Fréttablaðið - 23.01.2009, Page 41
FÖSTUDAGUR 23. janúar 2009 29
Nýjasta mynd söngkonunnar
Mariuh Carey, Push, var frum-
sýnd á Sundance-kvikmyndahá-
tíðinni um síðustu helgi. Carey
fékk slæma gagnrýni fyrir
frammistöðu sína í Glitter sem
kom út 2001 og vill nú ólm sýna
að hún hafi eitthvað fram að færa
á hvíta tjaldinu.
Í hinni dramatísku Push, sem
er byggð á metsölubók, leikur
Carey konu sem aðstoðar móður
á unglingsaldri við að glíma við
erfiða fortíð sína. „Ég var mjög
hrifin af bókinni þegar ég las
hana, að ég held árið 1998, og
síðan þá hefur hún verið greypt
í minni mínu,“ sagði Carey. Hún
er ekki eini popparinn sem leik-
ur í myndinni því Lenny Kravitz
kemur þar einnig við sögu.
Í dramatískri
kvikmynd
MARIAH CAREY Söngkonan vinsæla
ætlar sér stóra hluti á hvíta tjaldinu í
framtíðinni.
Íslensk-belgíska hljómsveitin
Mógil er á leiðinni í tónleikaferð
um Belgíu í febrúar. Sveitin spilar
tilraunakennda djasstónlist með
þjóðlegu, klassísku ívafi og hlaut
fyrsta plata hennar, Ró, tilnefningu
til Íslensku tónlistarverðlaunanna
í ár.
„Þetta verða tónleikar á hverju
kvöldi í heila viku. Þetta verður
æðislegt,“ segir söngkonan Heiða
Árnadóttir. Meðal annars spila þau
í hinu virta tónleikahúsi í Brussel,
Salle Moliere.
Platan Ró kom út hjá belgíska
útgáfufyrirtækinu Radical Duke
síðasta haust og í kjölfarið fór Mógil
í tónleikaferð um Holland, Belgíu
og Lúxemborg. „Við fengum alveg
frábærar viðtökur. Það var alltaf
fullt hjá okkur,“ segir Heiða.
Gagnrýnendur hafa hampað plöt-
unni mjög og virðist Icesave-ævin-
týrið ekkert hafa komið í veg fyrir
góða dóma. „Þrátt fyrir Kaupþing
er besta belgíska platan í augna-
blikinu Ró með íslensku hljóm-
sveitinni Mógil,“ sagði einn gagn-
rýnandinn. - fb
Mógil í tónleikaferð um Belgíu
MÓGIL Heiða Árnadóttir, Hilmar Jensson, Ananta Roosens og Joachim Badenhorst.
Breska söngkonan vinsæla Lily
Allen ætlar að spila á Glaston-
bury-tónlistarhátíðinni sem
verður haldin í júní. „Ég elska
Glastonbury,“ sagði hún. „Ætla ég
að spila í ár? Það hefur ekki verið
tilkynnt en ég hefði mikinn áhuga
á því að spila klukkan sex á föstu-
deginum. Úps.“ Orðrómur er
einnig um að Neil Young, Bruce
Springsteen og Blur stígi á svið á
hátíðinni. Nýlega bárust fregnir
af því að þegar hefðu um 90 pró-
sent miða á Glastonbury selst og
því greinilegt að hátíðin hefur
hvergi nærri misst sjarma sinn.
Lily Allen á
Glastonbury
LILY ALLEN Söngkonan Lily Allen spilar á
Glastonbury-hátíðinni í ár.
Murta St. Calunga, nýjasta
plata Benna Hemm Hemm, er
nýkomin út í Japan. Fyrirtæk-
ið Afterhours gefur plötuna út
þar í landi í samstarfi við Kimi
Records.
Mikil vinna hefur verið lögð
í textaþýðingar og greinargóð-
ar skýringar sem fylgja með
plötunni og því greinilegt að
miklar vonir eru bundnar við
útgáfuna.
Murta St. Calunga kom út
síðasta sumar við góðar undir-
tektir og því má telja líklegt að
Japanir eigi einnig eftir að taka
plötunni opnum örmum.
Ný plata Benna
kemur út í Japan
BENNI HEMM HEMM Nýjasta plata Benna
Hemm Hemm er komin út í Japan.