Fréttablaðið - 23.01.2009, Síða 42
30 23. janúar 2009 FÖSTUDAGUR
sport@frettabladid.is
FÓTBOLTI Fjölnismaðurinn Gunn-
ar Már Guðmundsson heldur út
til æfinga hjá enska c-deildar-
félaginu Crewe Alexandra á
morgun en þar er Guðjón Þórðar-
son við stjórnvölinn. Ef allt geng-
ur að óskum hjá Gunnari Má
mun hann líklega gera láns-
samning við félagið fram á
sumar.
„Maður þorir ekki að vona
of mikið en þetta kemur allt
í ljós eftir þessa viku sem ég
mun æfa með liðinu. Ef það
gengur vel þá mun ég skrifa
undir lánssamning við félag-
ið og kem þá ekkert aftur
heim fyrr en í maí,“ segir
Gunnar Már.
Gunnar Már vakti verðskuld-
aða athygli fyrir spilamennsku
sína með Fjölni síðasta sumar og
fór meðal annars út til æfinga hjá
norska félaginu Lyn í vetur.
„Maður hefur náttúrlega stefnt
leynt og ljóst að því að fara út.
Ég var líka sæmilega passífur
í kringum jólin þannig að ég
er ekkert of þungur, en maður
mætti sjálfsagt vera létt-
ari og það verður fljótt
að koma,“ segir Gunn-
ar Már á léttum
nótum. - óþ
Gunnar Már Guðmundsson æfir með Crewe í viku:
Lánssamningur
á teikniborðinu
GUNNAR MÁR Gæti
dvalið hjá Crewe fram
í maí. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Það var stutt Danmerkurævintýri Önnu Úrsúlu Guðmundsdóttur
sem gekk á dögunum til liðs við danska úrvalsdeildarliðið
TEAM Esbjerg. Anna náði ekki að spila leik með liðinu áður
en hún meiddist illa á ökkla á æfingu. „Ég missteig mig illi-
lega á æfingu á þriðjudaginn. Ég er með trosnuð eða slitin
ytri og innri liðbönd í hægri ökklanum. Það er örugglega
langur tími þangað til að ég verð spilfær aftur,“ segir Anna
Úrsúla en næstu skref eru í skoðun. „Við erum búin að vera
að velta fyrir okkur hvort það væri ekki sniðugast fyrir
bæði mig og liðið að ég komi bara heim og þeir
finni annan leikmann í þennan tíma,“ segir Anna
en hún er með ökklann í spelku og gengur um
á hækjum. „Það heldur ekkert við ökklann. Það
er eiginlega betra að þetta sé slitið því þá geta
þeir bara saumað þetta. Það tekur oft lengri
tíma að finna stöðugleikann aftur ef þetta er
trosnað en ekki slitið,“ segir Anna sem er að
ræða við félagið um hvað sé best að gera í
stöðunni. „Þetta er svolítið dýrt fyrir bæði mig og
liðið að halda uppi leikmanni sem getur ekki spilað og aðeins með
hálfsárs samning. Ég get tekið endurhæfinguna heima þar sem ég
er með miklu betri aðstöðu og einhver getur keyrt mig. Ég hefði
samt ekki tekið illa í það að vera áfram hérna úti en fólk áttar sig
kannski ekki á hversu mikinn tíma og pening þetta kostar fyrir
félagið,“ segir Anna.
Anna Úrsúla tekur þessu áfalli af sönnum íþróttaanda og
ætlar sér að koma aftur til baka. „Maður brosir bara í gegnum
tárin. Ég er svo vön því að óheppnin elti mig þannig að fólk
er bara farið að gera grín að mér. Það er ekkert hægt að
gera nema standa upp og halda áfram,“ segir Anna og
hún sér sig upplifa atvinnumannadrauminn einhvern
tímann síðar. „Þetta er ekkert „mega“, alls ekki. Þetta
er „bömmer“. Maður verður bara að halda áfram og
reyna að komast aftur í sömu aðstöðu. Það er ekkert
hægt að grenja yfir þessu en það tekur bara tíma að
koma sér aftur á stað. Hvernig leikmaður væri maður
ef maður gæfist bara upp við nokkrar hindranir?“
sagði Anna að lokum.
ANNA ÚRSÚLA GUÐMUNDSDÓTTIR: MEIDDIST ILLA Á ÖKKLA OG ER HUGSANLEGA Á HEIMLEIÐ FRÁ DANMÖRKU
Farið að gera grín að því hversu óheppin ég er
> Hundrað prósent nýting á úrslitastundu
Helena Sverrisdóttir tryggði TCU 81-78 sigur á Wyoming
með því að nýta öll sex vítin sín á síðustu 83 sekúnd-
um leiksins. Helena lét ekki þunna
loftið trufla sig en leikurinn fór
fram í Laramie í Wyoming sem
stendur í 2.184 metra hæð yfir
sjávarmáli. Þetta var í fyrsta
sinn sem TCU nær að vinna
leik á þessum stað. Helena
var með 21 stig, 8 fráköst
og 4 stoðsendingar og
TCU hefur nú unnið 4 af
fyrstu fimm leikjum sínum í
Mountain West-deildinni.
HANDBOLTI Riðlakeppni HM í
handbolta í Króatíu lauk í gær og
þá var ljóst hvaða tólf lið komust
inn í milliriðil.
Makedónar unnu 36-30 sigur á
Rússum og skildu þá eftir í C-riðl-
inum en Makedónar sáu einmitt
til þess að Íslendingar eru ekki
á HM. Spánverjar komust held-
ur ekki áfram upp úr B-riðli eftir
23-24 tap á móti Kóreu í úrslita-
leik um sæti í milliriðlinum. - óój
HM í handbolta í Króatíu:
Rússland og
Spánn úr leik
FRÁBÆR Kiril Lazarov (t.h.) er búinn að
skora 53 mörk HM. NORDICPHOTOS/GETTY
HANDBOLTI Enginn skal afskrifa lið
FH í baráttunni um titilinn. Liðið
hefur styrkst í fríinu og spilaði
flottan leik gegn toppliði Fram í
gær og vann verðskuldaðan sigur,
39-35.
Viggó Sigurðsson, þjálfari Fram,
kom nokkuð á óvart með því að
geyma Rúnar Kárason á bekknum
í upphafi og stilla Jóhanni Gunnari
Einarssyni upp í skyttustöðunni
hægra megin. Í horninu var síðan
hinn rétthenti Guðjón Drengsson
sem átti flottan leik.
Heimamenn voru talsvert
grimmari framan af, keyrðu
grimmt á hraðaupphlaupum og
skoruðu úr 8 slíkum í fyrri hálf-
leik. Fram var alltaf að elta en
sóknarleikur liðsins varð mark-
vissari eftir að Rúnar kom inn
fyrir Jóhann sem meiddist. Rúnar
kom með mikla skotógnun og skor-
aði ein 6 mörk í hálfleiknum.
Sóknarleikur FH var nokkuð
stirður framan af en skánaði er
leið á og þá hitnaði Aron Pálmars-
son einnig. FH-ingar voru duglegir
að finna línuna þar sem Sigurður
Ágústsson var sterkur. FH leiddi
í leikhléi, 20-17, og munaði helst
um markvörsluna sem var þolan-
leg hjá FH en lítil sem engin hjá
Fram.
Fram byrjaði á því að taka Aron
strax úr umferð í upphafi síðari
hálfleiks. Davíð Svansson hrökk í
gírinn og varði 20 skot í hálfleikn-
um. Það var ekki nóg fyrir Fram
því sóknarleikurinn var afar brös-
óttur hjá þeim og þeir sífellt að
elta, voru allt frá einu upp í fjórum
mörkum á eftir. Aðeins munaði
marki þegar sex mínútur lifðu
leiks en taugar FH voru sterk-
ari. Guðmundur Pedersen skoraði
mikilvæg mörk sem og Aron undir
lokin. Einnig munaði um innkomu
Hilmars Guðmundssonar í markið
en hann varði mikilvæga bolta. FH
vann sanngjarnan fjögurra marka
sigur og er búið að stimpla sig inn
á nýjan leik.
„Þetta var hörkustuð og á bara
eftir að verða skemmtilegra eftir
því sem á líður,“ sagði landsliðs-
maðurinn Bjarni Fritzson sem
spilaði sinn fyrsta leik fyrir FH í
gær. Hann vann sig vel inn í leik-
inn og komst vel frá sínu. „Það var
gott að geta sett nokkur mörk og
ekki ónýtt að byrja á því að leggja
toppliðið að velli.“
Stefán Baldvin Stefánsson Fram-
ari spilaði sinn fyrsta leik í nokkra
mánuði fyrir Fram en hann er
aðeins með 15 prósenta sjón á öðru
auganu. Hann ætlaði upprunalega
að spila með gleraugu frá Valsar-
anum Sigfúsi Páli Sigfússyni en
hætti við skömmu fyrir leik.
„Ég sá bara ekki neitt með þeim.
Annars var gaman að koma aftur
og þetta gekk ágætlega,“ sagði
Stefán sem skoraði fín mörk í fyrri
hálfleik en spilaði ekkert í þeim
síðari. „Mig vantar spilform en
gekk samt þokkalega, ég veit alveg
hvar markið er enn þá,“ sagði Stef-
án léttur en hann var ekki kátur
með leik sinna manna. „Við gátum
ekkert. Ég veit ekki hvað var að en
við vorum ekki tilbúnir í dag.“
henry@frettabladid.is
Guttarnir stimpl-
uðu sig aftur inn
FH-ingar byrja nýja árið með stæl en þeir lögðu
topplið Fram, 39-35, í gær. FH gaf eftir undir lok
síðasta árs en mætir sterkara til leiks á nýju ári.
GRIMMIR Örn Ingi Bjarkason og félagar í FH unnu toppliðið í gær. Hér sækir Örn að
varnarmönnum Framara, Brjáni Bjarnasyni og Rúnari Kárasyni. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON