Fréttablaðið - 27.01.2009, Blaðsíða 11
ÞRIÐJUDAGUR 27. janúar 2009 11
Umsjón: nánar á visir.is
MESTA HÆKKUN
STRAUMUR B. +15,45%
FØROYA BANK +0,89%
ICELANDAIR G. +0,08%
MESTA LÆKKUN
ÖSSUR -1,45%
BAKKAVÖR -0,49%
HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU: Alfesca 3,90 +0,00% ... Atlantic
Airways 168,00 +0,00% ... Atlantic Petroleum 570,00 +0,00% ...
Bakkavör 2,04 -0,49% ... Eik Banki 91,50 +0,00 ... Eimskipafélagið
1,29 +0,00% ... Føroya Banki 114,00 +0,89% ... Icelandair Group
13,31 +0,08% ... Marel Food Systems 65,10 +0,00% ... SPRON 1,90
+0,00% ... Straumur-Burðarás 1,42 +15,45% ... Össur 95,10 -1,45%
Forkólfar heimsins á ýmsum sviðum,
alls 2.500 manns, tygja sig fyrir árs-
fund Alþjóðaefnahagsráðsins (e.
World Economic Forum) í bænum
Davos í Sviss sem hefst á morgun.
Hún stendur fram á sunnudag.
Efnahagskreppan og aðgerðir til
að endurbyggja hagkerfi heimsins að
henni undangenginni eru helstu mál
á dagskrá.
Breska viðskiptablaðið Financial
Times segir hremmingar undanfarna
mánuða setja mark sitt á fundinn og
verði hann á lágstemmdari nótum
en fyrri ár. Bandaríski fjárfestinga-
bankinn Goldmans Sachs, sem haldið
hefur bestu veislurnar fram til þessa,
sendir færri fulltrúa í ár og hefur
blásið teiti sitt af auk þess sem morg-
unverðarfundur með John Thain,
fyrrverandi forstjóra Merrill Lynch,
var tekinn af dagskrá eftir að honum
var sparkað í síðustu viku.
Á meðal þátttakenda eru Bill
Gates, stofnandi og fyrrverandi for-
stjóri bandaríska hugbúnaðarris-
ans Microsoft, sem situr ráðstefnuna
fyrir hönd styrktarsjóðs hans og
konu hans.
Tveir Íslendingar taka þátt í
ráðstefnunni í ár, en það eru þeir
Björgólfur Thor Björgólfsson,
athafnamaður og stjórnarformaður
Straums, og Jón Stephenson von
Tetzchner, stofnandi og forstjóri
norska vafrafyrirtækisins Opera
Software. Þetta er annar ársfundur-
inn sem Björgólfur situr en í fyrra
var hann þar í félagsskap listamanns-
ins Ólafs Elíassonar. - jab
Efnahagskreppan rædd í Davos
Icelandair
Group vinnur
að fjárhags-
legri endur-
skipulagningu
félagsins í sam-
starfi við við-
skiptabanka
sinn, sem er
Nýi Glitnir.
Fram hefur
komið í árs-
fjórðungsupp-
gjörum Ice-
landair Group
að félagið hafi verið með víxla
að fjárhæð 2,5 milljarðar króna á
gjalddaga 23. janúar síðastliðinn. Í
tilkynningu félagsins í gær kemur
fram að samið hafi verið við Nýja
Glitni um endurfjármögnun á
víxlunum til þriggja mánaða. „Að
undanförnu hefur verið unnið að
endurskipulagningu á fjármagns-
skipan samstæðunnar og á næstu
þremur mánuðum er gert ráð fyrir
að ljúka þeirri vinnu. Markmið
endurskipulagningarinnar er að
aðlaga endurgreiðsluferli skulda
að greiðslugetu samstæðunnar til
lengri tíma,“ segir í tilkynningu
félagsins. - óká
Unnið að end-
urfjármögnun
Sparisjóðabanki Íslands (áður
Icebank) hefur fengið frest til 28.
febrúar til að leggja fram frekari
tryggingar í kjölfar veðkalls sem
Seðlabanki Íslands sendi bankan-
um undir lok október síðastliðins.
„Unnið er að því að afla sam-
þykkis annarra stærstu lánveit-
enda bankans fyrir jafnlöng-
um fresti, en þeir lánveitendur
eru aðallega erlendir bankar. Að
undanförnu hefur verið unnið að
fjárhagslegri endurskipulagn-
ingu bankans með framangreind-
um aðilum og mun sú vinna halda
áfram næstu vikurnar,“ segir í til-
kynningu bankans til Kauphallar
í gær.
Jafnframt kemur fram að Fjár-
málaeftirlitið hafi sömuleiðis veitt
bankanum jafnlangan frest til að
koma eiginfjárgrunni sínum aftur
í það horf að hann uppfylli skilyrði
laga um fjármálafyrirtæki. - óká
Fá framlengdan
frest út febrúar
BJÖRGÓLFUR
JÓHANNS SON
Forstjóri Icelandair
Group.
DAGSKRÁNNI FLAGGAÐ Klaus Schwab, stofn-
andi og framkvæmdastjóri Alþjóðaefnahags-
ráðsins, kynnti sneisafulla dagskrá samtakanna
í síðustu viku. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
KAUPHÖLL ÍSLANDS [Hlutabréf]
Fjöldi viðskipta: 78 Velta: 186 milljóni
OMX ÍSLAND 15 OMX ÍSLAND 6
319 +1,24% 879 +1,97%
Kynntu þér úrræðin
Starfsfólk Kaupþings aðstoðar þig við allt sem tengist fjármálum heimilisins og breyttum
aðstæðum og leitar hentugra úrræða fyrir þig.
Kynntu þér málin á www.kaupthing.is, hafðu samband í síma 444-7000
eða komdu við í næsta í útibúi Kaupþings.
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
K
A
U
4
45
39
0
1/
09
Fjármálaráðgjöf fyrir þig
• Heimilisbókhald • Stöðumat • Netdreifing/útgjaldadreifing
• Úrræði í greiðsluerfiðleikum • Sparnaðarleiðir • Lífeyris- og tryggingamál