu-
dios í Danmörku. Hljómsveitin
sem spilar með Hjörvari er ekki
af verri endanum, en í henni eru
þeir Addi, Guðni og Tobbi úr Dr.
Spock og Hrafn úr Ensími, en í
einstaka lögum koma að auki við
sögu Barði Jóhannsson sem spilar
á gítar, Lára Rúnarsdóttir sem
bakraddar og fleiri.
Tónlist Hjörvars er undir tölu-
verðum áhrifum frá yfirlýst-
um áhrifavöldum hans eins og
Depeche Mode og Gary Numan,
en sterkust eru áhrifin að mínu
mati frá David Bowie. Söngrödd
Hjörvars minnir töluvert á Bowie
og lagasmíðarnar og útsetningar
sömuleiðis, hvort sem Hjörvar
tekur þessi áhrif beint frá Bowie
eða í gegn um fyrrnefnda lista-
menn.
Styrkur Hjörvars er sem fyrr
fínar lagasmíðar og góður söngur,
en að auki hefur mikið verið gert
til þess að búa til flottan hljóm
á A Copy of Me. Platan hefur
sterkan heildarsvip, en hún er
alls ekki einsleit; lögin hafa hvert
sinn karakter. Þannig setur hrátt
bassasánd til dæmis sterkan svip
á News For Everyone, hljómborð
og rafmagnsgítarar einkenna A
Copy of Me, í See the Sea og Moth-
ers er píanó grunnhljóðfærið og í
Bring Out The Dead fær kassagít-
arinn að njóta sín. Lögin eru mis-
hörð og hröð, en það er kraftur í
þeim öllum.
Á heildina litið er hér komin
fín plata frá listamanni sem fer
sína eigin leið og stendur greini-
lega á saman um það hvort tónlist-
in hans fellur að tískustraumum
samtímans eða ekki.
Trausti Júlíusson
TÓNLIST
A Copy of Me
Hjörvar
★★★★
Styrkur Hjörvars eru fínar lagasmíð-
ar, góður söngur og flottur hljómur.
Kraftmikil plata frá listamanni sem
fer sínar eigin leiðir.