Fréttablaðið - 23.01.2009, Síða 46
34 23. janúar 2009 FÖSTUDAGUR
„Eins og ég hafi pantað þetta,“
segir Ari Magg, auglýsinga- og
tískuljósmyndari, og einhver sá
virtasti á sínu sviði.
Mótmælin á Hverfisgötu fyrir
framan Þjóðleikhúsið og Þjóð-
menningarhúsið að kvöldi mið-
vikudags voru sérlega mögnuð.
Mikill mannfjöldi hafði safnast
þar saman og kveikt bál við tröpp-
ur leikhússins og hrópaði: „Van-
hæf ríkisstjórn!“ Og barði í potta
og pönnur. Búsáhaldabyltingin
stóð sem hæst. Í Þjóðleikhúskjall-
aranum var fundur hjá Reykja-
víkurfélagi Samfylkingar. Þegar
þau tíðindi spurðust að samþykkt
lægi fyrir um að slíta bæri stjórn-
arsamstarfinu greip fögnuður um
sig meðal fólks. Erpur Eyvindar-
son tónlistarmaður, sem staðið
hefur framarlega í flokki mótmæl-
enda, taldi í samtali við blaðamann
Fréttablaðsins, sigur hafa unnist.
Stjórnin væri tæknilega fallin. Og
fór ásamt fjölda annarra á næstu
krá til að fagna.
Meðan þessu fór fram var einn
fremsti ljósmyndari landsins í
óvæntri kjöraðstöðu. Mótmæl-
in fóru fram nánast fyrir framan
stóran glugga ljósmyndastúdíós
hans. Það stendur í portinu sem
er gegnt Þjóðleikhúsinu. Útsýnið
var kjörið.
„Þetta var skemmtilegt. Ég
hafði einkaútsýni yfir þetta og
náði ágætis myndum. Reyndar
hefur líka verið hægt að mynda af
bílastæðahúsinu. Ég hafði einmitt
farið kvöldið áður að Alþingishús-
inu. Og var þá að horfa á nokkra
staði í kring sem hefði verið gott
að geta stillt sér upp á. Svo gerist
þetta að næsta kvöld er þetta beint
fyrir framan glugga minn.“
Víst er að búsáhaldabyltingin
býður upp á frábært myndefni og
mótív fyrir ljósmyndara og töku-
menn. Margar myndavélar voru
á lofti. Gósentíð fyrir ljósmynd-
ara. „Þetta eru spennandi tímar
fyrir blaðaljósmyndara og aðra
ljósmyndara einnig. Ég veit um
nokkra kollega sem hafa fylgst
með þessu frá upphafi,“ segir Ari
sem góðfúslega veitti Fréttablað-
inu sýnishorn af því sem við blasti
frá ljósmyndastúdíói hans.
jakob@frettabladid.is
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
BESTI BITINN Í BÆNUM
LÁRÉTT
2. mælieining, 6. drykkur, 8. töffari, 9.
bókstafur, 11. í röð, 12. skopleikrit, 14.
græða, 16. samtök, 17. skurðbrún, 18.
óðagot, 20. hreyfing, 21. stefna.
LÓÐRÉTT
1. vísupartur, 3. einnig, 4. nagdýr, 5.
málmur, 7. ótvíræður, 10. frjó, 13.
atvikast, 15. sóða, 16. ái, 19. 2000.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. volt, 6. te, 8. gæi, 9. eff,
11. mn, 12. farsi, 14. lækna, 16. aa,
17. egg, 18. fum, 20. ið, 21. ismi.
LÓÐRÉTT: 1. stef, 3. og, 4. læmingi,
5. tin, 7. efalaus, 10. fræ, 13. ske, 15.
agða, 16. afi, 19. mm.
ARI MAGG: MEÐ EINKAÚTSÝNI YFIR BÚSÁHALDABYLTINGUNA
Ljónheppinn tískuljósmyndari
„Maður er eiginlega alveg orðinn
ruglaður. Ég held að ég sé bókað-
ur í viðtöl langt fram eftir kvöldi,“
segir morgunhaninn Heimir Karls-
son. Lopapeysusöfnun útvarpsþátt-
arins Ísland í bítið virðist sanna
fyrir fullt og allt að Íslendingar
bera engan kala til Breta.
Í gærkvöldi sigldi nefnilega
Arnarfellið áleiðis til Hull með
tuttugu tonn af hvers kyns lopa-
vörum, rúma fimmtíu rúmmetra
af lopapeysum, síðbrókum, húfum
og vettlingum. Heimir segir áhuga
breskra fjölmiðla á þessari einstöku
söfnun vera með ólíkindum. Hann
velti því jafnvel fyrir sér hvort tími
sé kominn til að ráða fjölmiðlafull-
trúa. „Daily Telegraph, Daily Mail
og Fokal-Radio í Stoke hafa öll haft
samband í dag,“ útskýrir Heimir
sem hafði lítinn tíma til að spjalla
enda bókaður í annað viðtal aðeins
nokkrum mínútum seinna. Rúsín-
an í pylsuendanum er þó án nokk-
urs vafa umfjöllun morgunþáttar
BBC sem sjónvarpar beint frá því
þegar Arnarfell leggst að bryggju
eftir siglingu upp Humber-ána á
mánudagsmorgun. Heimir og Kol-
brún Björnsdóttir verða að sjálf-
sögðu viðstödd.
Breskir blaðamenn hafa velt því
fyrir sér hvers vegna í ósköpunum
Íslendingar séu að leggja Bretum
lið, svona í ljósi þess að bresk yfir-
völd, með Gordon Brown fremst-
an í flokki, settu hryðjuverkalög á
landið. Heimir svarar því yfirleitt
til að þetta séu óskyld mál. „Okkur
fannst bara skelfilegt til þess að
hugsa að gamalmenni í vestrænu
ríki væru að frjósa úr kulda,“ segir
Heimir sem tekur þó fram að það
hafi verið Íslendingafélagið í Bret-
landi sem hafi átt hugmyndina að
þessu framtaki. - fgg
Heimir og Kolla í beinni á BBC
HEIMIR KARLSSON Bretar eru himinlif-
andi með ullargjöf Íslendinga.
„Það er jarðarberjagleði á
Wellness Café í Sporthúsinu í
Kópavogi. Þetta er bæði bragð-
gott og hollt.“
Guðlaug Birna Aradóttir, nemi í íþrótta-
fræðum.
Formenn Sjálfstæðisflokks og
Vinstri grænna mættu í viðtal til
Sigmars Guðmundssonar
í Kastljós á miðviku-
dagskvöld en á sama
tíma var verið að senda
út Gettu betur á Rás
2. Talsverður fjöldi
ungmenna var
saman kominn á
Markúsartorgi og
leið Steingríms
J. Sigfússonar lá
í gegnum unglingafjöldina á leið í
förðun án þess að nokkur tæki eftir
því sérstaklega. Hins vegar var eins
og Geir Haarde forsætisráðherra
félli af himnum ofan í stúdíóið – en
honum var smyglað inn bakdyra-
megin en áður voru FBI-legir menn
búnir að taka svæðið út. Ekki þótti
á það hættandi að leiða hann um
meðal unglinganna.
Gestur Bubba Morthens í
útvarpsþættinum Færi-
bandið síðasta mánu-
dagskvöld var Geir H.
Haarde. Bubbi boðaði
5. gráðu yfirheyrslu en
þeir sem bjuggust
við boxi heyrðu
sérlega kurt-
eisan gúanór-
okkara spyrja
forsætisráðherra en Bubbi ætlar að
gera sig gildandi í þjóðfélagsum-
ræðunni og lagar nú grillvökvann.
Björgvin G. Sigurðsson viðskipta-
ráðherra er næstur á dagskrá hjá
Bubba og verður spennandi að vita
hver staða mála verður þá nú þegar
stjórnin rambar á barmi gjaldþrots.
Nýlega tók sjónvarpsstjarnan Pacas
úr Hæðinni við sem afleysinga-
kokkur í leikskólanum Sæborg við
Ægisíðu í Reykjavík. Krakkarnir og
starfsfólkið þar er vant góðum mat
og ekki hefur matar-
lystin minnkað eftir
að Pacas kom í
eldhúsið. Hann
reiðir nú fram svo
framandi og
ljúffenga
rétti að allur
skólinn
stendur
gjörsam-
lega á
blístri.
- jbg, drg
FRÉTTIR AF FÓLKI
BÚSÁHALDABYLTING SÉÐ
FRÁ STÚDÍÓI ARA MAGG
Ljósmyndarinn Ari Magg segir það hafa
verið skrítna tilfinningu að koma til vinnu
í fyrrakvöld. Þá blöstu mótmælin við
Hverfisgötu við beint út um glugg-
ann hjá honum. Í stúdíóinu hvílir
stór innrömmuð mynd af Ólafi
Ragnari sem Ari tók á sínum
tíma fyrir TIME.
„Þetta er bara fyndið. Auddi var að
hringja í mig og flauta þetta af. Þá
var allt orðið vitlaust,“ segir Benja-
mín Þór Þorgrímsson sem betur
er þekktur sem Benni Ólsari sem
komið hefur við sögu í fréttum af
handrukkunum.
Hinir landsþekktu, dáðu og elsk-
uðu grínarar Auddi og Sveppi byrja
með glænýjan sjónvarpsþátt á Stöð
2 í kvöld en þeir hafa hugsað sér að
taka beygju, henda sér inn í þjóð-
félagsumræðuna miðja en þær
fyrirætlanir hafa steytt á stein-
um. Þeir hafa verið að taka púls-
inn á mótmælunum og voru búnir
að finna einkar áhugaverðan við-
mælanda, nefnilega Benna Óls-
ara, og ætluðu að ræða við hann
um heima og geima – þjóðfélags-
málin. En þá kom babb í bátinn.
Audda og Sveppa var ekki kunnugt
um að fyrir dyrum stæðu mála-
ferli Benna á hendur fyrirtækinu
365 vegna Kompássþáttar þar sem
Benni kom við sögu.
„Þetta var nú eiginlega eina við-
talið sem ég ætlaði að veita,“ segir
Benni. „Ég hefði alveg verið til í að
hitta þá og grína aðeins með þeim.
En þeir vissu náttúrulega ekk-
ert um þessa stefnu. Saklausir og
skemmtilegir strákar sem eru að
gera einhvern grínþátt.“
Sveppi kýs að tjá sig ekki um
málið en Fréttablaðið hefur heim-
ildir fyrir því að sá gestur sem
hleypur í skarðið fyrir Benna sé
enginn annar en Ólafur F. Magnús-
son, fyrrverandi borgarstjóri. - jbg
Ólafur F. ryður Benna Ólsara út
SVEPPI OG AUDDI Í MIÐJU MÓTMÆLANNA Í þættinum í kvöld verður enginn Benni
Ólsari eins og til stóð en í hans stað kemur Ólafur F. Magnússon. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
M
YN
D
/A
R
I M
A
G
G
...ég sá það á visir.is